Þjóðviljinn - 21.08.1943, Qupperneq 1
8. árgaBgnr.
Laugardagur 21. ágúst 1943.
185. tötublaJði
Rdssmstt mai M irlutlla-
ríOalelia m ailar iHOuar
„Það er hægt að vinna stríðið í ár“
Rússneska blaðið „Stríðið og verkalýðurinn“ birti í gær
harðorða ritstjórnargrein, þar sem þess er kafizt að myndaðar
verði á þessu sumri nýjar vígstöðvar á meginlandi Evrópu, svo
um muni.
Leggur blaðið til að haldin verði ráðstefna fulltrúa frá
Sovétríkjunum, Bretlandi og Bandaríkjunum, til að taka ákvarð
anir um nýjar vígstöðvar.
„Það er kominn tími til þess að ekki sé látið sitja við orðin
tóm um nýjar Evrópuvígstöðvar“, segir blaðið.
RanDi Mn fehur hornina Lebedin
iso hm. norðuesfur af Harhoff
Járnbrauffo frá Karkoff fíl Krfm undir sfórskofahríð
Rússa — Þfóðvcrfar segja frá árásum sovéfhers
á fínnsku vígsföðvunum
Rauði herinn þrengir stöðugl að þýzka hernum í
Karkoff og er í harðri sókn norðvestur og suður af
borginni.
Mest hefur sovéthernum orðið ágengt norður af
Karkoff, og tók í gær borgina Lebedín, sem er 150
km. norðvestur af Karkoff og 100 km. norður af
Poltava. Lebedín er mikilvæg járnbrautarmiðstöð, og
er vestasti staðurinn sem Rússar náðu í vetrarsókn-
inni. Talin eru líkindi til að Rússum takist að um-
kringja Poltava að norðan.
Járnbrautin frá Karkoff suður til Krím, um Pavlo-
grad, liggur undir stórskotahríð rauða hersins.
„Það er hægt, eða réttara sagt,
það væri hægt að vinna striðið á
þessu ári ef myndaðar væru nýj
ar vígstöðvar sem ættu það nafn
skilið.“
Ummæli þessa rússneska blaðs
benda í þá átt að Rússar telji
vafasamt að Bandamenn leggi
til stórárása að vestan í sumar,
og eru sérstaklega athyglisverð
vegna þess að þau eru birt með
an Quebeckráðstefna Roose-
velts og Churchills stendur yfir,
en eins og kunnugt er var sov-
étstjórninni ekki boðið að senda
fulltrúa á þá ráðstefnu.
í næstu blöðum Þjóðviljans
birtizt grein úr þessu sama rúss-
neska blaði, og nefnist hún
„Stríðsmarkmið og eftirstríðs-
vandamál“.
Bretar I makki við
fasistaleiðtoga
í fregn frá London segir að
Samuel Hoare, brezki sendiherr
ann í Madrid, muni fara á fund
Francos í sumarheimili spanska
fasistaforingjans í Coruna.
Telja stjórnmálamenn í Lon-
don að þessi fundur þeirra
Francos og Samuel Hoare mum
verða mjög afdrifaríkur.
Fasistastjórn Francos hefur
síðastliðin ár notið mikils stuðn
ings Bretlands og Bandaríkj-
anna, og er sá stuðningur mjög
illa þokkaður af spönskum lýð-
ræðissinnum.
Brezki sendiherrann í Madrid,
Samuel Hoare, er mjög aftur-
haldssamur og alræmdur frá
tímum Abessiníustyrjaldarinn-
ar er hann ásamt Laval stóð að
Hoare-Lavaltillögunum, um eft-
irlátssemi við Mussolini.
Innlög í bankana í júlímánuði
jukust um 15,6 millj. kr.
Námu þau þá 432,5 millj. kr.
en á sama tíma í fyrra námu
þau 265,4 millj. kr.
Seðlar í umferð jukust um
tæpl. 5 millj. og námu 123,7
Tveir amerískir hermenn
dæmdir fyrir árás
Eftirfarandi frétt hefur Þjóð-
viljanum borizt frá utanríkis-
ráðuneytinu:
Sendiráð Bandaríkjanna hef-
ur skýrt ráðuneytinu frá tveim
ur dómum, er uppkveðnir hafa
verið fyrir herrétti yfir tveimur
amerískum hermönnum. er,
hvor í sínu lagi réðust á íslenzk
ar konur á Reykjavíkurgötum,
þann 31. júlí s.l. Voru báðir her
mennirnir dæmdir sekir um líkr
amlegt ofbeldi og hlutu eins árs
fangelsisrefsingu, auk brott-
rekstrar úr hernum og missi
amerísks borgararéttar og kosn-
ingarréttar.
1. sept. frá Reykholti, Borgarf.
2. — — Menntaskólaselinu.
3. — — Löngumýri, Skagaf.
5. — — Staðarfelli. Dölum.
7. — — Stykkishólmi.
7. — — Sælingsdalslaug.
8. — — Brautarholti, Skeið.
8. — — Silungapolli.
Bílarnir, sem flytja börnin og
farangur þeirra, nema staðar við
Iðnskólann. Nauðsynlegt er að
aðstandendur barnanna taki þar
millj. kr., en á sama tíma í fyrra
68,4 millj. kr.
