Þjóðviljinn - 18.05.1943, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.05.1943, Blaðsíða 1
8. árgangur. Þriðjudagur 18. maí 1943. 109. tölublað. Stórkosllegf Ijcnátnannvírisíum og íðnadí Ruhrhéraðanna Loftárás á Ostia, 25 km. frá Róm Bandarískar og brezkar sprengjuflugvélar halda áfram miklum árásum á ítalskar stöðv- ar. Hefur það vakið nlikinn ugg í Ítalíu, að Bandamenn gerðu í gær harða loftárás á hafnarbæ- inn Ostia, 25 km. frá Kóm. Brezkar Lancastersprengjuflugvélar eyðlögðu í fyrrinótt tvo mestu stíflugarða Þýzkalands, báða í Ruhr, og hefur vatnsflóðið valdið gífurlegu tjóni og eyðilegging stíflugarðanna víðtækri truflun á orku- framleiðslu og iðnaði Ruhrhéraðanna. í annan stíflugarðinn, Möhnestífluna, var sprengt 100 metra breitt skarð, og reif vatnsflóðið með sér raf- stöð nokkru neðar við fljótið, brýr og mannvirki. Ruhrfljótið hefur vaxið ákaflega, og stöðugt vax- andi vatnsagi er á Dortmundsvæðinu. Með hinum garðinum, Ederstíflunni, var stjórnað vatnsmagninu í Weserskipaskurðinum, og margskon- ar iðnaðarframleiðsla í nærliggjandi héruðum var við hann tengd. Borgin Kassel er talin í mikilli hættu. Sfcípíd var ad reyna ad rjáfa hafn~ bannid, hladíd hcrnadarhráefnum frá japan Brezk herskip hafa náð tveimur þýzkum vopnuðum flutn- ingaskipum, er voru að reyna að brjóta hafnbannið með því að flytja til Þýzkalands dýrmæt hernaðarhráefni frá Japan. Brezka beitiskipið „GIasgow“ hitti 8000 smálesta mótorskip, ,,Regensburg“, í Dajimerkursundi, milli íslands og Grænlands. Flutningaskipið stöðvaðist við skothríð beitiskipsins, og sprengdi áhöfnin það í loft upp. Vegna ofveðurs og sjógangs tókst ekki að bjarga nema 6 mönnum af áhöfninni. Hákon Noregskon- ungur og ríkisstjori lslands! skiptast á kveðjum Hákon 7. Noregskonungur sendi Ríkisstjóra Islands svo- hljóðandi orösendingu 17 n.-aí- ,,Pá 129 ársdag for Norges frie grunnlov er det meg en glede á fá anledning til á ,sende en hilsen til várt is- 'landske frendefolk. Váre to land har bygget sin kultur og sitt nasjonale liv pá de samme idealer, pá lovens, rettens og menneskeverdighetens grunn. Denne fedrenearv vil ogsá i fremtiden gi oss styrke till byggende samfundsarbeid i fred. Jeg takker for all den sympati som den islandske regjering har vist nordmenn- ene i de trengselsár vi nu gjennemlever og som vil be- feste det tusenárige vennskap mellem Island og Norge“. Ríkisstjóri svaraði þannig: „íslendingar telja sér styrk í því aö fylla flokk lýðræöis- þjóöanna, fyrst og fremst bræðraþjóöanna á Norður- löndum. Undanfarin þrjii ár hafa gefið oss tækifæri sí- fellt aukinnar aödáunav fyrir norsku þjóðinni, bæöi heima og erlendis, undir handleiðslu Yðar Hátdgnar og vár alJir sameinumst 17- maí í inni- legum og einlægum árnaöar- j óskum Yðar Hátignar og hinni hraustu norsku frænd- þióð vorrr1. Bretar taka eyju fyrir Túuisströndum Brezk hersveit náði á vald sitt smáeyju, 15 km. norðiir af Bon- 1 höf'ða, og voru hermennirnir fluttir á herskipum til eyjarinn- ar. Bretar tóku 190 þýzka her- menn til fanga á eyjunni. Er taliö vandséð, af hvoru hljótist meira tjón: Flóöun- um eöa vatnsskorti, sem leið- ir af eyðileggingu stíflugarð- anna. Átta sprengjuflugvéianna sem árásina gerðu fórust. Áhafnir spiiengjuflugvél- anna höfðu verið æfðar sér- staklega undir árás þessa vikum saman. Var höfð hin mesta