Þjóðviljinn - 20.08.1943, Síða 1

Þjóðviljinn - 20.08.1943, Síða 1
I Iltler seadlr ter tll llalio Harðar árásir Banda- manna á Suður-Ítalíu Hitler hefur sent allmikið lið til Ítalíu, segir í brezkri fregn. Er talið að hér sé um nokkur herfylki að ræða, og benda þess ar hersendingar til þess,- að Þjóð verjar ætli að verjast einhvers- staðar á Ítalíu, hvað sem ítalir ákveða. Stórskotalið Bandamanna á Sikiley, brezkar og bandarískar flugvélar og herskip keppast um að ráðast á hafnarbæi og aðrar herstöðvar á suðurhluta Italíu. Er almennt gert ráð fyrir að árásir þessar séu undanfari inn- rásar á meginland Ítalíu. raila tonm á lirkolt- os iPlaoslBígatilioooB kelðir átrai Sovéfhearsveltír nálgasf Polfava og Súiní Þjööfrelsisnefndin viður- kennd sem frönsk stjórn? Í Quebeek standæ nú yfir við- ræðufundir Roosevelts, Church- ills og Anthony Edens, og er al- staðar talið, að á fundum þess- xun muni verða teknar mikilvæg ar ákvarðanir. I brezkri fregn segir að líklegt sé að þarna verði samþykkt að viðurkenna frönsku þjóðfrelsis- nefndina sem franska ríkis- stjórn,'með því skilyrði að hún boði til kosninga þegar er hún nói völdum á Frakklandi. Rauði herinn sótti fram á Karkoff- og Brjansk- vígstöðvunum síðastliðinn sólarhring, og var þýzki herinn neyddur til að hörfa undan eftir mjög harða bardaga. Á Karkoffvígstöðvunum sótti sovéther fram 5— 12 km. og tók 30 þorp. Fréttastofufregnir segja frá bardögum í norðurúthverfum Karkoff, og vestur og norðvestur af borginni nálgast rauði herinn Poltava og Súmi, en báðar þær borgir hafa mikla hernað- arþýðingu. Á Brjanskvígstöðvunum tók rauði herinn 20 þorp, og sprengjuflugvélar. Rússar gerðu harðar árásir á herstöðvar Þjóð- verja í Brjansk og Roslavl. Þjóðverjar eyðileggja allt það korn er þeir geta á svæðunum er þýzki herinn verður að sleppa vegna sóknar rauða hersins. í nánari fregnum er borizt hafa um bardagana við Smieff, járnbrautarbæinn suðaustur af Karkoff sem rauði herinn tók í fyrradag, segir að þýzki herinn hafi misst 1100 hermenn í bar- lohli KfsnæOl forlr GauoMa- I Hl! Katrín Pálsdóttir og Steinþór Guðmundsson báru fram eftirfarandi tillögu á fundi bæjarstjórnar í gær, og var hún samþykkt í einu hljóði: „Bæjarstjóm Reykjavíkur fel ur borgarstjóra að athuga x sam- ráði við skólanefnd og skóla- stjóra Gagnfræðaskólans í Reykjavík hvort ekki myndi til- tækilegt að fá leigt húsnæði á komandi vetri til að auka hús næði skólans, svo að hægt sé að veita þeim nemendum skólavist sem hennar æskja og uppfylla þau skilyrði, sem reglur skólans heimta.“ x Katrín hafði framsögu fyrir Sjaldskrá fyrir heim- æðar hitaveltunnar Gjaldskrá sú fyrir heimæðar hitaveitunnar sem áður hefur verið birt hér í blaðinu, var end anlega samþykkt á fundi bæjar stjórnar í gær. tillögunni. Iiún benti á að þessi eini skóli, sem ætti að standa öllum opinn, er lokið hafa fulln- aðarprófi, hefði orðið að auglýsa í vor, að hann gæti ekki tekið við fleiri nemendum, en , þá höfðu sótt, vegna húsnæðisleys- is. Hún kvað upplýst að fjöldi unglinga, sem óskað hefðu að komast í þennan skóla, mundu verða frá að hverfa, ef hann fengi ekki aukið húsrúm fyrir haustið. í þeim fjölda skrifstofu- og verksmiðjubygginga sem ver ið er að reisa hér í bæ, kynni að vera ónotað húsnæði, sem nota mætti í þessu augnamiði, og væri með öllu óafsakanlegt ef þetta væri ekki rannsakað til hins ýtrasta. Borgarstjóri mælti með tillögunni og var hún því næst samþykkt með samhljóða atkvæðum. áttunni um þennan eina bæ, og