Þjóðviljinn - 21.05.1943, Qupperneq 1
Bœfairhúsín á Melimum
Sósíalístar víldu selja hústn á leígu samkvœmí
mati
Davies ræðir við
Molotoff
Joseph E. Davies, sendiboði
Roosevelts forseta, ræddi í gær
við Molotoff utanríkisþjóðfull-
trúa Sovétríkjanna.
Standley flotaforingi, sendi-
herra Bandraíkjanna í Moskva,
var viðstaddur viðræðufund
þeirra.
Eins og Þjóðviljimi hefur þegar skýrt frá, voru tillögur sósí-
alista um ráðstöfun hinna nýju íbúðarhúsa bæjarins vestur á
Melunum þessar:
„Bæjarstjóm ákveður að selja íbúðimar í bæjarhúsunum
við Hringbraut á leigu, samkvæmt mati húsaleigunefndar“
og til vara:
,.Verði íbúðirnar í bæjarhúsunum við Hringbraut seldar,
skal útborgun ekki vera hærri en 15 — fimmtán af hundraði
— af byggingarkostnaði“.
íhaldið vildi hinsvegar selja íbúðirnar með hærri út-
borgun.
Á fundi bæjarstjórnar í gær
rökstuddi Sigfús Sigurhjartar-
son tillögur sósíalista. Sýndi
hann fram á það, að hér væri
um mikið mannúðarmál að
ræða, hér þyrfti fyrst og fremst
að taka tillit til þarfa en ekki
getu. í bænum væri fjöldi fólks,
sem væri beinlínis á götunni.
Röksemdir íhaldsins um að losa
þyrfti fé það, sem bærinn hefði
lagt í eignir þessar væru ekki
nógu sterkar til þess að fara
þyrfti þá leið, er meirihluti bæj-
arstjórnar vildi fara, sem sé að
krefjast útborgunar á % af
byggingarkostnaði húsanna. —
Lagði Sigfús áherzlu á, að
yrði tillaga sósíalista ekki sam-
þykkt, þyrfti að minnsta kosti
að gera kjörin það aðgengileg,
að efnaminna fólk gæti orðið í-
búðanna aðnjótandi. — Væri
varatillaga sósíalista í samræmi
við það.
Helgi H. Eiríksson upplýsti
að húsaleiga, samkvæmt kjör-
um bæjarstjórnarmeirihlutans
myndi nema á mánuði kr. 236,00
fyrir stærri íbúðirirnar og kr.
194,00 á mánuði fyrir þær minni
og eru þá ekki reiknaðir vextir
af eigin fé.
Verðið á íbúðunum er talið
muni verða 55 þús. kr. fyrir
tveggja herbergja íbúð. en 70
þús. kr. fyrir þriggja herbergja
ibúðirnar. i
Samþykkt var með 8 atkvæð
um gegn 7 að selja húsin með
25% útborgun af byggingarkostn
aði þeirra.
Bæjarstjórnin samþykkti í
gær heimild til borgarstjóra
um kaup á húseignum frú
Helgu Nielsdóttur, nr. 37 við'
Eiríksgötu og nr. 78 við Hring
braut, fyrir 400 þúsund krón-
ur. En sölutilboð frúarinnar
var 440 þúsund krónur.
Fór svo sem Sigfús Sigurhjart
arson sagði í niðurlagsorðum
ræðu sinnar: Fyrir þá snauðu
eru hinar leku póla-byggingar
en fyrir þá efnuðu hin vönduðu
hús bæjarins.
Sigríður ráðin Sund-
hallarforstjóri
Erlingur sagði upp starfinu
Á bæjarstjórnarfundi í gær-
kveldi las borgarstjóri upp
bréf frá Erlingi Pálssyni, þar
sem hann biðst lausnar sem
forstjóri Sundhallarinnar.
Bæjarstjóx-nin samþykkti
einróma aö verða viö lausnar-
beiöni Erlings og var ungfní
Sigríður Sigurjónsdóttir ráö-
in í hans stáö, með samhljóða
Framh. á 4. síðu.
Kjötín, sem Sfálfsfaedisflokkurinn býður;
Aorni ai ninol ibOðonnin 13-is
pús.kr. -iiíialaritgnr kastuluraf
OtnllnnOi Innug 320 Ir.
líilorgnn af slærri iHOnnnn 15—17
lOs. Ir —■ínlnrlniir kistu Onr al
Ohnllanli lOnii nn 401 ir.
