Þjóðviljinn - 14.04.1943, Síða 2

Þjóðviljinn - 14.04.1943, Síða 2
2 ÞJOÐY LJINN MUNIÐ Kaffisöluna áBœjcKpÓoliULll M Hafnarstræti 16 ssmeo&axsaxœssa DAGLEGA nýsoðin svið. Ný egg, soðin og hrá. Kaf fisalan Hafnarstræti 16. anwmmmminn 14 kar. gullhringar með ekta steinum, fyrir dömur og herra, handunnir — vandaðir, fjölbreytt úrval. Aðalbjöm Pétursson, gullsm., Hverfisg. 90. Sími (fyrst um sinn) 4503. EKBS ntnlu ÖÖEJEÖ3D Réttur hinna smæstu t Herra ritstjóri! Miðasalan átti að hefjast í bíó eft- ir klukkutíma. Nokkrir drengir voru komnir á vettvang, þeir ætluðu auð- sjáanlega ekki að missa af eftirmið- dagssýningunni. í hópnum er smá- vaxinn snáði, á að giska 8 ára. Hann kemst framarlega í röðina, staðráð- inn í að bíða. Nú koma fleiri og fleiri á vettvang, komumenn eru miskurt- eisir, sumir eru á stigi hinnar full- komnu villimennsku, hvað háttvísi, í biðröðum snertir, Þeir ryðjast og hrinda frá sér. Við þessar stimpingar hrökklaðist litli drengurinn út úr röð inni. Hann gerði árangurslausar tilraun ir, til að ná plássinu sínu aftur, þá tekur hann stöðu utan við röðina, og: bíður í góðri' trú á að ná í rétt §im. Vörð réttvísinnar — lögregluþjón þgr að, hann á að sjá um að allt fari fram með röð og regíu. Fyrsta verk hans er að snúa sér óþyrmilega að litla drengnum, og skipa honum, með rödd og fasi ó- siðaðs dóna, að fara heim.Drengurinn, sem trúði á rétt sinn, fer grátandi heim. Annar drengur á líku reki er utan til í röðinni og á þar sýnilega pláss. Hann fær sömu útreið hjá þjóni réttviginnar. Einnig hann fer grát- andi heím. Eg bið yður herra ritstjóri að birta þessa frásögu í Bæjarpóstinum. Með mikilli virðingu. Áhorfandi. Loksins eftir margendurteknar og misheppn- aðar tilraunir hefur oss tekizt að kaupa stóra sendingu af ÚRVALS BLÖNDUNARKAFFI til að blanda saman við Brasilíukaffið, sem hingað til hefur verið aðalkaffitegundin, sem fengizt hefur hérlendis. Eins og fyrirfram var kunnugt, hefur hæfileg blöndun á öðrum betri og dýrari tegundum saman við Brasilíukaffið orðið til þess að auka gæðin að miklum mun. Þér fáið jafnmikið af Bláu könnunni og Grænu könnunni fyrir kaffimiðana yðar. Þetta er eftirtektarverð saga Þessi saga er þess verð að henni sé gaumur gefinn. Hvaða áhrif halda menn að það hafi á börn, sem umfram allt trúa á réttlætið, að mæta slíku ranglæti? Ætli það geti ekki skeð að lögreglu- þjónar, sem þannig taka á málum hinna smæstu, eigi ekki sinn drjúga þátt í að skapa lögreglunni verkefni í framtíðinni. Það má ugglaust margt gott um lögregluna okkar segja, en hana virðist skorta til- finnanlega skilning á að hún á að vera vörður og verndari lítilmagn- ans, kurteis og héttprúð í garð allra, ekki sízt þeirra smæstu. Ekki eiga þó allir lögregluþjónar hér óskilð mál. Hjálpið Norðmönnum. Ger ið það strax. Leggið í söfn- un Rithöfundafélagsins. — Kaupið bókina Níu systur. Ingólfs Café Maður, sem nefnist Vigfús Einars- son og gefur í skyn, að hann sé gagn kunnugur í Ingólfs Café, — en í í. C. kannast starfsfólkið ekki við það nafn, ritar grein í „Þjóðviljann“ 11. þ. m. um hámarksverð.nýlega aug lýst af verðlagsstjóra, í matsölu- og veitingahúsinu Ingólfs Café. Segir þar, meðal annars: ,,Eg hefi margra mánaða reynslu fyrir máltíðinni á kr. 6.00 með kaffi og áleit tvímálalaust að verið væri að lækka máltíðiimar“. Ef það er rétt sem maður þessi