mikið af hergögnum. Alls misstu Þjóðverjar 89 skriðdreka og 95 flugvélar á austurvígstöðvunum í gær. 80 þúsund iapanar í bandarískum fangabúðum Tíu þúsund Japanar úr fanga búðum víðsvegar um Bandarík- in hafa verið settir í sérstakar fangabúðir vegna þess að þeir hafa látið í ljós eindreginn fjand skap gegn Bandaríkjunum. í stríðsbyrjun voru 100 þús- und Japanar fluttir frá héruð- unum á vesturströnd Bandaríkj anna, og komið fyrir á tíu stöð- um inni í landi. Síðar hafa 17 þúsund þeirra verið látnir laus- ir til þátttöku í styrjaldarstörf- um þjóðarinnar. P-38 Lightning-Bandaríkjaflugvélum skipað upp í Astralíu Afmælishóf Rvíkur Á afmælisdegi Reykjavíknr- borgar, 18. þ. m., hélt bæjar- stjómin veizlu að Hótel Borg fyrir herra ríkisstjóra og frw hans. Auk líkisstjórahjónanna voru boðnir til veizlunnar ráðherrar, forseti Alþingis, for- seti hæstaréttar, sendiherrar og sendifulltrúar erlendra ríkja, yfirstjórnandi herliðs- ins hér, formenn stjórnmála- flokkanna nokkrir embættis- menn ríkisins, bankastjórar Landsbankans, formenn Al- þýðusambandsins, Vinnuveit- endafélagsins og Verzlunar- ráðsins, nokkrir starfsmenn bæjarsins og bæjarfulltrúax. ' Borgarstjóri stýrði veizl- unni, og minntist fósturjarð- arinnar. Forseti bæjarstjórnar talaði fyrir minni ríkisstjórahjón- anna, en ríkisstjóri svaraöi og mælti fyrir minna Reykja- víkurborgar. Enn einn norskur ætt- jarðarvinur myrtur Þýzku nazistarnir hafa fram- ið enn eitt morð á norskum ætt- jarðarvini, segir í fregn frá Lon- don. Var Norðmaður einn tekinn af lífi og gefið að sök, að hanm hefði framið verknað er væri skaðlegur atvinnurekstri í land- inu. Er þetta fyrsti Norðmaðui'inn sem nazistar myrða síðan þeir lýstu allan Noreg í hernaðará- stand nú fyrir nokkrum dögum. Tillögur um skemmti- og íþróttasvæði Reykja- víkur samþykktar Bæjarstjórnarfundur sam- þykkti í gær tillögu bæjarráðs um að ætla skemmti- og íþrótta svæði Reykjavíkur land í Laug- ardalnum, einá og undirbúnings nefndin hefur lagt til. Jónas B. Jónsson fræðslufulítníi Á fundi bæjarstjórnar 1 gær var kosið í hið nýja fræðslumála fulltrúaembætti. Borgarstjóri ýsti því yfir áður en kosning hófst, að ríkisstjórnin þyrfti að leggja samþykki sitt á val full- trúa áðu'r en endanlega væri frá málinuigengið- Kosning féll þannig: K. R. — Akranesín$ar — 4:5 Fyrsti leikur, sem háður hef- ur verið hér á svokölluðum gras- velli, fór fram í fyrrakvöld milli Akranesinga og K.R. Leit lengi svo út sem gestirnir mundu sigra og stóðu leikar um hríð 3:1 fyrir þá, en í síðari hálfleik sóttu K.R.-ingar sig og settu 3 mörk í þeim leik, en hinir ekk- ert. Akranesingar sýndu oft tölu-. vert góðar tilraunir til samleiks, en þessi alltof mjúki völlur var þeim og raunar báðum óþægi- legur og þarf mikið úthald til að leika á svona grasi eftir að Jónas B. Jónsson fékk 8 at- kvæði, Steinþór Guðmundsson 4 og Hannes M. Þórðarson 3. æft hefur verið á hörðum mal- arvelli, en neyðin hrekur móta- nefndina með leikina þangað vegna vallarleysis. Fljótt á litið virtist leikurinn þungur og seinn, en á svona velli hlýtur þetta alltaf að koma fram. K.R.-ingar voru nokkuð ósam- stæðir, sérstaklega í fyrri hálf- leik, en í síðari hálfleik lagað- ist það nokkuð, eftir að Óli 'B. kom fram. Akranesingar eiga nokkrum sæmilegum 1. flokks leikmönnum á að skipa, en skort- ir æfingu í knattmeðferð og auga fyrir staðsetningum, sér- staklega í vörninni. Dómari var Hrólfur Bene- diktsson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.