Þjóðviljinn - 02.03.1943, Side 1

Þjóðviljinn - 02.03.1943, Side 1
t 8. árgangur. Þriðjudagur 2. marz 1943. 48. tölublaö. 2500 ferkílómetra landsvæðí tekíð í álfa daga orusfum. 3000 fasístahermenn hafa fallíð og þrjú þúsund veríð ieknír H1 fanga flinningarathðfn um |>á sem fórust með Þormóði Minningarguðsþjónusta um þá, sem fórust með Þormóði, nóttina 17. og 18. febrúar s.l., fer fram í dómkirkjunni næst-^ komandi föstudag 5. þ. m. og hefst hún kl. 2 e. h. Rauði herinn hefur hafið nýja sókn á vígstöðvun- um suðaustur af Ilmenvatni, undir stjórn Tímosjenkos marskálks. í aukatilkynningu sem utvarpað var frá Moskva í gærkvöld segir, að fyrir átta dögum hafi rauði herinn hafið sóknaraðgerðir gegn 16. þýzka hernum, og brot- izt gegnum varnarlínur hans suðaustur af Ilmenvatni á mörgum stöðum. Lá nærri að allur 16. herinn yrði innikróaður, en honum tókst að forða sér með hröðu undanhaldi. Rauði herinn hefur tekið 2500 ferkm. landsvæði með 300 þorpum og borgina Demjansk. Átta þúsund fasistahermenn féllu í bardögunum og 3000 voru tekn- ir til fanga. Hergagnatjón Þjóðverja hefur orðið mjög mikið. Þjóðverjar hafa haft land- I svæði þetta á valdi sínu í 17 I mánuði, og höfðu gert það aö sterku varnarsvæði. Rétt áður en aukatilkynn- ingin var birt í Moskva, flutti talsmaður þýzku herstjórnar- innar, Dietmar, ræðu og lagöi út af því hve vel þýzku her- mönnunum á norðurvígstöðv- unum liði, ef borið væri sam- an við líðan félaga þeirra á suðurvígstöðvunum. Rauði herinn hefur sótt fram vestur af Kúrsk og Kark off, en í nánd við borgirnar Losovaja og Kramatorskaja eru háðar miklar skriðdreka- og fótgönguliðsorustur, sem enn erií óútkljáðar. Vestur af Rostoff hefur rauði herinn tekið nokkur þorp efth- harða bardaga. Frumvarp um kynnis- ferðir sveitafólks rætt í efri deild A dagskrá efri deildar í gær var frumvarp um kynnisferð- ir sveitafólks. Hafði neðri deild endursent það efri deild, vegna breytinga sem á því (höfðu verið gerðar. Áður en gengið var til dag- ski'ár, hóf forseti efri deildar máls á því, að breytingar þær. sem neðri deild hafði geft á málinu, væru það gagngeröar að vafasamt gæti talizt, hvort hér væri um að ræða sama mál og flutt hafði verið í deildinni, á öðru þingskjali, undir sama nafni'. Rakti hann síðan — með tilvísun til bók- ar Bjarna Benediktssonar „Deildir Alþingis“ — nokkur dæmi þess, hvernig meðhöndi- uð hefðu veriö mál í sam- bærilegum tilfellum. Þó af- greiðsla slíkra mála hefði orö- ið með mismunandi hætti, virðist yfirleitt hafa verið fyr- ir hendi sá skilningur. aö ekki væri leyfilegt að ger- breyta máli, nema þáð fengi þá nýja meðferð. Lagði forseti nú fyrir deild- ina að meta hvort telja skyldi þetta sama mál og áöur hefði fyrir henni legið, og var, eftir miklar umræöur ákveöið meö „lija'v mótfnælir harölega dýrtíðar- frumvarpi ríkisstjórnarinnar Á fjölmennum fundi, sem Iðja, félag verksmiðjufólks, hélt í gærkvöldi var eftirfarandi tillaga samþykkt í einu hljóði: „Fundur í Iðju, félagi verksmiðjufólks, haldinn 1. marz 1943, mótmælir harðlega dýrtíðarfrumvarpi ríkisstjómarinnar og skorar á Alþingi að fella það. Telur fundurinn að í frumvarpi þessu felist þær árásir á kjör alþýðunnar að með engu móti verði við unað af hálfu verk- lýðssamtakanna. Fundurinn lýtur svo á að kostnaður við lækkun dýrtíðar- innar verði fyrst og fremst að berast af þeim aðilum er safnað hafa stórgróða í skjóli hennar, og bendir í því sambandi á þær samþykktir er 17. þing Alþýðusambands íslands gerði varðandi dýrtíðarmálin, og sendar hafa verið til Alþingis.