Þjóðviljinn - 26.03.1943, Qupperneq 1
Föstudagur 26. marz 1943. 69. tölublaö.
Pt ódvcrjum vcrdur ekkerf ágengtvíð Donefs
Eauði herinn sem sækir fram á miðvígstöðvunmn nálgast bæ-
ina Dúkovsína og Dorogobús. Virðist ekkert lát á sókninni enda
þótt hún hafi staðið í þrjár vikur.
Þjóðverjar verjast harðlega og virðast staðráðnir í að fórna
miklu liði ef takast skyldi að hindra sókn sovéthersins fram
til Smolensk.
í miðnæturtilkynningunni frá Moskva segir að rauði herimi
hafi í gær tekið fjölda þorpa á miðvígstöðvunum.
Harðir bardagar eru háðir á
Donetsvígstöðvunum, einkum í
nánd við Tsúgúeff og Bjelgorod.
Árásum Þjóðverja á þessum slóð
um var hrundið.
í fregn frá Moskva segir, að
sovétflugvélar hafi á miðviku-
daginn var eyðilagt 50 þýzka
flutningabíla fulla af hermönn-
um og hergögnum og 8 loftvarna
fallbyssur og ennfremur sprengt
hergagnageymslu í loft upp.
Á Kúbanvígstöðvunum í
Kákasus sækir rauði herinn fram
þrátt fyrir mjög erfið veðurskil-
yrði og hálfófœra vegi.
Hardír bardagar
á Marefthvig*
sftödvunum
Harðir bardagar eru háðir á
Marethvígstöðvunum í Suður-
Túnis, en í tilkynningum frá
stöðvum Bandamanna segir að-
eins, að stórskotalið beggja herj
anna hafi mjög látið til sín taka.
Á Gafsasvæðinu í Mið-Túnis
hefur Bandaríkjaher hrundið
hörðum árásum þýzkra vélaher-
sveita. Barizt er í nánd við bæ-
inn Maknassi.
Loftvarnaæfingin
í gærkvold
Loftvarnaæfing sú, sem aug-
lýst hafði verið að yrði í þessari
viku, fór fram í gaer og hófst
hún um kl. 21.15 og stóð í 1
klukkustund. Rafstraumurinn
var tekinn af bænum meðan á
æfingunni stóð.
Að því er lögreglan tjáði blað-
í gærkvöldi tókst æfingin
yfirleitt vel og hlýddi fólk sæmi
lega settum reglum. Þó munu
hafa verið nokkur brögð að því,
að fólk byrgði ekki nógu vel þau
ljós er það hafði kveikt. . .
Verndarenglarnir
skáldsaga eftir Jóhannes
ðr Kfitlum
Loksins er hún komin út
jfyrsta skáldsagan um hernám
íslands.
Það hafði einhvern veginn
kvisazt, að Jóhannes úr Kötlum
hefði skáldsögu í smíðum, sem
fjallaði um hernámið og „á-
standið“ svokallaða. — Menn
biðu bókarinnar með óþreyju.
Saga Emblu, íslenzku sveita-
stúlkunnar, á eftir að verða
mörgum minnisstæð. Svo mun
og verða um Brynjólf bónda.
Mána skáld og fleiri persónur
sögunnar.
Menn ættu að vara sig á því,
að undanfarið hafa upplög ým-
issa bóka reynzt of lítil, er því
sennilegt að fyrsta bókin um
þetta mjög umrædda efni þrjóti
fyrr en varir.
Útkoman verður því sú, að á
þessu fyrsta stjigi hernaðarins
við strendur Norður-Afríku hafa
Bandamenn frekar grætt en tap-
að og er þetta sama sagan og þá
er hernaðurinn barst að strönd-
um annarra stríðslanda. Þegar
Þjóðverjar gerðu innrásina í
Noreg hafði norska stjórnin um
8 milljón smálesta kaupskipa-
flota. Svo að segja samstundis
gengu |irír fjórðu hlutar hans í
þjónusfu Bandamanna. Þegar
Fræðslustarf Dagsbrúnar
Fyrirlesturog kvikmynda
sýning n. k. sunnudag
Fyrirlestur verður fluttur
á vegum fræðslunefndar
Dagsbrúnar í Iðnó kl. 1.15 e.h.
næstkomandi sunnudag.
