Þjóðviljinn - 20.01.1943, Blaðsíða 1
o
8. árgangur.
Miðvikudagur 20. janúar 1943.
15. tölublað.
uhlr hratl Iran
Brezki áttundi herinn sækir
hratt fram í átt til Tripolis,
tók bæinn Misúrata í gær,
og varð vel ágengt í
sókn sinni til versturs,
foæði eftir strandvegunum og
sandauðninni inní í landi.
, Samkvæmt fregnum í gær
áttu fremstu sveitir Breta þá
áðeins 60—70 km. ófarna til
Tripolis.
Flugher. Bandamanna gerir
harðar árásir á her Rommels
á undanhaldinu. A daglnn
ráöast orustuflugvélar með
vélbyssuskothríð á hinar flýj-
andi hersveitir, en um nætur
taka sprengjuflugvélarnar við.
laiði heriin 120 hn. atstur at Mffi
í sóknínní á Voronesvígstöðvunum hefur sovélherinn
dBBBaá
tekíd 52 þúsund [fanga, en þar af aðeíns 2700 þ'jcdverja
Arshátíð Hlífar er á
laugardaginn
Árshátíð verkamaimafélags-
siu Hlíf í Hafnarfirði veröiu:
næstkomandi laugardag.
í fyrrakvöld hélt Hlíf fund
til þess að ræöa breytingar
á félagslögunum. Veröa þær
afgreiddar viö þriðju umræðu
á næsta fundi.
Sókn rauða hersins heldur áfram á vígstöðvunum við Lenín-
grad, suður af Vorones, við Don og í Kákasus, með miklum
árangri.
Harðast var barizt í gær suðvestur af Vorones. 1 aukatil-
kynningu sem birt var í Moskva í gærkvöld staðfesti sovét-
herstjórnin fregnina um töku járnbrautarborganna Valúíki og
ÍJratsova, en þær eru báðar á járnbrautarlínunni er tengir Kar-
koff aðaljárnbrautarlínunni milli Vorones og Rostoff. Bærinn
Úratsova er aðeins 120 km. austur af Karkoff.
Fyrir vestan Vorones-Rostoffjárnbrautina, á svæðinu milli
Rossos og Kamenka, hefur fjölmennur þýzkur her verið um-
kringdur, og á engrar undankomu von.
Síðan sóknin hófst á Voronesvígstöðvunum hefur rauði her-
inn tekið 52 þúsund fanga. Þar af eru 27 500 Ungverjar, 22 000
italir og 2 700 Þjóðverjar.
Á Donetsvígstöðvunum hefur
rauði herinn nú treyst yfirráð
sín í Kamenskaja og tekið bæ-
inn Belaja Kalitva, sem er 40
km. austar en Kamenskaja og
stendur einnig við Donets.
í Norður-Kákasus tók sovét-
herinn járnbrautarbæinn Petr- 1
ovskoje, 80 km. norðaustur af í
Vorosilovsk.
Hver járnbrautarlestin eftir ,
aðra hlaðin matvælum, komu
til Leníngrad í gær, og var j
þeim tekið með miklum fögn-
uöi af borgarbúum, sem hafa j
liðið sáran skort vegna aö-
flutningserfiðleika. meöan um-
sátriö varaði.
,,Rússneska kraftaverkið verð
ur stöðugt mikilfenglegra og
furðulegra", segir enska blaðið
News Chronicle í ritstjómar-
grein í fyrradag.
„Það verður að teljast til
kraftaverka, að rauði herinn,
eftir allt það manntjón og her-
gagna, sem hann hefur beðið,
Framh. á 4. síðu.
Frá fundí bæjarsf jórnar
Aðalfundur
stjórafélagsins
Þráttur
ÁKveðið að stofna fræðsluliilltrúastarf fyrir Reykjavik
Á fundi bæjarstjórnar í gær var fjárhagsáætlun bæjarins
afgreidd til annarrar umræðu, og gert er ráð fyrir að fari fram
þriðjudaginn 2. febrúar.
Frestur til að bera fram breytingartillögur var ákveðinn til
30. þ. mán.
Fræðslufulltrúi ráðinn
fyrir Reykjavíkurbæ.
Lagt var fram að nýju bréf
fræðslumálastjóra, dags. 29.
okt. s. 1., um að ráðinn veröi
sérstakur fræðslumálafulltrúi
fyrir Reykjavík. Skólanefnd-
irnar hafa mælt með erindi
þessu.