leynd viö æfingamar og vissu aðeins örfáir yfir- menn flughersins hvað til stóð. Árásin þótti takast framúr- í gærmorgun um kl. 9 voru lagöir blómsveigar á leiöi norskra hermanna og sjó- manna í kirkjugarðinum í Fossvogi. Klukkan 10 hófst hátíöa- guðsþjónusta í Dómkirkjunni sr. Bjarni Jónsson vígslubisk- up prédikáði. Norskt útvarp var frá kl. 14,30—15,30. Af íslendingum komu þar fram þei'r Skúli Skúlason, sem flutti ræðu og Lárus Pálsson, sem las upp. Rétt fyrir kl- 2 fóru norsk og norskíslenzk börn í skrúö- göngu fi'á bústað norska sendi skarandi vel, og hefur Harris flugmarskálkur, yfirforingi brezku sprengjuflugvélanna sent foríngja leiöangiu’sins heillaóskaskeyti og þakkað honum hínn mikla árangur. Samtímis gerðu sveitir brezkra sprengjuflugvéla á- rásir á Berlín og herstöövar í Rínarlöndum. Bandarískar sprengjuflug- vélar gerðu í gær árás á tvær helztu kafbátahafnir Þjóð- verja á Frakklandsströnd Lorient og Bordeaux. herrans við Fjólugötu. Gengu þau Fríkirkjuveg, Lækjargötu og staönæmdust á Arnarhóls- túni. Á undan skrúðgöngunni gengu 3 norskir hermenn meö 3 stóra norska fána. Á Arnarhólstúni haföi verið komið fyrir norskum og ís- lenzkum fánum. Formaöur Nordmannslaget setti hátíðina. Barnakórinn Sólskinsdeildin söng undif stjórn Guðjóns Bjarnasonar. Sigurður prófessor Nordal flutti þar skörulega ræöu. Að ræðu hans lokinni var norski þjóðsöngurinn lei'kinn. Hitt skipið var á' fimmta þúsund smálestir, og náði [þróttakvikmynd Ármanns sýnd á Austurlandi iþróttakvikmynd Ármanns sem sýnd hefur veriö í Reykjavík sunnudag eftir sunnudag, við mikla aðsókn er á leiðinni út á land. Var hún sýnd í Vestmanna- eyjum í gærkvöld, en *þaöan verður Hún send til Austur- lands og sýnd á Fáskrúðs- firði, Reýðarfirði, Eskifirði Norðfirði, Seyðisfirði, Eiðum Hallormsstað og ef til vill víð- ar. Meö henni verður sýnd kvik mynd af bandarískum íþrótta- mönnum, sem Ármann hefur notað í vetur við kennslu í frjálsum íþróttum. Allmikill mannfjöidi var sam- an kominn ' hóli með- an hátii n fram. KJn’ _18 tók norski sendiherru m á móti gestum í bústað sínum. í gærkvöldi var frumsýning í Iðnó á „Veizlunni á Sólhaug- um“ eftir H. Ibsen. í gærkvöldi efndu Norð- menn til veizlu á Hótel Borg. brezkt herskip því um 200 sjómílur frá vestur odda Spánar. Áhöfn kaupskipsins sprengdi það í loft upp, en fór áður í bátana og björguðu Bretar öllum þeim sem á skip- inu voru. Skipið var hlaðið gúmmíi og tini. Segir í brezkum frétt- um að ÞjóðVerja sé farið að vanta tilfinnanlega ýms dýr- mæt hernaðarhráefni, og hætti hvað eftir annáð beztu skipum sínum í árangurlaus- ar tilraunir til að rjúfa hafn- bannið. Rauð iherinn vinnur á við Lisitsjansk Ekkert lát á íoftsókn Rússa Rr ;nn hefur náð fótr'cí'b’ netsfljóts á Lisitsjansksvæðínu, og hrund- ið öllum gagnárásuin Þjóð- verja, segir í Moskvafregn í gærkvöld- Spréngjuflugvélar Rússa halda uppi loftsókninni gegn herstöðvum og samgöngumið- stöðvum Þjóðverja að baki víglínunnar, einkum á miðvíg- stöðvunum og i Úkraínu. 17. mal ttiiallld Hrtiana IM (Jfisamkoma á Arnariióli — Guðsþjónusta í Dóm- kirkjunni — Skemmtanir um kvöldið Norðmenn í Reykjavík héldu hátíðlegan liátíðardag sinn, 17. maí, í gær með útisamkomu á Arnarhólstúni, guðsþjónustu í Dómkirkjunni og skemmtisamkomum í gærkveldi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.