Innstæður bankanna erlendis
jukust í júnímánuði um 18,6
millj. kr. og nárnu þá 363,7 millj.
kr., en á sama tíma í fyrra námu
þær 211,6 millj. kr.
Takist Rússum að rjúfa
þessa járnbraut og sækja suður
með henni, er talið líklegt að
allur þýzki herinn fyrir austan
hana verði að hörfa eða hætta
á innikróun.
á móti börnum sínum og far-
angri þeirra, sem mun koma
samtímis þeim. Nefndin hefur
ekkert húsnæði, til þess að
geyma þann farangur, sem skil-
inn verður þar eftir, og tekur
því enga ábyrgð á honum.
Skrifstofan mun reyna að
gefa upplýsingar um komutíma
bílanna í bæinn, eftir því sem
hægt verður að hafa samband
við þá, komudaginn. Sími skrif-
stpfunnar er 2344.
Nefndin óskar þess að þeir að-
standendur, sem enn hafa ekki
sótt stofna af skömmtunarseðl-
um barna sinna, vitji þeirra sem
fyrst á skrifstofuna í Iðnskólan-
um. Þar sem dvalartími barn-
anna er nú fullákveðinn, er þess
vinsamlega óskað að aðstandend
ur hafi lokið greiðslu á umsömd
um dvalarkostnaði barna sinna,
þegar þau koma heim.
Á nokkrum hlutum Karkoff-
■ vígstöðvanna sótti sovétherinn
| fram 5—10 km. í gær, og tók 20
bæi og þorp.
Á Brjanskvígstöðvunum og
suðvestur af Spasdemensk bætti
rauði herinn stöðu sína.
Loftbardagar fara harðnandi
víða á austurvígstöðvunum, og
misstu Þjóðverjar á fimmtudag
118 flugvélar. Þann dag evði-
lögðu Rússar 124 skriðdreka.
Þjóðverjar segja að Rússar
hafi gert ákafar árásir á finnsku
vígstöðvunum í gær, en langt
er síðan sagt hefur verið frá
hernaðaraðgerðum á þeim hluta
austurvígstöðvanna.
í hernaðartilkynningu Þjóð-
Borgarstjórinn í Odense lét út
varpa áskorun til íbúanna um
að koma friðsamlega fram, til að
afstýra vandræðum.
Víða í Danmörku hafa skemmd
arverk verið unnin á járnbraut-
um sem notaðar eru til þýzkra
hermannaflutninga.
Bandaríkjamenn taka Líp-
arisku eyjarnar
Bandarísk jlotadeild tók í goer
Liparisku eyjamar norður af
Sikiley á vald sitt, án þess að
mótspyrna væri veitt.
Eyjar þessar hafa verið not-
ac^ar af fasistastjórninni sem
fangabúðir fyrir pólitíska and-
stæðinga. í fangabúðunum voru
einnig 4000 júgóslavneskir ætt-
jarðarvinir, er Bandamenn
komu þangað.
Frökkum hótað líflátshegn
ingu fyrir að fela vopn
Þýzku nazistayfirvöldin í
Frakklandi og leppstjórnín í
Vichy létu í gœr útvarpa sam-
eiginlegri tilkynningu, þar sem
skorað er á Frakka. að afhenda
öll vopn fyrir 24. ágúst. Er
mönnum heitið að þeim verði
ekki hegnt fyrir vopnaeign, ef
þeir afhendi vopnin nœstu daga.
Eftir 24. ágúst varði það líf-
látshegningu að hafa vopn undir
höndum.
verja er einnig skýrt frá .hörð-
um árásum rauða hersins suður
af Leníngrad og á’ Miusvígstöðv
unum, en í tilkynningum Rússa
er ekki minnzt á þessar stöðvar
síðustu dagana.
Þjóðverjar hafa borið fram
nýjar kröfur til dönsku stjórn-
arinnar um baráttuna gegn
skemmdarverkunum. Hafa þing
piennirnir verið. kvaddir til
Kaupmannahafnar til að taka á-
kvarðanir um mikilvæg mál.
Innlðg bankanna jukust um 15,6 millj. kr. í júnf
Bdrnin i lelmlliii sunaMar-
aifnlar kima Uei i.-i. sipl.
Sumardvalarnefnd hefur ákveðið heimflutningsdaga fyrir
þau börn, er hafa verið á vegum nefndarinnar í sumar, á barna-
heimilunum. Börnin koma, að öllu forfallalausu, í bæinn eins
og hér segir:
Fimmtán þýskir hermenn og marg-
ir Danir falla í óeirðum í Odense
Ólgan í Danmörku sívaxandi
Síðastliðinn miðvikudag urðu blóðugir bardagar í Odense
á Fjóni, milli vopnaðra danskra borgara og þýzkra hermamia.
Samtímis brauzt út víðtækt verkfall í borginni, og virð-
ast yfirvöldin ekki hafa treyst sér til að koma á reglu, því
öflugt lögreglulið var sent frá Kaupmannahöfn. í sænskri fregu
segir að 15 Þjóðverjar og margir Danir hafi fallið.