Þjóðviljinn - 28.07.1943, Síða 1
8. árgangur.
Miðvikudagur 28. júlí 1943.
167. tölublað.
Tagir þúsunda verkamanna i ídnadarborgum Norður-Ifaliu
hóta allsherjarverkfallí $egn fasístasfjórn Badoglíos
Múrarafélag Reykja-
víkur samþykkir ina-
göngu í Alþýðusam-
bandið
Múrarajélag Re-ykjavíkur hef-
ur samþykkt með allsherjarat-
kvœðagreiðslu að sœkja um inn-
göngu í Alþýðusamband Islands.
Hefur allsherjaratkvæða-
greiðslan staðið þrjá daga og var
tillaga um inngönguna sam-
þykkt með 58 atkvæðum gegn
12, 2 seðlar auðir og 2 ógildir.
brátt fyrir hina ströngu fréttaskoðun sem fas-
istastjóm Badoglios marskálks hefur komið á, verður
jþað stöðugt greinilegra, að ítalska verklýðshreyfing-
in og hin skipulagða þjóðfylking allra andstæðinga
fasismans er sterkur þáttur í atburðunum á Ítalíu.
í gær héldu hinir fimm ítölsku stjórnmálaflokk-
ar þjóðfylkingarinnar, Sósíalistaflokkurinn, Kommún-
istaflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn, flokkur kristi-
legra lýðræðissinna og anarkistar, opinbera fjölda-
fundi í Mailand og Túrin á Norður-Ítalíu, og
samþykktu sameiginlegt ávarp til þjóðarinnar, þar
sem hvatt er til miskunnarlausrar baráttu gegn fas-
isma og hernaðareinræði. Ávarpið var m. a. birt í
J
stórblaðinu Stampa í Túrino.
Blað Mússolini, Popolo dTtalia hefur verið bann-
að og götum gefin nöfn Matteottes og annarra myrtra
andfasista.
Svo virðist sem stjórn Badoglios hafi lítið að segja í iðn-
aðarborgunum á Norður-Ítalíu. Tugir þúsunda iðnaðarverlta-
manna hafa hótað allsherjarverkfalli gegn hernaðareinræði
Badoglios og heimta frið og lýðræðisstjóm.
Á dómkirkjutorginu í Mílano
'lét mannjjöldinn í Ijós ákafa
andúð gegn Þjóðverjum og
krafðist friðar. I Túrin voru kjör
orðin: Við viljum ekki láta
varpa á okkur sprengjum vegna
Þýzkalands! Styrjöldin er okkur
töpuð! Niður með Þýzkaland!
Það er nú einnig kunnugt orð-
ið að það var stórkostleg verk-
fallsalda, er neyddi Mússolini til
að segja af sér. Allan seinnipart-
inn í vetur hafa verkföll bloss-
að upp hvað eftir annað í her-
gagnaiðnaðinum á Norður-ítal-
íu, og 12. júlí s. 1. hófst svo áköf
verkfallsalda á Norður-Ítalíu að
allt atvinnulíf landsins var í
hættu, og leiddu þessi verkföll,
sem að miklu leyti voru pólitísk,
til þess öngþveitis fasistastjórn-
Rauði herinn tekur bæ suður
af Ladogavatni
Harðir bardagar á Orelvígstöðvunum
Þjóðverjar hafa undanfarna daga skýrt frá hörðum árásum
sovétsveita á vígstöðvunum suður af Leningrad. í hernaðartil-
kynningunni frá Moskva í gærkvöld segir að rauði herinn hafi
sigrað í hörðum, staðbundnum bardögum suður af Leningrad
og tekið bæinn Mga, 20 km. suður af Ladogavatni.
Á Orelvígstöðvunum hefur
xauði herinn sótt fram 5—7 km.
og tekið allmarga bæi og
þorp.
Rússar skutu niður í gær 44
þýzkar flugvélar á austurvíg-
stöðvunum og eyðilögðu 19
skriðdreka.
arinnar, sem nú er orðið öllum
heimi kunnugt.
Skorað á ítalska verka-
menn að láta þýzka her-
inn ekki sleppa.
Frá Alsír var í gær útvarpað
áskorun til ítalskra járnbráutar-
verkamanna að hindra undan-
komu þýzka hersins frá Sikiléy
og Suður-Ítalíu.
Her þessi verður að fara eftir
tveimur strandjárnbrautum
Ítalíu, en það eru rafmagnsjárn-
brautir og rafstöðvar víða fram
með þeim. Var skorað á ítölsku
verkamennina að eyðileggja
þessar stöðvar áður en undan-
hald þýzku herjanna hæfist.
Sendiboði Badogiios
kominn til Lissabon
» /
Aðeins ein áœtlunarflugvél
hefur komið til Lissabon, Portu-
gal, frá Róm síðan Mússolini fór
frá völdum.
Með henni voru aðeins tveir
farþegar: Sendifulltrúi frá
ítölsku stjórninni og §endifull-
trúi páfa.
Italskur her
kvaddur faeím
Óstaðfestar fregnir herma að
Badoglio hafi kvatt heim frá
Frakklandi, Júgóslavíu og Grikk
landi 20 ítölsk herfylki. Talið er
Framhald á 4. síðu.
Badoglio, böðullinn frá Grikk-
landi og Abesiníu.
Hernaðarhugboð Hitlers gekk út og grét beizklega er Friðar-
hugboðið krafðist áheyrnar eftir fréttirnar frá Ítalíu.
rj
ef þeir stla að halda áfram styrjöldinni
Nýja stjórnin hefur enn engar friðar-
umleltanir tiafið
ítalska stjórnin nýja hefur enga tilraun gert í þá átt aé~
komast í samband við brezku stjómina, til friðarumleitaua,
og haldi hún stríðinu áfram undir oki Þjóðverja, munu Banda-
menn ráðast á Ítalíu miskunnarlaust úr mörgum áttum í se«M,
og hin skilyrðislausa uppgjöf er Bandamenn krefjast kmiiai
fram með hervaldi.
Þetta voru helztu atriði í ræðu, er Churchill flutti í gær í
neðri málstofu brezka þingsins um atburðina á Ítalíu og horf-
urnar í styrjöldinni. .
Hinsvegar geta Bandamemi boðið itölsku þjóðinni sæti er
hún getur verið vel sæmd af meðal hinna frjálsu Evrópuþjóða
að nokkrum tíma liðnum, sagði Churchill, ef hún gefst ^iú upp
skilyrðislaust.
Churchill hóf ræðu sína með
því að lýsa ánægju sinni yfir
því að „einn af helztu glæpa-
mönnum þessarar tortímandi
styrjaldar“ Mússolini hafi verið
sviptur völdum. Hornsteini
ítalska íasismans hafi verið
burtu kippt og megi svo fara að
öll bygging hans hrynji.
Hann minnti á hvernig ítalir
hefðu rekið rýting í bak Frakk-
lands og ráðizt á Grikkland með
i litlum orðstír. Nú stæðu herir
Bretlands og Bandaríkjanna við
lilið Ítalíu og mundu innan
skamms leysa ítali úr styrjöld-
inni og undan kúgunaroki Þjóð-
verja. '
Það veltur nú' á ákvörðun
nýju stjórnarinnar hvort hún
vill gera Ítalíu að ægilegum
styrjaldarvettvangi fyrir Þjóð-
verja, sagði Chubchill. Hann gaf
í skyn að Bandamenn kærðu sig
ekki um algera upplausn á ltalíu
Framh. á 4. síðu.