Þjóðviljinn - 13.03.1943, Síða 1

Þjóðviljinn - 13.03.1943, Síða 1
8. árgangur. Laugardagur 13. marz 1943 58. tölublað. Orustan um Karhoff ad ná hámarkí, — Þjódverjar segj- ast hafa brotízt ínn í borgína, Þýzbar árásír víð Isjúm Rauði herinn tók í gær bæinn Vjasma á mið- vígstöðvunum, eitt sterkasta ígulvirki þýzka hers- ins á austurvígstöðvunum, og hefur verið unnið mánuðum saman að því að víggirða bæinn og um- hverfi hans. Vjasma hefur verið á valdi Þjóðverja í 18 mánuði. Sovéther tók Vjasma snemma í gær með hörðu áhlaupi og vörðust Þjóðverjar harðlega í nágrenni bæjarins og á götunum. Um 9000 þýzk- ir hermenn féllu í bardögunum um Vjasma og ná- grenni, og Rússasr tóku mikið herfang, þar á meðal 53 skriðdreka, 69 fallbyssur, 57 eimreiðar og 600 j árnbr autarvagna. Norður af Vjasma, í héraðinu umhverfis Sit- sevka, hefur rauði herinn tekið nokkur þorp. Um 30 km. suðaustur af Vjasma hafa Rússar tekið bæ einn. Herinn sem tók Bjelí fyrir nokkrum dögum hefur haldið áfram sókn til suðurs, og tekið í einu þorpi 70 skriðdreka. Geysiharðar orustur eru háðar um Karkofí, og senda Þjóðverjar stöðugt meira lið og skriödreka til árása. í fregn frá Moskva í gærkvöld segir að rauði herinn hafi orðið að hörfa til nýrra vamarstöðva vestur af borginni, og séu bar- Vínnan Nýff fímaríf Alþýðu- sambands Islands Alþýðusamband íslands hefur hafið útgáfu á nýju mánaðar- riti, sem heitir Vinnan, og kem- ur fyrsta tölublað þess út eftir helgina. í þetta blað skrifa m. a. Hall- dór Kiljan Laxness, Stefán Ög- mundsson, Steinn Steinarr, Sig- urður Einarsson, Friðrik Ilall- dórsson o. fl. Margar ágætar myndir eru í blaðinu. Ritstjóri þess er Friðrik Hall- dósson loftskeytamaður og í rit- nefnd þeir Stefán Ögmundsson og Sæmundur Ólafsson. Útgáfa slíks rits var orðin knýjandi nauðsyn fyrir löngu. Að hún nú er hafin er að þakka hinum sívaxandi þrótti, sem ein- ing verkalýðsins í Alþýðusam- bandinu hefur skapað. Er það öllum alþýðumönnum gleðiefni, að verkalýðssamtökin hafa nú eignazt sitt eigið málgagn. dagarnir likastir því sem þeir voru harðastir á Stalingrad- vígstöðvunum. Þjóðverjar tilkynntu í gær- kvöldi, aö þeir heföu brotizt inn í Karkoff á mörgum stöö- um, og hafi náö mestum hluta borgarinna,r á sitt vald. í Moskvafregn segir að þýzkt fótgönguliö og skriö- drekasveitir géri ákafar árás- ir á ísjúmsvæöinu, 110 km. suðaustur af Karkoff, en þeim hafi veriö hrundiö viö mikiö tjón árásarhersins. Samningaumleitanir um húsnæði fyrir mæöraheimili Samningar fara nú fram milli ÞuríÖar Báröardóttir ljós- móður, og bæjarstjórnar Reykja víkur, um húsnæði fyrir mæöraheimili þaö, er gert er ráö fyrir aö bærinn stofni og reki. Þuríöur vill selja bænum á leigu eina hæö í húsi sínu Tjarnargötu 16, til þessara notá. Eins og kunnugt er, er heimili þessu ætlaö þaö hlut- verk, aö vena veglausum mæörum athvarf fyrir og eftir barnsburð. Maiili