Fyrirlesturinn verður flutt-
ur af Sverri Kristjánssyni
sagnfræðingi.
Ennfremur verður sýnd
kvikmynd frá 1 maí s. 1.
Öllum meðlimum verka-
lýðssamtakanna er heimill
aðgangur. — Aðgöngumiðar
fást í skrifstofu Dagsbrúnar
eftir kl. 1 í dag.
lur fdnr M
Tvœr telpur um fermingu
hurfu af heimilum sínum hér
í bœnum fyrir tveimur dögum.
Hefur lögreglan leitað þeirra
undanfarið, en þær voru ófundn
ar seint í gærkvöld. — Hinsveg-
ar hafði lögreglan góða von um
að þær mundu koma í leitirnar.
Þjóðverjar gerðu innrásina í
Holland nam hollenzki kaup-
skipaflotinn 2 millj. og 8 hundr-
uð þúsund smálestum. Á einni
nóttu komst yfirgnæfandi meiri
hluti hans undan og gekk í lið
með Bandamönnum, en aðeins
200 þúsund smálestir urðu eftir
í höndum Þjóðverja. Árið 1941
þegar þýzkir kafbátar hófu árás
ir sínar á kaupskip Bandaríkj-
anna voru rúmlega 50 þýzk og
í'tölsk skip kyrrsett í Bandaríkja
Skipakostur Bandamanna vaxandi
Churchill, forsætisráðheiTa Bréta lýsti yfir því á þingfundi
í neðri málstofunni, að Bandamenn ættu nú meiri skipakost en
þegar verst hefði gengið með varnir gegn kafbátahernaði Þjóð-
verja, og færi skipakostur sameinuðu þjóðanna vaxandi.
Nýlega hefur 31 franskt skip sameinazt flutningaskipaflota
hinna Sameinuðu þjóða. Eru það 9 fyrverandi farþega flutninga-
skip 22 meðalstórir og stórir tunduspillar. Með þessari viðbót
við flutningaskipaflota Bandamanna er meira en bætt það skipa-
tap sem þeir urðu fyrir í nóv. s. 1. við að skipa hér á land á hinni
1000 mílna strandlengju Norður-Afríku, segir í fregn frá New
York.
Blaðamannafélag' íslands skorar á utanríkismálanefnd:
vraii n i i íiim Msfoii
Bliiiiilllriiir séi sHmiir iio is-
liislnr sindlsniflr
Blaðamannafélag íslands hefur skrifað utanríkismálanefnd
bréf, þar sem það skorar á nefndina að beita sér nú þegar fyrir
því, að fréttastarfsemi og landkynningu verði komið í viðunan-
legt horf.
Þær endurbætur á fréttaþjónustunni, sem Blaðamannafélagið
vill að komið sé á eru fyrst og fremst tvær. Að ráðinn verði sér-
stakur fréttastarfsmaður við utanríkisráðuneytið og komið á
fót fréttastofu í sambandi við ráðuneytið. Og í öðru lagi að ráð-
in verði sérstakur blaðafulltrúi við íslenzkar sendisveitir er-
lendis.
Það verður ljóst af greinargerð Blaðamannafélagsins, að þess
er brýn þörf, að þessum málum verði hrundið í framkvæmd.
