Þjóðviljinn - 27.03.1943, Síða 1

Þjóðviljinn - 27.03.1943, Síða 1
8. árgangur. Laugardagur 27. marz 1943. 70. tölublað. fllP llF H KflV í NlSflNF Bæjarráð lætur fara fram athugun á hvort ekki sé æskilegt og framkvæmaniegt að bærinn eignist þær. — Sérstök skipulagsnefnd fyrir Reykjavík Á fundi bæjaráðs í gær voru samþykktar einum rómi tvær tillögur frá Sigfúsi Sigurhjartarsyni varðandi skipulagsmál bæjarins og eignaryfirráð yfir lóðum og lendum í lögsagnar- umdæminu. Tillögurnar fara hér á eftir: Bæjarráð ákveður, að láta fara fram athugun á, hvort ekki sé æskilegt og framkvæmanlegt, að bærinn eignist allar lóðir og lendur innan lögsagnarumdæmisins. Athugun þessi skal einkum beinast að eftirtöldum atriðum: 1) Hvert sé fasteignamatsverð og stærð eignarlóða og lendna í bæjarlandinu, og hversu miklu nemi árlegar skatttekjur bæjar- ins af þeim. '• 2) Hvað matsverð þeirra muni verða, ef þær væru metnar til eignamáms nú. 3) Hve mikil árleg útgjöld bæjarins myndu verða af að kaupa þessar lóðir og lendiu-, ef þær væru borgaðar með 40—50 ára skuldabréfum með venjulegum kjörum. 4) Hve miklar leigutekjur bæjarins mundu verða af þessum eignum. 5) Hvort skipulagning og endurbygging bæjarins mundi ekki verða stórum auðveldari, ef bærinn ætti allt land innan lög- sagnammdæmisins. 6) Hvort ekki væri rétt, að bærinn færi þess á leit við Alþingi að setja lög, er heimili honum eignamám á öllum lóðum og lendum innan lögsagnarumdæmisins og að greiða andvirði með 40—50 ára bæjarskuldabréfum. Bæjarráð ákveður að láta fara fram athugun á hvort ekki myndi rétt að leitast við að fá lögum um skipulag kauptúna og sjávarþorpa breytt, í það horf, að Reykjavíkurbær fái sérstaka skipulagsnefnd, er ekki hafi skipulag annarra bæja eða þorpa með höndum, og hafi hún endanlegt ákvörðunarvald í skipu- lagsmálum bæjarins. Skipulags- og byggingarmál bæjarins eru, sem kunnugt er í hinu mesta ófremdarástandi. Það, sem mest stendur í vegi umbóta í þessu efni er annars vegar sjálft fyrirkomulag skipu lagsmálanna og hinsvegar einka eignarrétturinn á miklum hluta lóða og lenda bæjarins. Sam- kvæmt ofangreindum tillögum mun nú fara fram ýtarleg at- hugun á hvernig úr þessu verði bætt og er þess að vænta, að sú athugun leiði til giftusamlegrar niðurstöðu. HÖTEL HEKLA Engar breytingar verða leyfðar á húsinu. Það á að víkja af skipulags- ástæðum Byggingamálanefnd hefur beint því til bæjárráðs, hvort ekki mundi rétt að bærinn kaupi Hótel Heklu til niðurrifs. Bæjar- ráð hefur enga afstöðu tekið til málsins, en fullvíst er, að bær- inn mun ekki leyfa breytingar né endurbætur á húsinu, því það verður að víkja aí 'skipulags- ástæðum sem fyrst. Fimm umsækjendur um forstjðrastarfið viO sund- Rauði herinn 50 km. fra Smolensk Harðir bardagarlvið Tsúgúeff og Bjelgorod Fremstu sveitir rauða hersins eru nú 50 km. norðaustur af Smolensk, segir í fréttastofufregn frá Moskva í gærkvöld. Sókn Rússa frá Bjeli og vestur með járnbrautinni frá Vjasma heldur áfram, og hafa þeir tekið nokkur þorp og byggðalög. Vörn Þjóðverja er mjög hörð 1. mai kvikmynd verklýðsfélaganna Æskulýðsfylkingin í Rvík iieldur skemmtifund að Amtmannsstíg 4 í kvöid. Einar Olgeirsson flytur er- indi. Jón Óskar les upp. Kvikmynd frá 1. maí há- tíðahöldum verkalýðsfélag- anna 1942. Þetta er í fyrsta sinn, sem kvikmynd þessi er sýnd og munu fleiri vilja sjá hana en að komast í hinu takmarkaða húsnæði, er félagið nú hefur yfir að ráða. — Aðgöngumið- ar fást á afgreiðslu Þjóðvilj- ans, Austurstræti 12. Telpurnar fundnar Telpurnar, sein leitað liefur verið. að undanfarna daga, eru nú fundnar. Fundust þær í kjallara í hálfbyggðum sumar- bústað í Fossvogi. Á Donetsvígstöðvunum gerði þýzki herinn í gær harðar árásir, einkum á Tsúgúeff og