Þjóðviljinn - 04.09.1943, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 04.09.1943, Qupperneq 1
8. árgangur. Þjódviljinn 8 síður! t Fáið nýja kaupendur að Þjóðrilj- anum. Með því flýtið þið fyrir stækkun hans. « Framlögum í blaðsjóð Þjóðviiljans er veitt móttaka á skrifstofum flokks ins, Skólavörðustíg 19 (nýja húsið), 196. tölublað sími 4824. Laugardagur 4. sept. 1943. Bandamannaherírnír hófu í ^ærmorgun ínnrás á Kalabrsu* shagann sydsf á Halíu og hafa náð fótfesfu á sfrðndínní Nefnd til að athuga atvinnuhorfur Bæjarráð skipaði í gær fjóra menn til að athuga atvinnuhorf- ur í bænum, samkvæmt tillögu frá síðasta fundi bæjarstjórnar. Nefndin er þannig skipuð: Gunnar E. Benediktsson lögfr. Helgi Eiríksson skólastj. Sigurjón Á. Ólafsson. Zophonías Jónsson verkam. Bandamannaher hóf innras á meginland Ítalíu í gærmorgun, er úrvalssveitir áttunda brezka hersins lentu á strönd Kalabríuskagans, syðst á Ítalíu, kl. hálffimm og tóku þegar að sækja inn í landið. Innrásarflotinn var varinn af beitiskipum, tund- urspillum og fallbyssubátum, og höfðu herskip og flugvélar Bandamanna gert harða hríð að strandvirkj- um fasistaherjanna áður en brezki herinn hóf land- göngu. í fregnum í gærkvöld segir að Bandamannaherinn hafi náð fótfestu á strönd Kalabríuskagans og hafi hernaðaraðgerðirnar þennan fyrsta dag gengið sam- kvæmt áætlun. Þjóðverjar flytja í skyndi hersveitir suður á bóg- inn til varnar gegn innrásarhernum. Rauðí heirinti vítmur á allf ftrá SnsoÍensfevígsL fil Asovshafs \ Rauði herinn sótti fram á öllum helztu köflum vígstöðv- anna frá Smolenskhéraði til Asovshafs í gær, og tók yfir 45i bæi og þorp, segir í miðnæturtilkynningu sovétstjórnarinnar. Á Donetsvígstöðvunum varð vinstra fylkingararmi sóknar- hersins, sunnan Donetáfljóts, mest ágengt, og tók bæina Permo- majsk, 60 km. vestur af Vorosiloffgrad en 20 km. fyrir sunnan Donets og Verkne, 5 km. frá Lisitsjansk, auk 150 þorpa. Sunnudagaferðir tekn- ar upp til Þingvalla Póst- og símamálasfjórnin sér um ferðirnar Póst- og símamálastjórnin hefur ákveðið að taka upp sunnu dagaferðir til Þingvalla. Verða notaðar þrjár 22 manna langferðabifreiðar til ferðanna. Farið verður frá Reykjavík kl. 10; 13,30 og 18,30, og frá iÞingvöllum kl. 11,30; 17 og 20. Afgreiðsla verður hjá Sam- einaða í Tryggvagötu, og verð- ur farið þaðan. Verða þar seld- ir farmiðar fyrir báðar leiðir og gilda þeir aðeins ákveðna ferð, og fást ekki endurgreiddir. Sektir fyrir brot á verðiagsákvæðum Nýlega hefur Gísli' Magnús Gíslason, heildsali, Vestmanna- eyjum, verið dæmdur fyrir bfot á verðlagsákvæðum. — Hlaut hann 1000 króna sekt og 50 daga varðhald til vara. — Ólöglegur hagnaður'kr. 1971.58 gerður upp- tækur. Hinn 13. marz. s. 1. birtist í blaðinu „The Fishing News“ í Aberdeen níðgrein um ís- lenzka sjómenn er var undir- rituö ,,Politicus“. Gmnur féll á Andreas J. Gottfredsen í sambandi viö gvein þessa, var hann tekinn fastur og haföur í gæzluvarö- haldi. Var hann um tíma Bretar segja, að þýzki herinn á Ítalíu hafi verið stórum auk- inn, og hafi Þjóðverjar þar nú 20 herfylki, eða um 400 þúsund manns. (Samkvæmt síðustu upp lýsingum hafa Þjóðverjar nú 210, af hinum 240 herfylkjum sínum, á austurvígstöðvunum). Samgönguleiðir þýzka hersins á Ítalíu urðu fyrir miklum loft- árásum í fyrradag, og tókst bandarískum flugvélum að eyði- leggja nokki'ar mikilvægar járn- hafður til rannsóknar á Kleppi og leiddi sú rannsókn í ljós að hann var óbilaöur á geösmunum. ViÖ réttarrannsókn játaði hann aö hafa- skrifaö fyrr- nefnda grein og sent hana blaðinu, en nokkurt ósam- ræmi væri á oröalagi hinnar Framh. á 3. síðu. brautabrýr, þar á meðal brúna við Bozen, suður af Brenner- skarði. í loftbardögunum misstu Bandamenn 15 flugvélar, en fas- istar 34. Montgomery hershöfðingi á- varpaði hermenn sína áður en innrásin hófst, og skýrði frá