Bréf Blaðamannafélagsins,
sem er undirskrifað af öllum
meðlimum þess, er svohljóðandi:
„Blaðamannafélag Islands
leyfir sér hér með að beina
þeirri áskorun til háttvirtrar
utanríkismálanefndar, að hún
flytji á alþingi því, er nú situr,
áskorun á ríkisstjórnina um að
eftirfarandi málefnum, varð-
andi landkynningu og frétta-
starfsemi út á við, verði hrund-
ið í framkvæmd hið allra fyrsta:
1. Að ráðinn verði sérstakur
starfsmaður við utanríkisráðu-
neytið í Reykjavík, er annist
miðlun allra opinberra frétta
til innlendra og erlendra blaða,
sem þess kynnu að óska, svo og
til sendisveita og ræðismanna
íslands erlendis. Stefnt sé að
því, að komið verði á fót sér-
stakri fréttastofu í sambandi
við utanríkismálaráðuneytið, er
hafi þessa starfsemi með hönd-
um og svari fyrirspurnum
þeirra, er til hennar leita, um
land og þjóð almennt og um
einstök málefni. Stofan gefi út
tímarit um þau málefni, sem
skýringa þurfa við á hverjum
tíma, og beiti sér fyrir útgáfu
annarra aðgengilegra upplýs-
ingarita um land og þjóð.
2. Að skipaðir verði blaða-
fulltrúar við íslenzku sendisveit-
irnar erlendis.
Blaðamannafélagið óskar að
höfnum. Þar að auki hefur meiri
hluti gríska kaupskipaflotans
gengið í lið með Bandamönnum.
Allur þessi skipakostur kom að
ómetanlegu gagni meðan Banda
menn voru að koma á laggirnar
nýjum skipakvíum og að öðru
leyti að búa sig undir gífurlega
auknar skipasmíðar.
En í dag eru 10 þús. smá-
lesta „liberty“ skip framleidd
með meiri hraða en nokkru
sinni fyrr. Og eftir þriggja ára
herferð þýzkra kafbáta eru fleiri
skip í flutningaflota Banda-
manna en nokkru sinni áður.
láta eftirfarandi greinargerð
fylgja þessari áskorun:
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að brýna napðsyn ber
til þess, að fréttir þær, sem er-
lend blöð flytja af íslendingh
um, séu sem sannastar og rétt-
astar. Á síðari árum hefur f jöldi
erlendra blaðamanna heimsótt
ísland, einkum síðan landið var
hernumið, en flestir þeirra hafa
haft stutta viðdvöl. Um suma
þessa menn er það að segja, að
ríkisstjórnin hefur haft nokkur
afskipti af þeim, meðan þeir
dvöldust hér. Má þar nefna
dönsku blaðamennina, sem
komu hingað í boði Blaða-
mannafélagsins sumarið 1939,
og ensku blaðamennina, sem
voru hér um tíma sumarið 1941.
Greinar þær, sem þessir menn
skrifuðu um landið, voru skrif-
aðar af fullri sanngirni og tals-
verðri þekkingu. Hinsvegar má
nefna, að amerískir blaðamenn
dvöldust hér nokkra daga í á-
gúst 1941 og höfðu eigi tal af
ábyrgum blaðamönnum né öðr-
um réttum hlutaðeigendum, en
birtu greinar, sem voru íslandi
beinlínis til hnjóðs og gáfu al-
gerlega rangar hugmyndir um
land og þjóð.
Þó að aldrei verði fyrir það
girt, að óvandaðir gífurtíðinda-
menn beri héðan rangar sögur,
þá mundi það eflaust bæta mjög
úr þessu efni, ef allir erlendir
blaðamenn, sem hingað koma,
ættu aðgang að opinberri stofn-
un, sem gæfi þeim sannar og
réttar upplýsingar um hvert
mál, sem ísland varðar.
Hin bréflega fréttamiðlun
stofunnar yrði þó enn mikilvæg-
ari en skipti hennar við erlenda
blaðamenn, er hingað koma. Er
þá átt við bæði þær fréttir, sem
miðla'ð er beint frá stofunni, og
frá þeim íslenzku aðilum erlend-
is, er hún sæi fyrir fréttum að
staðaldri.
Loks er íslenzku blöðunum
full þörf á því, að opinberar
Framhald á 4. sfthi.