Þjóðviljinn - 18.04.1943, Page 1
8. árgangur.
Sósíalístar í
Sunnudaginn 18. apríl 1943.
Munið fundinn á mánudag-
inn kemur í Baðstofu iðnaðar-
manna.
Rætt verður um dýrtíðarmál-
89. tölubl. in og önnur helztu þingmál.
Frutnvarpíd um eignaraukaskatt
Sveinn Björnsson
Pad þarf að verða alvarleg breytíng á fjármálapólítífe-
ínní í sambandí víð þessar ákvarðanír
endurkosinn ríkis-
stjóri
Ríkisstjórakjör fór fram á Al-
þingi í gær.
Sveinn Björnsson var endur-
kjörinn ríkisstjóri með 35 at-
kvæðum. — 13 seðlar voru auð-
ir.
Ríkisstjóri er kjörinn til eins
árs í senn, frá 17. júní 1943 til
17. júní 1944.
I gær var útbýtt á Alþingi frumvarpi um eignaraukaskatt,
sem prentað er á 3. síðu blaðsins í dag. Flutningsmenn eru: Har-
aldur Guðmundsson, Hermann Jónasson og Brynjólfur Bjarna-
son. Samkvæmt frumvarpinu skulu allir þeir, sem aukið hafa
eignir sínar um meir en 80 þús. kr. á árunum 1940, 1941 og
1942, greiða skatt af þeirri eignaaukningu, þó því aðeins að
þeir eigi þá skattlausa eign, er nemi minnst 80 þúsundum að
frádregnum skatti. Af 80 þús. kr. eignarauka og allt að 200
þús. kr. eignarauka greiðist 20% af því, sem fram yfir er 80
þús. kr. Af 200 þús. króna eignarauka greiðast 24 þús. kr. og
25% af því, sem þar er fram yfir allt upp í eina milljón. Af einni
milljón króna eignarauka greiðast 224 þús. kr. og 30% af því
sem fram yfir er.
Fé, sem lagt hefur verið í nýbyggingarsjóði útgerðarinnar,
er undanþegið þessum skatti, — og ýmiss fleiri ákvæði eru í lög-
unum, sem menn sjá við að lesa þau, svo um þau vísast til
frumvarpsins eins og það er birt.
Fé það, sem fæst með lögum þessum skal að einum þriðja
renna til alþýðutrygginga og byggingu verkamannabústaða,
að öðrum þriðja til raforkusjóðs, byggingar nýbýla og landnáms
í sveitum og að % til framkvæmdasjóðs ríkisins.
Frumvarp þetta er eitthvert
merkilegasta nýmælið, sem
fram hefur komið í íslenzkri
skattalöggjöf. Hér er gerð alvar
leg tilraun til þess að ná nokkru
af stríðsgróðanum og nota til
almenningsheilla. Erfitt er að
segja hve mikið það yrði, sem
fengist með þessu frumvarpi, ef
að lögum yrði, því þar veltur svo
mikið á eftirlitinu með skatt-
framtalinu. En gizka má á að
vart verði það minna en 10—20
milljónir króna og gæti orðið
meira, ef vel væri framfylgt.
Það segir sig sjálft að erfitt
Sovétsöfnunin
Safnazt hafa m Dús. 341,93 tr.
Söfnunin til styrktar Rauða krossi Sovétríkjanna nemur
nú samtals 104 þús. 348,93 kr.
Eftirtaldar fjárhæðir hafa safnazt á þessum stöðum:
Reykjavík .......................... kr. 68 482,93
Akureyri Siglufjörður Vestmannaeyjar Akranes — 12 000,00 — 4 000,00 — 8 000,00 — 1 000.00
Borgarnes — 3 000,00
Hólmavík — 727,00
Neskaupstaður — 1 000,00
Sauðárkrókur — 1319,00
Svalbarðsströnd — 580,00
Glæsibæjarhreppur .... — 697.00 /
Eyrarbakki — 315,00
Hvanneyri — 213,00
Grindavík — 115,00
Bæjarhreppur — 200,00
ísafjörður — 2 700.00 Samtals kr. 104 348,93
verður að ná stríðsgróðanum
með sköttum og ókleift að ætla
að ná honum öllum. Meginið af
stríðsgróðanum er þegar bundið
í atvinnu- og verzlunarlífinu
sem auðmagn í fyrirtækjum og
Framh. á 4. síðu.
Sigurður Guðmunds-
son tekur við rit-
stjórn Réttar
Nýtt hefti kemur út á
morgun
Sigurður Guðmundsson.