Fræðsluráðið samþykkir að
mæla með því, að embætti
þetta veröi stofnað, að þvi
tilákyldy. að samkomulag
verði við fræðslumálastjórn-
ina um starfssvið og launa-
greiðslu
Steinþór Guðmundsson bar
fram eftirfarandi tillögu i
sambandi við máliö:
„Bæjarstjórnin samþykkir,
aö ráðinn verði sérstakur
fræðslumálafulltrúi fyrir
Reykjavíkurbæ, ef samkomu-
lag næst við fraiðslumálastjóra
um starfssvið hans og við
kennslumálaráðuneytið um
þátttöku ríkisins i greiðslu
launa hans. Mcðan ekki er
sett löggjöf um embætti þetta,
skal frajðslumálafulltrúinn
ráöhin á sama hátt og yfir-
kennarar barnaskólanna og
Framh. á 4. síðu
Friðleifur Friðriksson,
formaður „Þróttar".
Vörubílstjórafélagið Þróttur
hélt aðalfund sinn s. 1. sunnu-
dag.
Fór þar fram m. a- stjórnar-
kosning og er hin nýja stjórn
þannig skipuð: Formaður:
Friðleifur Friðriksson, vara-
form.: Sveinbjörn Guðlaugs-
son, ritari: Einar Ögmunds-
son, gjaldkeri: Pétur Guð-
finnsson, meöstjórnandi: Jón
Guðlaugsson.
Hervarnir landsins auknar vegna innrásarhættu.
ForsætisráBherra Svta aðvarar þjöð sfna
*
Per Albin Hansson, forsætisráðherra Svía, hélt ræðu í sænska
þinginu um hlutleysi Svíþjóðar og aðstöðu í styrjöldinni, er
fjárlagafrumvarpinu var vísað til nefndar, en þá er venja að
fram fari almennar pólitískar.umræður.
Forsætisráðherrann sagði m.
a. að Svíþjóð teldi sig ekki í yf-
irvofandi hættu, en heldur ekki
örugga. Hin miklu átök færu að
vísu fram á vígstöðvum langt
frá landamærum Svíþjóðar, en
það væri eðlilegt að styrjaldar-
aðilar leggi nú fram sitt ýtrasta,
og geti stríðið í skjótri svipan
nálgazt sænsku landamærin.
Ríkisstjórnin hefði því nú eins
og nokkrum sinnum áður í
styrjöldinni gefið fyrirskipun
um aukinn hernaðarviðbúnað og
kallað nýtt herlið til vopna.
Styrkur hervarnanna byggð-
ist þó ekki einvörðungu á ráð-
stöfunum ríkisstjórnarinnar og
yfirvaldanna, heldur á fram-
komu hvers einstaks borgara.
Hugsanlegt væri að árásarher
eða fylgismenn hans í landinu
reyndu að koma á ringulreið
Per Albin Hansson.
innan hersins með því að gefa
falsaðar fyrirskipanir og breiða
út ósannar fregnir, meðal ann-
ars gegnum útvarp. Komið gæti
Framh. á 4. síöu.
Eining oj gðð forusta tærði þ:im sigra síðasta árs.
Einhuga skipa þeir sér um réttliidi sin og hagsmunamál
Aðalfundur Dagsbrúnar í fyrrakvöld var talandi vottur um
þá miklu einingu, er nú ríkir í félaginu. AHar ýfingar milli ein-
stakra hópa í Dagsbrún eru nú alveg úr sögunni.
Oft áður báru fundir Dags-
brúnar raunalegan svip af inn-
byrðis átökum, er spilltu félags-
starfseminni, jafnvel meira en
nokkur fékk í ráðið. Því ánægju
legri er sú breytni og, sem orð-
ið hefur í þessu efni.
Nú koma verkamennirnir í
Da'gsbrún á fundi til þess að
ræða um málefni sín og greiða
atkvæði um þau, án tillits til
alls annars en sameiginlegra
hagsmuna sinna.
Síðasta starfsár Dagsbrúnar
var að mörgu leyti meira
reynsluár en nokkurt annað ár
í sögu félagsins. Á árinu fékkst
úr því skorið með góðum ár-
angri, til hvers forusta verka-
manna sjálfra dugar. Ekkert
eitt ár hefur fært Dagsbrúnar-
Framh. á 4. síðu.