Þjóðviljinn - 14.01.1943, Page 1

Þjóðviljinn - 14.01.1943, Page 1
MMr frí IMia ig HíhiSBS ið sanai 01 sskla fran a uo Idl ihiho Þjóðverjar segja að raudí herínn á Leniníngradsvaedínu hafí hafídsókn Rússnesku herirnir sem sóttu fram suður Kalm- úkasléttumar og að sunnan úr Kákasus, hafa nú náð saman, og undanhald fasistaherjanna í Kákasus hef- ur sumstaðar orðið að skipulagslausum flótta. Rauði herinn sækir fram á 160 km. breiðri víg- línu, og hefur 'tekið mörg þorp í sókninni fram til Armavír. Á vígstöðvunum við Neðri-Don sækir rauði her- inn fram, en mótspyrna fasistaherjanna eykst með hverjum degi eftir því sem sóknarherinn nálgast Rostoff. Víðasthvar halda Þjóðverjar enn vamarlínu sem er um 100 km. austur af Rostoff. Þjóðverjar tilkynntu í gær, að rauði herinn hafi byrjað sóknar aðgerðir við Leningxad. Setu- liðið í borginni sé að gera harð- vítugar tilraunir til að rjúfa um sáturshringinn með því að brjót- ast austur yfir Nevafljótið, sem er isi lagt. Hafi rússneskur her náð fótfestu á eystri bakkaniun á einum stað, en hann liggi und- ir stórskotahríð Þjóðverja, í sovétfregnum hefur ekki ver ið minnzt á hernaðaraðgerðir á þessum slóðum. Þjóðverjar hafa einnig skýrt frá sóknaraðgerðum rauða hers- ins á Voronessvæðinu við Efri- Don. „Rússi einn, sem nýkominn er frá vígstöðvunum norðvestur af Stalíngrad, hefur sagt mér að þegar fárviðrin þeyta snjónum eftir gresjunum, komi oft í ljós hundruð hermannalíka, mest Þjóðverjar“, segir hinn kunni enski fréttaritari Alexander Werth í skeyti frá Moskva til Sunday Times. „Um allt svæðið sem Rússar hafa náð á vald sitt af Þjóðverj- um, eru sérstakar sveitir að safna saman fallbyssum, skrið- drekum og skotfærum, sem Þjóð , verjar og Rúmenar hafa neyðzt til að skilja eftir. Herfangið er margfalt meira en í sókn rauða hersins vestur af Moskva í fyrra vetur. „Baráttukjarkur rauðu her- mannanna er frábær“, segir sögumaður minn. „Undanfarnir mánuðir hafa verið mjög erfiðir, en eftir sigrana við Stalíngrad finnst þeim sem þeim séu allir vegir færir. En sú hugsun, að láta Þjóðverjana, sem innikró- aðir eru vestur af Stalíngrad, ekki sleppa, yfirgnæfir allt hjá þeim. Eg fór með rússneskri herein- ingu til þorps sem Þjóðverjar voru nýbúnir að yfirgefa. Þar var gaddavírsgirðing og við inn- gang hennar stóð: Aðgangur bannaður! Þar inni voru, hulin snjó, tugir af líkum rússneskra herfanga er látizt höfðu af kulda og hungri. Þeir voru nærri klæðlausir, og höfðu verið látnir deyja hægum og kvalafull um dauða. Aðeins tveir af föngunum voru á lífi, en mikið kalnir á höndum og fótum. Futlkomnir hernaðar- flugvellir byggOir á mánuði FlugvallagerÖ í Bretlandi hcfur teldð miklum framför- um vegna uppgötvunar á nýiTi tegund sements, en þungar sprengjuflugvélar geta lent á völlum sem úr því eru steyptir sólarhring eftir að steypan hef ur veriö lögð. Fregn þessi, sem enska blaó ið Sunday Chronicle birtir, hefur vakið mikla athygli- Þetta nýja sement gengur undir merkinu „417”. Renni- brautir v og flugvellir, sem i nota fyrr en alliangur tími hefur liðiö frá því að steypt var, er nú lokið á mettíma. Tilraunir sem gerðar hafa veriö meö „417” sýna, að þriggja þumlunga sements- lag, sem lagt er yfir rennandi forarsvæði, heldur