því, að áttunda hernum hefði hlotn- azt sá heiður, að vera fyrsti her- inn, sem innrás gerir á megin- land Evrópu. Hann hafi góða hernaðaráætlun og öll skilyrði til að íramfylgja henni. Orust- urnar, sem framundan eru, géta aðeins endað á einn veg. Fram til sigurs! Ólgan á Ítalíu vaxandi Badogliostjórnin hefur neyðzt til að láta undan kröfum almenn ings um málshöfðun gegn fas- istaleiðtogum, er höfðu sölsað undir eig almannafé. — Eignir Cianos greifa hafa verið gerðar upptækar. — Marskálkarnir di Bono og Cavalero hafa verið- handteknir og fleiri háttsettir menn í tíð Mussolini-stjórnar- innar. Er talið, 'að með ráðstöfunum þessum sé Badoglio að reyna að friða ítölsku alþýðuna, er heldur stöðugt uppi mótþróa • gegn stjórninni og krefst friðar. Þjóðviljinn 8 síður! Þjóðviljinn er blað Sósíalistaflokks ins. Vinnið að því að gera Þjóðvilj- ann að stærsta blaðj landsins. Hjálp ið til við söfnun í blaðsjóð Þjóðvilj- ans. Á vígstöðvunum við Kono- top, miðja vegu milli Karkoff og Brjansk, tóku Rússar bæina Bje- lopolje, Vorosta og Pútívl. Sov- éther sækir að Konotop að norð- an og sunnan. Haustið 1942 veftti ríkisstjórn íslands Félagi íslenzkra stúd- enta í Kaupmannahöfn 1000 kr. danskar til þess að ,halda uppi kvöldvökustarfsemi. Kvöldvök- unum var haldið áfram veturinn 1942—1943 á sama hátt og vetur- inn áður, og sáu Jón Helgason prófessor og Jakob Benedikts- son, bókavörður við Háskóla- bókasafnið, um þær allar að einni undantekinni. Eins og sjá má af eftirfarandi yfirliti hefur verið góð aðsókn að kvöldvökun um, að meðaltali 80 manns. þrátt fyrir myrkvun og erfiðar samgöngur innanbæjar. 1. kvöldvaka, 6. okt. 1942 (J. H.). „Úr ævisögum íslenzkra al- þýðumanna“. Lesnir kaflar eftir Eirík á Brúnum, Reinald Kristj- ánsson og Sigurð Ingjaldsson. — 79 nöfn í gestabók. 2. kvöldvaka, 20. okt. 1942 (J. B.). „Sjósókn og siglingar“. Les- ið einkum úr Guðmundar sögu góða, íslenzkum þjóðsögum, ævisögum Snæbjarnar í Hergils ey og' -Sigurðar Ingjaldssonar, Virkum dogum og Hákarlaveið- Sovéther á Brjanskvígstöðv- unum sótti í gær fram 6—10 km. og tók 60 þorp. Á Smolensk- vígstöðvunum varð rauða hern- um einnig vel ágengt og hrakti Þjóðverja úr hundrað þorpum síðastliðinn sólarhring. um Theódórs Friðrikssonar. — Kvæði eftir Jónas Hallgrímsson, Grím Thomsen, Fornólf, Örn Arnarson. — 78 nöfn í gestabók. 3. kvöldvaka, 13. nóv. 1942 (J. H.). „Úr Ólafs sögu helga“. — 64 nöfn 1 gestabók. 4. kvöldvaka, 24. nóv. 1942 (J. B.). „Um Skaftárelda“. — Lesið meginið af lýsingu Jóns Stein- grímssonar; auk þess úr Ferða- bók Þorv. Thoroddsens, Árbók- um Espólíns og Holti og Skál Jóns.Trausta. — 43 nöfn í gesta- bók. 5. kvöldvaka, 15. des. 1942 (J. H.). „Skólalíf“. Lesnar gamlar frásagnir um latínuskólann í Reykjavík eftir Árna Helgason. Matthías Jochumsson, Jón Ól- afsson, Indriða Einarsson og Þor vald Thoroddsen. — 40 nöfn í gestabók. 6. kvöldvaka, 12. jan. 1943. Ól- afur Guðmundsson kennari las upp úr nýkominni bók, Árbók Hannesar'á Horninu 1941; auk þess þýdda smásögu. — 102 nöfn í gestabók. * Framhald á 4. síðu Goiffredsen dæmdun Fundinn sekur um Sandráð -- Dæmdur í 6 mánaða fangelsi Sviptur kosningarrétti og kjörgengi Sakadómari kvað í gær upp dóm yfir Andreas Julius Gottfredsen, sem skrifaði níðgrein, um íslenzka sjómenn, í enska blaðið „The Fishing News“ á s. 1. vetri. Var hann fundinn sekur um að hafa brotið gegn 88. grein hegningarlaganna, sem er í kaflanum sem fjallar um landráð. Var hann dæmdur í 6 mánaða fangelsi, til greiðslu sakarkostnaðar og sviptur kosningarrétti og kjörgengi. Félag íslenzkra stúdenta í Höfn starfar ötullega þrátt fyrir ýmsa örðugleika Þjóðviljanum hefur borizt frá utanríkisráðuneytinu eftirfar- andi frétt um starfsemi Félags' íslenzkra. stúdenta í Kaupmanna höfn, veturinn 1942—1943.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.