Bjelgorod svæðunum, en þeim var hrund- ið. Rauði herinn hefur unnið nokkuð á í Vestur-Kákasus og minnkar stöðugt landsvæði það er Þjóðverjar hafa þar á valdi sínu. Þessa viku hafa 60 þýzkar flugvélar verði skotnar niður á Kúbanvígstöðvunum. Otboð á viðbót við Sogsstöðina Bæjarráð hefur samþykkt að láta fara fram almennt útboð á byggingarvinnu við fyrirhugaða stækkun á Sogsstöðinni. Arngrímur Kristjánsson fær 1 x/ árs frí með full- um launum Samkvæmt tillögu skólanefnd- ar hefur bæjarráð fallizt á að leggja til, að bæjarstjörn veiti Arngrími Kristjánssyni skóla- stjóra frí frá störfum í IVz ár, með fullum launum. í ■ Stöðvast útflufníngur á nýjum físbí, með íslenzkum skípum, tíl Að undanförnu hafa borizt fregnir með fiskikaupskipum, sem siglt hafa með ísvarinn fisk til Englands, um að Bretar hafi á- kveðið að lækka fiskverðið á hinum frjálsa markaði þar um ca 15%. Fregnir þessar munu vera réttar og eru fyrstu afleið- inga þessarar ákvörðunar þegar komnar fram í því að Færey- ingar, sem keypt hafa mikinn fisk hér á landi og flutt hann til Englands, hafa ákveðið að hætta siglingum, nema verðinu yrði aftur breytt. Allmörg íslenzk skip hafa einnig flutt út bátafisk og má telja víst að þau verði einnig að hætta af sömu ástæðum. Fjölda margar veiðistöðvar hafa flutt út allan sinn afla með skipum þessum, þar sem hin stóru flutningaskip matvælaráðu- neytisins brezka. hafa ekki getað tekið nema lítið af þeim afla sem veiðist og ennfremur koma aldrei á ýmsa helztu veiði- staðina. Umsóknarfrestur um forstjóra starfið við sundhöllina var út- runninn í gær. Umsækjendur eru þessir: Erlingur Pálsson, Sigríður Sigurjónsdóttir, Viggó Natanelsson, Helg'i Jóhannesson og Jóh. Kr. Jóhannesson. Kosið verður um þessa um- sækjendur á bæjarstjórnarfundi á fimmtudaginn kemur. Nú er svo komið’ í nokkrum veið'istöðvum, að þrátt fyrir gífurlegan afla, hafa bátarnir ekki róið, þar sem ekkert er hægt við veiðina aö gera. Þó menn vilji grípa til þess aö salta þá, vantar víða salt og margt annáð, sem óhjákvæmx legt er við fisksöltun, enda hefði sízt komið til hugar aö slíkt ger'ðist, á meöan fisk- sölusamningurinn er í fullu gildi. Verðlækkun þessi er vægast sagt mjög kynleg og erfitt er áðl samrýma hana fisksamn- ingi okkar viö Breta, sem gild ir fram í júní í sumar. Þó aö hvergi hafi veriö ákveðið í þeim samningi, aö hið frjálsa markaösverð úti, serfi ís- lenzku og færeysku fiski- kaupaskipin og togararnir áttu áö selja fiskinn á, mætti ekki lækka, þá lá í hlutarins eöli, laö um leiö og ákveöiö var að skip þessi skyldu gefa 45 aura fyrir kg. af fiskinum hér, þá varö skipáö markaös- verö' úti aö haldast, annars mundu þau ekki geta annazt flutningana. Verölækkun þessi skýtur ekki síöur skökku viö, þegar tekiö er tillit til þess, að flestar þær erlendar vörur, sem fisk- framleiösla okkar byggist á, hafa stórhækkaö í veröi, frá því aö fisksölusamningurinn var geröur s. 1. sumar. Þannig hafa t. d. stórhækkaö í ver'öi: olíur, veiöarfæri öíi, vélar í fiskibáta, efniviöur til endur- nýjunar og viðhalds\fiskiskip- um o. fl. o. fl. Allir útgerðar- menn og sjómenn höföu eöli- lega búizt vió verðhækkun en ekki verölækkun á fiskinum og þaö hlýtur a'ö veröa ófrá- víkjanleg krafa okkar, viö fisksölusamningana er nú munu fara aö hefjast. Þá er verölækkun þessi einn ig furöuleg, þegar þess ev gætt, aö hún hlýtur aö leiöa til þess áö útflutningur á nýj- um fiski minnkar til muna og útgeröin neyöist til þess að taka upp fisksölm’ eftir því, sem við er hægt aö koma. Bretar hafa hingaö til fyrst og fremst óskaö eftir nýjum fiski, en ekki söltuðxxm og upp á síökastiö hefur ósjaldan ver- iö kvartaö undan því í Eng- Framhald á 4. síöu. t

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.