Þjóðviljinn - 25.05.1943, Síða 2

Þjóðviljinn - 25.05.1943, Síða 2
2 Þriðjudagur 25- maí 1943. Tílkynníng. Höfum opnað raftækjavinnustofu. — Tökum að okkur ▼iðgerðir á allskonar rafmagnsvélum. Einnig raflagnir Raftækjavinnustofan R0ÐULL h.f. Mjóstræti 10. Sími 3897. Óskar Hansson, Vilhjálmur Hallgrímsson, HaUdór B. Ólason. Belknlngnr II. MNftlUS r r i fyrir árið 1942, liggur frammi á skrifstofu vorri til sýnis fyrir hluthafa frá í dag. Reykjavík, 22. maí 1943. STJÓRNIN. Flot og tólg f Vz kg. stykkjum fæst í öllum útsölum vorum og víðar. — Mjög lækkað verð. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS. arið er þegar oröíð stutt. Öruggasta ráðið til að fá fullþroskað kál, er að kaupa það í moldarpottum. Á þann hátt lengist vaxtartíminn 1—2 mánuði. — Höfum úrvalsplöntur af blómkálí, hvífbáli og vetratrhvíibáli í moldarpottum. Plöntumar sendap heim til kaupenda, ef keyptar eru minnst 30 plöntur. — Gerið pantanir yðar sem fyrst. Sýnishorn í glugga okkar. Blóm & Avcxtír. S.G.T.- dansleikur I Listamannaskálanum í kvöld (þriðjudag) kl. 10. Aðgöngumiðasala kl. 5—7 og eftir kl. 9, sími 3240. Hljómsveit Bjama Böðvarssonar. Frá sumardvalarneínd Öll böm, sem sótt hafa um sumardvalir á vegum nefndarinnar ogxenn hafa ekki mætt í læknisrann- sókn, verða að mæta til rannsóknar miðvikudaginn 26. maí kl. 5—7 e. h. í Miðbæjarbarnaskólanum. SUM ARD V AL ARNEFND. DtL Sumarkjólaefni í fallegu úrvali. Verzlun H. Toft Skólavörðustíg 5. Sími 1035 Símanúmer okkar er 1195 PRENTMYNDASTOrAN £ LITROF * . Pétur Sigurðsson: Stðrblððin, auðmagn og áfengi Kunningi minn færði mér eintak af blaðinu „Collier’s" og benti mér á svæsna andbanningagrein í blað- inu, sem var dagsett 19. des. 1942. Greinina las ég ekki gaumgæfilega, því að ég er fyrir löngu búinn að fá nóg af þessari margtuggnu og ó- sönnu andþanningaþvælu. En ég fór að fletta blaðinu og skoða mynd- irnar, eins og börnin. Þá skildi ég fljótlega áfengisáhuga blaðsins. Það var krökkt af áfengisauglýsingum. Eg reif þær allar út úr þlaðinu og geymi þær að gamni mínu. Þetta er skrautlegur pappír. Blaðið er í stóru þroti, og flestar auglýsingarnar heil blaðsíða. Ellefu slíkar heilblaðsíðu-áfengisauglýsing- ar eru í þessu eina hefti blaðsins, og dálítið meira. Geta nú ekki allir skilið áfengisáhuga blaðsins? Hve mikið fær það fyrir hverja auglýs- ingablaðsiðu? Það veit ég ekki, en hitt veit ég, að það er ekkert smá- ræði. Þessi stórblöð eru víðlesin og koma út í milljónum eintaka. Heil- blaðsíðuauglsing hlýtur því að kosta mikið. 10—12 ferfet áfengisauglýs- inga i slíku blaði, hlýtur að kosta stórfé. Þá sá ég ameríska stórblaðið „Life“, í bókabúð og tók að fletta þyí. Jú, þarna voru þær aftur þess- ar stóru og skrautlegu áfengisauglýs ingar. Eg keypti blaðið, fór heim með það, reif allar auglýsingarnar út, það var auðgert, þvi að flestar voru þessar áfengisauglýsingar heil blaðsíða hver. Þæ,r voru fimmtán skrautlegar heilar blaðsíður, og dá- lítið meira. 