Þjóðviljinn - 29.04.1943, Síða 2
ÞJÓÐ VILJINN
Fimmtudagnr, 29. apríl 1943.
2 -
Lýðhvðt
(Látið Björnstjerne Björnson og Matthías Joch-
umson eggja yður til þátttöku 1. maí með þessum
tveim vísum úr „Lýðhvöt“ sinni):
„Vér mörgu, vér smáu, vér vinnum þetta verk,
Og vilji’ ei hinir skilja, þá fram með týgin sterk!
Það byrjaði sem blærinn, er bylgjum slær á rein,
En brýzt nú fram sem stormur svo hrykktir í grein.
Og rokviðrið nálgast fyrr en nokkur veit af,
En nákalt og rjúkandi kveður við haf:
Sú þjóð, sem veit sitt hlutverk, er helgast afl um heim,
Eins hátt sem lágt má falla fyrir kraftinum þeim.“
hMhl H lltnuui liussuoi
limeHailllai lalaada alalaar mai-
inoarslðð m iðalataia Slmandssai
Kvatp frá Ungtnennafélagi Islands
Með hinu sviplega fráfalli Aðalsteins Sigmundssonar kenn-
ara hafa ungmennafélögin misst hinn fómfúsasta forvígismann,
sem fyrir þau hefur starfað og kennarastéttin einn af sínum
merkustu brautryðjendum.
Ungmennafélag tslands hefur ákveðið að stofna sjóð til
minningar um Aðalstein Sigmundsson. Markmið hans á að vera
að stuðla að menntun elnilegra manna, er sýnt hafa áhuga og
þroska til félagslegra starfa innan Umf. Sainbandsþing U. M.
F. í. í vor setur reglugerð um sjóðinn.
Aðalsteinn Sigmundsson gerðist athafnasamur félagsmaður
í fyrsta ungmennafélaginu á landinu, Umf. Akureyrar, á ung-
lingsaldri og vann ungmennafélögunum allt sem hann mátti ti!
síðustu stundar. Efling þeirra var eitt af hjartfólgnustu áhuga-
málum hans og hefur enginn einstakur maður unnið jafn lengi
fyrir ungmennafélögin af mikilli fórnfýsi og einlægni sem Að-
alsteinn. Þá sýndi hann óvenjulega mikla umhyggju fyrir efni-
legiun nemendum sínum, er höfðu erfiða aðstöðu til náms og
stuðlaði að framlialdsnámi margra þeirra með ýmsum hætti
Við vitum því ekki neitt, sem er í betra samræmi við lífsstarf
hans og áhugamál, en stofnun sjóðs, er hefur þann höfuð tilgang;
að koma fátækum, en efnilegum félagssinnyðum mönnum til
aukins þroska og menntunar.
Ungmennafélag fslands leggur 2000.00 kr. fram og heitir
á ungmennafélög um Iand allt og hina mörgu nemendur og vini
Aðalsteins að auka við þessa upphæð, til þess að varðveita
minningu hans á þann hátt, sem er í mestu samræmi við Iífs-
starf hans og við þykjumst vissir um að hafi verið honum mest
að skapi.
Dagblöðin í Reykjavík og Tíminn veita nú þegar og fyrst
um sinn viðtökum gjöfum í minningarsjóðinn gegn sérstökum
minningarspjöldum um Aðalstein Sigmundsson. Síðar verða
gefin út minningarspjöld þar sem öllum verður gefinn kostur
á að gefa gjafir í sjóðinn til minnjngar látnum ástvinum sínum
og styrkja með því framangreinda starfsemi.
í stjóm Ungmennafélags íslands.
Eiríkur J. Eiríksson. Daníel Ágústínusson. Halldór Sigurðsson.
Þórður Kolbeinsson
%
F. 8. ágúst 1888. — D. 13. apríl 1943.
Nú er hér enduð lífs þíns leið.
Lúhrn til hvíldar gekkstu,
því ekki var leiðin alltaf greið
»g upphefð hér litla fékkstu.
Af trúmennsku og dyggð þú vannst
þín verk;
oft viljinn var þróttinum stærri,
því athafnaþráin var öflug og sterk
og ótal verkefni nærri.
