Þjóðviljinn - 28.03.1943, Qupperneq 1
8. áígangur.
Sunnudagur 28. marz 1943.
71. tölublað.
Engar mfbtlvægar breytíngar sidastlídinii sólarhring
segír í mídnaeturtílkynntngunni frá Mosbva
í hernaðartilkynningu frá Moskva á miðnætti segir að engar
mikilvægar breytingar hafi orðið á austurvígstöðvunum síðast-
liðinn sólarhring.
í viðbótartilkynningu er skýrt frá staðbundnum bardögum á
miðvígstöðvunum og við Donets. Á miðvígstöðvumun bættu
Rússar stöðu sína, tóku 2 þorp og felldu 200 Þjóðverja.
Á Donetsvígstöðvunum hratt rauði herinn árásum Þjóðverja.
Talsmaðui’ sovétherstjórnar-
innar sagði í útvarpsræðu frá
Moskva í gærkvöld, að síðustu
tvo sólarhringana hafi dregið úr
árásum Þjóðverja á Donetsvíg-
stöðvunum, en þó virðist svo
sem þýzka herstjórnin hafi ekki
gefið upp von um að brjótast
yfir Donets.
Á Kúbanvígstöðvunum í Káka
sus eru nú þíður miklar, og allar
hernaðaraðgerðir á landi mjög
örðugar. Flugher Rússa hefur
haft sig mjög í frammi á þessum
vígstöðvum og hefur þessa viku
skotið niður 60 þýzkar flugvél-
ar. Margar flugvélar voru eyði-
lagðar á jörðu, er sovétflugvélar
gerðu árás á eina mikilvægustu
flughöfn Þjóðverja í Vestur-
Kákasus.
Þrjár - fjórar milljónir útlendinga í
þvingunarvinnu í Þýzkalandi
í skýrslu um erlenda verkamenn í Þýzkalandi, sem er
nýkomin út 1 Washington, segir að 3—4 milljónir erlendra
verkamanna vinni nú í Þýzkalandi, og víða við slík skilyrði að
ekki er hægt að kalla það annað en þvingunarvinnu.
Þýzku nazistayfirvöldin í Bæ-
heimi og Mæri herða stöðugt á
ráðstöfunum til að fá tékkneska
verkamenn að fara til Þýzka-
lands.
Tilkynnt hefur verið að engir
Tékkar fái endurnýjað matvæla
Verkamenn
mótmeela
Á fundi verkalýðsfélagsins Hvöt
á Hvammstanga, 14. þ. m., var sam-
þykkt með samhljóða atkvæðum
eftirfarandi tillaga:
,,Verkalýðsfélagið Hvöt á Hvamms
tanga mótmælir harðlcga ákvæði
um skerðingu á verðlagsuppbót á
laun verkamanna og annarra laun-
þega, í framkomnu frumvarpi ríkis-
stjórnarinnar um dýrtiðarráðstafanir
og skorar á Alþingi að fella þetta á-
kvæði úr frumvarpinu.
Telur félagið allar kauplækkanir
— aðrar en þær, sem leiða af lækk-
andi dýrtíð óverjandi frá sjónarmiði
verkalýðssamtakanna".
Verkalýðsfélagið Vörn á Bildudal.
„Aðalfundur verkalýðsfélagsins
Vöm á Bíldudal, haldinn 21. marz
1943, mótmælir eindregið frumvarpi
ríkisstjórnarinnar á Alþingi um
skcrðingu á verðlagsuppbót verka-
fólks, og skorar á Alþingi að fella þá
tillögu niður úr frumvarpi rikis-
stjórnarinnar um dýrtíðarráðstaf-
anir“.
skömmtunarkort sín nema að
þau séu stimpluð sérstaklega.
Ungum mönnum er neitað um
þennan stimpil, og neyðast til að
láta skrásetja sig til vinnu í
Þýzkalandi.
Þjóðverjar gera ráð fyrir að fá
400 þúsund Tékka til Þýzka-
lands með þessu móti.
Þjóðverjar óttast
innrás í Grikkland
Unnið er dag og nótt að virkja
gerð á Grikklandsströnd, eink-
um í námd við Saloniki. Se-
ment og stál er flutt frá
Metaxvarnarlínunni í Norður-
Grikklandi. Verkamenn hafa
verið fluttir frá Þýzkalandi og
verkfræðingar frá Frakklandi
og Noregi
Litið barizt i Túnis
í Túnis hefur lítið verið um
bardaga síðastliðinn sólarhring.
í Mið-Túnis gerðu Bandaríkja
hersveitir skyndiáhlaup á stöðv-
ar Þjóðverja norður af Maknassi,
og varð Vel
Loftárás á Duisburg
Öflugar sveitir brezkra
sprengjuflugvéla gerðu í fyrri-
nótt harða árás á þýzku iðnaðar
bogirna Duisburg í Rúhr.
