Þjóðviljinn - 10.01.1943, Page 1
I
VILJINN
8. árgangur.
Sunnudagur 10. janúar 1943.
7.tölublað.
InfaiBallslclllr tittMnia frð
Iðkasis i liirnfiili M
Rauði herinn í öflugrí sókn á öllum sudurvígsfödvunum
Leppstjftrn Japana I Nan-
king segir Bretum ug
Bandarfkjamönnum
strfð á hendur
Leppstjórn Japana í Nan-
king hefur sagt Bretlandi og
Bandaríkjunura stríð á hend-
ur, og reyna fasistaríkin að
gera þessa stríðsyfirlýsingu að
stórviðburðL
í blöðum Bandamanna
hefur stríðsyfirlýsingin ekld
verið tekin alvarlega, og á
það bent, að Nankingstjóm-
in eigi ekki yfir neinum her
aö ráða, og sé algerlega í
vasanum á japanska hemum.
Japanar hafa lýst yfir að vegna
þessarar ákvörðunar Nankings-
stjórnarinnar, verður henni feng
in öll stjóm innanríkismála í
Kina.
Sókn sovétherjanna á Donvigstöðvunum og i Kákasus held-
ur áfram, að því er segir í fregnum frá Moskva í gærkvöld.
Við Don tók sovétherinn í gær 12 þorp, og eru sum þeirra
vestur af Nikolajevsk, nær Donets.
Sovétherinn sem sækir fram eftir jámhrautinni frá Stalín-
grad til Svartahafs tók í gær fimm þorp í nágrenni bæjarins
Símovniki. Stefnir sovétherinn til járnbrautarbæjanna Salsk og
Tikovetskaja, en um þann síðarnefnda verður Kákasusher Þjóð-
verja að fara ef hann hörfar til Rostoff.
í Kákasus sækir rauði herinn fram eftir jámbrautinni frá
Prokladnaja, og hefur tekið bæ við Kúmafljótið, 20 km. norð-
austur af þýðingarmiklum járnbrautarbæ, Georgievsk.
Þjóðverjar hörfa úr fjallahér-
uðunum í norðurbrún Kákasus-
fjallgarðsins, til sterkra stöðva
við Pjatigorsk og Georgievsk, en
sovétherinn fylgir fast eftir, og
neyðir und&nhaldsherinn til bar-
daga hvað eftir annað.
Frá miðvígstöðvunum er
lítið um fregnir. Kauði herinn
hefur hrundið hörðum gagnár-
ásum Þjóðverja norðvestur og
suðvestur af Velíkíe Lúkí.
Einn af frægustu flug-
Tiönnum Sovétríkjanna, Mar-
ma Raskova, hefur beðið bana
í loftorustu, að þvi er segir
í fregn frá Moskva.
Marina Raskova hafði maj-
órstign í rauða flughermnn,
og stjórnaði sveit langfleygra
spreng'juflugvéla. Hún hafði
getið sér mikla frægð fyrir
langflug sín, en eitt fyrsta
afrek hennar var flug frá
Moskva til Austur-Asíu, án
viðkomu.
HQröíírzHiP siömenn bæta Híör sín
Að undanförnu hefur staðiö
yfir deila á milli sjómanna og
útgerðarmanna í Neskaupstað
um hlutaskiptakjör á drag-
nóta- og línuveiðum.
Sjómenn kröfðust nokkurrar
hækkunar á dragnótaveiðum
eöa 36% í 42%. En útgerðar-
menn kröföust aftur á móti
aö aflahlutur á línuveiðum
lækkaði all mikið, eða aö sjó-
menn tækju aö' sér að greiða
ásamt útgerðarmanni beitu
kostnaö.
Sáttasemjari í vinnudeilum
fyrir Austfirðingafjóröung
Karl Finnbogason skólastjóri
frá Seyðísfírói, hefur Verið í
Neskaupstað í 2 daga og kom-
lð á sáttum í deilunni.
Samkvæmt miðlunartillögu
sáttasemjara, sem samþ. var
af báðum aðilum, hækka drag
nótakjörin í 39% en línuveiða-
kjörin mega heita óbreitt.
Ðátar í NeskaupstaÖ búa
jsig jnú almennt tii vetrar-
vertíðar og verða flest allir
á Hornafirði. Fjögur vélskip
frá Neskaupstað að stærð frá
65—103 tonn munu stunda
siglingar með fisk frá Horna-
firðí til Englands.
Coca-Cola ritstjórarnir
orðnir vopnalitlir í
baráttunni gegnkomm
únismanum!
*
Vísir hefur gert þá uppgötvun
að fasistinn og svindlarinn John
Amery, sonúr Indlandsmálaráð-
herra Breta, sé kommúnisti! Birt
ir blaðið mynd af heiðursmann-
inum með fyrirsögninni: Enski
k omm ú nistinn í þýzka útvarp-
tnu!
