Þjóðviljinn - 02.07.1938, Side 2

Þjóðviljinn - 02.07.1938, Side 2
#> JÖÐ VILJINN Laugardaginn 2. júlí 1938. Fðr snnnleœskra bænda tll Norðnrlands. Viðtal við Þorstein Þ, Viglrandsson skölastjéra i Vestmannaey|um. pátttakendur í bændaförinni. Á aðalfundi Búnaðarsam- bands Suðurlands í fyrra, var ákveðið, að bændur og bænda fólk af sambandssvæðinu efndi til kynnisfarar á þessu 4ri til Norðurlands til þess að efla samhug milli sunnlenskra og norðlenskra bænda og til þess að kynnast búnaðarástandi og búnaðarframföruin í þeim landshlutum, sem farið var um. í för þessari tóku þátt um 140 manns, af sambandssvæðinu, er nær yfir Árnes- og Rangárvalla- sýslur, Vestmannaeyjar og Vestur-Skaftafellssýslu og lögðu þeir af stað þann 15. fyrra mán- aðar. Einn þeirra manna, sem var 'með í förinni, Þorsteinn Þ. Víg- lundsson skólastjóri í Vestm.- eyjum hefir skýrt Þjóðviljanum frá för þessari og segist hon- um svo frá: Við lögðum af stað þann 15.. júní og vorum um 140 saman, þar af um 30 konur. Við fór- um frá Ölfusárbrú snemma morguns og var förinni heitið að Korpúlfsstöðum. Þar skoð- uðum við búið. Síðan héldum við að Brúarlandi, en þar veitti Búnaðarsamband Kjjalarness okkur góðgerðir og fagnaði komu okk'ajr í héraðið. Frá Brú- arlandi fórum við að Reykjum í Mosfellssveit, skoðuðum þar gróðurhúsiu og ýmsar fleiri framkvæmdir. Frá Reykjum fórum við eins og leið liggur inn fyrir Hvalfjörð, um I eirár og Melasveit að Hvanneyri. Þar gistum við um nóttina og skoð- uðum byggingarnar, gríðarstórt fjós og heyhlöður, jarðyrkju- verkfæri og aðrar búnaðarfram- kvæmdir. Einn af ^ennurum skólans sýndi okkur þetta á- samt piltum, sem stunda þar verklegt nám í sumar. Daginn eftir var haldið af- stað og næsti náttstaður ákveð- inn á Blönduósi. En í leiðinni var komið að Reykholti ogsát- um við þar veislu í boði Bún- aðarsambands Borgarfjarðar. Frá Reykholti fórum við norð- ur í Miðfjörð að samkomuhúsi sveitarinnar. Voru Húnvetning- ar þar fjölmennir fyrir og veittu þeir ferðamönnum hið bezta Þaðan var haldið í Vatnsdal, til þess að sitja annað boð, sem Austur-Húnvetningar héldu okk ur. Var ' langt liðið af nóttu, er við náðum gististaðnum á Blönduósi. Þriðja daginn var ferðinni heitið að Hólum. í Hjaltadal en komið við á Sauðárkróki. Að Hólum skoðuðum við búnaðar- framkvæmdir og auk þess kirkj- una, sem er eitt af elstu og merkustu mannvirkjum hér á landi. Leizt leiðangursmönn- um vel á hvorttveggja og róm- uðu fegurð staðarins mjög. Fjórða daginn héldum viðfrá Hólum, norður Öxnadalsheiði og til Akureyrar. Daginn ef ir fórum við svo inn í Eyjafjörð að Saurbæ, skoðuðum búnað- arframkvæmdir og öntiur slik mannvirki þar um sveitir. Það skyggði þó nokkuð á gleðina, að jrann dag rigndi 1i! muna og veður var slæmt. Um kvöldið var svo aftur haldið til Akur- eyrar og gist þar um nóttina. Sjötta daginn höfðum við stutta dagleið og fórum aðeins að Laugum og daginn eftir íil Húsavíkur. Áttunda daginn fórum við að Ásbyrgi. Þann dag var bjart veður og glaða sólskin. Varþað einhver unaðslegasti dagur ferð- arinnar, enda er landslag þar töfrandi fagurt. Um kvöldið héldum við svo austur yíir Jök- ulsá á Fföllum að Skinnastöð- um. Lituðumst við þar um dá- litla stund, eins og við gerðum allstaðar á ferð okkar. Hvar sem við komum voru menn boðnir og búnir til jiess að sýna okkur alla þá ahið og vinsemd er þeir máttu, skýra fyrir okk- ur það sem fyrir augun bar, hvort sem það var fögurfjalla- sýn eða framfarir í búnaðar- hátturn. Við komum svo að Húsavík um nóttina og gistum þar. Dag- inn eftir var haldið heimleiðis frá Húsavík, komið við á Akur- eyri, og gist um nóttina að Reykjum í Hrútafirði. Fimmta daginn var svo farið suður Holtavörðuheiði, um Norðurár- dal, Reykholtsdal, Hálsasveit og jjaðan um Kaldadal ti] Þingvalla Á Þingvöllum var svo haldin skilnaðarhátíð og - dreifðust inenn þaðan, hver til sinna heimkynna. Ferðin gekk að öllu leyti að