Þjóðviljinn - 12.11.1938, Page 4

Þjóðviljinn - 12.11.1938, Page 4
sp Ny/aTi'ib a§ Stella Dallas Fögur og tilkomumikil amerísk stórmynd frá Un- | ited Artists, sanrkvæmt i samnefndri sögu eftir Ol- ive Higgins. Aðalhlutverkin leika: Barbara Stanwick, Anne Shirley , Alan Hale o. fl. Aukamynd: | TÖFRASPEGILLINN i Litskreytt Mickey Mouse teiknimynd. Næturlæknir: Bergsveinn Ól- afsson, Hávallagötu 47, sími 4985. Næturvörður er í Ingólfs- og Laugavegsapóteki. Ctvarpið í dag: 13.00 Dönskukennsla. 3. fl. 18.15 Dönskukennsla. 18.45 Enskukennsla. 19,20 Hljómplötur: Kórlög. 19,50 Fréttir. 20.15 Leikrit: ,,Maður með morgunkaffinu", eftir Ronald Elwy Mitchell (Marta Indriða dóttir, Alfreð Andrésson o. «•)• 20.45 Hljómplötur: a. Létt sönglög. b. „Dauðinn og stúlkan", tónverk eftir Schubert. 21.25 Danslög. 22,00 Fréttaágrip. 24.00 Dagskrárlok. þióoyiuiMN I. R. efnir til íþróttakvik- mynda á mánudagskvöldið kl. 8,30 í kvikmyndasal Austurbæj- arskólans. Verður þar sýnd á- hrifamikil hljómmynd úr rúss- nesku íþróttalífi, kvikmynd frá allsherjaríþróttamóti í Reykja- vík 1936, við konungskomu skautahlaupsmyndir af Sonju Henie á Olympíuleikum, heimsmeisturunum í parahlaupi og Scháfer listhlaupara. — Að- göngumiðar verða seldir í verzl. Stálhúsgögn. Súðin var á Pingeyri í gær- kvöldi. Aflasala: Hannes ráðherra seldi afla sinn í gær í Pýzka- landi. Var aflinn 100 smálestir og seldist fyrir 18601 ríkismark. MÍftHÍ NÚS moiív iíl að fesia á barnaföí, faesí í VESTU Laugaveg 40. ÍSLENZKT SMJÖR NÝ EGG DAGLEGA SALTKJÖT SPIKFEITT HANGIKJÖT Strausykur 45 au. pr. kg. Melís 55 au. pr. kg. Kaffi 85 aura pakkinn. Export 65 aura stykkfð. Verzíjð við þá sem ódýrast selja. Vörur sendar heim. Sími 1419 VcrzL Hlíf Brekkustíg 1. Dagsbrún, FRAMHALD AF 1. SÍÐU. ill hópur manna sem sérstaka aðstöðu hefir haft, og þá sér- staklega 8 fulltrúar félagsins á sambandsþingi, þar af tveir í félagsstjórninni og einn blaða maður Alþýðublaðsins, sem allir hafa Iíka átt sæti í trúnað- armannaráði, misbeitt þessari að stöðu sinni á skaðvænlegan hátt fyrir félagsskapinn, með áróð- ursstarfsemi, sem ekki á sinn (líka í sögu félagsins og miðuð hefur verið að því að gera fé- lagsskapinn, stjórn hans og fjárhag tortryggilegan með vísvitandi ósönnum bréfum til félagsmanna, upplognum ?kýrsl um um fjárhag félagsins, með fullkominni óhlýðni við sam- þykktir félagsins og nú í síð- ustu kosningu með villandi á- róðri gegn baráttu félagsinsfyr ir aukinni atvinnu senf svnt hef ir merki sín í allsherjaratkvæða greiðslunni, allt í því skyni að veikja félagið og aðstöðu þess til forustu í verkamannahreyf- ingunni. Pessir menn bera því þyngri ábyrgð, sem þeim hef- ur verið veittur trúnaður fé- lagsins. Af þessum mönnum eru aðeins 3 verkamenn. Hinir 6 eru þeir: Erlendur Vilhjálms sion, tryggingarfulltrúi, Guð- jón B. Baldvinsson, tryggingar maður, Guðmundur R. Oddson brauðgerðarstjóri, Haraldur Pét ursson safnvörður, Kristínus Arndal forstjóri og Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður. A1 þýðublaðsins. Verkamennirnir eru þeir Guðmundur Finn- bogas'on, Símon Bjarnason og Sigurður Guðmundsson Freyju götu' 10. Þar sem félagið 'getur ekki leyft slíka starfsemi innan sinna vébanda víkur það hér með of- angreindum 6 inönnum, sem ekki eru verkamenn, fyrir fult og allt úr félaginu, en verka- mönnunum 3, sem sérstáklega eru nefndir, gefur það hérmeð opinberlega áminningu og að- varar þá og aðra, sem framar- lega