Þjóðviljinn - 08.06.1943, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.06.1943, Blaðsíða 1
8. árgangur. VILJINN Þriðjudagur 8. júní 1943. 126. tölublað. HeylenduF í ReyUiauíU eru láíoip bonia yllF 700 PÓ8. IIPÓDUF á SíflDSlD ÁFÍI DyQIÍDSlFSjOð NlðlhDFSDDISDIUDDSF í Og svo eru yfírrádín yftr Mjólkursíðdínni fekín af þeím í þokkabóf í reikningum Mjólkursamsölunnar á verðlagssvæði Reykja- víkur og Hafnarfjarðar fyrir árið 1942 getur að líta eftirfar- andi lið: Til byggingarsjóðs 714.721.76 kr. Byggingarsjóði þessum mun ætlað að verja til byggingar nýrrar mjólkurstöðvar í Reykjavík. Þessar 700 þús. kr. eru tæpur þriðjungur af tekjum Mjólk- ursamsölunnar af vörusölu það ár (2.543.254 kr.), og mun láta nærri að framlag þetta samsvari 10 aurum á hvem mjólkur- líter, en 1942 vom seldir hér 7.455.610 lítrar af mjólk. Mjólkurstöðin hefur á undan- förnu ári greitt til framleiðenda rúmar 6 milljónir króna fyrir mjólk og rjóma (6.349.478 kr.). í byggingarsjóðinn, sem virð- ist eiga að verja til þess að byggja mjólkurstöð, er nú kom- ið 1.230.579 kr. Hér eru að gerast atburðir, sem neytendur verða að láta til sín taka með: 1. Á einu ári er lagður 10 aura skattur á hvern mjólkurlíter, til neytenda, sem gengur í bygg- ingarsjóð Mjólkursamsölunnar. 2. Með slíku — óheyrilega háu gjaldi — virðist eiga að ná, á örskömmum tíma, öllu því fjár- magni, sem þarf til þess að byggja nýja mjólkurstöð (sem vissulega er sízt vanþörf á að byggja). 3. Um leið og þetta hefur ver- ið gert, er stjórn mjólkurstöðv- arinnar og mjólkursamsölunnar breytt þannig að bændur eða réttara sagt Framsókn fær hana Á sunnudagskvöld barst for- manni K.R.R. bréf frá Knatt- spymufél. Víking, þar sem þeir tilkynna, að þeir taki ekki þátt í íslandsmótinu sem átti að byrja daginn eftir. Færa þeir sem ástæðu fyrir þessu, að svo margir af kepp- endum þeirra í meistaraflokki séu forfallaðir, að þeir hafi ekki í kapplið. Þessi ákvörðun Vík- ings hlýtur að hafa slæm áhrif á allar hliðar, bæði út á við og inn á við, því óneitanlega er það einvörðungu í sínar hendur. Neytendur eru sviptir áhrifum á hana. Neytendur eiga að fá að borga stöðina, en Framsókn að ráða henni. Þetta mál verður tafarlaust að takast til athugunar. Þjóðvilj inn hefur áður bent á nauðsyn þess að mjólkurstöðin væri eign t. d. Reykjavíkurbæjar, svo neytendur hefðu einhver áhrif á þessa stöð, sem gefur mjólkur- framleiðendum einokunarað- stöðu, ef þeir hafa hana einir. Tækifærið er nú, til þess. að knýja fram nauðsynlegar beyt- ingar á þessu máli. Þessar breytingar á að vera hægt að framkvæma í friðsam- legri samvinnu við bændur. ,Það er ekki í þeirra þágu að stofnað sé til ævarandi deilu við mjólk- urneytendur í Reykjavík. Það verður að tryggja samstarf milli þessara aðila 1 framtíðinni og Framh. á 4. síðu. einskonar uppgjöf af félagi, sem telur nokkur hundruð melimi. Fyrir félög þau er sjá um mótin er þetta mikill fjárhagslegur skaði, knattspyrnulega er það slæmt, og félagslega er það ólík- legt til að bæta samvinnu: Því sennilega munu flestir líta á þetta sem hefndarráðstöfun vegna úrskurðar K.R.R. viðvíkj andi Anton. En undir öllum kringumstæðum er þetta verst fyrir Víking, og harma ég það. Að sjálfsögðu verður þetta mál rannsakað. F. Jóoðs frá Hriflu staðfestir ummæli Brynj. Bjarnasonar í bækling Brynjólfs Bjarna sdnar, „Samningarnir um vinstri stjórn“, stendur (í kaflanum: Úrslitakostir Framsóknar): „Þarna er útkoman úr dæminu: Kauplækkun í stórum stíl. Það er aðalatriðið, alfa og ómega, upphaf og endir, allt annað er aukaatriði. Pistilinn hefur skrifað post ulinn Jónas og hann hljóðar svo: Eitt er nauðsynlegt, kaupið þarf að lækka og sjá allt ann- j að mun veitast yður.