Þjóðviljinn - 29.12.1940, Page 3
ÞJÖÐVIL JINN
Sunnuda,gur 29. desember 1940
,Mhi‘ falsar grsln eitir Paul Robe
I
Inn í ádeílugreín gegn audvaldí og afturhaldi er lsett
níðí um kommúnísmann en Robeson er sjálfur
kommúntstí!
í síðasta hefti tímaritsins
“Stundin” er birt þýð'ing á
grein eftir Paul Robeson, hinn
heimsfræga negrasöngvara, og
birtist greinin nýlega í amer-
ísku tímariti. Þeim, sem vita
að Paul Robeson hefur hvaö
eftir annaö gengið fram fyrir
skjöldu til varnar amerískum
kommúnistum, vita, að hann
hefur sent einkason sinn til
langdvalar í Sovétríkjunum,
vegna þess að það er eina
menningarlandiö, þar sem eng-
inn greinarmunur er gerður á
kynþáttum, að hans eigin
sögn, — mun koma endir grein
arinnar í “Stundinni” kynlega
fyrir sjónir. Þar er ekki annað
sjáanlegt, en að Paul Robeson
sé farinn að hugsa líkt og ís-
lenzkur þ j óðst j órnar grautar-
haus, leggi að jöfnu kommún-
isma og fasisma, og telji komm
únisma eina tegund “aftur-
haldsins”.
Sannleikurinn er sá, aö Paul
Robeson hefur ekki skipt um
skoöun. Grein hans, sem hér
um ræðir, “In what direction
Paul Robeson
are we going?” er markviss á-
deila á afturhaldið í Bandaríkj
unum og um allan heim. En
“Stundin” falsar orð Robeson’s
á hinn ósvífnasta hátt, inn í
grein hans er lætt allt annarri
meiningu en er í frumritinu.
Þessu til sönnunar skal hér
birt niðurlag greinarinnar á
frummálinu og í þýðingu
“Stundarinnar”.
Paul Robeson:
“Against this new twentieth
century kind of enslavement
the Negro people in America
áre a living powerful bulwark.
Fascism, oppression or bywhat
ever name reaction is called —
would lay a bitter bloody terr-
or on the 12,000.000 Negroes in
the Unfted States. And the
strength of this 12,000,000 is
one of America’s defenses
against the loss of liberty for
America’s 130,000,000’.
< . -
Orðið “kommúnismi”, sem
hér er haft meö breyttu letri
til að vekja athygli á því,
stendur ekki í grein Robeson’s.
En þaö gerbreytir hugsunar-
innihaldi greinarinnar að bæta
því inn á þessum stað, — það
er ósvífin, vísvitandi fölsun á
því, sem Paul Robeson er að
segja og væri réttast aö hann
fengi sjálfur að segja álit sitt
á slíku athæfi. Fölsunin er að
vísu einstaklega klaufaleg, sú
fullyrðing, aö kommúnistar
mundu beita negrana í Amer-
íku “blóðugum og brjálæðis-
kenndum ofsóknum” hlýtur að
hljóma undarlega af vörum
manns, sem sjálfur tekur virk-
an þátt í frelsisbaráttu amer-
ísku negranna, og hefur hvað
eftir annað látið í ljós aðdáun
sína á þátttöku Kommúnista-
flokks Bandaríkjanna í þeirri
IBTi
■ÍLKWHINL
“Þýðingin” í “Stundinni”.
“Blökkumenn Ameríku eru
lifandi, máttugur skjólveggur
gegn þessari nýju tegund
þrælahalds, sem sprottin er
upp úr tuttugustu öldinni.
Fasismi, kommvinismi, kúgun
— eða hverjum nöfnum sem
afturhaldiö nefnist — mundi
beita hinar tólf milljónir
blökkumanna Bandarikjanna
blóðugum og brjálæðiskennd-
um ofsóknum.
Og styrkur þessara 12 millj-
öna er ein af vörnum gegn
sviptingu frelsis og sjálfstæðis
hinna 130 milljóna Bandaríkja
manna”.
baráttu, — flokksins sem hafði
negra að frambjóöanda í vara-
forsetaembættið við kosning-
arnar í nóvember sl, Enda seg-
ir Robeson ekkert á þá leið —
hann er aö tala um kjör negr-
anna undir óskoruöu valdi fas-
isma og afturhalds.
í þetta sama hefti “Stundar-
innar” skrifa ýmsir þjóðkunn-
ir rithöfundar, og hafa nöfn
þeirra verið óspart notuð til að
auglýsa tímaritið. Er ekki ólík-
legt að þeir hugsi sig tvisvar
um áöur en þeir leggja nöfn
sín í þá hættu, að láta nota
þau til útbreiðslu tímarits,
sem leggst svo lágt til þjónk-
unar þjóðstjórnarafturhaldinu
að falsa greinar heimsfrægra
manna og lauma inn í þær
hugsanagraut ritstjórans eða
trúnaðarmanna hans.
