Þjóðviljinn - 26.08.1943, Blaðsíða 4
þJÓÐVILJINN
Op bcpglnnl
Næturlæknir er í Lseknavarðstöð
Reykjavíkur, Austurbæjarskólanum
sími 5030.
Næturvörður er þessa vikui
Reykjavíkurapóteki, Sími 1760.
Útvarpið í dag:
Fimmtudagur 26. ágúst.
19.25 Hljómplötur: Tataralög.
20.50 Útvarp8hljómsveitin (þórarinn Guð-
mundsson stjórnar) :
a) Ballett phantastique eftir Ralf.
b) Espana, vals eftir Waldteufel.
20.50 Minnisverð tfðindi (Axel Thor-
steinsson).
21.10 Hljómplötur:
a) Frá Italíu eftir Charpentier.
b) Galdrasveinninn eftir Dukas.
21.30 „Landið okkar“.
Trúlofun. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína, ungfrú Þóra Helga
Magnúsdóttir, Kárastíg 3 og Frið-
björn Ingvar Björnsson, Ásvalla-
götu 5.
Ferðafélag íslands fer 2 skemmti-
íerðir um nasstu helgi. Aðra ferðina
inn í Kerlingarfjöll. Lagt af stað á
laugardaginn kl. 2 og ekið austur yf-
ir Bláfellsháls upp í Kerlingarfjöll
og gist í sæluhúsinu. Á sunnudaginri
gengið á fjöllin og skoðað hverasvæð
ið. Komið heim á sunnudagskvöld.
Hin ferðin er gönguför um Heið-
mörk. Lagt 'af stað frá Lækjaftorgi
kl. 10 á sunnudagkmorgun og ekið
að Silungapolli, en gengið þaðan um
mörkina og til Hafnarfjarðar. Frá
Hafnarfirði ekið með áaetlunarbílum
til Reykjavíkur. Farmiðar að Kerl-
ingarfjallaförinni séu/ teknir fyrir
kl. 6 á föstudag, en farmiðar að
gönguförinni á Heiðmörk seldir á
laugardaginn kl. 10 til 12 f. h. á
skrifstofu Kr. Ó. Skagfjörðs, Tún-
götu 5. ,
Lúðrasveitin Svanur leikur á Aust
urvelli kl. 9 í kvöld ef veður leyfir.
Stjórnandi: Árni Björnsson.
Lýðræðisbyltfngin
áítalíu
Framh. af 3. síöu.
1942—3 og er nú á flótta undan
rauða hernum í annað sinn á
einu missiri.
Og nú skríður Munchenklíkan
fram úr skúmaskotum sínum,
til þess að skara nú eld að sinni
köku, hindra þjóðir Evrópu í að
uppskera það frelsi, sem þær
þrá, — hljóta ávöxtinn, sem þær
svo sannarlega hafa til unnið
með ótrúlegum þjáningum sín-
um og glæsilegum hetjuskap.
Það verður nú sem fyrr alveg
sérstaklega verklýðshreyfing
Bretlánds og örinur frelsisöfl
þar í landi, sem allt veltur á.
Það er von alls hins þjáða mann
kyns að í þetta sinn takist
brezku alþýðunni það, sem mis-
tókst 1936—39. Brezka alþýðan
sem þolað hefur ógnarárásir
nazistanna, afleiðingar Munch-
enstefnunnar, fer varla að láta
/
hina dulklæddu bandamenn fas-
ismans ráða friðnum; sem fórn-
frekt frelsisstríð fólksins skap-
ar.
NÝJA Blé
Knattleikakappinn
(Rise and Shine).
LINDA DARNELL,
JACK OAKIE,
Sýnd kl. 7 og 9.
Sýnd kl. 5.
Gimsteinaþjófarnir
(Blue White and Perfect)
Leynilögreglumynd með
LLOYD NOLAN
Börn yngri en 12 ára fá ekki
aðgang.
f hiaría oy hug
(Always In My Heart)
Amerískur sjónleikur
með söng og hljóðfæraslætti.
KAY FRANCIS,
WALTER HUSTON
ogr söngmærin
GLORIA WARREN,
BORRAH MINEVITCH
og mnnnhörpusveit hans,
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
ÁSKRIFTARSÍMI
Þjóðviljans er 2184.
Kosningarnar í Færeyjum
Framhald af 1. síðu.
