Þjóðviljinn - 29.04.1943, Page 1
8. árgangur.
Fimmtudagur 29. apríl 1943.
94. tölubiað
inn lll lanbBDa leiklaulkir ii allrar aiMOe
0
1. maí — sameiginlegur baráttudagur laun-
þega allra landa — er í nánd.
Þann dag minnast þeir hinna miklu fórna, sem
færðar hafa verið af þeirra hálfu í baráttunni fyr-
ir réttindum þeirra, frelsi og framtíð.
Þann dag minnast þeir þess, að bræðralags-
hugsjón verkalýðsins er sá mikli aflgjafi, sem ger-
ir samtök þeirra máttug og ósigrandi.
1. maí leggja íslenzkir launþegar niður vinnu
til þess að sýna samtakamátt stéttarinnar með
fundahöldum og kröfugöngum og bera fram kröf-
ur sínar um atvinnu, réttlæti, frelsi og öryggi um
alla framtíð.
LAUNÞEGAR REYKJAVÍKUR.
I tuttugu ár hefur verkalýður bæjarins fylkt
sér út á göturnar 1. maí, og ár frá ári hafa fylking-
ar hans vaxið. En aldrei fyrr hefur slík eining ríkt
í röðum launþeganna sem nú, enda nauðsyn slíkr-
ar einingar aldrei verið brýnni.
Launþegastéttin hefur til þessa ætíð átt undir
högg að sækja um launakjör sín, atvinnu og marg-
vísleg réttindi. Launþegar til lands og sjávar hafa
því verið afskiptasta stétt þjóðfélagsins, borið
þyngstar byrðarnar og skarðastan hlut frá borði.
i. maí verður þessi fjölmennasta stétt landsins
að sýna volduga einingu í baráttunni fyrir hags-
munum sínum og rétti. Hún verður að sýna, að
hún sé nógu einhuga og sterk til þess að taka for-
ystu í hagsmuna- og frelsisbaráttu alþýðunnar til
sjávar og sveita og skapa það bandalag allra al-
þýðusamtaka, sem getur framkvæmt vilja fólks-
ins. —
Þess vegna skorum við undirrituð á ykkur að
gera 1 • mai næstkomandi að máttugum einingar-
degi reykvískrar alþýðu.
LAUNÞEGAR REYKJAVÍKUR.
Allir í kröfugöngu launþegasamtakanna 1. maí.
Eflist bræðralag alþýðunnar í öllum löndum.
Eflist frelsisbarátta þjóðanna gegn fasismanum.
Eflist eining íslenzkrar alþýðu í baráttunni fyrir
atvinnu, frelsi og öruggri framtíð.
Sköpum bandalag íslenzkra alþýðusamtaka til
sjávar og sveita.
Launþegar Reykjavíkur, sameinizt 1. maí.
Reykjavík 28. apríl 1943.
1. maí-nefnd Fulltrúaráðs verklýðsfélaganna í Reykjavík:
Björn Bjarnason.
Myndin sýnir stærsta stykkið úr þýzku flugvélinni, sem skotin var niður yfir Reykja-
nesi s. 1. laugardag. — Myndina tók U. S. Army Signal Corps.
Sæmundur E. Ólafsson. Snorri Jónsson. Jóhanna Egilsdóttir.
Eðvarð Sigurðsson.
Stjóm Fulltrúaráðs verklýðsfélaganna í Reykjavík:
Eggert Þorbjarnarson.
Björn Bjarnason. Sigurður Ólafsson. Þorsteinn Pétursson.
Ólafur H. Guðmundsson.
F. h. stjómar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja:
Sigurður Thorlacius, formaður.
Lárus Sigurbjörnss., varform., Guðjón B. Baldvinss., ritari.
Stjóm Verkamannafélagsins „Dagsbrún“:
Sigurður Guðnason, formaður.
Helgi Guðmundsson. Hannes Stephensen. Eðvarð Sigurðs-
son. Emil Tómasson.
Framh. á 4. síðu.
Mar oi laoMiaini Mana
ðrddor UHoB leoi SoidtrlKlRiin
Bandamenn svara sundrungatilraunum nazista með
því að fyikja sér þéttara saman
Helztu blöð Bretlands og Bandaríkjanna taka mjög aðra
afstöðu til áróðursfregna Göbbels en pólska stjórnin tók, og
leiddi til þess að sovétstjórnin sleit stjórnmálasambandi við
Sikorskistjómina í London.
Enska stórblaði'ð ,,Times“
bendir á mótsagnir þær og
fjarstæður er fram hafa kom-
ið í fregnum Göbbels um
morð pólsku liösforingjanna,
og segir að fregn þessi hafi
verið búin til, ekki einungs til
þess að spilla sambúð Rússa
og Pólverja, heldur til þess
Framh. á 4. síðu.
Hinningarathðfn um
Aðalstein Sigmunds-
son fer fram í dag
Athöfn til minningar um
Aðalstein Sigmimdsson, fer
fram í dag og hefst hún með
bæn í Austurbæjarskólanum
kl. 3 e. h. og fer síðan fram
í fríkirkjunni.
Lík Aöalsteins verður síð-
an flutt norður með Esju og
verður jarðsett á æskustöðv-
um Aðíalsteins, í. Aðaldal.
Aðalsteinn heitinn dmkkn-
aði af Sæbjörgu á leið til
Reykjavíkur 16. þ. m., eins
og kunnugt er.
Aöalsteinn var fæddur 10.
júlí 1897 aö Árbót í AÖaldal
og bjuggu foreldrar hans þar.
Hann lagði fyrst stand á
prentiðn, en 1919 lauk hann
kennaraprófi og upp frá því
helgaði hann uppeldis- og
æskulýðsmálum alla krafta
sína og vann þar ómetanlegt
starf.
Ungmennafélag íslands hef-
ur ákveðið að stofna sjóð til
minningar um Aöalstein, en
hann var einn af fórnfúsustu
brautryðjendum ungmennaíé-
laganna. Sjóöur þessi á að
Framhald á 4. síðu.