auöveld- Grískur her berst með Bandamönnum í Afríku. Her þessi, sem myndaður er af grískum hermönnum, er undan komust, þegar Þjóðverjar hertóku Grikkland og Grikkjum búsettum við austanvert Miðjarðarhaf, hefur verið æfðiur í Palestínu und- anfarna mánuði, en tekur nú virkan þátt í hernaði Bandamanna • í Norður-Afríku. Myndin sýnir sundurskotinn grískan fána sem hermenn- imir hafa flutt með sér, er þeir urðu að yfirgefa ættjörð sína og láta hann nú fylgja sér sem verndargrip í stríðinu gegn óvinunum. UeFkaliiðssanibanil sioloal í MMH lega þyngstu sprengjuflugvél- um. Verkalýðsfélögin á Austfjörð- um hafa nú nýlega stofnað með sér f jórðungssamband innan allsherjarsamtaka Alþýðusam- bandsins. Samkvæmt upplýsingum, sem Þjóðviljanum bárust frá Norð- Fullkomnir hernaðarflug- vellir voru ekki byggöir á skemmri tírna en ári í byrjun stríðsins. Meö því aö nota : þetta nýja sement, er hægt að ; fullgera slíka velli á mánuöi. firði í gærkvöld er stjórn hins nýja fjórðungssambands þannig skipuð: Forseti sambandsins er Bjarni Þórðarson, Norðfirði. Ritari er Oddur Sigurjónsson og gjald- keri Svanbjörn Jónsson, báðir á Norðfirði. Varaforseti er Jóhannes Stef- ánsson, vararitari Svanbjörn Jónsson og varagjaldkeri Áx-- mann Sigurðsson, allir á Norð- firði. En að auk skipa stjórn fjórð- ungssambandsins 1 fulltrúi frá hverju verklýðsfélagi innan j fjórðungsins. Allsherjaratkvæða- greiðsla í Dagsbrún Á laugardag og sunnudag n.k. mun fara fram allsherjarat- kvæðagreiðsla um tillögur stjórnar og trúnaðarráðs Dags- brúnar um breytingar á lögum félagsins, eins og þær hafa verið samþykktar á félagsfundi í des- embermánuði s.I. og á fundi trúnáðarráðs í byrjun þessa árs. Ennfremur munu félagsmenn fá tækifæri til að greiða atkvæði um það, hvort fela eigi stjóm og trúnaðarráði að halda fast við þær kaupbætur og kjarabætur, sem félagið hefur náð með nú- gildandi samningum. Valjjmer jótiannsso læt- jir af ri: jc r. Þju3 SI. I fyrsta tölublaði Þjóðólfs, sem útkom eftir áramótin er skýrt frá því að Valdimar Jó- hannsson láti af stjórn blaðs- ins, en Arni Jónsson frá Múla verði einn ritstjóri þess. Valdimar hefur veriö rit- stjóri blaösins frá stofnun þess, en síöan „Múlakvíslin“ féll í farveg þeirra Þjóöveldis- .manna hefur hann veriö rit- stjóri bláösins ásamt Arna frá Múla. Eftirleiöis á hann aö vera ristjóri mánaöarrits, sem gefa á út í sambandi viö Þjóöólf. Mun margur hafa vænst þess aö meira myndi fyrir hann leggjast en gerast eins- konarfylgihnöttm- þess bláös, sem hann var stofnandi áö og stjórnaöi fyrstu árin. Hrakfarir fasistaherjanna á austurvlgstðavunum vekja ólgu á Balkan Mikil ólga er í Ungverjalandi, Rúmeniu og Búlgaríu, og er tal- ið að fregniraar um ósigra fas- j istaherjanna í Sovétrikjunum hafi haft mikil áhrif á almenn- ingsálitið í þessum löndum. Tilkynnt hefur verið að Anton escu, rúmenski einræðisherrann hafi s.l. sunnudag farið á fund Hitlers í Berlín, og hafi náðst „fullt samkomulag“ á fundi þeirra. Hitler hefur nýlega hvatt á fund sinn hermálaráð- herra Búlgaríu og Ungverja- lands, og er talið að hann hafi krafizt þess, að Ungverjar leggi fram meiri her og Búlgarar sendi einnig herlið til austui*víg stöðvanna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.