Við þær kosningar fékk Thor-
stein Petersen, frambjóðandi
Fólkaflokksins 3452 atkvæði og
var kosinn.
Frambjóðandi, Sambandsfl.
Johan Poulsen, fékk 2358 at-
kvæði.
Frambjóðandi Jafnaðarflokks
ins fékk 1385.
Sjálfstjórnarflokkurinn bauð
hins vegar ekki fram við þessar
kosningar.
Eftir þenna kosningasigur
Fólkaflokksins kallaði danski
amtmaðurinn formenn færeysku
stjórnmálaflokkanna á sinn
fund og var þá ákveðið að láta
fara fram nýjar kosningar til
færeyska Lögþingsins 24. ágúst.
— Hvað er að segja um stefnu
mál hinna einstöku flokka?
Sambandsflokkurinn er sá
flokkurinn. sem alltaf hefur vilj-
að sambandið við Dani óbreytt
eins og það er nú, en að þessu
sinni hefur hann tekið það í
kosningastefnuskrá sína að
semja við Dani að stríði loknu.
Jafnaðarflokkurinn (social-
démokratar) vill áframhaldandi
samband við Dani og eins og
Sambandsflokkurinn, að teknir
séu upp samningar að stríðinu
loknu.
i
Sjálfstjórnarflokkurinn, ervar
upphaflega flokkur Patursonar,
ftölsku heitiskipi sökkt
Sprengjuflugvélar Banda-
manna sökktu í gær ítölsku
beitiskipi, er var að reyna að
foröa sér frá höfn í Suður-
ítalíu norður á bóginn.
■Er það fyrsta stóra ítalska.
herskipið' sem vitað er til að
látiö hafi úr höfn síðan inn-
rásin á Sikiley hófst.
í fregn frá Sviss segir að
Þjóð'verjar flytji stöð'ugt liö til
Ítalíu, og hafi þar víða mik-
inn við búnað.
hinnar kunnu sjálfstæðishetju
Færeyinga, vill áframhaldandi
samband við Dani og samninga
að stríðinu loknu, svo stefnu-
skrá þessara þriggja flokka er í
öllum aðalatriðum hin sama.
Gamli Sjálfstjórnarflokkurinn
— Patursonarflokkurinn —
klofnaði fyrir kosningarnar
1940. Nokkur hluti hans brást
sjálfstæðismálinu og hélt hann
nafni flokksins áfram.
Hinn hlutinn, sem Paturson
var forustumaður fyrir, stofnaði
nýjan flokk sem var nefndur
Fólkaflokkur.
Vinnuflokkurinn, sem var rót
tækur flokkur, átti þá 2 menn á
þingi og gekk hann sem heild
inn í Fólkaflokkinn fyrir kosn-
ingarnar 1940.
Fólkaflokkurinn er nokkurs
konar þjóðfylking allra Færey-
inga, sem vilja frelsi og sjálf-
stæði Færeyja.
Þar sameinast bæði verka-
menn, fiskimenn, bændur og auð
ugir útgerðarmenn um sjálf-
stæðismál Færeyinga.
— Hverjir eru helztu fram-
bjóðendur Fólkaflokksins?
— Frambjóðendur Fólka-
flokksins í Suðurstreymoy eru
Joannes Paturson, hinn al-
kunni forustumaður í sjálfstæð-
isbaráttu okkar Færeyinga,
Thorstein Petersen bankastjóri
og Ricard Long kennari og rit-
stjóri tímaritsins „Varðin“. I
Eysturoy: Poul Petersen lögfr.
og Rasmus Rasmussen fiskimað
ur. í Norðuroyum: J. F. Kjölbro
stórkaupmaður og útgerðarmað-
ur. í Vágoy: Sámal Ellefssen
trésmíðameistari. í Sandoy:
A. Sörensen bóndi. í Norður-
streymoy: Hah% Guttesen skó-
smiður. í Suðuroy: Pauli Dahl,
yfirlæknir landspítalans í Þórs-
höfn. — Hann er tengdasonur
Patursonar.
— Hvaða blað gefur Fólka-
flokkurinn út?
— Aðalblað hans er „Dagblað
ið“ í Þórshöfn, en auk þess gef-
ur hann út 2 önnur blöð.