Síðar í greininni segir: „Hann
var einu sinni hálfgerður komm-
únisti“. Annað er ekki af hans
kommúnisma að segja.
Auðvitað er þetta tilhæfulaus
tilbúningur og sýnir aðeins vesal
dóm Coca-cola ritstjóranna og
vopnafátækt i baráttu þeirra
gegn kómrnúniíttrámum.
Merína
Raskova
fallin
Marina Raskova
í hópi rúss-
neskra ung-
herja; myndin
tekin skömmu
eftir hið fræki-
iega flug til
Austur-Asíu
sumarið 1938.
Frumvarp Kristins E. Andréssonar um breytingu á mennta-
málaráði, sem liggur nú fyrir Alþingi, hefur þegar vakið mikla
eftirtekt.
Fer hér á eftir frumvarpið og greinargerð þess:
Frumvarp til laga um breyt-
ing á lögum nr. 7 12. apríl 1928,
um menntamálaráð íslands.
Flm.: Kristinn E. Andrésson.
Fyrsti málsliður 1. gr. orðist
svo:
Eftir alþingiskosningar skal í
sameinuðu Alþingi kjósa með
hlutbundnum kosningum fimm
menn í nefnd, .er starfar allt
kjörtímabilið og kallast mennta
málaráð íslands,^ en auk þess
skipar ríkisstjórriin í ráðið f jóra
menn, tilnefnda af sambandsfé-
lögum í Bandalagi íslenzkra
listamanna, ekin frá hverju fé-
lagi, en þau eru þessi: Félag ís-
lenzkra rithöfúridá, Félag ís-
lenzkra tónlistarmanna, Félag
íslenzkra myndlistamanna og
Félag íslenzkra leikara.
Greinargerð.
Starfssvið menntamálaráðs
hefur mjög verið aukið frá því
ráðið var fyrst kosið árið 1928.
Með lögum 1936 fékk það í hend
ur stjórn bókaútgáfu Menning-
arsjóðs og úthlutun allra ríkis-
launa til rithöfunda, skálda og
li’risamötnna rrieð lagabreýtingu
á Alþingi 1939. Það ráðstafar
öllu fé, sem ríkið ver árlega til
kaupa á listaverkum, og hefur
eitt með höndum val listaverka,
sem keypt eru handa væntan-
legu listasafni ríkisins. Er aug-
ljóst af þessu, þótt ekki sé fleira
greint af verkefnum mennta-
málaráðs, að störf þess krefjast
sérþekkingar á sviði bókmennta
og lista.
Störf og starfsaðferðir mennta
málaráðs hafa vakið mikla óá-
nægju, og hefur hún sífellt far-
ið vaxandi. í rauninni er svo á-
statt, að menntamálaráð, sem
| sérstaklega skyldi til þeðs kjör-
ið að gæta hagsmuna listamanna
hefur átt í stöðugum erjum við
þá, svo að þeir hafa jafnvel
neyðzt til að senda umkvartanir
til Alþingis. Félag íslenzkra
myndlistamanna hefur sérstak-
lega gert kröfu til þess, að full-
trúi frá félaginu sé látinn vera
með í ráðum, þegar gerð eru
kaup fyrir ríkissafnið, og hefur
bent 4 í skjali til Alþingis, að
allar menningarþjóðir, að íslend
ingum einum undanskildum,
Framli. á 4. síðu
Pjóðverjar fyrirskipa
brottflutning íbúanna
£| Norður-Noregi
Þýzku hernaffaryfirvöldin í
Noregi hafa gefið fyrirskipun
inn brottflutning íbúanna í
nyrztu héruðura Noregs, að
því er segir í brezkri útvarps-
fregn-
Er talið að ráðstöfun þessi
sé gerð vegna ótta Þjóðverja
við innrás Bandamanna í
Norður-Noreg.
í sænska blaðinu Aften-
bladet, sem hlynnt er naz-
istura, kemur greinilega i ljós,
að Þjóðverjar óttast innrás
Bandamanna í Noreg.
Blaðið birtir þau ummæli
i Falkenhorsts, þýzka yfirhers-
höfðingjans í Noregi, að ef
til innrásar komi, verði þýzka
setuliðið að verja hverja hem-
aðarstöð meðan nokkur mað-
ur standi uppi.
Nazistar öttast uppreisn
f Rúmenfu
í Rúmeníu hefur þýzka
herstjórnin gert margvíslegar
ráðstafanir til að vera við-
búin uppreisn. Hervörður hef-
ur verið settur við helztu
staði höfuðborgarinnar, Búka-
rest, úg við vegi til hennar