Þjóðviljinn - 30.04.1943, Side 1

Þjóðviljinn - 30.04.1943, Side 1
8. árgangur. Föstudagur 30. apríl 1943. 95. tölublað Hátíðahöld verklýðsfélaganna og B. S. R. B. 1. maí. KrSingangan mun hefjast laust eftir hádegi og verða gengnar þessar götur: Vonarstræti, Suðurgata, Túngata, Garðastræti, Öldugata, Ægisgata, Vesturgata, Hafnarstræti, Hverfisgata, Frakka- stígur, Skólavörðustígur, Bankastræti. Að kröfugöngunni lokinni verður útifundur við Bakarabrekku. Þar flytja ræður: Guðgeir Jónsson, Sigurjón Á. Ólafsson, Sigurður Guðnason, Lárus Sigurbjörnsson, Jóhanna Egils- dóttir, Snorri Jónsson, Guðjón B. Baldvinsson, Guðjón Benediktsson, Björn Bjarnason. Lúðrasveit Reykjavíkur og Lúðrasveitin „Svanur“ munu Ieika í kröfugöngunni, en Lúðrasveit Reykjavíkur á útifundinum. Deild norskra sjómanna mun taka þátt í göngunni með norska fánann og áletrað spjald. Þá mun ef til vill verða skipulögð sérstök fánaborg í göngunni með fánum helztu bandamannaþjóða. 1. maí verða seld merki um land allt í tilefni af deginum. Ennfremur verður „Vinnan“, tímarit Alþýðusambands ís- lands, seld 1. maí, mjög vandað tölublað, tvöfallt. Skemmtanir verða haldnar í Iðnó og Alþýðuhúsinu mn kvöldið. I n i íd aujsl Id i. idí Stíórnmálaflokkarnlr hafa engín hátldahold % Þann 17. apríl síðastliðinn sendi 1. maí-nefnd verklýðs- félaganna eftirfarandi bréf til stjórnmálaflokkanna: „Eins og yður mun vera kunnugt, hafa verklýössam- tök íslands haldiö 1. maí há- tíðlegan um tuttugu ára skeið og þar með helgað sér og málefnum launþeganna þennan dag. Meðan verklýðsfélögin voru sundruð, hinn síðasta áratug, voru þau að vísu ekki ein um hátíðáhöld 1. maí, heldur stóðu og ýmsir stjórnmála- flokkar að 'sérstökum hátíða- höldum. Nú er hin,svegar svo málum komið, að fullkomin skipulagsleg eining hefur náðst innan verklýðssamtak- anna. Hefur Fulltrúaráð i verklýðsfélaganna í Reykja- vík fyrir nokkru hafið undir- húning aö hátíðahöldum launþega í Reykjavlk 1. maí n. k., og hefux Bandalag starfsmanna. ríkis og bæja á- kveðið að taka einnig þátt í þéim hátíðahöldum. Sökum þess. áð launþega- samtökin eru hér sameigin- lega að verkí og skipulagsleg eining verklýðsfélaganna er orðin að veruleika, álítum vér, áð grundvöllur sá, er stjóm- málaflokkar hafa undanfarið álitið réttlæta sérstök hátíða- höld sín 1. maí, sé ekki leng- ur fyrir hendi. Með tilvísun til þessa, vilj- um vér hér með eindregið fara þess á leit við yður, fyr- ir hönd 1. maí-nefndar Full- trúaráðs verklýðsfélaganna og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, að flokkur yðar efni ekki til neinna 1. maí- hátíða- halda 1. maí n. k., heldur stuðla að því, áð hátíðahöld launþeganna megi verða sem almennust. Ennfremur leyf- um vér oss að fara þess á leit við yður, :að þér stuðlið aö því, að flokkur yðar eða flokksfélög stofni ekki til neinnar sérstakrar blaðaút- gáfu í sambandi við 1. mai. Vér væntum svars yðar hið fyi’sta. Samhljóða bréf hefur verið sent öði’um stjórnmálaflokk- um. V irð ingar fy llst (Undirskriftir). Sjálfstæðisflokkurinn svar- aði þessu bréfi þann 24. apríl og fer svar hans hér á eftir: „Við höfum móttekiö bréf ýðar dags. 17. þ. m. varö- andi hátíðahöld 1. maí næst- komandi. Sj álfstæöisfélögin í Reykja- vík hafa á undanförnum ár- um, í samræmi við stefnu S j álf stæð isf lokksins, barizt fyrir því, að stéttasamtök verkalýösins væru óháð póli- Rússneskar sprengjuflugvélar gera harða loffárás á Könígsberg í opinberum tilkynningum frá Moskva segir að lítið sé um hernaðaraðgerðir á austurvígstöðvunum, en báðir hernaðarað- ilar búa sig undir stórkostleg átök. Blað rauða hersins lét svo um mælt í gær, að núverandi aðgerðarleysi á austurvígstöðv- unum væri aðeins „lognið á undan ofsaveðri“. Talsmaður þýzku herstjórnarinnar sagði í gærkvöld, að Rússar hefðu byrjað árásir í stórum stíl á Kúbanvígstöðvim- um, báðu megin við bæinn Krimskaja. Um aðgerðir þessar hefur ekki verið getið í sovétfregnum. Öfltigar sveitir rússneskra sprengjuflugvéla réðust í fyrri- nótt á borgina Köningsberg í Austur-Prússlandi. Urðu miklar sprengingar í borginni og miklir eldar komu