Þjóðviljinn - 11.02.1939, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 11.02.1939, Blaðsíða 2
Laugardaginn 11. februar 1939. EJÓÐVÍL’JlNN I (MÓOVIUINN Otgefandi: Samei*ingarilokkur alþýðu — SósíalistaflokkurÍBa — Ritstjórar: Einar Olgeirsson. Sigfús A. Sigurhjartarson. Ilitstjórnarskrifstofur: Hverfis götu 4 (3. hæð), sími 2270. Afgreiðslu- og auglýsingaskrif- stofa Austurstræti 12 (1. fcæð), simi 2184. Áskriftargjöld á rnánuði: Keykjavík og nágre»ni kr. 2,00. Annarsstaðar á landinu kr. 1,50. I lausasölu 10 aura eintakið. Víkingsprent h. f. Hverfisgötu 4. Sími 2864. • Tíminn birtir í fyrradag forustugrein undir fyrirsögninni Hvers virði er Iýðræðið? í greininni er í fáum, en ljósum dráttum gerð grein fyrir þeim helztu mannréttindum, sem lýð- ræðið hefur fært þjóðunum. Pví næst er brugðið upp mynd frá svartnætti miðaldanna, af því hvernig þjóðhöfðingjar „af guðs náð“ hnepptu hinn varn- arlausa þegna í fangelsi án „dóms og laga“ og bjuggu honum hvílurúm og oft bana- beð „innan svartra veggja neð- anjarðarfangelsanna“- „fjarri sóí og yl“. Síðan er á það bent, að nú sé aftur svo komið að „millj- ónir heimila eigi sér enga frið- helgi“. „Og nú hafa þeir víða verið opnaðir á ný, kvalastaðir hinna frelsi sviptu, en ódæmdu manna, þar sem fangavörðurinn er æðsta vald og böðullinn vin- ur í neyð“, segir Tíminn. Þá er á það bent, að „með hörmu- legri léttúð“ hafi sumar þjóðir varpað frá sér „hinum dýrmæta rétti“, að þær hafi í andvara- leysi hlýtt á prédikanir vald- fíkinna einstaklinga um að lýð- ræðið „væri einskis virði og jafnvel skaðlegt“ ogj í stað þessl að efla lýðræðisskipulagið og framkvæmd þess, hungraði og þyrsti milljónir manna eftir for- ingjum og sterkum stjórnum, sem Iétu að sér kveða. „Fyrir þessa sterku stjórn hafa ein- staklingarnir fómað því, sem þeir áttu dýrast og bezt, þeim arfi, sem afar og langafar víða höfðu keypt þeim blóði sínu“. Loks er að því vikið, að þó að það sé ekki á valdi smáþjóða, eins og íslendinga, að hafa á- , hrif á það hvoru vegni betur í umheiminum „mannréttinda- stefnu lýðræðisins eða hinu end urvakta harðstjórnarfari“, þá sé hægt að vemda Iýðræðið hér heima, „ef þjóðin vill gera sér grein fyrir þvf í tíma, hvers virði lýðræðið er og mannrétt- indastefna þess, og hvað það raimvemlega þýðir, sem boðið er í staðinn“. *• > Allir unnendur lýðræðis og mannréttinda hljóta að fagna þessari prýðilegu grein Tímans, og það því fremur, sem fullvíst má telja, að hún sé eins og töluð út úr hjarta bændaþeirra; og búaliðs, sem mynda fjölda- fylgi Framsóknarfltokksins. Ef til em menn innan forustuliðs Framsóknarflokksins, sem hlær hugur við „foringja“draumór- Eígum vér að varpa frá oss hm~ um dýrmasfasfa réffí" mcd hörmu- legrí léífúd i um, þá eru þeir áreiðanlega í fullkominni andstöðu við vilja I hins raunvemlega Framsókn- I flokks, mennina í „dreifbýlinu“ j sem fengið hafa flokknum valda i aðstöðu í landinu. En spurn- . ingin ,sem hlýtur að vera á vörj um hvers einasta manns að loknum lestri þessarar mjög svo þörfu greinar, er þessi: Verður það hlutskipti vorrar fá- mennu þjóðar, að varpa frá sér hinum dýrmætasta rétti með hörmulegri léttúð? Við lítum i Alþýðublaðið frá í fyrradag. Við skulum fyrst gera okkur það ljóst, að þeir menn, sem