Þjóðviljinn - 05.06.1943, Síða 1

Þjóðviljinn - 05.06.1943, Síða 1
8. árgangur. Laugardagur 5. júní 1943. 124 tölublaö lónas frá Hríflu hefur orðfð: L linsaia hliiar al Hiar Iraa í saöiaiHastía 12 lan i i*r tænuia En „orðalagið" var sett „óákveðið" „í byrjun" til þess að firra ekki „umbjóðendur launþega frá samkomulagi“! Þíóðvílýlnn byrjar I da$ að bírta úfdræltí úr hírðisbréfí Jónasar frá Hríflu KRON opnaði hina nýju búð sína á Skólavörðustíg 12 í gær- morgun. Tíðindamaður Þjóðviljans leit þangað inn um hádegisbilið í gær og var þá aðsóknin svo mikil að lögreglan „stjómaði um- ferðinni" innanhúss. Vörusala búðarinnar nam þennan fyrsta dag tæpum 50 þaís- undum króna. I. Jónas frá Hriflu hefur nýlega gefið út hirðisbréf til „sinna manna“ í Framsókn. Kennir þar margra grasa. Er þar ýmislegt gimilegt til fróðleiks, ekki sízt fyrir þá, sem búizt hafa við, að hægt væri'að ná samningum við Framsókn um róttækar umbæt- ur, alþýðu til handa. Þjóðviljinn mun smátt og smátt skýra les- endum sínum frá ýmsu í þessu sögulega plaggi. Að þessu sinni skal sagt frá því máli, sem mest er um deilt: afstöðu Framsóknar í dýrtíðarmálinu, m. ö. o. kröfu Framsókn- ar um gunnkaupslækkun, en eins og kunnugt er, hefur Eysteinn farið eins og köttur kringum heitan graut, þegar um það mál er rætt. Jónas klípur hinsvegar ekki utan af því, og kemur heldur óþægilega upp um vin sinn og lærisvein Eystein, með því, sem hann segir. Jónas skýrir í hirðisbréfinu svo frá nefndaskipun og klofn- ingi í aðalstjóm Framsóknar eftir kosningar: Hirðisbréfið um grunnkaupslækkunina. „Eftir kosningar, en áður en Alþingi kom saman, setti mið- stjórn Framsóknarflokksins fjölmenna nefnd til að undirbúa starfsskrá fyrir flokkinn, ef koma skyldi til samstarfs við aðra flokka um stjórnarmyndun. Þessi nefnd myndaði fljótt meiri- og minni-hluta, sem haldizt hafa óbreyttir og voru á sömu lín- um í þingflokknum, í miðstjórn, í blaðstjórn og á aðalfundi mið- stjórnar. Skoðanamunurinn var um viðhorfið til annarra flokka, um samstarf við löggjöf og ríkisstjórn.. í þessari fystu undirbúningsnefnd var strax verulegur skoð- anamunur um eitt atriði. Jón Ánason lagði fram fyrir hönd minnihlutans tillögu um, að í baráttunni fyrir lækkun dýrtíðar- innar skyldi fylgjast að lækkun á grunnkaupi launþega og lækkun á verði landbúnaðarafurða. Meirihlutinn var mótfall- inn þessari tillögu. Hann vildi hafa orðalagið óákveðið og al- mennt, eins og líka varð í tillögum, sem síðan birtust í Tíman- um og Degi. Meirihlutinn taldi sig ekki vilja í byrjun setja fram kröfur, sem gætu firrt umbjóðendur launþega frá samkomulagi. Minnihlutinn benti á, að fulltrúar verkamanna væru aldrei hræddir við að setja fram í byrjun sínar fyllstu kröfur...“ (Leturbr. vor). Síðar í hirðisbréfinu segir Jónas um samningana: „í fyrstu var sýnd sú sanngirni að taka ekki skýrt fram að grunnkaupshækkun launþega frá í sumar hlyti að leiða af sér ósamræmi við íslenzk framleiðsluskilyrði og að grunnkaup og grunnlaun yrði að lækka um leið og framleiðslan félli eða yrði felld í verði....Ekki var lagt út í að skiptast á skriflegum skilríkjum fyrstu mánuðina til að koma mætti við sem mestum liðlegheitum á báða bóga. Raunin varð sú, þegar loks var tekið fast á málinu og lagðar fram ákveðnar kröfur, þá firrtust komm- únistar og hurfu hljóðalaust frá samningaborðinu". (Leturb. vor). Jónas klappar á kollinn á Eysteini Þessar víðurkenningar Jón asar eru mjög eftirtektarverð- ar. Það er auðséð að allur Framsóknarflokkurinn vildi frá upphafi gera grunnkaups- Framhald á 4. síðu. Þýzkar flugvélar gera árásir á ísland Snemma í gærmorgun gerði þýzk flugvél