Þjóðviljinn - 02.09.1943, Qupperneq 1
* Chrisfmas Möller falar:
flonf ælti að ganoasf fvFir samsfarfi
NofVuMs aD sfvriDlðifloi lohlofll
„Ég vonast eftir og trúi á svo nána samvinnu við Sovétríkin
sem unnt er.“ „ Samstarf við Stóra - Bretland er sjáifsagt."
Christmas Möller, forustumaður Frjálsra Dana, flutti í fyrra
dag ræðu í norska útvapið í London, sem útvapað var til Noregs
og sagði þar m. a. eftirfarandi:
„Eg- hef alltaf verið einlægur fylgismaður norrænnar sam-
vinnu og ég vona að teknar verði upp nýjar umræður rnn það
samstarf að stríðinu loknu.
Eg er þeirrar skoðunar að Noregur ætti að gangast fyrir
því samstarfi að stríðinu loknu. Noregur hefur áunnið sér siíka
virðingu og unnið svo mikið og gott starf í þágu okkar allra,
að ég tel slíka leið sjálfsagða.
Eg er einnig á þeirri skoðun að Norðurlönd geti ekki í fram-
tíðinni staðið einangruð og ég treysti ekki lengur neinni hlut-
leysisstefnu. Vér vonum, að þegar þessu stríði lýkur verði mynd-
uð alþjóðasamtök til að koma í veg fyrir árásarstríð og hindra
yfirgang einstakra þjóða.
Eg vonast eftir og trúi á svo nána samvinnu við Sovétríkin
sem unnt er og er þess fullviss að okkur ber að vinna að því
á allan hátt að slík samvinna verði tekin upp. Vér erum neydd-
ir til að viðurkenna að slíka samvinnu hefur skort á liðnum
árum.
Samstarf við Stóra-Bretland er sjálfsagt, því vér erum
knýttir því svo sterkum böndum. Eg vil ljúká máli mínu eins
og ég byrjaði: Vér verðum að gera allt sem í voru valdi stend-
nr til þess að sigra í þessu stríði.
Það ágæta fordæmi sem norska þjóðin hefur gefið er eins
og Ijós í myrkri. Eg þekki til málanna bæði heima og hér og
veit að framlag norsku þjóðarinnar verður aldrei ofmetið."
Fyrr í ræöu sinni sagöi I undirokun hefur eölilega stöö
Christmas Möller: „Þriggja ugt aukiö andúö dönsku
ára þjáningar, þriggja ára | þjóöarinnar á Þjóöverjum. Eg
Alþingi íslendinga vottar
dðnski þjððinni sanníð
Alþingi kom saman í gær til fuúda, svo sem ákveðið var í
lögxun, er þingi var frestað.
Forsætisráðherra las upp boðskap ríkisstjóra um að Alþingi
væri kvatt saman til funda.
Gísli Sveinsson, forseti sameinaðs þings, ávarpaði síðan al-
þingismenn með eftirfarandi orðum:
„Háttvirtu alþingismenn:
Yður eru öllum kunnir þeir
alvarlegu atburðir, sem undan-
farna daga hafa gerzt með
bræðraþjóð vorri Dönum, og það
ógnarástánd, er nú ríkir í Dan-
mörku. Eg hef í tilefni af þessu
í dag farið á fund sendiherra
Dana hér og vottað honum í
nafni Alþingis hina innilegustu
samúð vora og borið fram þær
óskir vorar, að Danmörku og
hinni dönsku þjóð mætti auðn-
ast að sigrast á Öllum aðsteðj-
andi erfiðleikum og þrengingum
og öðlast sem allra fyrst aftur
hið verðskuldaða frelsi og hinn
þráða frið.
Eg vil biðja háttvirta alþing-
ismenn að taka undir þetta með
því að rísa úr sætum sínum.“
Risu þingmenn þá úr sætum
sínum til þess að votta Dönum
samúð sína í baráttu þeirri, er
þeir nú heyja.
Síðan var fundi slitið og verð-
ur næsti fundur á morgun.
verö í þessu sambandi enn
einu sinni aö minnast á Nor-
eg. Landar mínir, Danir, hafa
alls ekki getað horft með
köldu blóöi á grimmdaræöi
ÞjóÖverja í Noregi. Jafnvel þó
Framhald á 4. síðu
Sænskir fiskimenn krefjasf
verndar sænska fiofans
Fiskveiðum hefur verið
hætt
Margiy fjöldafundir hafa ver-
ið haldnir í strandhéruðum Sví-
þjóðar og samþykktar kröfur
um að sænski flotinn verndaði
fiskiskipin.
Sænsltir fiskimenn hafa nú
hætt veiðum.
Þegar fréttin barst um að Þjóð
verjar hefðu sökkt sænsku fiski-
skipunum, voru fánar dregnir í
hálfa stöng á öllum sænskum
fiskiskipum.
Atburðir þessir hafa vakið
milka gremju í Svíþjóð og hefur
sambúð Svía og Þjóðverja aldrei
verið eins viðsjárverð.
