Þjóðviljinn - 30.10.1938, Side 2
ÞJÖÐVILJINN
Sunnudagurinn 30. okt. 1938.
Póststjórnin í Venezuela hefir
komið því lagi á að innanlands geta
menn sent ástarbréf fyrir helming
venjulegs burðargjalcjs. En til þess
að ekki þurfi að efast um innihald-
ið skulu bréfin sett í ljósrautt um-
slag. En af því að póststjómin
grunaði menn um þá græsku að mis
nota örlæti hennar, reif hún upp
allmikið af bréfum til þess að ganga
úr skugga um, hvort hér væri um
raunveruleg ástarbréf að ræða eða
ekki. Af öllum þeim bréfum sem
þannig voru rannsökuð, voru að-
eins tiltölulega mjög fá um annað.
en ástir. Segja menn að útkoman'
mundi hafa orðið nokkuð önnur í
Skotlandi.
•*
iklnversk spakmœli uin konur:
Kona sem gætir sóma sínfjj í hví-
vetna, er fegurri en flestar af
stjörnum himinsins. Guðirnir virða
þá konu sem hugsar áður en hún
opnar munninn til þess að tala.
Það eru perlur sem streyma af vör-
um slíkra kvenna. — Líttu ekki við
hégómagjarnri konu, því að hún
heldur að enginn í heiminum sé
henni meiri. — Konan eiit í raun og
veru mesta þjáning mannsins, en
enginn græðir betur sár hans. —
Mikillát kona hrasar oft, því að hún
gefur sér aldrei tíma til þess að
líta niður fyrir fætur sína.
••
1 Mexiko vaxa kaktusar, sem eru
kallaðir orgel-kaktusar. Nafn þetta
hafa þeir fengið af því að blöðin
standa eins og orgelpípur.
•*
Sigarettur eru nú almennasta tó-
baksnautnin, en þó eru ekki nema
rúmlega hundrað ár síðan fyrst var
farið að búa þær til. Áður reyktu
menn einkum pípu. Fyrst um sinn
voru lagðar þungar refsingar við
slíku athæfi og voru þess jafnvel
dæmi, að menn voru teknir af lífi
fyrir þessar sakir.
**
— Vegna hvers er hjónafcandið
kallað heilagt?
— Vegna þess, að þar hafa svo
margir orðið píslarvottar.
••
— Hvaða ólæti eru þetta í eldhús
inu, Agnes.
— Það var aðeins mjólkurpóstur-
inn, sem vildi fá að kyssa mig.
— Og þú hefir þó ekki lofað hon-
um að kyssa þig?
— Jú, auðvitað lofaði ég honum
það.
**
Nyrzta gistihús jarðarinnar var
reist í sumar á Spitzbergen. Það
þarf auðvitað tæpast að taka það
fram, að gistihúsið heitir Hótel
Norðurpóll. Er þetta fyrsta flokks
hótel, enda sr ferðamannastraum-
urinn til Spitzbergen tekinn að auk-
ast mjög síðustu árin.
Karen og Sveinn pórarinsson
opnuöu málverkasýningu í
Markaðsskálanum við Ingólfs-
stræti í gær. Verður sýningin
daglega opin frá 10—9.
Leikhúsið
Leikfélagið sýnir gamanleikinn
„Fínt fólkíf í dag kl. 4. Verður
þetta síðasta sýning félagsins á
leiknum. Lækkað verð.
Hitler befir lofað að taka
Danmðrkn
Yfírgangur pfzhra nazísfa í Suð~
urwfóflandí.
Tvö þing - og sam-
eining æskunnar
Það verður að síofna sfrax óháð
sósialísííshf æskufiýðssambánd*
Þing Sambands ungra kom-
múnista hefir staðið yfir um
undanfarna daga og var slitið
s.l. miðvikudag. Aðalmál þessa
þings voru sameiningarmál æsk-
unnar — sameining hinnar sósí-
alistisku æsku og var það ein-
róma samþykt, að sambandið
og allar deildir þess væru reiðu
búin að ganga til sameiningar
við S. U. J. og deildir þess á
grundvelli sameiningartilboðs-
ins.
