Þjóðviljinn - 07.08.1943, Síða 1

Þjóðviljinn - 07.08.1943, Síða 1
8. árgangrur. Laugardagur 7. ágúst 1943. 173. tölublað. Varnarlína Þjóðverja rofín á 70 fem svœðí og raudí hcr- ínn hefur á þrem dögum sóft fram allt að 60 fem. Bandamannaherirnir á Sikiley sækja fram Á miðhluta Sikileyjarvíg- stöðvanna eru háðir harðir bar- dagar, og reyna fasistaherirnir þar að stöðva sókn Bandaríkja- hersins. Bandamannaherjunum verðuv vel ágengt, og sprengjuflugvél- ar Bandamanna halda uppi stöðugum árásum á Messina, einu stóru höfnina á Sikiley sem fasistaherirnir hafa. Rauði herinn hefur byrjað nýja sókn á Karkoff- vígstöðvunum og þegar orðið vel ágengt, að því er segir í miðnæturtilkynningunni frá Moskva. Hafa Rússar rofið varnarlínu Þjóðverja á 70 km. svæði, sótt fram allt að 60 km. í þriggja daga sókn, og tekið marga bæi og byggðarlög, þar á meðal hinn mik- ilvæga járnbrautarbæ Solotseff á brautinni milli Kark off og Brjansk. Hefur rauði herinn rofið þá braut á stóru svæði. Sóknarsvæðið nær frá Bjelgorodsvæðinu og suður á móts við Karkoff. Á vígstöðvunum við Orel heldur rauði herinn á- fram sókn í átt til Brjansk, og er 9. þýzki herinn og 2. vélaher Þjóðverja enn á undanhaldi. Segir í fregnum frá Moskva að rauði herinn hafi í gær sótt Samkomulag í Siglufjarðardeilunni Kyndarar fá helming krafna sinna uppfylltan Stðövunin hefur bakað ríkisverksmiðjunum 40—50 þds kr. tjön — Samkomulag hefði getað náðst án verkfalls — Aimenn gremja á Siglufirði út í verksmiðjustjðrnina Samkomulag náðist í fyrrinótt í deilu ríkisverksmiðjanna á Siglufirði og hófst vinna í verksmiðjunum kl. 3 um nóttina. Aðalatriði samkomulagsins er það að kyndararnir fá 20% hærra kaup fyrir lielgidagavinnu og eftirvinnu, en greitt er fyr- ir almenna verkamannavinnu. Hafa kyndararnir þá hlotið liðlega helming þess sem um var deilt. / Verksmiðjurnar voru stöðvaðar í 30 klst. og er talið að tjón þeirra vegna stöðvunarinnar nemi 40—50 þúsundum króna. Um aflatjón 'sjómanna og út- gerðarmanna er ekki hægt að segja. en vafalaust er það tölu- vert. Almenn gremja er ríkjandi á Siglufirði á meðal sjómanna og verkamanna í garð verksmiðju- stjórnarinnar fyrir framkomu hennar í deilu þessari, þar sem hægt hefði verið að fá samkomu lag á þeim grundvelli er nú var samið á, áður en kyndararnir lögðu niður vinnu. Sérstaka gremju hefur það vakið, að af þeim sem verk- smiðjustjórnina skipa mun Finn ur Jónsson hafa staðið fastast gegn kröfum kyndaranna. Jón Sigurðsson, framkvæmd- arstjóri Alþýðusambandsins flaug norður í fyrradag vegna deilunnar, en samkomulag hafði náðst þegar hann kom. Það mun öllum gleðiefni að deila þessi er nú leyst, en hún hefur greinilega leitt í ljós hve hættulegt það er að stjórn verk- smiðjanna skuli vera skipuð mönnum, sem hika ekki Við að skaða verksmiðjúrnar um tugi þúsunda króna, til þess eins að spara óverulegar upphæðir á kaupi verkamanna. fram 6—10 km. á þessum víg- stöðvum og tekið 70 þorp. Þjóðverjar segja að bardagar færist stöðugt í aukana á Bjel- gorodsvæðinu, og.skýra frá hörð- um árásum rauða hersins suður af Ladogavatni. Rússar tilkynntu í gœr aö þeir heföu tekið* 12 þúsund þýzka fanga á Orel-Bjelgorodvígstöðv- unum á tímabilinu 5. júlí—6. ágúst, og á sama tíma hafi 120 þúsund þýzkir hermenn fallið. Þennan mánaðartíma misstu Þjóðverjar gífurlega mikið af hergögnum, á austurvígstöðvun- um, þar á meðal 2500 flugvélar. Þjóðverjar rupla stórum hluta af matvælafram- leiðslu Dana segir m. a.: I grein um Danmörku Nya Dagligt Allehanda „Þjóðverjar hafa tekið fjórð- ung af nautgripastofni Dana, taka þriðjung smjörframleiðsl- unnar, helminginn af fleskfram- leiðslunni. Auk