Norðmennirnir 11 sem Þjóð
verjar myrtu voru fiski-
menn og verkamenn frá
Varangerskaga
Nánari fréttir hafa nú bor-
izt um Norðmennina 11 sem
Þjóðverjar myrtu þann 18. ág-
úst. Voru þeir allir fiskimenn
og verkamenn.
Hinn yngsti var 22 ára og
hinn elzti 40. Þeir voru allir
snauðir menn og láta eftir sig
mörg börn. Konan, sem var
dæmd í 15 ára fangelsi fyrir
, aö hýsa „erindreka fjand-
mannanna“, var 37 ára göm-
ul. Önnur kona var dæmd í
8 ára fangelsi fyrir aö „hafa
ekki sagt til um dvalarstaö
manna, sem voru í þjónustu
fjandmannanna". Var hún 21
árs. Eiginmenn þeirra beggja
voríi meöal þeirra, sem voru
teknir af lífi.
Nokkrir hinna myrtu til-
heyrðu sömu fjölskyldunni.
Þeir áttu allir heima á Var-
angerskaganum, sem er milli
Tana-fjord og Vardö.
Söki Riissa ð ligslonii Ipð
Smolensð til soaMis
Rauðí herínn upprsefír ínníkróaða
hersveifír Pjöðverja víð Taganrog
Rauði herinn hefur nú upprætt hersveitir þær, sem inni-
króaðar voru, eftir að Taganrog var tekin. 35 þús. Þjóðverja
féllu og 5 þús. voru teknir til fanga. Hefur allur her Þjóé-
verja í Donhéraðinu verið knúinn til undanhalds sakir sóknar
rauða hersins.
Herstjórn rauða hersins tilkynnti í gærkvöld sókn til borgar-
innar Kasmilits, eins af ígulvirkjum Þjóðverja, 60 kílómetra
suðvestur af Voroshiloffgrad.
Sóknin við Brjansk heldur áfram. 60 bæir hafa verið leyst-
ir undan oki Þjóðverja.
Orustan við Smolensk er nú
hafin af fullum krafti. í gær tók
rauði herinn enn einu sinni borg
ina Damgolmsh, sem mikið hef-
ur verið barizt um síðustu daga,
og hefur alls frelsað á þessu
svæði um 200 bæi.
Nálgast rauði herinn Smol-
ensk eftir þrem leiðum: að suð-
austan frá Jelnja, að norðaustan
til Jartsevo og svo á svæðinu,
sem liggur þarna á milli járn-
brautanna til Smolensk.
ilai MIM iMni-
Ip fplmko MóðiFelsisnefndiiia
Eftirfarandi frétt liefur Þjóðviljanum borizt frá utan-
ríkisráðuneytinu um að íslenzka ríkisstjórnin hafi i gær
viðurkennt þjóðfrelsisnefndina frönsku.
í júlí s. 1. var stofnsett til aö annast gæzlu og vernd
frönsk þjóöfrelsisnefnd undir
stjórn de Gaulle og Giraud.
Hefur nefndin tilkynnt það
sem aöalmarkmi'ö sitt að
tryggja stjórn á öllum hern-
aðarframkvæmdum Frakk-
lands svo og að annast gæzlu
og vernd allra franskra hags-
muna. Þjóöfrelsisnefndin hef-
ur snúið sér til flestra full-
valda ríkja, þar á meöal til
íslands, og farið fram á aö
þau viöurkenndu hana. Hafa
þegar nokkur ríki oröiö við
þessari beiöni.
Ríkisstjórn íslands hefur í
dag viöui'kennt þjóöfrelsis-
nefndina sem löglegan aöila
Ægííeg loftáff-
ás á Befflín
Brezki fluglierinn gerði í fyrri
nótt ægilega loftárás á Berlín.
stóð hún í 45 mínútur og olli
mjög mikilli eyðileggingu í þess
ari miðstöð hergagnaframleiðslu
nazista.
Mikið af þýzkum næturflug-
vélum lagði til bardaga, en tókst
ekki að dreif» árásapflughern-
um.
allra franskra hagsmxma.
Uanríkisráðuney tið,
Reykjavík, 1. sept 1943.
Ógnaröldin í Danmörku
Fjölmargir danskir verk
lýðsleiðtogar og mennta-
menn handteknir
Ógnaröld nazista í Dan-
mörku heldur áfram. Danski
herinn hefur verið afvopnað-
ur og leystur upp. Nazistgr
handtaka nú fjölda danskra
verklýðsleiðtoga og mennta-
menn. Meðal þeirra er rithöf-
undurinn Kai Munk og verk-
lýðsleiðtogarnir Ejler Larsen,
Sigvard Halberg, o. fl. Enn-
fremur nokkrir prestar og
tveir guðfræðikennarar há-
skólans.
Barátta dönsku þjóðarinn-
ar harðnar að sama skapi og
ofsóknir nazista vaxa. Fregn-
ir berast um allsherjarverk-
föll í 8 dönskum borgum og
að Þjóðverjar hafi beitt stór-
skotaliði í Kaupmannahöfn.
Miðhluti Kaupmannahafnar
er afgirtur og umferð bönn-
uð. Gyðingaofsóknirnar halda
áfraní.
I