St “Víkingur” nr. 104 held-
ur fund annað kvöld á venju-
legum staö og tíma:
1. Inntaka.
2. Erindi: Sigf. Sigurhjartars.
3. Upplestur: Þorl. Þorgrímss.
4. Áramótafagnaður og dans
aö fundi loknum.
St. Framtíðin nr. 173
Hátíðafundur í kvöld kl. 8,30
1. Vígsla nýliða.
2. Áramótahvörf, Æ. t.
3. Prédikun: Ástráður Sigur-
steindórsson cand. theol.
Hafið sálmabækur með ykk-
ur.
W
RAFTÆKJA
VIÐGERÐIR
VANDADAR-ÓDÝRAR
SÆKJUM & SENDUM
PAtT.AÍKMVGRUUN - flAPVIRKJUN - VkOGCROAJTOCA
Daglega nýsoðin
S VID
Kaffistofan*
Hafnarstræti 16.
Faust-sýning Stúdenta-
félags Reykjavíkur
Stúdentafélag Reykjavíkur
verður 70 ára á næsta ári. —
Mörg mál hefur það látið til
sín taka á þessum árum, þó
starf þess hafi ekki alltaf verið
jafn þróttmikið.
Þegar á fyrstu árum félags-
ins sýndi það Útilegumenn
Matthíasar (Skuggasv.) og Ný-
ársnótt Indriða Einarssonar,
og síðan hefur það öðru hvoru
fengizt meira eða minna við
leikstarfsemi, einnig gekkst
það fyrir þrettándabrennu og
álfadönsum, sem hér voru
haldnir um langt skeið. Að
þessu sinni efnir félagið til
marionett-syningar og er það
fyrsta sýningin af því tagi hér
á landi.
Leikform þetta er æfafornt
og hefur náð miklum list-
rænum þroska hjá öðrum þjóð
um.
Frægasti marionett-leik-
flokkur nútímans er ítalskur
og munu margir íslendingar.
;em dvalið hafa erlendis, átt
íost á að kynnast list hans.
Faust, leikrit það, sem Stúd-
entafélagið ætlar nú að sýna,
2r fyrirrennari hins fræga
Faust eftir Goethe og þykir
fullvíst að Goethe hafi þekkt
þetta leikrit.
Frumsýning fer fram í há-
tíðasal Háskólans og hefst kl.
8 e, h.
Einn af kennurum Handíða-
skólans, Zier, hefur annazt all-
an útbúnað og undirbúning
sýningarinnar, en hann hefur
áður annazt slíkar sýningar í
Þýzkalandi og Sviss.
Léreftstuskur
eru keyptar í
Víkingspircnf hX
«*wX'mXKKhXwX'hX*4XmX**XmX*í*XXH
Áramotadansleikur
glímufélagsins Ármann verður haldinn í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu á gamlárskvöld kl. 10 síðdegis.
Dansað í báðum sötunum.
Aögöngumiða fá félagsmenn fyrir sig og gesti sína í skrif-
stofu félagsins á hverju kvöldi milli 8—10 síðd„ sími 3356.
Aðeíns fyrir íslehdinga.
Tilbjrnning frá loftvarnanefnd.
Loftvarnanefnd Reykjavíkur hefur, vegna framkominna
tilmæla frá stjórn brezka setuliðsins, ákveðið að merki um
yfirvofandi loftárásahættu skuh framvegis standa yfir aðeins
í 3 mínútur.
Rafflauturnar munu þvinæst þagna þar til merki um að
hættan sé liðin hjá verður gefið.
Loftvarnanefnd.
IÐJA, FÉLAG VERKSMIÐJUFÓLKS
fhndhb
verður haldinn í dag 29. des. 1940 kl. 5 e. h. í Aiþýðuhúsinu
gengið inn frá Hverfisgötu.
Fundarefni: Samningarnir. Áriðandi aö íélagsmenn mæti.
Stjórnin.
F A U S T .
Stúdentafélag Reykjavíkur hefur frumsýningu á Marionett-
leiknum “Faust” í hátíðasal Háskólans á nýársdag kl. 20. Á
undan leiksýningunni flytur Jón stúdent nýárskveðju.
Önnur leiksýning 2. janúar.
Félagsmenn geta í dag og á morgun tryggt sér aðgöngumiöa
að báðum leikkvöldunum í skrifstofu gjaldkera félagsins, hr.
Egils Sigurgeirssonar lögfræðings, Austurstræti 3, sími 1712,
opið kl. 10—12 og 14—18.