Þjóðviljinn - 16.07.1943, Side 1

Þjóðviljinn - 16.07.1943, Side 1
I 8. árgangnr. VILJINN Föstudagur 16. júlí 1943 158. tölublað. laW herim lelup sflm niFður 19 austur af Drei n neriir eel ðiont Varnarlína Þíóðverja rofín á tveímur stöðum, Rússar haf a sótt fram alt að 45 km, og tekíð á annað hundrað þorpa Handknattleiksmótið í gærkvðldi Handknattleiksmeistaiamót íslands (kvennaflokkar) hófst í gærkvöld á íþróttavellinum, og fóru lcikar þannig: 1. Þór, Akureyri, vann Fim- leiltafélag Hafnarfjarðar með' 3:1, 2. Haukar unnu Knatt- spyrnufélag Akureyrar með 6:2 1 fullhörðum leik. 3. Ármann vann í. R. með 8:0. í kvöld heldur mótið áfram og keppa þá Þór—í. R.; F. H.—Haukar; K. A.—ísfirð- ingar. Rauði herinn hefur hafið sókn á Orelvígstöðvun- um, segir í aukatilkynningu, sem útvarpað var frá Moskva í gærkvöld- Sóknin er hafin á tveimur svæðum samtímis, en báðir sóknararmarnir stefna að Orel, annar að norðan en hinn að austan. Á báðum þessum svæðum hefur fremsta varnarlína þýzka hersins verið rofin. Herinn, sem sækir fram að norðan rauf varnarlín- una á 40 km. svæði og hefur sótt fram allt að 45 km. á þremur dögum, tekið 50 bæi og þorp, þar á meðal hér- aðshöfuðstaðinn Úljanova. Austanherinn rauf varnarlínu Þjóðverja á 30 km. svæði, hefur sótt fram 20—25 km. og tekið 60 bæi og þorp. Bardagarnir hafa verið mjög harðir. Tólf þúsund Þjóðverjar hafa fallið og tvö þúsund þýzkir hermenn verið teknir til fanga. í aukatilkynningunni segir að lokum að sóknin haldi áfram. ÞaÖ eru nú einmitt tveir dagar síðan Þjóðverjar skýröu frá mjög höröum árásum Rússa á þessum svæöum, sem nú er tilkynnt aö séu sóknar- svæðin. í gær sagöi talsmaöur þýzku herstjórnarinnar að á- rásir rauða hersins noröur og austur af Orel væru orönar i svo stórum stíl, aö hér væri um sókn að ræöa. Játaöi hann aö rauöi her- inn hefði rofiö varnarlínu ÞjóÖverja, en bætti viö að þýzki herinn heföi girt ræki- lega fyrir aö Rússar geti not- aö sér þessi skörö í varnar- línuna til framhaldandi sókn- ar. Þjóðverjar hafa misst 60 þúsund manns á Kúrsk- svæðinu Á Bjelgorodsvæöinu halda áfram harðir bardagar, og hef ur árásum Þjóðverja þar ver- ið hrundiö og rauði herinn gert mjög hörð gagnáhlaup síðastliðinn sólarhring. Þjóðverjar hafa misst 60 þúsund manna á þeim 10 dög- um sem hin misheppnaöa sóknartilraun þeirra á Kúrsk- svæöinu hefur staöiö, segir í ’fregn frá Moskva. í fregnum sínum frá þess- um vígstöövum kvarta Þjóö- verjar stööugt undan slæmu veöri. Á þaö er hinsvegar ekk- ert minnzt í hernaöartilkynn- ingum Rússa. Hluti af eldhúsinu í happdrættishúsi Hallgrímskirkju. Dagsbrún vinnur mál fyrir Félagsdómi um sumarleyfi gervismiða Félagsdómur hefur dæmt í máli sem Alþýöusambandiö fyrir hönd Dagsbrúnar höfð- aði gegn Axel Sveinssyni. Deilan var um það hvort gerfismiöur, eöa menn sem unniö heföu fyrir gerfismiða taxta í fyrra (kr, 2,90) ættu kröfu til sumarleyfis fyrir vinnu sína á sl. ári. Eins og kunnugt er haföi Dagsbrún knúö í gegn leyfis- réttindin fyrir verkamenn áö- ur en orlofslögin gengu í gildi. Atvinnurekendur vildu halda því fram aö þessi sum- arleyfis-réttindi ættu ekki aö koma til framkvæmda gagn- vart öðrum en þeim sem vinna almenna verkamannavinnu, og þarmeö ekki ná til gerfi- smiöanna samkvæmt auglýst- um kauptaxta Dagsbrúnar fyrir þá í fyrra.. Dómur féll á þá leið að Dagsbrún vann máliö aö öllu leyti. Hafa því gerfismiöir rétt á sumarleyfi fyrir ári'ð sem leið, eöa kaupgreiðslu fyrir orlofsdagana. Ættu þeir sem ekki hafa oröi'ö þessara kjarabóta aönjótandi, aö at- huga þetta. En mótspyrna fasistaherjanna er harðnandi Mótspyrna fasistaherjanna á Sikiiey fer harðnandi, en Bandamannaherjunum verður samt allvel ágengt, að því er seg- ir í brezkum fregnum. Harðir bardagar eru háðir norður af Augusta, þar sem sveit- ir úr 8. brezka hernum undir stjórn Montgomerys sækja fram í átt til Catania. Gerðu fasistar gagnárásir þar í gær og komust um eitt skeið inn í Augusta, en voru liraktir þaðan aftur. Bandaríkjaher sækir inn í landiö norðvestur, frá þTaro, og eru beztu samgönguæöar eyjarinnar í hættu, ef fasist- um tekst ekki aö stööva þá sókn. j Flugher Bandamanna held- i ur uppi árásum dag og nótt i á allar helztu stöövar ítala og Þjóðverja á Sikiley, eink- um hefur Messina og fleiri bæir báöu megin Messina-, sunds fengiö haröa útreið. Fréttaritari Associated Press Don Whitehead, sem er með Bandamannahernum á Sikil- ey, sem fulltrúi bandarískra blaða, símar frá herstöðvum „einhversstaðar á Sikiley“: Árás Bandamanna á Sikil- ey með landher, flota og flug- flota er einmitt tækifæri'ö, sem bandaríska herstjórnin vildi fá til aö sannprófa árásarafl og baráttuhæfni þeirrar hern- aöartækni að senda her á svifflugum sem dregnar eru af herílutningaflugvélum yfir Miðjarðarhafiö, þaö langt, aö þær gátu svifiö niður þang- að sem árásirnar átti aö gera. Véllausar svifflugurnar, lausar viö dráttarflugvélarnar svifu til jaröar hratt og hljóð’- laust og þannig lentu hópar hermanna aö baki strandvarn arliöi óvinanna. Árásir þeirra voru samstilltar árás- um fallhlífarhersveita, og er þetta fyrsta sinni sem banda- Framhald á 4. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.