enn fylgja Skjaldborginni að málum, munu undantekningar- laust vera unnendur lýðræðis og mannréttinda. Ef Alþýðublað 'ið talaði í þeirra umboði mundi það af einlægum huga leitra að leiðum til að fyrirbyggja að villimennska nazismans næði hér nokkurri fótfestu. For- ystugrein blaðsins er fremur meinlaust rabb um þjóðstjórn, en lýkur með því að gefa til kynna, að Sameiningarflokkur alþýðu — SósíalistafLokkurinn — sé „yfirlýstur ofbeldisflokk- ur“. Engum ætti að vera kunn- ugra en riturum Alþýðublað's ins um það, að Sameiningar- flokkurinn hefur marglýst yfir því gagnstæða, og engum ætií að vera kunnugra en þeim, að verkamennirnir, sem mynda. þennan flokk, eru andvígir of beldi í öllum þess myndum; meðal annars af þeim ástæðum geta þeir ekki fylgt Skjaldborg- inni að málum. Alþýðublaðið veit ofur vel ,að Sameiningar flokkurinn er myndaður af mönnum sem líta sto á, að það sé fyrsta og helgasta skylda allra sósíalista, iog allra frjáls- lyndra manna, eins og nú starda sakir, að sameina krafta sína, og einbeita þeim til varnar lýð- ræðinu. Pessa skyldu telja þeir svo brýna, að allur ágreiningur um fjarlægari sjónarmið, eins valdatöku sósíalismans, verði að víkja hennar vegna. Svo kemur Alþýðublaðið og ver nær öllum sínum kröftum og rúmi til þess að telja þjóð- inni trú um, að þessi flokkur sé „ofbeIdisfLokkur“, sem lúti „erlendri stjórn“, og þetta ger- ir það þrátt fyrir að það trúir sjálft engu orði af því, sem það segir um þessi efni. Er ekki slík framkoma hörmu Ieg léttúð? Ber hún ekki keim af þeirri léttúð, sem hefur orð- ið þess valdandi, að sumar þjóðir hafa varpað frá sérþeim dýrmæta rétti, sem lýðræðið veitir? Ef þjóð vor glatar lýð- ræðinu ,og þar með þeim mann- réttindum, sem það hefur fært' henni, þá verður það ekki af því, að lekki sé til í landinu nægi legur fjöldagrundvöllur til varn- ar því. Vissa er fyrir hinu, að allir óbreyttir liðsmenn vinstri fLokkanna þriggja vilja vemda Iýðræði og menningu, og þeir gera þær kröfur til leiðtoga fLokkanna, að þeir standi sem einn maður á verðinum því tií verndar. Forystugrein Tímans í fyrra- dag virðist vera skrifuð af djúp- um skilningi á nauðsyn þess að vernda lýðræðið. En forystu- grein Alþýðublaðsins sama dag leitast við að útbreiða þá kenn- ingu að mikill hluti íslenzkra verkamanna sé ,pfbeldissinn- aður“, — vafalaust kærkiomin kenning fyrir þau íhaldsöfl, sem vilja lýðræðið feigt. Pað er1 ekki sem verst fyrir þau að geta bent á, að blað sem gefið hefur verið út af íslenzkum verkalýð hafi haldið því fram að nær sjö hundruð Dagsbrún- arverkamenn aðhyllist ofbeldis- fíokk, slíkt er fullgóð afsökun a sögð sorgarsaga „Fyrirgefið J)ér, getið þér sagt mér, hvar Hótel Borg er“, spurði ókunnugur maður Þor- geir Porgrímsson, sem var á gangi niður við höfn. „Já, ég skal fylgja yður þangað“, svaraði Þorgeir, og þeir héldu áleiðis til hótelsins. Hinn ókunnugi maður var ó- venju glæsilegur og vakti strax bæði undrun og forvitni Þor- geirs. Hann langaði til að vita eitthvað um þennan mann og hafði því ekkert á móti því að ganga með honum alla leið. Hinn ókunnugi maður afþakk- aði það ekki, var spurull og viðfeldinn og hinn elskuLeg- ásti í alla staði. „Þetta er Hótel Borg“, sagði Þorgeir og stanzaði við dyrn- ar. „Þakka yður fyrir, en viljið þér nú ekki koma inn með mér og drekka kaffi? Ég er fram- andi í borginni og vil gjarn- an spyrja yður um ýmislegt. Þorgeir fann strax að hinum ókunnuga manni fylgdi eitt- hvert sérstakt áhrifavald. Hann hikaði augnablik, en hinn var leikinn og veraldarvanur, og sagði: „Qerið svo vel“. Og Þorgeir gekk inn með honum. Það stóð ekki á þjónum, kaff- ið kom að vörmu spori, og samræður tókust með þeim. „Má bjóða yður út í kaffið?