segir, að hann styðjist við margra mánaða reynslu, hvað verðlag ein- stakra máltíða snertir í þessu húsi, hefði óneitanlega verið viðkunnan- legra, að þessi greinargerð hans hefði verið nokkuru fyllri, náð t. d. yfir síðastliðna 16 mánuði, en yfir þetta tímabil var verð máltíða í lausri sölu, sem hér greinir: í sex mán. var verðið pr. máltíð kr. 3.00, í tvo mán. kr. 3.50, í þrjá mán. kr. 4.50 og í fimm mán. kr. 5.50. Greiðsla fyrir þjónustu var fólgin í þessu verði, nema ef einhverjir vildu hafa þetta öðruvísi; en um þaðvoruengar kvaðir. Hefur þetta verið marg-aug- lýst í sölum veitingahússins. -— Hér var um 2ja rétta máltíð að ræða. Kaffi gátu menn hins vegar fengið eftir máltíð fyrir 50 aura, ef menn vildu, en það kusu sumir, aðrir ekki. Þegar verðskrá verðlagsstjóra var birt, sýndist mér sanngjarnast að fylgja henni alveg eins og ég bezt kynni með það mál að fara. Kom þá í ljós að sumt, sem selt var í húsinu í dagsölu, vegna nauðsynja manna, lækkaði lítilsháttar, annað mátti hækka lítilsháttar. — Mola- kaffi hjá I. C. eftir mat mátti t. d. hækka, þótt sjálf máltíðin lækkaði. Þar sem heildar niðurstaðan var sú, að nokkur lækkun varð hjá okk- ur, miðað við verðið áður en augl. kom, sýndist méreðlilegast,aðverðið yrði samræmt skránni, — sumt fært niður, annað upp, sem leyfilegt var. Eins og áður er sagt var hér um hreina smámuni að ræða, á hvora hliðina sem var. Nú kom það í ljós, strax fyrsta daginn, sem verðskráin var látin ganga í gildi, að nokkurs misskiln- ings gætti um skrána og breytingar á verði í húsinu sem gerðar höfðu verið í samræmi við hana. Ákvað ég þá strax, að verð á kaffi eftir máltíð skyldi haldast áfram óbreytt, fyrst um sinn að minnsta kosti, og var það þannig reiknað 9. dag mánaðar- ins. Vigfúsi hefur gleymzt að setja þetta í grein sína, sem birtist þann 11. dag mánaðarins. BERBERS iiiama- ogiraapietfsniauhii er komið aftur. ÁVEXTIR: Eplamauk Peru- og Ananasmauk Ferskjumauk Sveskjumauk Hrísgrjóna- og Ananas- Hrísgrjóna- oð Ananas- GRÆNMETIí Gulrótamauk Ertumauk Bl. Grænmetismauk Aspargusmauk Spínatmauk Grænar Baunir búðingur. Dósirnar innihalda 140 gr. netto og kosta kr. r.90. GERBER’S BARNAMJÖL mm fooo oo stroihed ootneoií Gerber’s Ötsvor 1943 - Dráttarvextir 9 Eftir 15. apríl falla dráttarvextir á aðra afborgun útsvara til bæjarsjóðs Reykjavíkur árið 1943, sem féll í gjalddaga 1. apríl og nemur 15% af útsvarinu 1942, sbr. lög nr. 15, 26. febr. þ. á. og reglugerð staðf. sama dag. Jafnframt hækka áfallnir dráttarvextir af fyrstu af- borguninni, sem greiða bar hinn 1. marz. Þó verður ekki krafizt dráttarvaxta af þeim gjald- endum, sem greiða upp í þessa árs útsvar 45% af út- svarinu 1942 fyrir 20. apríl. Greiðslur skulu standa á heilum eða hálfum tug- króna. Skrifstofa borgarstjóra. Sú ályktun, að verðið ætti tvímæla laust að lækka, byggist á misskiln- ingi. Ef að verðið hjá okkur hefði verið hátt, hefði það tvimælalaust átt að lækka, en verð okkar reynd- ist svo lágt, að þetta fór að ‘nokkuru á annan veg. — Úr því sem komið er nú, má máske telja það nokkuð slæma yfirsjón, að hafa haft þetta verð svona lágt. — Eg kannast við, að það var of lágt, miðað við gæði og tilkostnað. — Samt vil ég nú ekki trúa því, fyrst um sinn, að takast megi að fá marga af gestum í Ingólfs Framh. á 4. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.