hafa staðið í þessari fá- heyrðu klofningsstarfsemi að hætta henni þegar í stað. Enn'- fremur felur félagið féla'gs- stjórninni að höfða mál út af áburði þeim, sem 8 af þessum mönnum hafa sent út bréflega urn félagið og stjórn þess. EFTIRHERMUR GÍSL3 SIGIIRÐSSON endurtehur skemmtun sína í Gamla Bíó kl. 3 á morgun (sunnudag). Hr. Tage Möller aðstoðar. Aðgöngumíðar fást í Bókaverzlun Sígfúsar Eymunds- sonar og Hljóðfæraverzlun Sígríðar Helgadóttur, Lækj- argötu 2 í dag og á morgun frá kl 1 í Gamla Bíó. Gömlafb'ib ■% GOTTLAND Hin marg eftirspurða Metro Goldwyn Mayer kvikmynd af hinni heims- frægu skáldsögu PEARL S. BUCK Aðalhlutverkin tvö, O-lan og Wang Lung leika: LOUISE RAINER og PAUL MUNI. Leíhfél. Reykjauikar „Návígi“ Sjónleikur í 3 þátturrt eftir W. A. Somiin. Sýning á morgun kl. 8. Börn fá ekki aðgang. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun. KAUPUM ónýtar ljósaperur Flöskuverzlunin Hafnarstræti 23. Stofnfundur Æskulýðsfylking- ariima,r í Reykjavík verður ann- lað kvöld <kl .8,30 í Alþýðuhús- inu við Hverfisgötu. Frá höfninni. Þórólfur kom af veiðum í gær með 3800 körfur fiskjar fyrir Pýzkalands- markað. Dansleikur fyrir skáta og og gesti þeirra verður haldinn í Oddfellowhúsinu í kvöld kl. 10. Ungfrú Bára Sigurjónsdóttir sýnir nýtízku dansa. Skipafréttir: Gullfoss er í Hamborg, Goðafoss er á Aust- fjörðum, Brúarfoss v.ar á Borð- eyri í gær, Dettifoss fór frá Hull í ‘gærkveldi, Lagarfoss er á leið til Austfjarða frá Leith, Selfoss kom frá útlöndum í igærkvöldi, Varoy er á Akur- eyri. Happdrætti Karlakórs verka- manna hefir sýningu á vinning- iim happdrættisins þessa dag- ana í sýningarglugga Bóka- verzlunarinnar Heimskringlu. Eru þar meðal annara vinninga bátslíkan Runólfs Ólafssonar, sem allir vildu smiðað hafa og allir vilja eiga. Þá eru þar enn- fremur öll ritverk Halldórs Kilj- an Laxness í vönduðu skinn- (bandi. Happdrættismiðarnir verða seldir á götunum á morg- un og sunnudaginn. Ættu allir að freista hamingjunnar. Með því að kaupa happdrættismið- ana styðja þeir að menningar- viðleitni alþýðunnar og skapa sjálíum sér möguleíka til að eignast góða gripi. Ungir sósí.alistar! Öll þið, sem hafið söfnunar- lista viðvíkjandi hinu sameinaðía æskulýðsfélagi, skilið þeim í dag kl. 5—7 á skrifstofuna í Hafnarstræti 21. Gísli Sigurðsson heldur skemmtun á morgun kl. 3. Tage Möller aðstoðar. Að- göngumiðar fást hjá Sigf. Ey- mundssyni og í Hljóðfæraversl- un Sigríðar Helgadóttur. Aikki M.ús lendir í æfintýrum. Saga í myndum fyrir börnin. 8. — Góða Magga, skilurðu það ©g önnur villidýr, sem fullt er Bara að ég komist þangað nógti ekk,i, að svona t*kifæri býðst af í Afríku. Nei, Mikki, það snemma til að hindra glæpinn manni aðeins einu sinni á æfinni. borgar sig ekki að leggja sig í Ef ég verð of seinn, finnur lög- Svo er þetta ekkert hættulegt — slíkar hættur. Sannaðu til. reglan kúluna í byssunni minni. — ekkert hættulegt, ó, það er líklega ekki. Mannætur — Ertu búinn að skjóta hann, Lubbi? — Farðu heim, Púlli! Ég ætla mér að skjóta hann hjálparlaust. Farðu heim, ann- ars færð þú kúlu líka. Agatha Christie. 