15—17 ferfet í þessu víð- lesna og heimskunna blaði, í einu hefti. Hve mikið kostar slík auglýs- ing? Það borgar sig að skrifa eina andbanningagrein við og við, og nú er dæmið auðreiknað: Afengissalan skapar áfengisauðmagn. Það auð- magn getur borgað vel fyrir stórar *og skrautlegar auglýsingar í víðlesn- ustu blöðum heimsins. Þær auglýs- ingar eru góður stuðningur við blöð- in og eflir þau, en auglýsingarnar efla áfengissöluna, sem eykur stöð- ugt áfengisauðmagnið, sem alltaf get ur keypt í sama hlutfalli, stærri, fleiri og skrautlegri áfengisauglýs- ingar. Og þannig er svikamyllan í fullum gangi. Svo malar auðvalds- kvömin blóðpeninga úr glötuðu sak- leysi, eyðilögðum manndómi, löm- uðu siðferðisþreki, hrundum heimil- um, eymd og fátækt, slysum og glæp um og menningarskorti og smán þjóðanna. Hvað mega meiníausar bindindis- prédikanir gegn slíku ofurmagni auðvalds og ágirndar annars vegar, en breizkleika og menningarskorts hins vegar. Hve átakanlega sönn eru þó þessi orð: „Ágimdin er rót alls ills“. En þrátt fyrir almátt auðs og blekkinga, eru þeir, sem eitrið brugga, hræddir við hina mörgu sigra þess konungs — sannleikans, er að síðustu mun jafna vegina, svo að færir verði jafnvel farlama mönn um. Það er þess vegna að þeir skrifa greinar eins og þessa, sem birtist í Collier’s 19. des. 1942. Þeir eru hræddir og hafa ástæðu tii þess að vera það, því að hin vondu verk þeirra dæma sig sjálf. 28. nóvember 1942 flutti sama blað grein, og þar segir, meðal annars: „Menn í þjónustu stjórnarinnar, gera ráð fyrir, að fyrir hverja lög- lega áfengisgerð (distillery), séu að minnsta kosti hundrað ólöglegar á- fengisgerðir (stills). Löggæzlumenn sambapdsstjómarinnar taka fasta ó- löglega bruggara svo skiptir þúsund- um á hverjum mánuði, og samt blómgast og vex hið ólöglega áfeng- isforugg. Það er álit þessara þjóna stjómarinnar.að framleitt sé 1 land- inu árlega 18 milljónir gallóna af ó- löglegu áfengi. Væri þetta lögleg framleiðsla, gæfi það' stjórninni 27 milljónir dollara í sköttum. Sjáum til. Fyrir þetta hefði mátt smiða 10 tundurspilla, eða um 300 sprengju- flugvélar. Slíkir ólöglegir bruggarar í New York (ríkinu?), Ohio, Michigan og Illinois flytja áfengi til Canada. Fyrir nokkru kom það í ljós, að af 2.500 bréfum, sem forsetinn fékk á einum degi, voru 600 bréf sem kröfð ust þess, að hætt væri að selja á- fengi í nágrenni hermannaskálanna. Þrjár gallónur af hverjum tíu, sem seldar eru í landinu, eru ólöglegt á^engi og af því er enginn skattur greiddur. Væru hemaðaryfirvöld okkar eins kná að sigrast á erfið- leikunum, viðvíkjandi flutningum og framleiðslu, eins og þessir ólög- legu bruggarar á sínu sviði, þá yrði stríðið brátt á enda kljáð. Stutt er síðan að forstjóri gos- drykkjagerðar játaði að hafa selt leynibruggara 20,000 sykursekki. Þjónar laganna eru nú að athuga altskonar sælgætisgerðir og köku- gerðir, sem álitið er að hafi það fyi'- ir gróðaveg að selja leynibruggurum sykur. Joi (leynibruggari) segir, að bæði hann og aðrir leynisalar, sem hann þekki til, selji gríðarlega mikið til hermannanna, í iðnaðarhverfum borganna og til allskonar söluturna og veitingastaða, í flöskum, sem ein- kenndar eru sem löglegt