Þjóðviljinn - 25.03.1943, Side 1
8. árgangur.
Fimmtudagur 25. marz 1943.
68. tölublað.
m nedni tii M sflMn
Harðír bardagar halda áfrant á Marefhsvaedinu
Hersveitir Rommels hafa náð flestum þeim virkjum í Mareth-
vamarlínunni, sem áttundi brezki herinn tók í fyrstu sóknar-
lirotunni. Churchill forsætisráðherra Breta flutti þessa fregn í
neðri málstofu brezka þingsins í gær.
Fasistaherirnir hófu þessar gagnárásir í fyrrinótt, og urðu
Bretar að láta undan síga. Harðir bardagar halda áfram og
liafa Bretar tekið um 2000 fanga síðan sóknin hófst.
Norskur kafbátur ferst.
Norska flotastjómin tilkynnti
í gær að norski kafbáturinn
UREDD mundi hafa farizt, þar
eð hann hafi ekki komið til
stöðvar sinnar.
Churchill sagði að mikið vant-
aði á á bardagarnir í Túnis væru
komnir á hástig, og mætti gera
ráð fyrir mjög harðri og erfiðri
baráttu. Hann varaði við trú á
skjótan sigur, en kvaðst sann-
færðari en nokkru sinni fyrr
um endanleg úrslit.
Fasistar hafa sent vélaher-
sveit gegn Bandaríkjahernum í
Mið-Túnis. Var barizt ákaft á
þeim vígstöðvum' í gær. Banda-
ríkjamenn hrundu árásum fas-
ista, eyðilögðu 10 skriðdreka og
tóku 200 fanga.
Loíther Bandamanna heldur
enn uppi látlausum árásum á
herstöðvar fasista í Túnis.
í Norður-Túnis halda bardag-
ar áfram, og tók fyrsti brezki
herinn í gær smábæ á vígstöðv-
unum vestur af Bizerta. Ekki er
þó um stórbadaga að ræða á
þessum slóðum.
Samþykkt Félags ísl. leikara:
Morii sé öerí Meitl ai helga
sig lisl sioni lisliipflr
Skorað á þing og stjón að undirbúa starfsemi Þjóð-
leikhússins með stofnun leikflokks er hafi leiklist að
aðalstarfi
Aðalfundur Félags íslenzkra leikara var haldinn 20. þ. m.
í stjórn voru kosnir: formaður Þorsteinn Ö. Stephensen,
ritari: Haraldur Björnsson, gjaldkeri: Lárus Pálsson.
í fulltrúaráð kaus félagið framantalda menn og auk þeirra
Arndísi Björnsdóttur og Val Gíslason.
Aðalfundurinn samþykkti einróma eftirfarandi ályktun um
undirbúning að starfsemi Þjóðleikhússins.
„Félag íslenzkra leikara“ lýsir
ánægju sinni yfir þeiri ákvörðun
Alþingis, að veita ríkisstjórn-
inni, á íjárlögum fyrir árið lí}43,
heimild til þess að íullgera
þjóðleikhúsið, sérstaklega þegar
Kosníngarnar í Danmörku
csígur fyrir nazísmann
íhaldsfloKkurinn vann mest á
Kosningar fóru fram í Danmörku í fyrradag, og kusu 91%
þeirra sem á kjörská voru. Við síðustu kosningar, er fram fóru
1939, var kosningaþáttakan 79,2%. Flokkaskiptingin á þingi
breytist lítið, en í'haldsflokkurinn hefur unnið mest á hlut-
fallslega.
Kommúnistaflokkur Danmerkur fékk ekki að taka þátt í
kosningunum, en hann var bannaður sem kunnugt er þvert
ofan í stjórnarskrána, eftir fyrirmælum frá nazistastjórninni
þýzkú.
Urslitin urðu sem hér segir:
Sósíaldemókratar 894777 at-
kv., 66 þm. Vann 22% og 2 þm.
RadikaJi-flokkurinn 175025 at-
kv., 13 þm. Vann 8%, tap. 1 þm.
íhaldsflokkurinn 421069 atkv.
31. þm. Vann 407' og 5 þm.
Vinstriflokkurinn 376413 atkv.
28 þm. Vann 307", tap 2 þm.
Retsforbundet 31085 atkv., 2
þm., tap 1 þm.
Bændaflökkur 24701 atkv. 2
þm., tap 2 þm.
Nazistar 43263 atkv., 2 þm.
tap 1 þm.
Dansk Samling 42252 atkv.
3 þm., hafði engan áður.
Stjó'rnmálamenn í London
télja að kosningaúrslitin séu ó-
rækur vottur um hug þjóðarinn
ar til nazismans,' þar sem nazist-
ar og þeir sem þá styðja hafa
aðeins fengið örfá þingsæti.
þess er gætt, að Alþingi hefur
fullan hug á því, að heimild
þessi verði notuð nú' þegar, —
samanber eftirfarandi þingsá-
lyktunartillögu, sem nú liggur
fyrir þinginu og sem samþykkt
hefur verið við fyrstu umræðu
á Alþingi.