“ Ekki er pentsvertan fyrr þornuð á bæklingi Brynj- ólfs, en pistill Jónasar berst út um sveitir (og villist í Þjóðviljann) og staðfestir allt, sem Brynjólfur hefur sagt bókstaflega! Fáið ykkur bæklinginn strax í dag. Steegman flytur annan fyrirlestur sinn f Há- skölanum í kviHd John Steegman listmálari flytur annan fyrirlestur sinn um myndlist í háskólanum í kvöld kl. 8,30, og talar þá inn hina miklu ensku landlags- málara. Hann mun sýna fjölda skuggamynda til skýringar máh sínu. í fyrirlestrinum mun hann ræða um þá málara, sem hófu enskar landlagsmyndir til vegs og virðingar. Hann mun m. a. sýna skuggamyndir af verkum' þessara málara: Richard Wil- son, sem var frægur fyrir Framhald á 4. síöu. ÍSLANDSMÓTIÐ. líkiniur (ekir ekki hðfl [ Islailsmdlíii MötHMtoa imtimtffl m lausur i nndggílin elMflsllnags Ævarp Thor Thors á ráðsfefnunní í Hof Sprfngs Thor Thors, forseti hinnar íslenzku sendinefndar á matvæla- ráðstefnu hinna sameinuðu þjóða ávarpaði ráðstefnuna í Hot Springs s.l. fimmtudag, og mælti á þessa leið: „Eg lít á það sem mikinn heiður að fá tækifæri tU að styðja þær tUlögur er fram hafa verið bornar hér. Vissulega bjuggust allir við miklu af þessari ráðstefnu. Og það var ekki aðeins vegna þeirrar staðreyndar, að þessi ráð- stefna ræðir velferðarmál alls mannkynsins, heldur einnig vegna þess, að þessi ráðstefna er sú fyrsta, sem hinar sameinuðu þjóð- ir halda, þar sem rætt er um hvemig sjá megi öllum íbúum heimsins fyrir daglegu brauði að stríðinu loknu. Sú vinsemd sem hefur einkennt þessa ráðstefnu, mun einnig ríkja á þeim ráð- stefnum, er síðar verða haldnar, og við vitum allir, að þær munu verða margar. Við eigum mikið verk fyrir höndum. Allar þjóðir, stórar og smáar, munu hafa sín vanda- mál að ráða fram úr eftir stríð- ið. Engin þeirra getur ráðið fram úr þeim ein síns liðs. Við verðum að taka tillit hver til annars, er við reynum að koma á betra skipulagi í heiminum, en það mun hafa víðtæk áhrif á þjóðir okkar. Auðvitað mun það taka sinn tíma að framkvæma allar þær áætlanir sem við höf- um svo eindregið komið okkur saman um hér, en fyrst er að hugsa og svo er að framkvæma. Eg óska einskis frekar en að vinarhugur sá, sem hér hefur ríkt, megi og láta til sín taka á ráðstefnum okkar í framtíðinm: Við skulum vona, að við verðum í framtíðinni jafn samhuga og við erum hér. Ekki get ég annað en farið nokkrum orðum um hið frábæra starf fulltrúanna á þessari ráð- stefnu. Tillögur þær sém fram Framh. á 4. síðu. Sjómannadagurínn hinningarattiöfn og ræðuhöld á íþróttavellinum 64 sjótncmi hafa farízt á s, L átí Sjómannadaguiinn var hátíðlegur haldinn s. 1. sunnu- dag, bæði hér í Reykjavík og víðsvegar úti um land. Hér í Reykjavík fóru sjómenn í hópgöngu suður á íþróttavöll og fór þar fram minningarathöfn um drukkn- aða sjómenn, ræðuhöld og söngur. Hópganga sjómanna hófst við stýrimannaskólann nm kl. 1.30. Gengu þeir undir fánum sjómannasamtakanna og fjölda íslenzkra fána suð- ur á íþróttavöll og skipuðu sér í fylkingu á vellinum. Minningarathöfnin hófst með því að Guðmundur Jóns- son söng: „Þrútiö var loft“, en þvínæst flutti Sigurgeir Sigurðsson bisloip minningar- ræöu. Alger þögn ríkti í eina mínútu. Á hinum hvíta minningar- fána sjómanna voru aö þessu sinni 90 gullnar stjörnur. 64 sjómenn hafa drukknað frá því sjómannadagurinn var haldinn s. 1. ár, auk þess 24, F,camhald á 4. síðu. 752 þýzkar flugvélar eyBilagðar vikuna sem lelð á austurvígstððvunum Á austurvígstöðvunum er að- allega mn loftbardaga að ræða, og voru 27 þýzkar flugvélar skotnar niður yfir Leningrad- vígstöðvunum í gær. Síðastliðna viku voru 752 þýzkar flugvélar eyðilagðar á austurvígstöðvunum, en 212 rússneskar flugvélar fórust. Hinn mikli árangur rússneska flugflotans undanfarið er talinn meðal annars að þakka nýrri tegund orustuflugvéla, sem tek- in hefur verið í notkun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.