“ Sovétsölnunin Alls hafa nú safnazt 27 þús, 696,61 krónur. 1000 sterlingspund send í dagltil Breflands Fjársöfnunin til Rauða kross Sovétríkjanna hefur nú stað- ið í tvær vikur. • Að því er blaðinu var tjáð í gærkvöldi hafa safnazt hér í Reykjavík á þessu tímabili samtals 27696. 91 kr. Á Akureyri hafa safnazt 4700,00 kr. í dag verða send þúsund sterlingspundi til Sir Walter Cit- rine, aðalritara brezku verklýðsfélaganna, sem mun kaupa hjúkmnarvörur og senda þær til Rauða kross Sovétríkjanna. Komið hefur í ljós mikill áhugi vinnandi fólks fyrir söfnun þessari. Þannig söfnuðust á fundi Bakarasveinafélagsins 780,00 kr. og hjá starfsfólki Vinnufatagerðarinnar 500 kr. Áhugamenn fyrir söfnuninni eru beðnir að koma í skrif- stofu Dagsbrúnar kl. 4—7 í dag. Einn þeirra var kommúnistaleifltoginn Ottar Lie Seytján norskir ættjarðarvinir hafa verið myrtir af naz- istayfirvöldunum í Noregi. Voru þeir sakaðir um „undirróðurs- starfsemi gegn þýzka hernum skemmdarverk skipulagn- ingu á kommúnistasellum og starf fyrir óvinaríki.“ Einn þeiria var kommúnistaleiðtoginn Ottar Lie og Bjame Dolland, er barðist í spánska lýðveldishernum og sat í fang- elsum spánskra fasista alllöngu eftir að stríðinu lauk. Ottar Lie var fæddur 1896 — Löten á Hedemark; Dolland var 36 ára að aldri. Hinir fimmtán voru þessir : Theodor Danielsen f. 1,899,. frá Voss við Bergen. Ingolf Kleppestö, f. 1901, á Ask0y viö Bergen. Arthur Berg, f. 1890 í Trond heim. . Iiarold Slottelid, f. 1895, Bergen. Thore Espelid, f. 1918, Odda í Harðangri. Olaf Prestegárd, f. 1912. sama stað. Knut Beka, f. 1902, Voss viö Bergen. Leif Kindem, f. 1906, Berg- en. Ole Kjell Karlsen, f. 1908, Tune, Östvoldfylke. Olaf Kvernino, f. 1896, Mer- áken Tröndelag. Lars Nordbu, f. 1909, Stav- anger. Sigurd Syvertsen, f. 1905 Drammen. Arne Stenrud. f. 1913, Ju- vík. Gustav Adolf Nerásen, f. 1895, Beri, Upplandfylke. Reidar Svendsen, f. 1896, Oslo. „Snól" í Vestmannaeyjnm semur um bæif kjör Verkakvennafélagið Snót í Vestmannaeyjum hefur nú náð samningum við Magnús Guðbjartsson atvinnurekanda í Vestmannaeyjum, og aðrir atvinnurekendur lýst því yfir. 9 atkv. gegn 6 aö svo væri eigi .heldur væri hér um nýtt mál aö ræða. Ákvað þá forseti þrjár um- ræður um málið. og var það tekið til 1. umræðu og aö henni lokinni vísað til 2. um- ræðu og landbúnaöarnefndar. að þeir muni viðurkemia taxt- ann. Aðalatriði samningsins eru þessi: 8 stimda vinnudagur, grunn kaup kvenna í dagvinnu sé kr. 1,50, 50% álag greitt á eftir- vinnu og 100% álag á nætur- og helgidagavinnu. Auk þess eru í samningnum ýmsar aðr- ar réttarbætur frá því sem áð- ur var. Allsherjaratkvæöagneiðsla Framhald á 4. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.