AUGLÝSIÐ í ÞJÓÐVILJANUM
Richard Wright:
ELDUR OG SKÝ
Hann drógst á fætur og sá rönd af stirndum himni. Er hann
steig út úr bílnum fékk hann ákafan verk í höfuðið. Hann
hafði legið svo lengi samanhnipraður að fæturnir voru
orðnir dofnir, hann hreyfði þá fram og aftur til þess að fá
blóðið til að renna á ný. Báðir handleggir hans voru keyrð-
ir aftur á bak, einhver setti hnéð í mjóhrygginn á honum.
Hann stóð á öndinni og féll síðan aftur á bak.
„Hvert þykistu ætla?“
Hann brölti á hnén viðþolslaus aí kvölum.
Hann snéri höfðinu til að sjá þann, er talaði. Hann kom
auga á fjögur þrútin andlit, sem síðan hurfu. Hann féll
enn aftur á bak, höfuð hans skall á jörðinni. Hann verkjaði
í gagnaugun.
„Stattu upp, negri! Horfðu fram fyrir þig og gakktu,
helvízkur!“
„Jæja, negri! Áfram! Beint áfram!“
Hann drógst á fætur, staulaðist áfram, horfði niður fyr-
ir sig. Kannske þeir ætli að skjóta mig? Hann hlustaði á
mjúkt skóhljóðið í döggvotu grasinu.
„Jæja negri!“
Hann staðnæmdist. Leit hægt upp og sá háan hvítan
mann með fléttaða leðursvipu í héhdinni, sem hann sló
mjúklega við fætur sér..
„Veiztu hvað þetta er, negri?“
Hann anzaði ek?ki.
„Viltu ekki tala, ha? Þetta er til þess að kenna negrum!“
Það glampaði á svipuna í fölri stjörnubirtunni. Varir
hans dofnuðu. Hann fann bragð af blóði.
„Veiztu hvað þetta er? Eg er að spyrja þig aftur, negri?“
„Nosir“, hvíslaði hann.
„Þetta er negrasvipa!“
Svipuólin skall á herðum hans.
„Eg hef ekkert gert af mér, herra!“ *
„Sei sei nei! Þú hefur ekkert gert Þú hefur aldrei gert
nokkurn skapaðan hlut„ ekki satt?“ Hvítir menn stóðu nú
allt í kringum hann. „Allt sem þú gerir er að makka við
þá rauðu, ekki satt? Allt sem þú hefur gert er að smala
saman negrum til að ógna hvítu fólki, ekki satt? Þegar við
skiljum við þig 1 nótt hefurðu vonandi lært að haga þér
eins og negra ber að gera! Svona! Farðu úr andskotans
vestinu!“
Hann hreyfði sig ekki. Svipuólin vafðist um háls hon-
um og skildi eftir hring af brennandi kvöl.
„Viltu að ég berji af þér vestið?“
Hann fór úr vestinu og hélt á því.
„Áfram! Farðu úr skyrtunni og nærskyrtunni!“
Hann afklæddi sig og beið skjálfandi. Næturkuldinn
kældi hann. Aldrei fyrr hafði hann verið eins meðvitandi
,um bak sitt og nú, sérhver depill af svörtu skinni á baki
hans var vaknaður. Einn hinna hvítu manna gekk spöl-
korn frá þeim og staðnæmdist þar.
„Færið hann hingað!“
„O. K.!“
Þeir hrintu honum á undan sér.
„Krjúptu á kné, negri!“
Hann hreyfði sig ekki. Enn á ný voru hendur hans gripn-
ar, hné sett í bakið á honum. Hann náði ekki andanum og
féll í svalt, vott grasið. Hann þreifaði með fingrunum um
bólgnar varirnar, þá var gripið um hendur hans og reynt
‘ að teygja þær utan um trjástofn. Hann gaf ekki eftir en
streittist á móti reipinu, sem þeir voru með.
„Slepptu!“
Hann varð magnlaus. Hann hallaði höfðinu að köldum
trjábolnum. Reipið skarst inn í úlnliði hans. Þeir bundu
fætur hans fast saman um öklana. Hann leit upp og sá
þá umhverfis sig.
„Jæja negri, hvað veiztu?“
„Ekkert, herra1'.
„Þú ert prestur, ekki satt?“
„Yessir“.
„Gott, láttu okkur heyra hvernig þú biðst fyrir!“
Hann mælti ekki orð, Svipuólin skall á beru baki lians,
hvikk! Hann kipptist við og togaði í böndin, sem skárust
-v
Xfr-