Þjóðviljinn - 29.07.1943, Qupperneq 4
þJÓÐVIUINN
Úrbopglnnt
Næturlæknir er í Læknavarðstöð
Reykjavíkur í Austurbæjarskólan-
Næturlæknir er í Reykjavíkurapó-
teki.
Útvarpið í dag:
Fimmtudagur 29. júlí
19,25 Hljómplötur: Tataralög.
20,20 Ólafsvaka Færeyinga:
a) Erindi (Samuel Davidsen).
b) Færeyskjr söngvar og
dansar.
c) Ávarp (frú Herborg Sig-
urðsson).
20,50 Minnisverð tíðindi (Axel Thor-
steinsson).
21,10 Hljómplötur:
a) Mefistovals eftir Liszt.
b) Nótt á fjöllum, eftir Mous-
sorgsky.
21,30 „Landið okkar“.
/
Engin nazistastjórn
Framh. af 1. síðu.
þeim fylgjandi, hinir japönsku
töfrar eru að missa vald sitt yf-
ir hugum Asíuþjóðanna.
Eftir því sem stjórnmálakerfi
Möndúlveldanna veikist meira,
verður ljósari hin markvissa
samvinna Bandamanna. í þess-
ari viku höfum við verið vitni
að stóru skrefi í áttina til sam-
einingar Frakklands, vegna hinn
ar hreinskilnu ræðu De Gaulles,
þar sem hann lýsti ágæti lýð-
ræðisins og gerði grein fyrir
stjórnmálastefnu sinni.
Mikið starf hefur verið unnið
til að ná einingu flokka þeirra,
sem berjast í Júgoslavíu og
Grikklandi, og stjórnir Grikkja
og Júgoslava hafa opinberlega
viðurkennt lýðræðisstefnu
þeirra.
í þessari viku hefur ennig ver-
ið gert opinbert að Bandamenn
hafa myndað bráðabirgðar-
stjórnarkerfi fyrir lönd þau, sem
þeir leysa úr ánauð. Þó er hin
hernaðarlega stjórn, sem Banda
menn hafa sett á stofn á Sikiley
ekkki nákvæmt sýnishorn að
stjórnarkerfi því, sem þeir munu
almennt nota. Stjórnarkerfið
mun verða sniðið eftir því sem
við á í hverju landi, því að kerfi
sem hæfði Sikiley muni ekki
hæfa t. d. Þýzkalandi. Vinsemd
meiri hluta ítala í garð Banda-
manna hefur haft mikil áhrif á
aðgerðir þeirra, og er það við-
urkennt að ítalir hafi yfirleitt
aldrei verið jafn ákafir 1 land-
vinningastyrjöld og Þjóðverjar.
Það mun verða notað sérstakt
kerfi fyrir sérhverja þjóð, sem
er vinveitt Möndulveldunum.
En hinsvegar er allt öðru máli
að gegna um Frakkland. Júgo-
slavíu, Noreg og'Grikkland. —
Þessi bráðabirgðarstjórnarkerfi
munu vera í gildi þangað til að
þjóðir þær, sem leystar eru úr
ánauð, hafa ákveðið sjálfar það
stjórnarfyrirkomulag, sem þær
vilja hafa. En ekki fær þó nein
þjóð réttindi til þess að hafa naz-
ista- eða fasistastjórn.
NÝJA BÍ6
LeynilögreglU'
maðurinn
Michael Shayne
I
(Michael Shayne Privat
Detective).
Spennandi lögreglumynd
Lloyd Nolan,
Marjorie Weaver.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Konan mcö
grænu atigun
(Green Eyed Woman)
Amerískur gamanleikur
ROSALIND RUSSELL
FRED MACMURRAY.
Sýnd fel. 5, 7 og 9.
Þeir vörðu freisið og lýðræðið
Framh. aj 3. síöu.
særðu og deyjandi ekið til sum-
arhátí ðar innar.
