Þjóðviljinn - 30.03.1943, Síða 1
Fasísfaherímír i Sudur^Túnís hafa míssf sferkusfu
sfödvar sínar og hörfa fíf norðurs
EFienlUF H oerlF lilraun til
iess að ræna maaal al SaiíllFgu
Ægir elti togarann og náði honum, eftir að
hafa skotið á hann all mörgum skotum.
Attundi brezki herinn hefur náð allri Marethvirkja-
línunni í Suður-Túnís á vald sitt, og er her Rommels
á undanhaldi til varnastöðva við Gabes norðar í land-
inu.
Bretar hófu úrslitaorustuna um Marethvarnar-
virkin á föstudag með geysihörðum loftárásum, og á
laugardag hóf landlierinn árásirnar fyrir alvöru.
Á sunnudagskvöld hafði Bretum tekizt að hrekja
fasistaherina úr þessari öflugu varnarlínu, sem gerð
var með Maginotvirkin frönsku sem fyrirmynd.
Bretar hafa tekið um 6000
þýzka og ítalska fanga í bar-
Verkalýðurinn
mótmælir
Bára, Eyrarbakka
Á síðasta fundi Verkamannafé-
lagsins Bára, Eyrarbakka var sam-
þykkt eftirfarandi tillaga:
„Fundurinn mótmælir harðlega
frumvarpi ríkisstjórnarinnar um
dýrtíðarráðstafanir, þar sem í því
fellst stórfelld skerðing á kaupi
launþega í landinu og skorar á Al-
þingi að felia það“.
dögunum á Marethsvæðinu.
f síðustu fregnum er talið ó-
líklegt að Rommel muni freista
þess að veita viðnám á Gabes-
svæðinu, og hafi Þjóðverjar
þegar eyðilagt flugvelli sína á
þessum stöðum.
Brezk herskip hófu í gær
skothríð á höfnina í Gabes.
í Mið-Túnis sækir bandarísk-
ur her fram, og er hugsanlegt að
honum takist að loka undan-
haldsleiðum Rommels, verði á-
framhald á sókninni.
Engar breytingar á
austurvígstöövunum
í herstjórnartilkynningu frá
Moskva í gærkvöld, var sagt að
engar teljandi breytingar hafi
orðið á vígstöðvunum síðasta
sólarhringinn.
Staðbundnar orustur voru
háðar á Bjeli- og Donetssvæðun-
um.
Brezkir „Crusader“-skriðdrekar elta flótta Rommels í Afr-
íku undan sókn áttunda brezka hersins
„Crusader“-skriðdrekar liafa verið mikið notaðir á vígstöðvun-
um í Afríku. Þeir eru mjög hraðfara og hafa átt sinn mikla
þátt í sigurvinningum áttunda hersins.
Eden og Roosevelt ræða um skip-
un Evrópumála eftir stríð
„Reynslan frá Korður-Afríku til nákvæmr-
ar athugunar"
Anthony Eden, utanríkisráðherra Breta, ræddi í gær við
Roosevelt Bandaríkjaforseta, Litvinoff, sendiherra Sovétríkj-
anna i Washington og kínverska utanríkisráðherrann.
Eitt af málefnum þeim sem Eden hefur rætt við banda-
ríska stjórnmálamenn er stjórn Evrópulanda, eftir að þau hafa
verið leyst undan valdi Þjóðverja, og var rætt um hvert land
sérstaklega.
Verklýðsfélag Svalbarðs-
strandar.
Á fundi verklýðsfélags Svalbarðs-*
strandar, 7. marz 1943, var sam-
þykkt eftirfarandi tillaga:
„Fundur í Verklýðsfélagi Sval-
barðsstrandav, 7. marz 1943, mót-
mælir eindregið dýrtíðarfrumvarpi
því, er ríkisstjórnin hefur lagt fyrir
Alþingi og skorar á Alþingi að fella
það.
Fundurinn sættir sig ekki við á-
rásir þær á kjör alþýðunnar, sem
frumvarp þetta fer fram á, sem
einkum er beint að launþcgum,
bændum og mönnum með miðlungs-
tekjur.