upp. Sögðu flugmennirnir að eldarnir hefðu sézt í 100 kih. fjarlægð. Flugskilyrði voru afjeit, en aðeins ein af rússnesku sprengju flugvélunum fórst. Þetta er í fimmta sinn þennan mánuð sem Rússar gera loftárás á Köningsberg, sem er mikilvæg hafnarborg og iðnaðarmiðstöð. Lintvinoff, sendiherra Sovét- ríkjanna í Washington er í þann veginn að' leggja af stað til Moskva, til að gefa stjóm sinni skýrslu. Majskí, sendiherra Sovétríkj- anna í London, ræddi í gær við brezka utanríkisráðherrann, Ed- en. Er þáð fyrsta viðræða þeirra frá því að Sovétríkin slitu stjórn málasambandi við Sikorski- stjórnina í London. tískum flokkum. Aðalkrafa Sjálfstæðismanna í þessu til- liti var að fá útrýmt því póli- tíska misrétti, sem ríkti inn- an Alþýðusambands íslands. og skipulagsbundin tengsl Al- þýðusambandsins og Alþýöu- flokksins rofin. Að formi til hefur þessari meginkröfu nú fengizt framfylgt. Við erum því sammála því, sem fram kemur i bréfi ýðar, að grund- völlur sá, er aö undanförnu hefur réttlætt sérstök hátíöa- höld Sjálfstæðisfl. 1. maí, séu að þessu leyti ekki leng- ur fyrir hendi. Að vísu eru. þrátt fyrir þetta, enn ýmsar menjar hins pólitíska misrétt- is í skipulagi einstakra stétt- arfélaga, en þess ætti að mega vænta, aö stefnan, sem sigraði innan allsherjarsam- takanna, Alþýöusambandsins. ^ ryöji sér almennt til rúms innan félaganna. Sj álfstæðisfélögin i Reykja- vik, hafa, með' hliðsjón af framangreindu, ákveðið að efna ekki til sérstakra hátíða- halda aö þessu sinni. En við við væntum þess þá einni'g, og skírskotum í því sambandi til bréfs yðar, að þau hátíða- höld 1. maí, sem Fullarúaráð verklýðsfélagamia og Banda- lag starfsmanna ríkis og bæja gangast fyrir, beri á Framh. á 4. síðu. Mannerheim í Sviss. Finnski fasistahershöfðinginn Mannerheim, er kominn til Sviss, sér til heilsubótar, að því tilkynnt er í útvarpsfregn frá Finnlandi. Heræfingar í Kýprus Bretar hafa byrjað miklar her æfingar á eynni Kýprus, austast í Miðjarðarhafi. Segir í tilkynningunni að þetta séu stórfenglegustu her- æfingar, sem haldnar hafa ver- ið á þessum slóðum, og tekur flugher og sjóliðar þátt í þeim auk landhers. Hæg sókn Banda- manna í Túnis Sókn Bandamanna heldur á- fram á öllum vígstöðvunum í Túnis, en er mjög liæg. Hafa ehgar mikilvægar breytingar orðið síðustu sólarhringana, en fasistaherirnir eiga stöðugt örð- ugra um vöm eftir því sem her- sveitir Bandamanna þrengja að lierstöðvum þeirra. Sprengjuflugvélar Banda- manna hafa gert harðar árásir á stöðvar á Sikiley og Suður- Ítalíu, þar á meþal borgirnar Messina og Napoli. „Veizlan á Sólhaupm “ Verður leikin 17. mai Frú Gerd Grieg hefur á hen leikstjfirnina Norska leikkonan Gerd Grieg er komin til í'slands aftur. í gær áttu blaðamenn viðtal við leikkonuna á héimili frú Soffíu Guðlaugsdóttur og Hjörleifs Hjörleifssorfar, þar sem skýrt var frá þeirri fyrirætlun að leika „Veizluna á Sólhaug- um“ eftir Ibsen, undir stjórn frú Gerd Grieg. — Lét frú Grieg í Ijós ánægju sína yfir því að vera aftur komin til íslands. — Verður frmnsýning leiksins 17. maí. Norska stjórnin tók þessu mjög vinsamlega og veitti frú Grieg leyfi til að koma liing- að og auk þess var Ferdinand Leikurinn veröur sýndur á vegum Norræna félagsíns. Skýrði Guðlaugur Rósinkranz frá því að þáttur úr Gösta Berlings Saga hefði verið leik- inn á skemmtifundi félagsins, og sá frú Soffía Guölaugs- dóttir um þá sýningu. Tókst sýningin mjög vel og var þá rætt um að æskilegt væri að sýna fleiri norræn leikrit. Var þá rætt um að frú Soffía tæki að sér leikstjórn á „Veizlunni á Sólhaugum“; en hún vildi, ef þess væri kostur, að frú Giieg tæki að sér leikstjórnina og hefði á hendi aðalhlutverkið. Finne, nafnfrægum búninga- teiknara kgl. norska leikhúss- ins í Osló, gefiö sjö vikna leyfi til að teikna búninga og sjá um útbúnaö leiksviösins. Frú Soffía Guðlaugdótth’ tók þaö fram að hún hefði gert sitt bezta til að fá frú Grieg til að' leika hlutverk Margrétar, en það var ekki að því komandi. Þessir leikendur leika í leikritinu: Valdimar Helgason Framhald á 4. síðu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.