Á sama tíma hefir einnig ver-
ið háð þing S. U. J. og lá fyrir
því þingi sameiningartilboð frá
Sambandi ungra kommúnista.
Petta þing hefir alt verið með
þeim pukurshætti að alþýðu-
æskan hefir lítið af því frétt.
Pingfundir sjaldan haldnir —
og oftast aðeins setnir af hægri
fulltrúunum.
Þó er ljóst ;af því Iitla, sem
um þingið hefir fréttst, að það
er staðráðið í því að hafa ein-
ingarvilja æskunnar að engu.
Pað hefur heyrst að nýr laga-
bálkur hafi legið fyrir þinginu
og eigi nú S. U. J. að skipta um
nafn og heita eftirleiðis sam-
band ungra Alþýðuflokks-
manna. Sýnir þetta greinilega,
að það á að skerða pólitískt
og skipulagslegt sjálfstæði fé-
laganna enn meir en nú er og
gera þau að máttlausu hand-
bendi Skjaldborgarinnar. Jafn-
framt þessu hefur Guðjón Bald
vinsson þegar lýst því yfir að
sameiningartilboðinu verði hik
laust hafnað. Allt þetta er gert
með þeirri leynd og pukri, sem
forkólfum Skjaldborgarinnar er
eiginlegt, og jafnan reynt að
losna við vinstri fulltrúana á
þinginu með því að boða þá
ekki. eða setja málin í einlitar
nefndir hægri manna
Gegn þessum aðferðum á
æska landsins aðeins eitt svar.
Sköpun sameiginlegs sósíalist-
iskt æskulýðssamband þrátt fyr
ir hægri br-odda S.U. J. Sam-
eiginleg æskulýðssamtök er
brýnasta velferðarmál og yfir-
lýstur vilji meirihluta hinnar
sósíalistisku æsku í landinu.
Á Austurlandi hafa þegar ver
ið stofnuð þrjú æskulýðsfélög
sem munu ganga í hið nýja
samband. Á Norðurlandi verða
FUJ. og FUK. hiklaust samein-
uð og hér skal verða sama sag
an Hin sósíalistiska æska mun
ekki una því, að nokkrir hægri
broddar, sem fengið hafa vesæl
an þingmeirihluta með útstrik-
unum og ofbeldi, fái að traðka
á brýnustu hagsmunamálum
æskunnar. Félagar SUJ og SUK
munu sameinast án tillits til
Guðjóns Baldvinss-onar og Er-
lends Vilhjálmssonar. Á mánu
dagskvöldið mun hefjast stofn
þing hins sameinaða sósíalist-
iskia æskulýðssambands —
Þar mæta allir sannir ungsósíal-
istar — allt æskúfólk sem ann
frelsi, framförum og hugsjón
sósíalismans — Gerum hið nýja
samband sterkt, víðtækt, og
voldugt.- Fjölmennum á stofn-
þingið.
Ignaz Friedman
heldur kveðjuhljómleika á
þriðujdaginn kl. 7,15 í Gamla
Bíó. Viðfangsefni hans verða
að þessu sinni Mozart, Bach-Bu
soni, Schumann o. fl.
Þjáðviljinn gat þess fyrir
in-okkru í sk'eyti frá Kaupmanna-
höfn, að f-oringi þýska minni-
hlutans í Suður-Jótlandi hefði
gert þá kröfu, að Suður-Jót-
land yrði sameinað Pýskalandi.
Kröfur þessar setti nasistaleið-
toginn dr. Möller fram á fundi
í Aaberaa. Jafnframt krafðist
hann þess að dönsk blöð yrðu
beitt refsingum fyrir að tala í
andstæðum tóni um Pýskaland
og nasistastjórnina í Berlín.
Pað hefir ekki farið neittdult
um fyrirætlanir nasista í Suður-
Jótlandi -og yfir höfuð yfirgang
þeirra í Danmörku, og það er
vitað, að dönsk blöð mega yfir-
leitt ekki skrifa um þessi mál,
eðla neitt annað, sem nasistum
líkar ver. M(á í þessu efni benda
á grein, sem birtist héó; í blað-
inu, fyrir n-okkru, þar sem skýrt
var frá því, að eigendur eins
Kaupmannahafnarblaðsins mót-
mæltu því að ritstjóri blaðsins
tilfærði ummæli enska íhalds-
blaðsins „Times“ um ástandið
í Sudetahéruðunum eftir að þau
yoru sameinuð.
