Þjóðviljinn - 07.07.1943, Síða 1

Þjóðviljinn - 07.07.1943, Síða 1
Rauðí herínn hefur hvergí láfið undan síga víð fyrsfu .ægílegu sóhnarafrennuna — Gífurlegt hergagna - og mannffón þýzka hersíns NúOierlir lad nlsst n Hsnú lemsnn, 1009 iblOireki n 314 llugioiir Hörð loftorusta yfir Miðjarðarhafi Bandarísk flugvirki skjóta niður 30 orustuflugvélar fasista. Sveit flugvirkja sem voru á leið frá Norður-Afríku til árása á flugvöll í Sikiley, lenti í gær í loftorustu við 100 þýzkar og ítalskar orustuflugvélar. Tókst flugvirkjunum að skjóta niður 30 orustuflugvélar á 15 mínútum, og lögðu hinar á ílótta, en flugvirkin héldu á- fram för sinni og vörpuðu sprengjum sínum á tilætlaðan stað. Aðeins þrjú af flugvirkjunum fórust í viðureigninni. Stórkostlegar orustur eru enn á ný hafnar á aust- urvígstöðvunum. Snemma morguns 5. júlí hófu Þjóðverjar ákafar árásir á svæðinu frá Bjelgorod til Orel. Voru árásirnar undirbúnar af mikilli stórskotahríð, en síðan voru sendar fram skriðdrekasveitir, þar á meðal hundruð- um saman þyngstu skriðdrekar Þjóðverja og léttari skriðdrekar þúsundum saman. Á eftir skriðdrekasveit- unum tefldu Þjóðverjar fram öflugu fótgönguliði. Tókst fasistahemum í fyrstu atrennu að reka fleyga inn í varnarsvæði rauða hersins, en vöm Rússa var geysihörð og í gærkvöld, eftir hálfs annars sólar- hrings ægilega bardaga, hafði rauða hernum alstaðar tekizt að ná aftur stöðvum sínum eða skilja fremstu skriðdrekasveitimar frá meginhernum. í Moskvafregnum segir að meginþungi sóknarinn- ar virðist liggja á tveimur stöðum, norður af Bjelgorod og suður af Orel. Þjóðverjar hefja sókn á hluta af svœði því, er rauði herinn vann í vetrarsókninni. Einmitt við Bjelgorod, þar sem talin eru suðurtakmörk sóknarsvceðisins, Frá því er einnig skýrt í þýzka útvarpinu, að rauði her- inn hafi víða á þessu svæði gert hörð gagnáhlaup. Hernaðarátökin á austurvígstöðvunum byrja enn með œgilegum skriðdrekaorustum. — in er af rússneskum skriðdreka. Mynd- þverbeygir víglínan til vesturs. Rétt hjá Súmi beygir hún til norðvesturs og liggur rétt aust- an við bæina Rilsk og Síevsk, en sveigir þá í stórum boga austur fyrir Orel, og liggur m. a. um bæina Mtsensk og Kíroff. — Sam kvæmt því sem fregnazt hefur um árásirnar, gœti virzt sem fyrsta markmið Þjóðverja vœri að ná af þessum skaga inn í yf- irráðasvœði þýzka. hersins, með tangarsókn úr suðvestri og norð- vestri, og þar með hinni öflugu virkisborg Kúrsk, er Rússar náðu í vetrarsókn sinni. Norðvestur af Orel hefur þýzk ur her hafið sókn í átt til bæjar- ins Mtsensk, en þar virðist ekki um mikinn her að ræða, og talið að hún muni gerð til að vernda vinstri fylkingararma þýzka sóknarhersins. í þýzkum tilkynningum er enn gert lítið úr sókninni, en þó er viðurkennt í fregnum í gær- kvöldi, að miklir bardagar séu háðir á svæðinu milli Bjelgorod og Orel. Síðustu fréttir: Stórorustur halda áfram á allri víg- línunni frá Bjelgorod tii Orel I í aukatilkynningu frá Moskva í gærkvöld segir að rauði herinn hafi látið lítið eitt undan síga á Bjelgorodsvæðinu. Manntjón og hergagntjón Þjóðverja var mjög mikið. Á Orel- og Kúrsksvæðunum hefur öllum árásum Þjóðverja verið hrundið. Einnig á þessum bardagasvæðum beið árásarher- inn mikið tjón. í tveggja daga bardögum hafa Þjóðverjar misst 10 þúsund her- menn, 1009 skriðdreka og 314 flugvélar. Nýir samningar um sölu síldarafurða Nokkur verðhækkun á síld- arlýsi og fiskimjöli. Verð á síldarmjöli óbreytt. f gær undirritaði samninga- nefnd utanríkisviðskipta nýja samninga um sölu á síldarlýsi, síldarmjöli og fiskimjöli. Samkvæmt þessum samning- um hækkar verð síldarlýsis upp í 145 dollara frítt um borð, en var áður 130 dollarar. Verð á sildarmjöli helzt ó- breytt, 75 dollarar smálestin, frítt um borð. Verðið á fyrstu þúsund smá- lestum vélþurrkaðs fiskimjöls hækkar upp í 75 dollara smálest in, fob., var áður 66 dollara. Það sem selt kann að verða fram ýf- ir 1000 smálestir af vélþurrkuðu fiskimjöli, verður selt fyrir sama verð og var í fyrra, eða 66 dollara smálestin. Þýzkir nazistar taka stjðm búlgarska hersins Þýzkir nazistar hafa tekið við stjórn búlgarska herforingjaráðs ins, að því er segir í fregn frá Stokkhólmi. Er herforingjaráðið nú skipað 10 þýzkum hershöfðingjum, tveimur ítölskum og einum búlg- örskum. Jafnframt heíur þýzkt herlið tekið við vörnum búlgörsku hafn arborganna við Svartahaf. Verð á sjálfþuri'kuðu fiski- mjöli hækkar í 66 dollara smá- lestin fob., og nemur salan 1000 smálestum. í nefndinni eru þeir Arent Claessen, Haraldur Guðmunds- son, Jón Árnason og Magnús Sigurðsson. Fyrir hönd Banda- ríkjanna sömdu þeir Hjálmar Björnsson og Ólafur J. Ólafsson, en Mr. Oliver fyrir hönd brezka matvælaráðuneytisins. Landeemínn Þriðja tölublað fimmta ár- gangs Landnemans er nýkomið út. Hefst blaðið á langri og snjallri grein eftir ritstjórann, Ólaf Jóhann Sigurðsson, er hann nefnir Vorið,'æskan og 17. júní, þar sem hann ræðir afstöðu og viðhorf íslenzks æskumanns til vandamála nútímans og þjóðfé- lagsskipulagsins. Guðmundur Vigfússon skrifar: Hvað er fram undan? og ræðir þar stjórnmála- viðhorfið. Þá er í blaðinu þýdd saga eftir Mikael Sósjenko: Á- róðursmaðurinn: þýdd grein eft- ir J. B. S. Haldane: Minnstu kommúnistarnir; grein um stjórnskipulag Sovétríkjanna; saga Valentinu Orlikovu; um- mæli nokkurra þekktra manna um Sovétsöfnunina, ennfremur skyndiágrip erlendra frétta o.fl. ,,Landneminn“ er nú óðum að færast í það horf að verða blað sem enginn íslenzkur æskumað- ur ætti að láta sig vanta.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.