Aðrar flutningabifreiðir
fylgdu á eftir. Þær voru þétt-
skipaðar hermönnum. Þeir lágu
og krepptu hnefana og hrópuðu
kveðjuorð til okkar, þegar þeir
óku fram hjá. Skyldu þeir fá or-
lof? Þetta voru drengir úr varn-
arliði Francos, sem teknir höfðu
verið til fanga fyrir skömmu.
Villa Nueva de Pardillo stóð
uppi á lítilli hæð, umlukt gisnu,1
fölu grasi. Fimm skriðdrekar
höfðu festst á veginum uppi í
hlíðinni. Allstaðar. bæði á veg-
inum og innan um kornið. lágu
lík. Inni í bænum var ekkert
að sjá. Þetta var venjulegt,
spænskt sveitaþorp: eyðilagt,
skotið í*rúst, svo að manni hefði
þótt það undrun sæta, ef ein-
hvers staðar hefði sézt hús sem
fært hefði verið til íbúðar.
Nokkrum flutningabifreiðum
var ekið yfir brúna fyrir neðan
þorpið. Það átti að hirða líkin
upp af götunni. Sjúkraberarnir
settu þau á börur og lyftu þeim
upp í bifreiðirnar. Nokkrir
menn' stóðu uppi í líkhrúgunni
og tóku á móti. Þetta minnti á,
hevflutning heima. Hver bifreið
gat tekið 20—30 lík.
Eg stóð nokkra stund og
horfði á þá stafla líkunum upp
í vagninm Á einn þeirra hafði
stálhjálmurinn þrýstst inn í
heilann, á annað vantaði höfuð-
ið. Það var eins og sjúkraliðs-
mennirnir handléku blóðugan,
afhausaðan þorsk. Eitt líkið lá
á bakinu með þarmana út úr
kviðarholinu, og um munn, sem
var sundurtættur, lék ánægju-
bros.
Undir brúnni, í farvegi árinn-
00000000000-0-00000
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
OOOOOOOOOOOOOOOOO
Matarstell
með djúpum og grunnum
diskum, alls 59 st.
Héðinshöfði h.f.
Aðalstræti 6 B. Sími 4958.
ooooooooooooooooo
ar, sem þornað hafði upp. lágu
leifarnar af herdeild nokkurn
og hvildust í skugganum. Það
voru spænskir sveitadrengir.
Nokkrir sváfu, aðrir lágu hljóð-
ir og horfðu upp í brúarbogann.
Einn þeirra nagaði byssuskéftið
með áfergju.
Eftir nokrkar klukkustundir
áttu þeir að halda áfram.
Hvert? Ef til vill upp í líkvagn-
inn. Ef til vill til nýrrar sigur-
stöðvar: sundurskotins þorps.
Þetta tvennt var um að velja í
dag, á morgun, um mánuð, ef tii
vill svo árum skipti.
Við ætluðum aftur til Madrid
og gengum því upp á veginn.
Ný lík bættust í flutningabií-
reiðina. Mig hryllti ekki lengur
við hinum dauðu. Eg hafði sigr-
azt á slíku. Mér flaug í hug son-
netta eftir Charles Hamilton
Sorley, sem féll tvítugur að
aldri í heimsstyrjöldinni. I
þessu kvæði vísar hann með
djúpri beiskju á bug meðaumk-
un þeirra, sem eftir lifa. með
hinum dauðu:
Auk þess er svo létt að vera
dauður.
Það voru þeir þarna undir
brúnni, sem þörfnuðust um-
hyggju.
Seint um kvöldið kom ég til
blaðaðsetursins. Dyr á símaskáp
stóðu opnar fram í anddvrið.
Nokkrar af höggmyndunum,
ungar, hvítar steinstúlkur, flóðu
í gullnum bjarma. Eg heyrði
rödd eins af ensku blaðasnáp-
unum. Hann var að gefa skýrslu
til blaðsins í London yfir þá,
sem fallið höfðu úr ensku sjálf-
boðaliðssveitinni.
