Þjóðviljinn - 03.02.1943, Síða 1
DOii sfihi siiMa f III 01 Ofrst, Itrloff, Oisfifl n Orasudar
VoWunustu samtok
>e ðdhso.u it,,
Churchill, forsætlsráðherra
Breta er kominn til Kairo úr
för sinni til Tyrklands-
Á leiðinni kom hann við á
eynni Kýprns, sem er brezk ný-
lenda, Flutti hann þar ræðu yf-
ir heldra fólki höfuðborgarinn-
ar, Nicosia, og lét svo ummælt,
að aldrei í veraldarsögunni
hefði þekkzt eins voldug sam-
fylking Bandamanna.
Tilkynnt var í gær, að Stalín
hafi fengið jafnharðan fregnir
af því, er gerðist á viðræðufund
um Churchills og tyrknesku
stjórnmálamannanna, og hafi
útvarp og blöð í Sovétríkjunum
veitt viðræðunum mikla at-
hygli.
Annan febrúar 1943 lauk hinni stórfenglegu bar-
áttu um Stalíngrad með fullum sigri sovétherjanna,
segir í aukatilkynningu, sem birt var í Moskva í gær
kvöld, þar sem skýrt er frá að síðustu leifar fas-
istaherjanna við Stalíngrad hafi verið neyddir til
að gefast upp.
Síðasti flokkurinn af þessum 330 þúsund manna
her varðist norður af Stalíngrad. í gær lagði hann
einnig niður vopn, og foringi hans Strecker, ásamt
sjö öðrum hershöfðingjum þýzkum, var tekinn til
fanga.
Rússar hafa alls tekið 91000 fanga á Stalíngrad-
vígstöðvunum á þremur vikum, þar af 24 hershöfð-
ingja og 2500 aðra foringja fasistaherjanna. —
Rauði herinn hefur tekið gífurlegt herfang.
Rauði herinn heldur áfram
sigursælli sókn í átt til f jögurra
höfuðstöðva fasistaherjanna,
Kúrsk, Karkoff, Rostoff og
Krasnodar.
Her Rússa, sem sæklr fram til
Kúrsk á tæpa 100 km. ófarna til
borgarinnar, og hefur skilið eft-
ir að baki sér innikróaðan þýzk-
an her, sem á engrar undan-
komu von.
t átt til Karkoff sækir rauði
herinn á 200 km. víglínu, og er
aðeins 100 km. frá borginni.
Sovétherinn sem næst er
Rostoff, er aðeins 48 km. suð-
austur af borginni, og eru þar
háðir harðir bardagar. Hafa
Þjóðverjar sent þangað varalið í
því skyni að reyna að stöðva
hina miklu sókn rauða hersins.
Krasnodar, einu mikilvægu
í nanöunDiroiiu lil Finnlands
Fínnsfea ríbíssfjórnín lætur sem hún
vítí ekkí af þessu hneykslí
Þjóðverjar hafa sent 150 norska pilta til Norður-
Finnlands, undir því yfirskyni, að þeir eigl að vinna
þar að skógarhöggi í skógi, sem „norska ríkið hefur
keypt“.
• . i. \' . ' x
Um þessa ráðstöfun segir sænska blaðið Dagens
Nyheter, að það sé furðulegt að finnsk yfirvöld hafa
lýst yfir, að þeim sé ókunnugt um þessa ráðagerð.
Ástæðan til þess er talin sú, að finnsku stjórnarvöldin
viti ekki neitt um mál, sem varða norðurhluta síns
eigin lands, en þar ráða Þjóðverjar öllu.
ríkið“, samkvæmt skeyti frá
Osló, keypt skóg, Þetta getur
verið rétt, ef’ litið er á „norska
ríkið“ sem lepp fyrir þýzku her
námsyfirvöldin, en það bætir
ekki fyrir finnsku stjórninni,
segir þetta sænska blað að lok-
um
Finnar verða auk þess að þola
að Þjóðverjar taki á vald sitt
finnsk atvinnufyrirtæki og land
areignir. Ungu Norðmennirnir,
segir Dagens Nyheter ennfrem-
ur, eiga að fara til skógarhöggs
f Enare,' en þar hefur „norska
járnbrautarborgina, sem Þjóð- ;
verjar eiga eftir í Kákasus, nálg
ast Rússar úr þremur áttum.
Fregnir í gær hermdu, að þýzki
herinn væri á hröðu undanhaldi
til flotahafnarinnar Novorossísk
og fylgdu Rússar þeim fast á
eftir.