if hart- iHilaia. SnlöF bf ilnll I Tvær leyniskyttur úr rauða hernum. Gulrófur hafa ehki ver- íð fil lölu um margra mánaða skeíð Engar kartöflur eru nú fá- anlegar í bænum. Segja kaup- menn aö errn muni þó vera til eitthvað af kartöflum, en þaö hafi veriö erfitt um flutn- inga á þeim sökum þess að Hellisheiði sé ófær. En þó muni þeir sem yfir þesári vöru ráöa, lítinn áhuga hafa á því aö koma henni á maxkáö með . hámarksverði því sem nú er á kartöflum. Smjör er einnig ófáanlegt og bóliar lítiö á ameríska smjör inu sem ríkisstjórnin sagöist vera búin áð kaupa og fá flutning á, fyrir rúmum tveim- ur mánuöum. En smjör þetta átt-i áö flytja inn til þess aö græöa á því, svo hægt væri aö selja okkar eigin fram- leiöslu skaplegu verði. Þá hafa gulrófur ekki verið til sölu um lengri tíma. Hér Fnamhald á 4. síöu. Samningar við ríkið um fæðingaheimili fyrir Reykjavfk Samkvæmt samþykkt þeirri er bæjarstjórn geröi um stofn- un fæöingarheimilis, þegar fjárhagsáætlun fyrir 1943 var afgreidd, hefur borgarstjóri tekiö upp samninga viö ríkis- stjórnina um málið. Á fundi bæjarráðs í gær, var eftir til- lögu borgarstjóra, samþykkt. að fela þeim Sigfúsi Sigur-' hjartarsyni og Jóni Axel Pét- urssyni aö vinna meö borgar- stjóra aö þessum samningum. Sólheimahælið sækir um bæjarstyrk Barnaheimiliö aö Sólheim- um í Grímsnesi, hefur sótt um rekstrarstyrk til' bæjarins. Á fundi bæjarráðs í gær, var málinu frestáö. Forstjórastarfið við sundhöllina auglýst lausat Á fundi bæjarráös í gær, var ákveöiö aö auglýsa for- stjórastarfiö við Sundhöllina laust til umsóknar. tlndírbúníngur hafínn ad ráðsfefnu fullfrúa alfa sfjórna Bandamanna Anthony Eden, utanríkisráðherra Breta, er kominn til Washington, og mun ræða við banda- ríska stjórnmálamenn um öll helztu mál er varða rekstur styrjaldarinnar, og ennfremur undirbúa ráðstefnu um styrjaldarmálin, sem stjórnir allra Bandamannaríkjanna tækju þátt í. Ný reglugerð um hleðslumerki skipa Þann 14. sept. f. á. skipáöi atvinnumálaráðuney tiö þriggj a manna nefnd til þess áö semja reglur um það hvernig eigi að ákveöa minnsta hleðsluborö skipa samkv. 2. gr. laga nr. 38. 1942, um breytingu á lög- um nr. 78. 1938, um eftirlit meö skipum. í þessari nefnd á'ttu sæti Ólafur Th. Sveins- son skipaskoðunarstjóri, Pét- ur Sigurösson og Guöbjartuv Ólafsson hafnsögumaöur. Nefndin skilaði tillögum sín um- til ráðuneytisins 24. f. m. Tilkynnt var einnig að Eden muni kynna sér hergagnafram- leiðslu Bandaríkjanna. Undanfarið hafa komið fram ýmsar raddir einkum í Banda- ríkjunum, um nauðsyn slíkrar ráðstefnu. Hækkar aðgangseyrir að sundhöllinni? Fyrir fundi bæjarráðs í gær lágu tillögur um allverulega hækkun á aðgangseyri áö Sundhöllinni, ákvöröunum var frestaö. og staðfesti ráöuneytið í gær reglugerð um hleöslumerki samkvæmt framangreindum lögum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.