“ spurði hinn ókunnugi maður, er þeir voru byrjaðir að drekka kaffið. „Nei, ég þakka“, svaraði Þor- geir. „Ég er bindindismaður“. „Bindindismaður“, endurtók ókunnugi maðurinn. „Eruð þér í góðtemplarastúku?“ „Nei, ekki ,er ég það“, svar- aði Þorgeir, ,,en ég drekk ekki áfengi“. „Það er ekki að drekka, þó maður fái sér eitt lítið staup af góðu víni. Það tilheyrir lífs- rejmslu sérhvers manns, að þekkja hin þægilegu áhrif og þá gleði, sem vín, neytt í hófi, veitir. Þetta er eitt stig á þnoska brautinni að kunna með þann gleðigjafa að fara“ . Hann hringir og biður um tvö glös. Þorgeir fær því ekki afstýrt. Ókunni maðurinn er svo prúðmannlegur og fyr- irmannslegur í alla staði, að Þorgeir getur ekki skilið að fordæmi hans geti verið hættu- legt. Þeir sitja góða stund við borðið, drekka og tala saman, og það er beðið um aftur % glösin. Lengra er ekki farið Þetta er í fyrsta skipti, sem Þorgeir smakkar áfengi. Hon- um líður ekki alla vega vel. Hið innra gerir órói vart við sig, en áhrifin eru þægileg og vínið bragðaðist vel. Hinn ókunnugi maður stend- fyrir nazistískum ofbeldisað- gerðum. Þeir menn innan Alþýðu- flokksins, sem um langt skeið hafa tekið þátt' í baráttu verka^ lýðsins, eins og t. d. Finnur Jónsston og Kjartan Ólafsson, og vilja vafalaust að flokkur þeirra vinni af fremsta megni að verndun lýðræðis og menn- ingar, ættu aðleitastviðaðtaka í taumana, áður en það er of seint og fjarlægja úr dálkum Alþýðublaðsins allt þvaður um að flokkur Sameiningarmanna sé „ofbeldisfLokkur“, sem „lútí erlendri stjórn“ og hefja, í stað-* inn skynsamlegar umræður um samstarf vinstri flokkanna til verndar lýðræði og menníngu. Eflír Péfur i Sígurdsson i ur upp frá borðum, réttir Þor- geiri hendina ,og segir: „Ég þakka nú fyrir samver- j una og þær upplýsingar, sem þér hafið gefið mér. Ég heiti ; Friðþjófur Valgeirsson. Égverð j 'hér í bænum fyrst um sinn, og við sjáumst sjálfsagt aftUr“. Þorgeir þakkar, kveður og fer. Þorgeir var ungur og mann- vænlegur maður, átti gott heim- ili, konu og tvö börn á unga aldri, og hafði góða stöðu. Lífið lék í lyndi, og frístundir voru nógar. Fundum þessara manna bar saman aftur og aftur um sum- arið, og með þeim tókst góður kunningsskapur. Þeir buðu hver öðrum á víxl inn á hótel og kaffihús, og jafnan neyttu þeir nokkurs áfengis, og það fór heldur í vöxt. Þorgeiri var far- ið að þykja það svo gott, að hann náði sér stöku sinnum í flösku og neytti þess í laumi. Tímar liðu og engin stórtíð" indi gerðust hjá þessum félög- um. Friðþjófur var seztur að í bænum fyrir fullt og allt. Þeir Þorgeir hittust oft. Svo var það eitt kvöld, er Friðþjófur var á gangi niðri í bæ, að hann sér Þorgeir á undan sér og að nú slagar hann. Friðþjófur herðir gönguna, nær Þorgeiri, legg- ur hönd sína á öxl þonum og segir: „Nú ert þú ekki lengur bind- indismaður, Þorgeir minn. Er þetta ekki fullmikið?