Þýzka útvarpið játaði í gær, 1
að Þjóðverjar hefðu hörfað af
talsverðu landsvæði suður af
Ladogavatni, en þær vígstöðvar
hafa ekki verið nefndar í síðari
tilkynningum Rússa.
-------------------------- ;
Umræðurnar um fjárlögin
Útvarpsumræður fara
fram í kvöld
Umi-æður um fjárlögin (2.
umræða) héldu áfram í fyrra-
kvöld og fram á nótt. Af hálfu
sósíalista töluðu auk þeirra, sem
sagt var frá í gær, þeir Steingr.
Aðalsteinsson og Sigurður
Guðnason.
í gær kl. 2 var svo umræð-
unni haldið áfram- Kristinn
Andrésson talaði þá fyrstur.
Jónas Jónsson hélt eina af sín-
um dómadagsræðum út af Hall
Framhald á 4. síðu.
200 brezkar orustufhig-
vélar í árásarför til Belg-
íu og Frakklands
Tvö hundruð brezkar orustu-
flugvélar fóru f gær árásar-
ferðir inn yfir Belgiu og Frakk-
land, og gerðu f jölda árása á
jámbrautarstöðvar og herstöðv
ar Þjóðverja.
Allar flugvélamar komu aft-
ur úr árásarferðunum
Matvælaskömmtunin í
Bandaríkjunum
Almenn matvælaskömmtun
verður tekin upp í Bandaríkjun-
um frá 1. marz n. k., að því er
tilkynnt var opinberlega f gær.
Ýmsar aðrar ráðstafanir hafa
verið gerðar, sem miða að
auknu hernaðarátaki þjóðarinn
ar, einkum mun lögð áherzla á
að nota mannafla Bandaríkj-
anna betur en hingað til.
Sir Walter Citrine tekur að sér að
ráðstafa Rússlandssöfnun íslenzku
verkðlýðssamtakanna
Söfnun brezku verkalý ísfélaganna komin
upp I 442 búsund sterlingspund
Eftirfarandi bréf hefur Eggert Þorbjarnarsyni, formanni
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, borizt frá Sir
Walter Citrie, aðalritara brezka verkalýðsfélaga-sambandsins,
en hann er einn þeirra, sem annazt hafa sendingar á hjálpar-
gögnum þeim, er send hafa verið til Sovétríkjanna fyrir söfn-
un brezku verkalýðsfélaganna, en sú söfnun nam 15. jan. s. 1.
442 þús. sterlingspundum, þ. e. 11 millj. 490 þús. íslenzkum kr.
(Grein um söfnun brezku verkalýðsfélaganna birtist á 3. síðu
blaðsins í dag).
BRÉF WALTERS CITRINE
„15. janúar 1943.
Kæri herra Eggert Þorbjarnarson,
RÚSSLANDSSÖFNUNIN
Eg vil þakka yður fyrir símskeyti yðar, þar sem þér spyrjið,
hvort vér mundum vilja taka að oss að verja því fé, er fulltrúa-
ráð yðar mun safna í Rússlandshjálpina-
Þér munuð þegar hafa fengið svar vort í símskeyti, þar
sem vinsamlegast er fallizt á uppástungu yðar, og eins og ég
hef gefið í skyn, höfum vér getað gert verkalýðsfélögiun Nýja
Sjálands og Suður-Afríku sama greiða. Hjálparsjóður vor er
þessa stundina orðinn 442000 £ og svo að þér fáið nokkra
hugmynd um það, hvernig peningunum hefur verið varið, sendi
ég hér með eintak af síðustu reikningsskilum (þann 30. sept.
1942).
Það mundi verða oss mikil hjálp, ef þér vilduð leyfa oss að
verja þeim peningum, er þér sendið oss, til kaupa á vörum, sem
auðvelt er að afla, og að vér þyrftum ekki að einskorða oss við
ákveðna vörutegund.
Vér þökkum yður hjartanlega fyrir áhuga yðar á starfi
voru og vér metum mikils það traust, er þér sýnið oss með því
að leita aðstoðar vorrar.
Eg get fuílvissað yður um, að vér munum gera allt, sem 1
voru valdi stendur til þess að verja fé því, er þér kunnið að
senda, á þann hátt, að til sem mestra nytja verði.
Mér er ekki með öllu ljóst, hvernig þér ætlið að koma
fénu til vor, en ef það verður greitt mér á þennan viðtökustað
munum vér senda yður opinbera kvittun, þegar féð hefur borg-
azt oss í hendur.
Með miklu þakklæti,
yðar einlægur
Walter Citrlne
aðalritari“.