— Deildin taldi 148 manns í
gær, í dag stóðu aðeins 39 uppi.
David Richardsson. 21 árs, ó-
giftur, fallinn.
Lesley Thomas, 26 ára, giftur,
hættulega særður.
John Lewis, 37 ára, giftur, fall
inn.
George Pritt.....
Ung stúlka með granna hand-
leggi stóð og lyfti kjólnum frá
brjóstinu. annaðhvort til þess
að hverfa til sjávarins eða ást-
vinar síns. ^Hin hvella, nærgöng-
ula rödd, sem stöðugt hélt á-
fram, kvað við: Já, ég skal stafa
í nafnið: P fyrir Pétur, r fyrir
Ríkharð, i fyrir Indland, t fyrir
Tómas og t fyrir talsímann. Já,
Pritt, 28 ára, giftur og á þrjú
börn, fallinn.
Einar Bragi þýddi.
KE
r
5Ö5
CV3
Átján systur
(Þjóðviljinn birtir hér í íilefni af þjóðhátíð Færeyinga
hið snjalla kvæði Jóhannesar úr Kötlum um Færeyjar).
Og Atlants-sœrinn, hin hláa, volduga vagga
um víðáttur allar dúnmjúka sœngina hreiðir,
og lognaldan bylgjast, uppspretta eilífra dagga,
— í augum djúpsins speglast himinsins leiðir.
Hin ástmilda ró vors upphafs hnígur að barmi,
og andi vor leitar að hvíld frá baráttu og harmi.
Og þrá vor horfir i dagsins dulræna mistur,
og draumljúfir geislar í vitund farmannsins skína.
— Þá stíga þær hljóðar úr öldunum, átján systur, j
ungar og fagrar — og rétta fram höndina sína.
Þær rísa upp úr vöggunni, bjartar og háar, og benda:
Hér býðst oss hvíldin, — nú er ferð vor á enda.
Og átján hafmeyjar elskandi faðminn út breiða
í iðgrœnum skikkjum, — hver felling er gliti stöfuð.
Með sólskinskambi þæf signaðan hárlokk greiða,
og silkislœður Ijósar vefjast um höfuð,
og silfurbeltum um mjúkleg mitti þær spenna,
— en mild og svalandi tár um vangana renna.
Eins og stríðandi valkyrjur skara þœr skjöldum úr steini,
og skartrúnir hefir Ægir i vopn þeirra grafið.
Þar dulvísir fuglar í grópunum liggja í leyni
og líta spurulúm sjónum niður á hafið,
lífseigir fuglar, sem fjöregg systranna geyma
og fljúga með von þeirra yfir i nýja héima.
Og átján systur í ást sinni þögular bíða,
— í œskunnar trega þœr lúta að skjaldanna röndum.
Þœr búa yfir ókunnum mœtti, en megna ekki að stríða.
því myrk eru álögin: þær eru í tröllahöndum.
Um aldir þœr hafa búið við barning og helsi,
og beðið eftir honum, sem gœfi þeim frelsi.
Nei, hér fæst ei hvíld. — Hér kallar oss árvakur andi
hins eilífa stríðs gegn þvi valdi, er smælingjann kúgar.
Hér eggja oss spor þeirra, er tendruðu Ijós yfir landi,
— öll lífssaga þeirra í brimhljóði aldanna súgar.
Þeir börðust við tröllin, svo brast i liðum og kögglum,
og blóðið sést ennþá, sem draup undan þeirra nöglum.
Enn skortir eitt átak: hugsjón svo sterka og hreina,
að hjörtun brenni, — þá skeður hið mikla undur.
Þœr átján systur þrá átján svo logheita sveina,
að álögin rofni: hlekkirnir bráðni í sundur.
Nær kemur sú stund? Sjá, átján ástmeyjar bíða ....
Ungi maður! Flýttu þér — dagarnir líða!
Jóhannes úr Kötlum.
I 1
1^1
38 gS
3838£383838S3SS383SS38383838S38S^^38^3á'383838383838í8