“ „Hvern andskotann kemur þér við, hvort ég fæ mér mikið ieða lítið í staupinu“, sagði Þor- geir og var reiðilegur á svip. „Eitthvað verður maður þó að hafa til þess að bæta sér upp tapið“. „Tapið. Hvaða tap?“ spurði Friðþjófur. „Ég er búinn að missa atvinn- una, og konan verður sennilega það næsta sem fer, og það er allt þér að kenna heívífis durgurinn þinn. Hver ert þú eiginlega? Hvaðan kemur þú? Og hvað gerir þú? Ertu kann- iske djöfullinn í ljósengilsmynd? Nógu Iítur þú vel út.“ „Vertu nú ekki svona vondur, Þorgeir minn, þetta lagast aílt saman“, sagði Friðþjófur. „Ég skal nú fylgja þér heim“. „Ég kæri mig ekkert um fylgd þína“, sagði Þorgeir ön- ugur, og slagaði þvert yfir göt- una . Þeir hittust aftur Iöngu seinna. Þorgeir var þá ekki drukkinn, en leit hörmulega illa út. Það var auðséð að hann hafði verið á túr daginn áður. „Þú Iítur þreytulega út', Þor- geir minn“, sagði Friðþjófur, „Það er sennilegt. Það fór ekki vel um mig í nótt“. „Varstu þ!á iekki heima í nótt“, spurði Friðþjófur. „Ónei, ég Iæt nú fyrirberast J)ar sem verkast vill. Ég á nú ekkert heimili. Konan er farin með börnin heim til foreldra sinna. Ég hefi verið atvinnuLaus manuðum saman, gat ekki borg- að húsaLeiguna, okkur var sagt upp. Konan kenndi mér og drykkjuskap mínum um allt saman. Og nú er hún farin — og heimilið farið“. „Það er svona“, sagði Frið- þjófur .„Þetta getur enn Iagast. Við skulum koma einhversstað- ar inn .Þorgeir minn, og fá okkur hressingu“ . Um kvöldið var Þorgeir með hávaða á götunni, söng með drafandi tungu: „Rykug er Reykjavík, rykug er Reykjavík. Rýkur þar sót. Rykug er Reykjavík, rykug er Reykjavík, rykug er Reykja- vík rykug og ljót“. Nú liðu nokkrir mánuðir. Friðjíjófur sá Þorgeir aldrei. Loks bar þó fundum þeirra saman. Þorgeir var horaður og ræfilslegur. „Hvað er að sjá þig Þorgeir minn“, sagði Friðþjófur. „Þú ert eins og maður upp úr gröf- j mni. Hvar hefur þú verið allan j þennan tíma?“ * „O, ég hefi nú setið í stein- inum síðustu vikurnar“. „í steininum .Hver fjandinn er að heyra þetta. Hvað kom fyrir?“ „Hvað kom fyrir. Já, hvað á maður að gera, þegar maður er atvinnulaus. Ekki getur maðut þó drepist úr sulti, og liggur þá ekki beinast fyrir að kló- festa hvað sem hendur fesíir á“. „Hvað var það þá eiginlega, sem kom fyrir“, spurði Frið- þjófur. „O, það voru aðeins nokkrar krónur ,sem einhver annar þótt- ist eiga. Ég var auðvitað slomp- aður. — Já, fari það allt til helvítis. Þeir hefðu víst haldið mér þarna lengur, en ég var búinn að fá sto slæman hósta, Það var oft kalt í steininum. Læknirinn kom og skoðaði mig, hlustaði mig, og sto var ég látinp fara“. „Við skulum setja okkur inn um stund“, sagði Friðþjófur. Þeir fengu sér kaffi og aðeins sín tvö glösin hvor. Meira vildi Friðþjófur ekki láta hann fá. „Nú þarf ég að tala við þig einslega, Þorgeir minn“, sagði Frið{)jófur. „Við skulum ganga út“. Þeir gengu niður að höfn og alla leið fram hafnargarðinn út að vita. Þar staðnæmdist' Frið- þjófur og tók til máls. „Þorgeir minn, wú ert þú bú- inn að glata atvinnu þinni, þú ert búinn að eyðileggja heim- ilið þitt, svíkja þína ungu og elskulegu konu, bregðast ungu börnunum þínum og gera þau ! verra en föðurlaus, þú ert búinn að eyðileggja mannorð " þitt, hefur verið dæmdur sem þjóf- ur, og Loks ertu búinn að eyði- leggja heilsu þína. Þú ert nú lifandi dauður. Þú átt ekki við- reisnar von. Þú ert orðinn vilja- laus ræfill, sem ekki átt annað en eymdar og kvalalíf fram- undan, líf, sem er verra ien dauðinn. Nú er aðeins eitt leftir, og það er hið eina ,sem þú get- ur gert. Það er eina Ieiðin, sem stendur þér opin. Þú skalt nú kasta þér hér fram af garðinum í sjóinn og drepa þig. Þetta er alltaf mitt síðasta ráð til slíkra manna. Ég heiti ekki Friðþjóf- þó ég sé friðþjófur. Ég heiti Bakkus og er í hálfguðanna tölu. — Vertu sæll. Frá síúklingum á Vífíl~ sfödum, Ólafur Beinteinssion ogSvein- björn Þorsteinsson skemmtu ný- Iega á Vífilstöðum. Einnig bom þangað Bára Sigurjónsdóttir og sýndi dans með aðstoð Jónö Þorbjörnssionar. Tage Möller annaðist undirleikinn. Sjúkling- ar hafa beðið blaðið að flytja öllu þessu fólki beztu þakkir fyrir kiomuna, « ujlríWnj&r SósiaIistafl'okkurinn beitir sér ftjr- ir einingu verkalýdsins og banda- lagi allra vinstri flokka um liags- nuini og frelsi pjódarinnar. Honutr. er stjórnað frá Moskva — ab puí er Alpýdubladid segir. Nú, peir eru pá ekki eins jbölvaðir par/ut í henni Moskva, eins og Alpýdubladið vill vera láta. Skjaldborgin neitar allri einingu verkalýSsins, pó hún viburkenni o3 einingin sé lífsskilgrdi alpýb- unnar. Hvadan er Skjaldborginni stfórnað. Það kom hingað einhver þrjótur áðan og stal bílnum yðar. — Sei, sei, ekki að verða svona æstur, ég skrifaði hjá mér bílnúmerið. •• Alexander- Dumas var negri í aðra ættina, og einu sinni, þegar hann var staddUT* iisamkvæmi, vék aðals- maður sér að skáldinu og spurði. „Er það satt, að faðir yðar hafi verið kynblendingur? Skáldið svar- aði rólega: — Þetta veit hver maður í allri Parísarborg. — Afi yðar hefur þá verið — — — Negri .vilduð þér sagt hafa. Þetta er sömuleiðis svo kunnugt, að livert mannsbarn veit það, sagði Dumas. — En hver var afi yðar, spyr að- alsmaðurinn. — Hann var api. Þar koma ættir okkar saman og mín hefst, þar sem yðar endar. Það er þjóðtrú víðsvegar um álf- una, að úlfum sé ekki annað ver ger-t, en að láta þá hlusta á fiðlu- leik. Fyrir nokkru síðan vildu dyra- Verðirnir í dýragarðinurrí í Londoi* ganga úr skugga um sannindi þess- arar þjóðsögu og fengu fiðluleikara til þess að leika fyrir utan búr, þar sem úlfur dvaldi. Olfinum brá svo við, er hann heyrði í fiðlunni, að hann fór allur að titra, og þegar leikið hafði verdð um stund varð hann svo æfur, að hann réðist á járnrimlana í búrinu, og eftir því sem fiðluleikarinn fjarlægðist óx reiði úlfsins. •• Nokkru eftir næstsíðustu jól ól kona vagnstjóra nokkurs í London tvíbura. Faðirinn var í sjöunda himni, eins og geta má nærri, en vjku síðar leitaði hann þó til Lloyds tryggingafélagsins, til þess að tryggja sig gegn slíkri hamingju í framtíðinni. Það kom síðar á dag- inn að vagnstjóranum hafði ekki skjátlast, því að um nýárið í vetuii 61 kona hans aðra tvíbura. Trygg- ingarupphæðin var 40 þúsund krón- ur, og fékk hann féð greitt af hönd- um. Hins þarf tæplega að geta, að mannauminginn lét það verða sitt fyrsta verk að tryggja sig á ný fyrir tvíburum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.