Þjóðviljinn - 19.02.1943, Side 1
Þýzfea hefsffórnin vídurkennir fall Karkoffs. — Rúss~
ar ssekja að Orel og Taganrog
í dag eru þrír mánuðir liðnir frá því að rauði herinn hóf
hina miklu gagnsókn á suðurvígstöðvunum, og eftir þriggja
mánaða sókn er svo komið, að nú er barizt 560 km. vestur af
Stalíngrad.
Sovéthersveitirnar, sem tóku Karkoff, halda áfram hraðri
sókn til vesturs og stefná til Poltava. Seint í gær var barizt í
80 km. fjarlægð frá þeirri borg, og reyna Þjóðverjar að tefja
sókn rauða hersins eftir megni. Þýzka herstjórnin játaði í gær
að Karkoff væri fallin.
Rauði herinn nálgast nú óðum tvær mikilvægar borgir,
Orel og Taganrog, tók í gær járnbrautarbæ 55 km. austur af
Orel, og rauf járnbrautina til Taganrog 40 km. norður af þeirri
borg.
Rauði herinn hefur einnig sótt
fram í Vestur-Kákasus og er nú
25 km. frá flotahöfninni Novo-
1i9 þingmenn greiða
atkvæði gegn brezku
stjórninni
út af Bevcridgeáætluninni
Umræðunni inn Beveridge-
áætlimina lauk í brezka þing
inu í gær. og var samþykkt
tillaga stjórnarinnar, þar sem
hún lýsir yfir fylgi sínu við
meginatriði áætlunarinnar. .
Breytingartillaga, er all-
margir þingmenn Verka-
mannaflokksins báru fram,
og fól í sér áskorun til stjórn-
arinnar um afdráttarlaust
fylgi við áætlunina, var felld
með 335 atkv. gegn 119.
Herbert Morrison, innan-
ríkisráöherra, varöi afstööu
stjórnarinnar, og taldi þaö
geta haft alvarlegar stjórn-
málaafleiðingar ef breytingar-
tillaga flokksbræöra hans yröi
samþykkt. Samt greiddu 119
þingmienn tillögunni atkvæöi.
og hafa aldrei fyrr svo marg-
ir þingmenn greitt atkvæöi
gegn stjórninni.
rossisk, síðustu öflugu varnar-
stöðinni, sem fasistaherirnir
hafa í Kákasus.
Þýzka herstjómin skýrir enn
frá því, að Þjóðverjar heyi
mikla varnarbardaga suður af
Ladogavatni, en í sovétfregnum
er ekki minnzt á hernaðarað-
gerðir á þeim hluta vígstöðv-
anna.
Paul Winterton, fréttaritari
brezka útvarpsins í moskva, seg
ir að rauði herinn hafi tekið
mjög mikið herfang í Karkoff
og á svæðinu umhverfis hana,
sé ekki enn hægt að gera sér
grein fyrir hve mikið það sé.
Sem dæmi nefnir Winterton, að
Rússar hafi náð 14 eimreiðum
og 150 járnbrautarlestum, og
hafi hver vagn verið hlaðinn
skotfærum og öðrum hergögn-
um.
Göbbels flutti útvarpsræðu í
gær, og var aðalefni hennar
bolsévíkahættan, sem hann taldi
vofa yfir Evrópu. Taldi hann ó-
vænlega horfa, ef sterkasta
hernaðarveldi Evrópu, Þýzka-
land, megnaði ekki að stemma
stigu við sókn bolsévismans til
vesturs, og bað menn í Bretlandi
og Bandaríkjunum að hugsa sig
vel um áður en þeir héldu á-
fram að stuðla að slíkri þi’óun!
Áttundi brezki herinn sæk-
ir stöðugt fram í Suöur-Tún-
is og er kominn um 100 km.
inn í landiö. Voru Bretar í
gær aöeins 18 km. frá hinni !
Þýzku og ítölsku herirnir í Túnis hafa
unnið nokkuð á
Brezki herinn kominn 100 km. inn í landið
Fasistaherimir í Mið-Túnis hafa náð á vald sitt allveru-
legu landsvæði í bardögunum undanfarna daga, og breikkað
um helming landspilduna milli stöðva Bandamanna og sjávar,
að því er segir í útvarpsfregn frá London.
Bandaríkjaherinn hefur hörfað til nýrra stöðva, eftir að
hafa beðið mikið manntjón og hergagna. Er sérstaklega tekið
fram að skriðdrekatjón Bandaríkjahersins hafi verið talsvert.
öflugu Mareth-virkjalínu, og
í fregnum í gærkvöld var' tal-
ið aö árásir á hana væru um
þaö bil að hefjast.
Frá fundi tæjar.stíórrar
Halfgrínij-
feirfeju frestad
Það var óvenjulega fjölmennt
á áheyrendabekkjunum, þegar
bæjarstjórnarfundur hófst í
gær, það" var Hallgrímskirkja
sem olli áhuga áheyrendanna.