þess kaupa þýzku hermennirnir matvæli í Danmörku og setulið Þjóðverja lifir á danskri matvælafram- leiðslu“. Þýzk flugvél skotin niður við Norður- land - 7 Þjnðverjar íeknir til fanga Amerískir flugmenn skutu niður þýzka Focke-Wulfsprengju flugvél í íyrradag úti fyrir Norðurlandi. Sjö af áhöfn flugvélarinnar björguðust í gúmmmíbát og fór brezkt herskip á vettvang og tók þá til fanga og flutti þá til hafnar á Norðurlandi. Amerísku flugmennirnir, sem skutu þýzku flugvélina niður voru þeir liðsforingjarnir Richard M. Holly frá Glendale, Ari- zona og William E. Bethea frá Kenly, North Carolina. Amerísku flugvélarnar sakaði ekki. Amerísku hernaðaryfirvöldin, sem þessi frétt er frá, sögðu að atburðir þessir hefðu gerzt á sömu slóðum og þýzk flugvél réðst á Súðina 16. júní s. L, en í árás þeirri féllu tveir af áhöfn Súðarinnar en 5 særðust og nokkrir þeirra mjÖg mikið. Guðmundur Guðmundsson Uiiii siHMiiiinir í Aiþýðan á Italiu krefst friðar ítalskir verkamenn hafa verið handteknir hundruðum saman fyrir að neita að vinna í her- gagnaverksmiðjum í þeim borg- um, er orðið hafa fyrir mestum loftárásum. Fulltrúar helztu ítölsku stjórn- málaflokkanna afhentu Bado- glio í gœr álitsskjal, þar sem segir, að allur dráttur á því að semja frið sé hættulegur fyrir framtíð Italíu. Áhrifamestu ítölsku . blöðin gagnrýna Badogliostjórnina, þar á meðal Corriera de la Sera og Popolo di Roma. Fyrsta aukalestin frá Ítalíu, er flytur Þjóðverja úr landi. lagði af stað frá Milano í gær. Næstu daga flytja þýzkir þorg- arar frá Róm, Feneyjum og fleirí borgum. er lest siriist i hoinir Mi Viðfal víd Olaf Sverrí Ólafsson Ungn sjómennirnir tveir, sem særðust mest í árásinni á Súðina eru að miklu leyti grónir sára sinna, og á góðum batavegi. Ólafur Sverrir Ólafsson kom til Reykjavíkur snemma í þess- ari viku, en Guðmundur Guð- mundsson kemur með Esju í dag. Það er áreiðanlegt að öllum íslendingum þykir vænt um þær fréttir, að þessir ungu sjó- menn komast til heimila sinna. Þær eru svo þungar fórnirnar sem þjóðin hefur greitt í þessari styrjöld, að jafnt kunnugir sem ókunnugir gleðjast af því að þessir hraustu drengir urðu ekki líka styrjaldaræðinu að bráð. Ólafur Sverrir Ólafss. særðist alvarlega, þannig að vélbyssu- kúla fór í gegnum vinstri fótinn og er hann búinn að vera á Húsa víkurspítala á áttundu viku, en nú orðinn sæmilega hress, þo ekki vel styrkur í fætinum og þarf sennilega að ganga til lækn is alllengi enn. Ólafur er átján ára og á heima á Smyrilsveg 29. Hann réðst kvndari á Súðina um áramótin, og var á vakt þeg- ar árásin var gerð. en hafði skroppið upp til að fá sér frískt loft, og var í þann veginn að fara niður aftur er vélbyssuhríð- in dundi yfir brúna, hann varð var við að kúla hafði hitt hann við það að fóturinn kipptist upp, en til verulegs sársauka fann Ólafur Sverrir Ólafsson hann ekki fyrr en síðar. Önnur kúla smaug í gegnum buxna- skálmina en svo skipti það eng- um togum að hann stökk um „skylightið'1 niður í vélarrúmið, tvær til þrjár mannhæðir, og komst þó ótrúlegt sé frá því ó- meiddur Varð það honum til lífs Þarna niðri var enginn eftir svo Ólafur fór að hafa sig fram á ganginn og upp, en þá tók að blæða ákaflega úr sárinu á fæt- inum, og missti hann snöggvast meðvitund af áreynslunni og blóðmissinum. En hann raknaði brátt við og tókst að vega sig á handafli upp tvo stiga, en þegar upp kom var báturinn sem hann átti að fara 1, alelda. Ólafi var hjálpað upp í annan bát, handklæði reyrt um lærið til að hindra frekari blóðmissi og sæng lögð yfir hann. Um aðrar aðgerðir var ekki Framh. á 4. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.