Loftvarnir borgarinnar voru
mjög sterkar, en ensku sprengju
fugvélarnar komust allar inn
yfir borgina og gátu varpað
sprengjum sínum eins og fyrir-
hugað var. Miklir eldar komu
upp í borginni.
Ensk mosquito-sprengjuflug-
vél gerði í gær dagárás á her-
stöðvar í Norður-Þýzkalandi.
Bretar gerðu einnig loftárásir á
herstöðvar fasista í Hollandi.
Verkamenn
slasast
Um kl. 3 í gær meiddust tveir
verkamenn, sem voru að vinna
við húsbyggingu við Hrefnu-
götu.
Slysið varð með þeim hætti,
að sveifluhjól í steypuhrærivél
brotnaði og urðu mennirnir fyr
| ir brotum úr hjólinu.
Sovcfsofnunío:
803M.93 ir. uiii sahast l m
Svarbréf hefur borizt frá Verkamanna-
sambandinu brezka
:
I gær hafði safnazt til styrktar Rauða krossi Sovétríkjanna
sem hér segir:
í Reykjavík ....................... 59 858,93 kr.
Utan Reykjavíkur .................. 20 526,00 —
Samtals 80 384,93 —
Formanni fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík,
Eggert Þorbjarnarsyni, hefur nú borizt kvittun fyrir fyrstu 1000
sterlingspundunum, sem send voru til Englands, ásamt svarbréfi
frá stjórn Verkamannasambandsins brezka, sem beitir sér fyrir
sovétsöfnuninni í Englandi. — Fer bréfið hér á eftir:
„Vér höfum nú móttekið skeyti yðar, þar sem þér tilkynnið
oss, að £ 1000.00 hafi verið yfirfærð til vor, og sé það árangur-
inn eftir fyrstu tvær vikumar, en að frekari greiðslur muni
fylgja.
Eg vil þakka yður og öllum þeim öðmm sem að þessu mikla
framlagi standa, jafnframt því að óska yður heilla í starfi því að
mynda sjóð, sem þessi fyrsta greiðsla er aðeins hluti af.
Vér höfum formlega viðurkennt móttöku ávísunar yðar í
banka í London, en sendum yður ásamt með þessu bréfi form-
lega kvittun vorra, í samræmi við ósk yðar.
Eg vil nota tækifærið til að staðfesta það, er ég tók fram í
bréfi mínu hinn 15. janúar, að vér munum gera allt er í voru
valdi stendur, til að hagnýta féð á sem beztan hátt.
Þér munuð að líkindum hafa áhuga á að frétta að sjóður vor
nemur nú samtals £ 478.100. í þeirri von, að það geti orðið að
gagni, sendi ég yður sex eintök af reikningsniðurstöðum sjóðsins,
eins og þær voru í sept. s.I., svo samstarfsmenn yðar geti gert
sér Ijóst á hvaða grundvelli vér störfum.
Eg hefi gert fyrirspumir viðvíkjandi sovét-kvikmyndum og
mun bráðlega geta látið yður fá upplýsingar um þetta efni. —
Eg vil endurtaka þakkir mínar og óska yður alls góðs“.
Iþróttakvikmynd Ár
manns verður sýnd í dag
kl. 1,15 í Tjarnarbíó
íþróttakvikmynd Ármanns hef
ur verið sýnd í Tjarnarbíó und-
anfarandi sunnudaga við góða
aðsókn og hefur hlotið almennt
lof áhorfenda.
Mynd þessa, sem markar tíma
mót 1 sögu íþróttanna hér á
landi, þurfa sem flestir Reyk-
víkingar að sjá. — Myndin verð-
ur sýnd í Tjarnabíó í dag kl. 1,15
og verður það, sem óselt kann að
verða af aðgöngumiðum, selt við
innganginn.
Að loknum sýningum hér í
bænum verður myndin sýnd
víðsvegar úti um land.
wHíeyfílIw sam^
þykkir að vínna
ekki í. mai kL
12—17
Bifreiðastjórafélagið Hreyf-
ill samþykkti á fundi, er fé»
lagið hélt í fyrradag, eftirfar-
andi tillögu um að félags-
menn viúni ekki á degi verka-
lýðsins 1. maí.
„Þar sem 1. maí hefur verið
hátíðisdagui' verkalýðsins nú
mörg undanfarin ár, ekki ein
ungis á íslandi, heldur um
heim allan, eftir að verkalýður
inn reis upp gegn undirokun
yfirstéttarinnar, og meö því
skapaö betri lífsmöguleika fyr
ir alla þá, sem vinnu sína
selja, telur Bifreiðastjórafélag-
ið Hreyfill, á fundi sínum 2.
marz 1943, sjálfsagt aö hætta
akstri á degi verkalýðsins i.
maí 1943 frá kl. 12—17“.
Tillagan var einróma sam
þykkt og er félagið ákveöiö í
því að framfylgja henni.