Þjóðviljinn - 13.01.1943, Side 1
8. árgangur.
IVUðvikudagur 13. janúar 1943.
9. tolublað
Afiurhaldíd þorðí ckkí að sfílla gcgu henní
Betra fraust gáfu verbamenn ebbí jvoftað stfórninni
fýrir ágæta frammísföðu og góða sffórn á málum þeirra
Sigurður Guðnason
formað’ur.
Helgi Guðmundsson
varaformaður
Hannes Stephensen
gjaldkeri.
Emil Tómasson
ritarL
Hér fer á eftir listi yfir stjórn
Dagsbrúnar og trúnaðarráðs.
Stjórn:
Formaður: Sigurður Guðnason,
Hringbraut 188.
Varaíormaður: Helgi Guðmunds-
son, Hofsvallagötu 20.
Pramhald á 2. síðu.
lapar senda eoo bðsuad iaioa
her tll landamæra Sooélrlklanna
Japanar hafa sent mikinn her til landamærahéraða Mans-
júriu og Sovétríkjanna, og japanskir stjórnmálamenn og hers-
höfðingjar hafa undanfarna daga látið innmæli falla, sem fela
í sér hótanir um árás á Sovétríkin.
Japanski forsætisráðherrann, Eiki Tojo, vakti máls á Mand-
sjúriumálunum nýlega, er hann skýrði frá í útvarpsræðu frá
Tokio, að hann hafi fyrirskipað „strangari hergæzlu á landa-
mærum Mandsjúkúo og Sovétríkjanna af landvamarástæðum.“
Staðreyndimar bak við þessa varlegu yfirlýsingu eru þær,
að japanska herstjómin hefur sent 35 herfylki, um 600 þúsund
menn, til landamæra Sovétríkjanna, að því er segir í fregn er
enska blaðið Cavalcade birtir.
Þessi her — Kvantúngherinn
japanski — hefur nú tekið sér
stöðu við hin löngu landamæri
Mansjúríu og Síberíu.
Það er almennt á litið ,að erf-
itt mundi fyrir Japana að hefja
árásarstyrjöld að vetri til, en
það er ekki álit sérfræðinga. Að
sumu leyti ættu Jpanar hægar
með árás meðan fljótin eru lögð
og jarðvegurinn harður af frosti.
Síðustu 12 mánuðina hefur
Rússahatarinn Úmetsú hershöfð
ingi þjálfað lið þetta fyrir „úr-
slitastundina“. Hermenn hans
hafa lagt hernaðarlega þýðingar
miklar járnbrautir að landamær
um Sovétríkjanna. Þeir hafa
sauðskinnsfatnað, flugvélar á
skíðum, vélarnar gerðar með
tilliti til þess að vera notkunar-
hæfar í miklu frosti. Skriðdreka
og stórskotaliðssveitir hafa ver-
ið þjálfaðar miskunnarlaust í
frostveðri.
Hernaðarklíkur Japana stæra
sig af því að þessi her sé bezti
japanski herinn. En Rússar eru
viðbúnir.
I. R. Apanasenko, rússneski
hershöfðinginn, sem gengur
næst yfirhershöfðingja Austur-
Síberíuherjanna, er nýkominn
til aðalstöðva liersins í Kabar-
ovsk, eftir ýtarlegar viðræður
Framh. á 4. síöu.
Eðvarð Sigurðsson
fjármálaritari.
Framboðsfrestur til stjórnarkosningar í Dagsbrún
var útrunninn í gærkvöldi. Höfðu þá engir listar fram
komið annar en sá, er uppstillingarnefnd og trúnaðar-
ráð höfðu lagt fram. Var því Dagsbrúnarstjómin sjálf-
kjörin.
Þetta mun vera í fyrsta skipti í sögu Dágsbrúnar
að stjórnin sé sjálfkjörin. Er þetta því eftirtektarverð-
ara sem bandalagslisti Héðins Valdimarssonar og
íhaldsins fékk í fyrra rúmlega 700 atkv., en listi Sósí-
alistaflokksins og Alþýðuflokksins fékk tæp 1100 at-
kv. En frammistaða núverandi Dagsbrúnarstjórnar í
kaupdeilum síðasta árs hefur aflað henni óskipts
trausts og fylgis félagsmanna, svo að óðinsklíkan
treystist ekki til að bjóða fram lista á móti stjórninni.
Þessi tíðindi eru glæsilegasti votturinn um þá ein-
ingu, sem nú ríkir í Dagsbrún og skapaðist í hinni sögu-
legu baráttu félagsins á liðnu ári.
Á laugardag og sunnudag n.k. fer fram allsherjar-
atkvæðagreiðsla um lögin og um tillögur frá stjórn-
inni viðvíkjandi samningum félagsins. Næsta mánu-
dagskvöld verður haldinn aðalfundur í Dagsbrún.
Fasístaherirnnr í Káhasus hörfa i
átt til Armavír og Vorosilovsh
Sovétherinn sem sækir fram eftir járnbrautinni frá Stalín-
grad til Svartahafs tók í gær bæinn Kúberle og er kominn það
nálægt járnbrautarmiðsíöðinni Salsk, að hún er í skotfæri rúss-
neska stórskotaliðsins. Milli þessa hers og sovéthersins, sem
sækir niður með Don, sunnan megin, er nú aðeins 15 km.
Rauði herinn sem tók í fyrradag borgirnar Georgievsk, Min-
eralni Vodi og Pjatigorsk sækir nú inn í land Kúbankósakk-
anna. Þýzki herinn hörfar í átt til tveggja ramlega víggirtra
borga, Armavír og Vorosílovsk. Sókn rauða hersins fram til
Armavír þýðir stórhættu fyrir fasisíaherinn á Majkopsvæðinu
og við Túapse.
Sókn rauða hersins í Kákasus
hefur verið svo hörð að Þjóðverj
ar hafa víða orðið að skilja eftir
mikið af hergögnum. í blaði,
sem Þjóðverjar gáfu út í Pjati-
gorsk, er feitletruð forsíðufyrir-
sögn í síðasta tölublaðinu svo-
hljóðandi: „Vér höfum tryggt yf
irráð vor í Kákasus að eilífu.“
Litvinoff, sendiherra Sovét-
ríkjanna i Washington, sagði í
ræðu í gær, að rússneska þjóðin
væri Bretum og Bandaríkja-
mönnum þakklát fyrir hjálp
þeirra, sem hefði ekki átt lítinn
þátt í því að Rússar gátu snúið
vörn í sókn. Litvínoff taldi aust-
ui*vígstöðvarnar þýðingarmestu
vígstöðvar Bandamanna, og
lagði áherzlu á að þeim væri
Kommúnistaflokkur
Frakklands styður
de Gaulle
Einn af miðstjórnarmeðhm-
«m Kommúnistaflokks Frakk-
lands kom í gær til London,
frá París.
Flutti hami með sér form-
lega samþykkt miðstjórnar
hins leynilega franska Komm-
úsistaflokks um fylgi við frels
ishreyfingu ,Stríðandi Frakka’
undir forustu de Gaulles. .
Kommúnistaleiðtogi þessi
hafði fyrir nokkru síöan slopp
ið úr fangabúðum nazista í
Frakklandi.
sýnd verðskulduð athygli.
Afrek rússneska loftflotans
„Þegar líður að vori, má
vænta þess að fyrir alvöru i*eyni
á sovétloftflotann“, ritar Mase-
field í Sunday Times, London.
„Þá má vera að þýzki loftflot-
Framh. á 4. síðu.
|