í starfinu gaf þér styrk og þrótt
sú sterka trú sem þú áttir
því hugur þinn átti af gæðum gnótt
þú gladdir þá, sem þú máttir.
En oftast voru þín efni smá,
svo oft var af litlu af taka.
En þú vildir öllum lið þitt ljá
og launa ei væntir til baka.
Þó færir þú víða um fjarlæg lönd,
sem forðum þig ungan dreymdi,
þú fannst þó til baka að feðranna
strönd
hún fegurstu vonirnar geymdi.
Nú hrekst þú ei lengur Hm lífsins
dröfn,
í lífinu mörg var raunin.
Nú fley þitt er komið af hafi í höfn
þar hlýtur þú formannslaunin.
í blaði yðar, herra ritstjóri, Þjóð-
viljanum nr. 92, fimmtudaginn 22.
apríl s.l., segir:
„Framsókn hefur skýlaust svikið
loforð Hermanns Jónassonar, gefið í
flokksins nafni um að afgreiða á
þessu þingi frumvarpið um eigna-
aukaskatt.“
„Þessu þingi“ er enn ekki lokið,
heldur frestað þangað til síðar í um-
ar. En ég geri ráð fyrir að „á þeSsu
þingi“ eigi að skilja svo: Á þessu
þingi — áður en því var frestað.
Ella væri klausan meiningarlaus. —
En sé fullyrðing þessi þannig skil-
in, er hún tvímælalaust röng. í lok
síðasta þings áttu fulltrúar frá Al-
þýðuflokknum og Sósíalistaflokkn-
um tal við mig og Eystein Jónsson
um að flytja á þingi því, er nú hefur
verið frestað, frumvarp um eigna-
aukaskatt. Við svöruðum því einu,
að við mundum ræða það við flokk
okk'ar. — í Framsóknarflokknum
var síðar samþykkt að verða við
þessu. Flokkurinn fól Eysteini Jóns-
syni og Skúla Guðmundssyni að til-
kynna Alþýðuflokknum og Sósíal-
istaflokknum þetta og óska jafn-
framt eftir, að þeir flyttu með Fram-
sóknarflokknum frumvarp, sem að-
allega var um afnám varasjóðs-
hlunninda hinna stærri stórgróðafé-
laga. —
Einum eða tveim dögum síðar en
þetta gerðist, samþykkti Framsókn-
arflokkurinn, að ég eða Bemharð
Stefánsson, skyldi verða meðflutn-
ingsmaður að frumvarpinu um eigna
aukaskatt. Eftir samkomulagi við
Bernharð Stefánsson, varð niðurstað
an sú, að ég yrði flutningsmaðurinn
og tilkynnti Eysteinn Jónsson það til
Alþýðuflokksins og Sósíalistaflokks-
ins.
Eftir að tillaga kom fram um þing
frestun, ræddu fulltrúar frá Alþýðu-
flokkríum og Sósíalistaflokknum 1 við
mig og spurðust fyrir um það, hvort
afstaða Framsóknarflokksins til
frumvarpsins um eignaaukaskatt
mundi eigi haldast óbreytt þió að
málið yrði ekki afgreitt fyrr en eft-
ir þingfrestun.
Eg svaraði því, að þingfrestunin
breytti að sjálfsögðu engu í afstöðu
flokksins til málsins.
Það er því svo gjörsamlega til-
hæfulaust, herra ritstjóri, að ég hafi
gefið loforð fyrir hönd Framsókn-
arflokksins í þessu máli, að ég var
ekki einu sinni sá fulltrúi, sem flokk
ur minn kaus' til að semja um flutn-
ing málsins við Alþýðuflokkinn og
Sósíalistaflokkinn, heldur voru það
Skúli Guðmundsson og Eysteinn
Jónsson, og það voru þeir, sem
ræddu þessi mál við Alþýðuflokkinn
og Sósíalistaflokkinn. —
Að lokum skal það tekið fram, að
mér er það kunnugt, að hvorki Ey-
steinn Jónsson né Skúli Guðmunds
son hafa gefið um það nokkurt lof-
orð, að umrætt mál yrði afgreitt fyr-
ir þingfrestun, enda skiptir það ekki
máli fyrir afgreiðslu þess.