vélbyssu- árás á hemaðarstöð á Aust- urlandi. Flugvélin varpaði engum sprengjum og ekkert tjón hlauzt af árásinni. Nokkru fyrr í vikunni réðst þýzk spengjuflugvél á enskt flutningaskip fyrir Norður- landi og varpaði að því f jór- um sprengjum en enginn þeirra hæfði og hélt skipið leiðar sinnar til ákvörðunar- staðar síns. Búðin er hin skemmtilegasta og mjög rúmgóð. Uppi á loftinu er gólfrýmið 250 fermetrar ög 140 niðri. Búðinni uppi er skipt í 3 deildir. í öðrum endanum er vefnaðarvara, þá snyrtivörur og smávara og í hinum endanum skófatnaður, karla, kvenna og barna. í búðinni niðri eru sportvörur og karlmannavörur. gær tæpum 50 þús. kr. Vörusala búðarinnar nam i ísleifur Högnason, hinn nýi framkvæmdarstjóri félagsins er nýkominn frá Vestmannaeyjum og tekinn við starfi sínu. Den danske Minister og Fru de Fontenay vil som sædvanlig tage mod Besög paa Grundlovs- dagen den 5. Juni fra Klokken 4 til 6. Uppreisnarmenn undir stjórn Ramire’z her- foringja myi da stjórn - Nýja stjórnin and- fadstisk og lofar líðræðiskosningum Snemma í gærmorgun fóru 10 þúsund argentískir hermenn, undir stjórn Ramiretz hershöfðingja, hergöngu til höfuðborgar- innar, og náðu á vald sitt mikilvægustu stöðvum borgarinnar án þess að til verulegra bardaga kæmi. Forseti Argentínu, einæðisherrann Castillo, komst á flótta út í herskip á höfninni í Buenos Aires. Bráðabirgðastjórn, er Ramiretz hefur myndað, lýsir því yfir, að stjómarstefnan verði náin samvinna við hin Ameríkuríkin og kosningar á lýðræðisgrundvelli verði haldnar innan skamms. Þannig var skýrt frá þess- um atburðum í brezka útvai-p- inu í gærkvöld, en jafnframt tekið fram, að fregnir frá Arg- entínu væru mjög mótsagna- kenndar, og væri talið 1 sum- um fregnum að Castillo hefði náð yfirhöndinni og fangeis- að Ramiretz. Castillo hefur stjórnað eftir fasistiskum fyriríayndum og i utanríkispólitík sinni skorið sig úr með afstöðu til faststa- ríkianna. Argentína er eina Ameríkuríkið, sen: ekk;. hefur slitið stjómmáiasambandi við íýzkaland, Itaiiu og Japan Pólitískar ofsóknir Bæjargjaldkeri fsa- fjaarðar og ráðsmaður spítalans par settir frá Þau tíðindi gerðust á bæjar- stjómarfundi á ísafirði 2. júní s.l., að samþykkt var með 5 at- kvæðum Alþýðuflokksmauna gegn 4 atkv. Sósíalistaílokksins og Sjálfstæðisflokksins að láta Jón M. Pétursson, er gegnt hef- ur bæjargjaldkerastarfinu þar í 13 ár, og Gunnar Andrews, ráðs mann og gjaldkera sjúkrahúss- ins, fara frá þessum störfum. Bæjarfulltúar Sósíalistaflokks ins og Sjálfstæðisflokksins réð- ust harðlega á þessar aðfarir, kröfðust skýringa og ástæðna, en fengu þau svör frá Alþýðu- flokksmönnunum, en Hannibal Valdimarsson hafði orð fyrir þeim, að þeir gæfu engar skýr- ingar. Var auðheyrt á þjóstin- um að Hannibal fannst nóg að þeir réðu, þá væm þeir ekki á- byrgir gerða sinna fyrir neimun og mættu gera hvað, sem þeim þóknaðist án þess að færa fram ástæður. Á ÍSafirði spyrst þessí upþ- sögn mjög illa fyrir og þykir vera pólitísk ofsókn. Af einræðiskenndinni, sem lýsir sér í þessu framferði AI- þýðuflokksbroddanna þarna, virðist auðséð að ofbeldishneigð þeirra ætli að vaxa í sama hlut- falli og fylgið minnkar. Eininqarstjórn de Garl'es og Girauds fullmynd ið Fregnin um nfgera ciniugu þeirra de Gaulle og Girauds var staðfest í gær, cr þen- fluttu háðir útvarpsræðuv og tii- kynntu myndun samciginlegr- ar einingarstiórnar fyi'ir öll bau frönsku lond, sem ekki cíu. hernumin af fasistum- Catroux hershöfðingi, einn af nánustu samstarfsmönn- trri de Gaulle hefur verið skiþ- aí'ur landsstjórí í Alsír, í staö Vichymannsins Peyrouton.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.