Hún hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að beita sér fyrir
því, að þjóðleikhúsið verði
rýmt þegar í stað, og að því búnu
hafnar framkvæmdir á fullnað-
arsmíði hússins“.
Greinargerð, fyrir þessari til-
lögu, sem er borin fram af níu
þingmönnum úr öllum flokkum,
hljóðar þannig:
„Þjóðleikhúsið hefur nú stað
ið ófullgert í tólf ár, og verið
notað síðustu árin sem vöru-
geymsla erlenda setuliðsins.
Samtímis er svo ástatt, að leik-
listarstarfsemi í Reykjavík á
engin skilyrði til þroska vegna
skorts á húsnæði. Slíkt ástand
er með öllu óþolandi lengur, og
telja flutningsmenn þessarar
tillögu því fulla ástæðu til, að
þing og stjórn skerist í leikinn
og beiti sér fyrir því, að þjóð-
leikhúsið fáist rýmt, svo að hægt
sé að ljúka til fulls smíði þess,
og að það geti tekið til starfa
FnamhaM á 4. síðu.
Sovcfsöf nunín;
SOhniflii neniir ní 77 isa,4i hr.
1000 sterlingspund verfla í dag send til formanns
brezka verkamannasambandsins
í gær hafði safnazt til styrktar Rauða kross Sovétríkjanna
sem hér segir:
f Reykjavík ...................... 56 627,41 kr.
Á Akureyri ....................... 11 200,00 —
Á Siglufirði ..................... 3 500,00 —
í Borgarnesi ..................... 3 000,00 —
Á Sauðarkróki .................... 1319,00 —
Á Hólmavík ......................... 727,00 —
Á Svalbarðströnd ................... 580,00 —
í Bæjarhreppi, Strandasýslu ........ 200,00 —
Samtals 77 153,41 kr.
Meðal þeirra upphæða sem safnast hafa eru eftirfarandi:
Verkamenn hjá Ríkisskip ...................... kr. 710.00
Vegavinnuflokkur ............................... — 390.00
Starfsfólk í Vinnufatagerð íslands ............. — 655.00
Starfsfólk í sælgætisverksm. Víkingur .......... — 78.00
Starfsfólk í Belgjagerðinni .................... — 80.00
Starfsfólk í Toledó ........................... — 72.00
Starfsfólk Ríkisútvarpsins ..................... — 500.00
Verkamenn hjá hafnargerð Reykjavíkur .......... — 445.00
Verkamenn hjá Kol & Salt...................... — 265.00
Verkamenn í Pípuverksmiðjunni .................. — 1115.00
28 alþingismenn ................................ — 5300.00
Starfsfólk í Lakk- og málningarverksm. „Harpa“. — 110.00
Starfsfólk Kron ............................... — 995.00
Vinnuflokkur hjá Eimskip ..................... — 155.00
Vinnuflokkur hjá Eimskip .............*........ — 205.00
Vinnuflokkur hjá setuliðinu á Lauganesi ........ — 720.00
Vinnuflokkur hjá setuliðinu í flugvellinum....... — 635.00
Frá meðlimum í starfsstúlknafél. „Sókn“ ........ — 265.00
Frá lögreglunni 1 Reykjavík .................. — 935.00
Frá rafvirkjum................................ — 1010.00
Þessi verklýðsfélög hafa lagt fram eftirtaldar upphæðir til
að standast kostnað við söfnunina:
Verkamannafélagið Dagsbrún, Reykjavík.......... kr. 1000.00
Múrarafélag Reykjavíkur ...................... — 500.00
Bókbindarafélag Reykjavíkur .................,.... — 100.00
Verkalýðsfélag Hólmavíkur ...................... — 150.00
Sveinafélag skipasmiða, Reykjavík .............. — 300.00
Búið er að senda andvirði 1000 sterlingspunda til forseta
brezka verkamannasambandsins og verður andvirði annarra
þúsunda punda sent í dag. Landsbankinn hefur góðfúslega
lækkað yfirfærslugjald fyrir söfnunarféð um helming.
Tekið er á móti fé til söfnunarinnar á skrifstofu Dagsbrúnar,
í Bókabúð Máls og Menningar, á afgreiðslu Tímans og Þjóð-
viljans.
Rauða hernum verður vel ágengt í
sókninni á miðvígstöðvunum
Rauði herinn hefur brotizt gegnum varnarllínu Þjóðverja á
vígstöðvunum norðaustur af Smolensk, og sækiir fram til suðurs.
Sovétherinn sem sækir fram til Jartsevo veirður vel ágengt
og er nú barizt í 30 km. fjarlægð frá þeim bæ„ en það er aðal-
varnarstöð Þjóðverja á járnbrautinni milli Vjas ma og Smolensk.
Á Kúbanvígstöðvunum hefur
rauði herinn tekið bæ einn á
járnbrautinni frá Krasnodar 35
knt. norðaustur af Novoroösisk.
Á Donetsvíf jstöðvunum hafa
Þjóðverjar gert staðbundnar
árásir við B jelgorod, og var
þéim hrundið., Niu þýzkir skrið-
drekar voru eyðilagðir.