65 Hver er sá seki? F,g samþykkti það, og við lögðum af stað. Poi- rot bað um að mega tala við ungfrú Ackroyd, og Flóra kom strax til okkar. — Ungfrú Flóra, sagði Poirot, ég ætla að trúa yður fyrir dálitlu leyndarmáli. Ég er ekkí enn sann- færður um saldeysi Parkers. Ég ætla að gera tíl- raun með hann, og biðja um yðar aðstoð. Ég ætla að fá leikin nokkur atriði úr framkomu hans kvöld- ið sem glæpurinn var framinn. En við verðum að finna eitthvað yfirskin, — jú, mér kemur nokkuð í hug. Við segjum honum að ég ætli að sannprófa hvort að raddir geta heyrzt úr litlu forstofunni út á flötina. Viljið þér gera svo vel að hringja á Parker. Ég hringdi, og rétt á eftir kom Parker inn, ró- legur og alvarlegur í framgöngu að vanda. — Voruð þér að hringja herra minn ? — Já, Parker. Ég ætla að gera dálitla tilraun, Blunt major stendur úti á flötinni fyrir utan glugg- ann á vinnuherberginu. Ég ætla að prófa hvort nokkur hefur getað heyrt á samtal yðar og ungfrú Ackroyd í litlu forstofunni, kvöldið sem morðið var framið. Mig langar til að þið vilduð leika at- vikið fyrir mig. Viljið þér gera svo vel að ná í bakkann, eða hvað það nú var sem þér höfðuð I hendinni. Parker fór út, og við gengum öll inn í litlu for- stofuna og tókum okkur stöðu skammt frá dyrum vinnustofunnar- Rétt á eftir heyrðum við glamra í glösum frammi í stóru forstofunni, og Parker kom inn með bakka í hendinni. A bakkanum var viskýflaska sódavatn og tvö glös. — Bíðið við, sagði Poirot æstur. Allt verður að fara fram nákvæmlega eins og um kvöldið. Það er mín aðferð. — Það er útlenzk aðferð, herra, sagði Parker. Ég; hef lesið um |)að, að menn eru látnir leika að nýju glæpi. Hann var alveg rólegur og kurteisin sjálf. — Aha, sagði Poirot. Þér hafið lesið um þessa hluti. Viljð þér nú gera svo vel að fara nákvæm- lega eins að og þá. Þér komuð utan úr stóru for- stofunni — já, svona. Hvar var ungfrúin? — Hér, sagði Flóra, og geklc að vinnustofudyr- unum. — Alvég rétt, sagði Parker. — Ég var nýbúin að loka dyrunum, sagði Flóra. — Já, ungfrú, staðfesti Parker. Þér studduð hendínni á snerilinn, einmitt svona. — Jæja, sagði Poirot. Byrjið þér leikinn. Flóra stóð með hendina á snerlinum, og Parker kom inn í litlu forstofuna með bakkann í hend- inni. Hann nam staðar rétt fyrir innan dyrnar. Flóra tók til máls : — Parker! Herra Ackroyd bíður um, að enginn ónáði sig í nótt. — Er það rétt? spurði hún lágt. — Eftir því sem ég man bezt, sagði Parker, en ég hekl, að þér hafið notað orðið ,kvöld“ í stað- inn fyrir „nótt“. Svo hóf hann röddina og sagði dálítið tilgerðarlega: „Þá það, ungfrú Ackroyd A ég að læsa eins og vant er? — Já, gerið þér það. Parker fór út aftur. Flóra á eftir og lagði af stað upp stóra stigann. — Er þetta nóg? spurði hún og leit við. — Fyrirtak, sagði Poirot og néri satnan hönd- unum. — En eruð þér viss um það, Parker, að þér hafið haft tvö glös á bakkanum þarna um kvöldið? Hverjum var ætlað annað þeirra? — Ég kem alltaf með tvö glös, sagði Parker- —• AAir það þá nokkuð fleira? — Nei, — þakka yður kærlega. Parker fór út, virðulegur og rólegur í fasi. Poirot stóð á miðju gólfi og hrukkaði ennið. Flóra kom niður til okkar. — Tókst vður tilraunin? spurði hún. Ég skil ekki almennilega — Poirot kom til hennar og það var aðdáun i brosi hans. — Það gerir ekkert til, sagði hann. „En segið mér, voru tvö glös á bakkanum hjá Parker þetta kvöld? Flóra hnyklaði brýrnar. — Það man ég ekki, sagði hún. — Ég held það, — nei, það — var það til þess, sem leikurinn var gjörður? Poirot tók hönd hennar og klappaðí henni. — Já, við skulum hafa það svo, sagði hann. Mér þykir alltaf fróðlegt að sjá, hvort fólk segir satt. — Sagði Parker satt? — Mér er nær að halda það, sagði Poirot hugs- hugsandi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.