Nýtt hefti af Rétti kemur út
á morgun, og er það fyrsta
hefti ársins 1943.
Gunnar Benediktsson hefur
látið af ritstjórn tímaritsins
vegna annarra aðkallandi starfa.
en við tekur Sigurð'ur Guð-
mundsson hlaðamaður.
Askriftarverð Réttar er mjög
lágt, aðeins 10 kr. árg. Er til-
ætlunin að árgangurinn verði
4 hefti, atts 320 hls. Tekið er
i' ramh. á 4. síðu.
Rauði herinn vinnur á í
Kákasus
Rauði herinn hefur bætt að-
stöðu sína á Kúbanvígstöðvun-
um í Kákasus, og heldur áfram
sóknaraðgerðum þrátt fyrir
harðvítuga vörn Þjóðverja.
Þýzka herstjórnin hefur und-
anfarnar vikur sent mikinn liðg-
auka til Kákasus en hefur samt
ekki tekizt að stöðva sókn Rússa
| Aðalsteinn Sigmundsson drukknar I
Hann tók út af Sæbjörgu á leið frá Borgarnesi.
— Hann náðist eftir 15 mínútur en allar lífgun-
artilraunir reyndust árangurslausar.
Það sorglega slys vildi til í fyrrakvöld, að Aðalstein Sig-
mundsson kennara tók út af Sæbjörgu, sem var á leið til Reykja-
víkur frá Borgamesi.
Synti hann þegar í átt til skipsins, en eftir 3—4 mínútur
dapraðist honum sundið, en hann sökk þó ekki. Hann náðist
um borð eftir um það bil 15 mínútur, en mun þá hafa verið ör-
endur, því allar lífgunartilraunir reyndust árangurslausar.
Aðalsteinn gengdi námsstjórastarfi á Vestfjörðum, í Döl-
um og Húnavatnssýslum og var hann á heimleið úr eftirlits-
ferð um hémð þessi.
Sæbjörg fór þessa ferð í stað-
inn fyrir Laxfoss, sem var í við-
gerð. Um 30 farþegar voru með
skipinu en rúm mjög takmark-
að í Sæbjörgu, urðu því margir
farþegar að vera á þilfari.
Veður var mjög hvasst og þeg-
ar Sæbjörg var stödd milli
Akraness og Reykjavíkur, um
kl. 8,45 í fyrrakvöld, reið sjór’yf-
ir skipið og tók Aðalstein fyrir
borð. Tveir farþegar voru stadd-
ir rétt hjá honum þegar sjórinn
reið yfir skipið og var því þeg-
ar snúið, auk þess var björgun-
arhring varpað til hans.
Fyrstu 3—4 mínúturnar synti
hann knálega í átt til skipsins,
þrátt fyrir storm og mikinn sjó,
en hætti síðan að synda og er
álit læknis að hjartað hafi bil-
að.
Eftir um það bil 15 mínútur
náðist hann um borð og voru
þegar hafnar lífgunartilraunir
og var þeim haldið áfram í
nokkrar klukkustundir, en þær
báru engan árangur.
Aðalsteinn var fæddur að Ár-
bót í Aðaldal 10. júlí 1897. For-
eldrar hans voru Sigmundur
Sigurgeirsson og kona hans
j óhanna Þorsteinsdóttir, er
bjuggu þar.
Hann nam prentiðn hjá Oddi
Björnssyni á Akureyri 1910—
1914. Árið 1919 lauk hann prófi
við Kennaraskólann eftir
tveggja vetra nám og haustið
Aðalsteinn Sigmundsson
1919 varð hann skólastjóri á
Eyrarbakka og gengdi því starfi
til 1929. Sama ár ferðaðist hann
um England og Norðurlönd og
kynnti sér- æskulýðs- og uppeld-
ismál. 1930 fór hann til Færeyja
til að kenna þar á kennaranám-
skeiði. Auk þess kenndi hann
á slíkum námskeiðum hér
heima.
Árið 1931 gerðist hann kenn-
ari við Austurbæjarskólann og *
gengdi því starfi til dauðadags.
Framh. á 4. síðu.
Lítið barizt í Túnis
Lítið er um fregnir af vígstöðv
unum í Túnis, og hefur ekki ver-
ið um stórorustur að ræða síð-
asta sólarhringinn.
Helzt liefur verið barizt á
nyrztu vígstöðvunum og liefur
1. brezki herinn bætt þar stöðv-
ar sínar.
Harðar loftárásir voru gerðar
í gær á ítölsku borgirna Palermo
Napoli og Messina.