Slíkri kúgun eru dönsk blöð
beitt af nasistum og við þetta
bætast svo kröfur þeirra um
að væn spilda af landinu verði
sameinuð Pýskalandi.
Kröfur nasistanna til danskra
stjórnarvalda eru fyrst og
fremst settar frami í fjórum lið-
um:
1. Að allar árásir, bæði í
ræðu og riti, á Þýskaland nas-
istanna verði stöðvaðar. Þá er
þess krafist að þungar refsing-
ar verði lagðar við slíku -og
danskir embættismenn, sem
gera sig seka um slíkt verði
þegar reknir frá embættum sín-
um.
2. Að Danir í Suður-Jótlandi
hætti allri baráttu gegn Þjóð-
verjum og þýskum áhrifum í
Norður-Slesvig og leysi upp all-
an félagsskap, sem miðar að
því marki. Þess er einnig kraf-
ist að Danir greiði Þjóðverjum
búsettum innan dönsku landa-
mæranna skaðabætur fyrir tjón,
sem það sem þeir hafa beðið
síðan 1918.
3. Að Pjóðverjum í Suður-
Jótlandi verði veitt sjálfstjórn
um héraðsmál öll og skólamáL
4. Að útlendingar sem búsett-
ir eru í Suður-Jótlandi fái ekki
danskan ríkisborgararétt þó að
þeir óski þess. Þetta gildir þó
einkum um þá útlendinga, sem
eru flóttamenn frá Þýskalandí
og hafa sest að norðan landa-
mæranna, síðan nasistar kom-
ust til valda.
Þetta voru höfuðatriðin íkröf
um dr. Möllers til dönskUstjórn
arinnar, og að lokum lýsti hann
því yfir, að „barátta nasista í
Suður-Jótlandi, væri liður íbar-
áttu þýsku þjóðarinnar". Jafn-
framt lýsti dr. Möller því hátíð-
lega yfir, að loforð Hitlers, sem
hann gaf í hinni kunnu ræðu
sinni í Sportpalast, um að geræ
ekki frekari kröfur til landa í
Evrópu ef hann fengi Sudeta-
héruðin næðu ekki til Suður-
Jótlands. Ræðu sinni lauk hann
með eftirfarandi orðum: „Voga
menn að fullyrða að sjplfs-
ákvörðunarréttur þjóðanna eigi
að vera bundinn við gerfikosn-
ingar eins og þær er fóru frani
áður en Danir fengu Suður-
Jótl’and“.
Tæpast kemur nokkrum:
manni til hugar að á bak við
þessar hótanir búi ekki meira
og sterkara afl en hinn fámenni
flokkur nasista í Suður-Jótlandi.
Enginn vafi er á því, að dr.
Möller hefir rétt fyrir sér, þar
sem hann segir að barátta
þeirra sé barátta þýsku þjóðar-
Framhald á 3. síðu.
verðuir í K.*R.«>húsíntt í da$ kl. 4.
500 kró nr í penfBgnm, afhcntar á staðnsM
Fjöldí góðra mutia
Málning á mörg eldhús og
stoíur.
Veggfóður á 60—70 stofur.
Sement. — Timbiur.
Raímagnsvörur.
Handlaugar.
Kol. Olía.
Bezta happdræffið:
t. Rafmagnseldavél
2. Stoppaður stóll.
3. Matarforði.
4. Vandaður dívan og teppi.
5. Málverk.
6. Kol.
Matvæli allskonar. Kjöt. HveitL
Brauð. Niðursoðnir ávextir.
Sardínur. — Skótau og fatn-
aður allskonar. Hárgreiðslur.
Klippingar. Bíltúrar. Leikföng
qg margt fleira.
Afllir þrá rafmagfiseldavél,
Dráfíur 50 aura. Mtísík allan fimann.
Aðsm. so aura. Ffeístið hamíiEgíufflfitaff! Komíð og dragíðí
SVEINASAMBAND BYGGINGAMANNa