Þetta vænti ég, herra ritstjóri, að
þér séuð reiðubúnir til að birta i
blaði yðar og þakka fyrirfram birt-
inguna.
Reykjavík 27. apríl 1943.
Hermann Jónasson.
Afhugasemd
Það var fastmælum bundið
milli fulltrúa Framsóknarflokks
ins, Sósíalistaflokksins og Al-
þýðuflokkisns að afgreiða frum-
varpið um eignaaukaskatt ó-
breytt, nema að svo miklu leyti
sem samkomulag yrði milli allra
aðila um breytingar. Það var
ennfremur ákveðið að hraða af-
greiðslu málsins svo sem kost-
ur væri og gerð áætlun um hvað '
langan tíma það myndi taka.
Það var gengið út frá að af-
greiðsla þess þyrfti ekki að taka
lengri tíma en hálfan mánuð.
Enginn minntist á þingfrestun.
Engum kom til hugar að væna
annan um að hann hefði í huga
að eiga hlut að því að þingi yrði
frestað áður en málið yrði af-
greitt. Fulltrúar allra flokkanna
virtust telja fullvíst að frum-
varpið yrði orðið að lögum inn-
an hálfs mánaðar.
Ekki munu fulltrúar Fram-
sóknar neita þessum staðreynd-
um. Verður því ekki séð hvern-
ig þeir fara að neita því, að rétt
sé hermt, að það hafi verið fast-
mælum bundið milli flokkanna
að afgreiða málið óbreytt áður
en þingi yrði frestað.
Hitt er svo annað mál, að þó
að Þjóðviljinn nefndi nafn Her-
manns Jónassonar dettur engum
í hug að halda því fram að
hann einn sé ábyrgur fyrir því
að flokkur hans brást í þessu
máli. Hermann var aðeins nefnd
ur vegna þess að hann var flutn
ingsmaður frumvarpsins í um-
boði flokk'sins. .
GLERBELTI
í mörgnum litum
nýkomin
Verzlun H. Toft
Skólavörðustíg 5.
Sími1035
I. O. G. T.
St. Mínerva nr. 172.
Fundur í kvöld kl. 8,30.
1. Kosning embættismanna.
2. Kosning fulltrúa á umdæm-
isstúkuþing.
3. Sumarfagnaður: Kaffi-
drykkja, upplestur o. fl.
Æ.T.
Arás á bílstjóra
í íyninótt réðust amerískír
hermenn á íslenzkan bifreið-
arstjóra og stálu af honum
200 kr.
Lögreglunni var tilkynnt í
fyrrinótt frá slysastofunni, að
þar væri islenzkur bifreiðar-
stjóri, sem orðið hefði fyrir
árás hermanna.
' Bifreiðarstjóri þessi ók her-
mönnunum suður Hafnar-
fjarðarVeg. Fyrir sunnan Víf-.
ilstaöavegamótin réðust þeir
á hann og rændu af honum
200 krónum.
N.-Múlasýsla gefur her-
bergi i Nýja stúdenta-
garðinn
Sýslunefnd Norður Múla-
sýslu hefur á nýafstöðh.um
fundi samþykkt aö gefa kr.
10.000, — andviröi eins her-
bergis — til nýja Stúdenta-
garðsins.
DAGLEGA
nýsoðin svið. Ný egg,
soðin og hrá.
Kaf f isalan
Hafnarstræti 16.
OOOOOOOOOOOOOOOOO:
Ásg. Jónsson.
KAXJPIÐ ÞJÓÐVILJANN
TILKYNNING
frá Loffvarnanefnd
Æfing fyrir hverfaslökkviliðin verður haldin á íþróttavell-
inum fimmtudaginn 29. apríl kl. 20.30, ef veður leyfir.
Meðlimir úr hverfunum 1—10 eru áminntir um að mæta.
LOFTVARNANEFND.
Eftir 1. maí verður skrifstofum vorum lokað kl. 5 síðdegis,
nema laugardaga, verður þá lokað kl. 12 á hádegi sumarmán-
uðina.
Eímskípafélag Islands