Eins og kunnugt er hafði bygg-
inganefnd samþykkt uppdrátt
Guðjóns Samúelssonar húsa-
meistara ríkisins að fyrirhug-
aðri Hallgrímskirkju á Skóla-
vöf'ðuhæð og var tillaga hennar
lögð fyrir bæjarstjórnina til
endanlegrar afgreiðslu. Það hef
ur komið í ljós síðustu dagana,
að málið er hið mesta hitamál
og miklum áróðri er beitt með og
móti kirkjuhugmynd þessari.
Bæjarfulltrúar tóku þann kost-
inn að taka sér frest í málinu,
tillaga um það, frá Valtý Stef-
ánssyni var samþykkt, og fá
áróðursmenn hálfs mánaðar
tíma til að eltast við bæjarfull-
trúana, og reyna að hafa áhrif
á skoðanir þeirra.
Fimm manna nefnd til
að gera tillögur um
æðstu stjórn bæjarins
Kosin var fimm manna nefnd
samkvæmt tillögu Sósíalista-
flokksins og Alþýðuflokksins, er
samþykkt var á næst síðasta
fundi, til að athuga og gera til-
lögur um æðstu stjórn bæjarins,
útsvarsálagningar o. fl. Sósíal-
istaflokkurinn og Alþýðuflokk-
urinn höfðu sameiginlegan
lista skipaðan þessum mönnum:
Áka Jakobssyni,
Stefáni Jóh. Stefánssyni og
Sovétsofnunln
RiDiar 8 bfis. tr. hali beiar uarid
í gær höfðu verið afhentar í skrifstofu Sovétsöfnunarinn-
ar 8066,16 kr. Voru það framlög, sem afhent voru beint til skrif-
stofunnar, að undanteknu því, er safnazt hafði á 1 söfunarlista,
en fjöldi manna hefur þegar fengið lista, svo raunverulega mim
þegar hafa verið safnað hærri upphæð.
Iðnaðarmaður nokkur afhenti 1000 kr. til sovétsöfnunarinn-
ar og sami maður bað skrifstofuna að koma á framfæri 1000 kr.
frá sér og 150 kr. frá þrem börnum sínum, til Norðmanna, með
því skilyrði, að þessi upphæð rynni til þeirra nú þegar.
Gjöf þessi hefur verið afhent Rithöfundafélaginu, er mun
koma henni áleiðis og einnig veita móttöku öðrum slíkum gjöf-
um.
Þegar hafa verið sendir út 1600 söfnunarlistar til einstakl-
inga og yfir 100 verkalýðsfélaga.
Söfnunarstjórnin hefur snúið sér til fjölmargra félagssam-
taka hér í bæ og boðið þeim að gerast aðilar að söfnuninni. Tvö
hafa þegar svarað með því að tilnefna menn í söfnunarstjóm-
ina, Stúdentafélag háskólans, sem hefur tilnefnt Eirík Finn-
bogason og Félag róttækra stúdenta, sem hefur tilnefnt Agnar
Þórðarson.
Þórði Eyjólfssyni.
Á lista Sjálfstæðismanna
voru þessi þrjú nöfn :
Bjarni Benediktsson,
Guðmundur Ásbjörnsson og
Þórður Eyjólfsson.
Nefndin var því sjálfkjörin og
skipa hana„ þeir fimm menn, er
í kjöri voru.
Á fundinum var kosinn einn
maður til að framkvæma fast-
eignamat. Kosningu hlaut Knut
Zimsen. Þá var og Guðmundur
Ásbjörnsson kosinn til að taka
sæti í nefnd til að undirbúa
landssamband sveitarfélaga.
Knattspyrnuþíngið hefst í
kvöld
Hið árlega Knattpyrnuþing
Knattspyrnufélagana í Rvík
hefst í kvöld í Verzlunar-
mannahúsinu. Munu ýms
mál liggja fyrir þinginu.
Myndin sýnir allt sem eftir var eftir af þýzkri flugvél á Afríku
vígstöðvunum, eftir að Bandamenn höfðu gert snögga loftárás
á flugvöll Þjóðverja.
Kona Sjang Kajsjek
varar Bandaríkjaþing
við hættunni af her-
veldi Japana
Frú Sjang Kajsjek ávarpaði
í gær sameinað þing Banda-
ríkjanna. og lagði áherzlu á
að ekki mætti vanmeta styrk
Japana.
Meðan Japanir halda lönd-
um þeim sem þeir hafa her-
numið, eykst þeim styrkur.
og Bandamannaþjóðirnar
verða að vera vakandi fyrir
þeirri hættu sem enn stafar
af japanska herveldinu.
Meðan frúin var að halda
ræðu sína, lýsti talsmaður
japönsku herstjórnarinnar yf-
ir því, að nú væri um það bil
aö hefjast úrslitasókn á hend
ur Kínverjum.
Hafa Japanir undanfarna
daga gert miklar árásir á
stöðvar kínverska hersins
víðsvegar um landið.
7100 hr. oeM
sfolid
í fyrrinótt voru framin tvö
innbrot og stolið verðmæti, er
nemur um 7000 krónum.
Sýningargluggi í skartgripa-
verzlun Guðmundar Andrésson
ar, Lgv. 50 var brotin og þar
Framhald á 4. síðu.
/