óskum. Sunnlendingarnir mættu allstaðar hinni mestu gestrisni og velvild bænda þar sem þeir fóru um. Ég tel ferðina hafa reynst okkur lærdómsríka og hafa náð takmarki sínu í öll- um atriðum: að treysta vináttu- bönd milli landsfjórðunganna. Ég býst við að flestir hafi eign- ast þær endurminningar úr för- inni, sem ekki líði þeirn úr minni æfilangt. Utbreiðið t>óð vilj'ann I. R. bllllnn Stærsti vinningur sem nokkurntíma hef- ir fengist fyrir 1 krðnn 20. júlí verður dregið. Fyrir nokkru síðan, koni fvrir dómstólana í Danmörku hjónaskiln- aðarmál, sem vakti allmikið umtal. Konan gaf nefnilega þá skýringu fyrir réttinum að hún hefði gifsi manni sínum ti 1 þess að liann ann- aðist liana í framtíðinni, og hún fengi hlut í eignum hans ef þau skildu. En þegar hún hafði verið með manninum nokkra daga kvaðst hún hafa komist að þeirri niður- stöðu, að það horgaði sig ekki fyrir hana að láta manninn sjá fyrir sér. Rétturinn úrskurðaði líka, að liún skyldi ekki fá neitt. I ** Næst elzti sonur Conan Doyles, Adrian Conan Doyle, gifti sig ný lega danskri stúlku, Önnu Ander- sen. Eiginmaðurinn segist liafa kynnzt þessari tirúði sinni við kon- ungskrýninguna ensku í fyrra sum ar, en hún hafi komið þangað til þess að fyigjast með hátíðahöldun- um, og um leið til þess að gera innkaup á ýmsum fegurðarvörum. Brúðguminn lætur einnig þau orð falla um hana, að hún sé ein af allra fegursta konan í Danmörku. Hefir liann skýrt frá öllum þessum „ósköpum‘“ í viðtali við enskt hlað, en nú er eftir að vita, livað hann segir uin þessi mál, t d. að ári liðnu. ** Nýlega var haldið hátíðlegt 100 ára afmæli dýragarðsins í Amster- dam, og í tilefni af því var þar haldin ráðstefna með forstöðumönn um dýragarða frá 50 löndum. ** Það hefir verið bannað um nokk- urt skeið í Þýzkalandi að selja þeyttan rjóma. Nú hefir því banni: verið aflýst með þeiin forsendum að hvalveiðar Þjóðverja hafi gengið vel að undanförnu og eins hafi' mjólkurframleiðsla Þýzkalands vax- ið við sameiningu Þýzkalands og' Austurríkis. ** Thorvaldsen-safnið danska hefir ir nýlega fengið að gjöf hring einn forluinnarfagran, sem Thorvaldsen átti. Á mynd þeirri, sem Eckersberg; málaði af Thorvaldsen, sést hann með hring þennan, en Thorvaldseir gaf málaranum hringinn að laun- um, og hefir hann verið á flækingf síðan, unz hann fyrir skömmu síð- an var gefinn til safnsins, þar sem flestir minjagripir um Thorvaldsen eru geymdir ásamt listaverkum han:i Toivo Antikainen BaráitukveðÍQ frá Kommúnisia~ flokki Finnlands iil foringjans í fangelsinu. Antikainen, leiðtogi finnska kommúnistafl. Toivo Antikainen, fitinska verkalýðshetjan, sem setið htrf- ir í dýflissu sem pólitískur fangi árum saman, varð fertugur 10. júní. Kommúnistaflokkur Finn- lands sendi honum eftirfarandi afmæliskveðju: „Við sendum þér innilegar baráttukveðjur á fertugsafmæl- inu, inn í fangelsið, þar sem stéttaróvinurinn hefir þig í haldi. Þrátt fyrir allt ert þú ekki einn í dag, þú ert mitt í vorum hópi og styrkir okkur með þín- um óbilandi kjarki og bjartsýni. Á dekstu tímunum, þegar aft- urhaldið reyndi að þurrka út hvern snefil af lýðréttindum í landi voru, og heimtaði líflát þitt, ]>á stóðst þú sem hetja fyr ir dómstóli afturhaldsins, og varðir málstað verkalýðsins, þann málstað, er þú hefir barist fyrir allt jútt líf. Vér erum stoltir af ])ví að geta sagt þér frá því þenna dag, *ið í frelsisstríði spönsku alþýð- unnar berst finnsk vélbyssu- sveit, sem ber nafn þitt, ásamt annari liðssveit, er ber nafn finska bændaleiðtogans Jaakko Ilkka. Staðreyndirnar sýnaokkurað bjartsýni um málstað vorn átti fullan rétt á sér. Staðreyndir, svo sem hetjubarátta spönsku þjóðarinnar gegn innrásarherj- uni fasistanna, þjóðarvakningin og sjálfstæðisbaráttan í Kína, og þó framar öðru hinir glæsi- legu sigrar Sovétríkjanna. Einnig hin afturhaldssama burgeisastétt Finnlands hefir Framh. á 3. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.