Samþykkt var á bæjarstjórnarfundinum með 8 atkvæðum
— Sjálfstæðisflokksmanna og Árna Jónssonar frá Múla — gegn
7 atkvæðum — sósíalista og Alþýðuflokksmanna — að selja
íbúðirnar í bæjarhúsunum á Meluniun með eftirfarandi kjörum:
Útborgun við undirskrift kaupsamnings 25%
Lán á 1. veðrétti greiðist á 40 árum 33Vá%
Lán á 2. veðrétti greiðist á 60 árum 20%
Lán á 3. veðrétti greiðist á 8 árum 21%%
Öll lánin ávaxtast með 4%%, tvö þau fyrri greiðast með i
jöfnum árlegum greiðslum, en hið þriðja með jöfnum afborg- 1
unum.
Raunveruleg húsaleiga stærri íbúðanna nemur því um 400
kr. á mánuði, en um 320 kr. af minni íbúðunum og eru þá engir
vextir reiknaðir af útborguninni.
Þá var ennfremur samþykkt eftirfarandi með samhljóða
atkvæðum:
„Jafnframt ákvörðun um að selja íbúðir í nýbyggingunum
við Hringbraut 137—147 setur bæjarstjórn væntanlegum kaup-
endum þau skilyrði, að þeir myndi með sér sameignar- eða sam-
vinnufélög um húsin, enda samþykki bæjarráð lög og starfs-
reglur félaganna. Ennfremur felur bæjarstjóm bæjarráði að á-
kveða nánar söluverð íbúðanna og ganga að öllu leyti frá sölu
þeirra þ. á. m. að ákveða hverjum þær verði seldar“.
Hernaðaraðgerðir á austur-
vígstfiðvunum aukast
Þjódverfar búasf vid sókn á Orel~
svæðinu næsfu daga
Fregnum frá austurvígstöðvunum ber saman um, að hern-
aðaraðgerðir séu að aukast, þó ekki hafi komið til meiriháttar
átaka enn.
í síðustu fregnum frá Moskva segir, að rauði herinn hafi
náð þýzkum stöðvum á Kúbanvígstöðvunum og bætt aðstöðu
sína á ísjúmsvæðinu.
Þjóðverjar hafa sent öflugar flugsveitir til Kúbanvígstöðv-
anna, án þess þó að ná þar yfirráðum í lofti.
í þýzkum fregnum segir, að
rauði herinn hafi gert miklar á-
rásir í gær á Kúbanvígstöðvun-
um og við Mið-Donets.
Þýzka útvarpið sagði í gær-
kvöld, að Rússar dragi saman
mikið lið á Orel-svæðinu og
megi búast við stórsókn af hálfu
rauða hersins þar hvern næsta
dag.
Tíu norskír
ælfjardar-
vínír myrtír
Tíu norskir ættjarðarvinir
vom líflátnir í gær að boði
þýzku nazistayfirvaldanna.
Sex þeirra: Godtfred Leir-
vaag, Herman Thingstad, Gust-
av Bergquist, Torleif Dahl og
Egil Mogstad voru sakaðir um
„að hafa gert hemaðarráðstafan
ir í því skyni að hjálpa óvinun-
um, ef til innrásar kæmi“.
Þrír aðrir, Odd Nilsen, Thor-
leif Olsen og Johan Elones
vom kærðir fyrir, að þeir hefðu
vitað um þessar ráðstafanir án
þess að tilkynna það, og hjálp-
að sexmenningunum. Sá tíundi,
Peder Morsett, var kærður fyr-
ir mótþróa gegn þýzka hernum
og fyrir að reyna að flýja úr
landi.
Terboven landstjóri neitaði að
náða þá.
Tillögur sósíalista
í húsnæðismálunum
Björn Bjarnason kvaddi
sér hljóðs um húsnæðismálið
á bæjarstjórnarfundi í gær-
kveldi og bar fram svohljóð-
andi tillög-u fyrir hönd full-
trúa Sósíalistaflokksins:
„Vegna hinna miklu hús-
næðisvandræða, sem nú eru
hér í bæ, að þar sem víst má
telja, að ástandið í þessu efni,
verði enn verra í haust, felur
bæjarstjórn borgarstjóra að
gera eftirtaldar ráðstafanir:
1. Að láta fara fram skrán-
ingu húsnæðislauss fólks í
sumar.
2- Að látá skrá allt húsnæði
í bænum ásamt upplýsingum
um notkun þess.
3. Að koma því til vegar,
að allar breytingar á notkun
ihúsnæðis verði lagðar fyrir
húsaleigunel'nd. Sbr. 11. gr.
Iaga unx húsaleigTJi frá 6. apr.
1943.
4. Að leggja ríkt á við húsa-
1 leigunefnd, að nota til hlítar
heimildir þær, sem felast í
5. gr. laga um húsaleigu frá
6. apr. 1943 til að taka til
umráða ónotað húsnæði og
hluta íbúöarhúsnæðis, sem af-
nota hafi getur án verið“.
Tillögur þessar þurfa lítilla
skýi’inga við og viröast sjálf-
Framhald á 4. síðu.