Jafllframt skorar fundurinn á Al-
þingi að gera öflugar ráðstafanir
gegn dýrtíðinni á grundvelli þeirra
samþykkta, sem 17. þing Alþýðusam-
bands íslands gerði síðastliðið
haust“.
Aðalfundur Barna-
vinafél. Sumargjöf
Aöalfundur Barnavinqfélags-
ins Sumargjafar var haldinn s.
I. sunnudag.
ísak Jónsson formaður félags-
ins gaf skýrslu um störf félags-
ins á s. 1. ári. — Reikningar fé-
lagsins voru síðan lagðir fyrir
fundinn og samþykktir.
Fúamhald á 4. sí'ðu
Segir í tilkynningu frá Was-
hington að tekin hafi verið til
nákvæmrar athugunar í þessu
sambandi reynzlan frá Norður-
Afríku, og muni hér eftir verða
tryggt, áður en innrás hefst, að !
Bandamenn hafi komið sér sam-
an um þær atvinnulegu og póli-
tísku ráðstafanir, er gera eigi.
Hin margvíslegu viðfangsefni,
sem bíða lausnar að lokinni styrj
! öldinni, og viðhorf þjóðanna til
þeirra, eru gerð að umtalsefni í
yfirlitsgrein, sem Association
Press hefur gefið út. Þar segir,
að í Washingtonborg einni, starfr
nú um 100 sérfræðingar í ýms-
um stjórnardeildum að þessum
málum.
í greininni segir m. a. „Jafn-
vel þó að þeir (sérfræðingarnir)
hafi nú þegar gert áætlanir á al-
þjóðlegum grundvelli, hafa þær
ekki verið birtar sökum þess, að
þegar til kastanna kemur verða
allar aðgerðir að miðast við það,
hvernig ástatt verður í heimin-
um, þegar styrjöldinni lýkur. Þá
er drepið á nokkur helztu vanda
málin, sem bíði Bandaríkjanna
eingöngu, á sviði stjórnmála, við
skipta- og milliríkjamála. Svo
virðist sem þau mál verði ekki
leyst nema með tilliti til ástands-
ins í öðrum löndum. Þeir, sem
Framhald á 4. síðu.
Það mun hafa verið síðast-
liðinn laugardag, að Sæbjörg,
sem stundar m. a. landhelgis-
gæzlu, ætlaði að taka erlendan
togara er hún taldi vera að veið-
um í landlxelgi.
Stýrimaðurinn á Sæbjörgu,
Guðni Thorlacíus, fór um borð
í togarann, en í stað þess að
sigla til hafnar, brá togarinn við
og stefndi til hafs með stýri-
manninn af Sæbjörgu innan
borðs.
Ægi var þegar gert aðvart um
þetta og hóf hann eftirför eft-
ir togaranum og náði honum en
til þess að fá hann til að nema
staðar varð hann að skjóta all-
mörgum skotum að togaranum
og þar sem hann lét ekki að við-
vörunarskotum mun hafa verið
skotið nokkrum skotum sem
hæfðu togarann sjálfan.
Ægir kom síðan með togarann
hingað til Rcykjavíkur.
Ekkert slys hlauzt af skothríð-
inni á togarann, enda eru kúlur
Ægis þannig gerðar, að þær
springa eklti þó að þær hitti
mark.
Réttarhöld í málinu hefjast
sennilega kl. 10 f. h. í dag.
Vélbáturinn Vinur
frá Stöðvarfirði tal-
inn af.
Tveir menn voru á
bátnum.
Talið er víst að vélbáturinn
Vinur frá Stöðvarfirði, hafi far-
izt.
Á honum voru 2 menn, Guðni
Eyjólfsson og Þórhallur Er-
lendsson, háðir frá Stöðvarfirði.
Síðastliðinn föstudag réru
bátar frá Stöðvarfirði og komu
þeir allir að landi um kvöldið,
nema vélbáturinn Vinur sem var
opinn vélbátur 2Vz smálest. Var
bátsins leitað næstu daga, en ár-
angurslaust.
Guðni Ejólfsson var 35 ára,
kvæntur og átti 7 börn.
Þórhallur Erlendsson var 34
ára, ókvæntur.