áfengi. Það er auðvitað bannað að fylla á tæmdar áfengisflöskur löglegu sölunnar, en leynisalamir gera sér nú litla rellu út af smásynd í viðbót. Embættismenn stjórnarinriar segja, að menn mundu verða hissa, ef þeir gætu komizt að raun um, hve mikið af ólöglegu áfengi er selt í hótelum, veitingastöðum og klúbbveizlum, I þar sem aðeins á að finnast hin betri lyktin. Yfirréttur sambandsstjórnarinnar hefur nýlega dæmt 20 tollþjóna á- fengislöggæzlunnar, sem þegið höfðu mútur frá leynisölum, er stefndu að því, að hafa 5 milljónir dollara í sköttum af ríkinu." Þessi raunalega lýsing hefur óvart skotizt upp úr andbanningum. Nú er þó ekki „hinum svívirðilegu bann lögurn" um að kenna. Þannig er hið raunverulega ástand í Bandaríkjun- um um þessar mundir, og þesfs vegna eykst nú fylgi bannmanna svo ört, að hinir hrökkva við. Helmingi fleiri menn dóu úr áfengissýki í Banda- ríkjunum árið 1940 en árið 1920, en þá voru bannlög í landinu. Fyrrv. ráðherra Joseph H. Choate, forstjóri áfengismóla ríkisins, sagði, er tvö ár voru liðin frá afnámi bannsins: „Ólöglegir bruggarar framleiða nú mörgum sinnum meira áfengi, en þeirra löglegu keppinautar. Viðvikj- andi ófengismálunum má sannarlega segja, að þjóðin lifi nú í „paradís heimskingj ans“. Öldungadeildarmað urinn Walsh, þingmaður Massachu- setts, sem var með afnámi bannsins, hefur nú játað, að þetta afnám bannlaganna hafi reynzt „óþolandi og hörmuleg sneypuför“, og „miklu ver en alþjóðar bannlögin“. Slíkt hefur einnig skotizt upp úr mönnum, sem börðust fyrir afnámi bannlaganna á íslandi. Á fyrstu 10 árum bannlaganna lokuðu 97 af 98 hælum, sem heita „Keeley Cure Institutes for Ine- briates" (þetta eru drykkjumanna- hæli), og öll 60 di'ykkjumannahæl- in, kend við „Neal Cufe“ lokuðu einn ig. — Hvað vilja andbanningar gera við slíka staðreynd? Aftur á móti óx áfengisbrjálun (delirium tremens) um 40 prósent í Bandaríkjunum fyrstu 4 árin eftir afnám bannlag- anna. 2,765,269,658 punda af korni, sykri og sýrópi eru nú notuð árlega í Bandaríkjunum til ófengisbruggun- ar. Betur mætti verja slíku nú á dögum. Við hér á landi getum ekki verið í vafa um, hvaða valdi þau blöð okk- ar þjóna, sem stöðugt leggjast gegn róttækri áfengislöggjöf og kvarta undan háu verði á áfengi og tóbaki, en varast að stíga á stró glysvara- og sælgætisprangara. !2i3i353ni2i352{2S3i3Í2 DAGLEGA nýsoðin svið. Ný egg, soðin og hrá. Kaf f isalan Hafnarstræti 1 6. tmímmmamssBs Askrlftarsími Þjúðviljans er 2184 Anglýslng um einstefnuakstur við höfuina í Reykjavík. Samkvæmt ályktun bæjarstjórnar Reykjavíkur hefur verið ákveðinn einstefnuakstur á eftirfarandi götum: 1. Frá Tryggvagötu við gatnamót Kalkofnsvegar skal vera einstefnuakstur norður uppfylling- una að vesturhorni leigulóðar h.f. Kol & Salt, en meðfram norðurhlið þeirrar lóðar, að Faxa- götu, má aðeins aka frá vestri til austurs. 2. Um Geirsgötu, að Pósthússtræti, má aðeins aka frá vestri til austurs. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 25. maí 1943. AGNAR KOFOED-IIANSEN.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.