Þjóðviljinn - 11.09.1943, Síða 1
0
U. árgangur.
,Laugardagur
sept.
202. tölublað.
Stórkostleg átðk um Ifalíu:
Þjððverjar hertaka Albaníu og Dalmatíuströnd -- Brezkur innrásarfloti á
til vesturstrandar Balkanskaga?
Barizt hefur verið um mestalla Ítalíu síðastliðinn
sólarhring og virðast Bandamenn vera í þann veginn
að ná miklum hluta af Suður-Ítalíu á vald sitt, og tóku
í gær flotahöfnina Taranto. Þjóðverjar hafa gert sterka
mótleiki með því að hernema Róm og Genoa, og senni-
lega fleiri mikilvægar borgir á Norður- og Mið-Ítalíu.
ítalski herinn verst árásum Þjóðverja og hefur
þýzka hernum ekki tekizt að ná yfirráðum í Milano,
Túrín, Feneyjum og Firenze, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
Þýzkur her hefur tekið á vald sitt Albaníu og Dal-
matíuströndina, en þar var ítalskur her einráður. — í
óstaðfestri fregn frá Ungverjalandi segir, að stór skipa-
lest Bandamanna hafi sézt í Jónahafinu og stefni til
vesturstrandar Balkánskagans.
Er það önnur mesta flotahöfn
ítala og Bandamönnum mjög
mikill styrkur að því að hafa
hana sem bækistöð fyrir inn
rásarherinn.
Vörn Þjóðverja á Suður-
Ítalíu virðist hvarvetna þverr
andi.
Sex ítölsk herskip komin
til Gíbraltar.
Sex ítölsk herskip, tvö létt
beitiskip, tveir tundurspillar
og' tvö flugvélahjálparskip,
komu til Gíbraltar í gær og
Framh. á 4. síðu.
Hitler telur Ítalíu hafa
verið byrði á Þjðð-
verjura
og setur von sína á „hinn
almáttuga,,
Hitler hélt útvarpsræðu í
gærkvöld frá aðalstöðvum
sínum á austurvígstöðvunum,
og var ræðan mestmegnis
hreystiyrði á þá leið að Þjóð-
verja munaði ekki mikið um
að missa ítali sem samherja,
og væru að sumu leyti betur
settir að vera lausir við þá.
Hann sagði aö ítalía hefði
veriö skuldbundin til þátttöku
í styrjöldinni meö Þjóöverjum
1939, og hefði Mússolini haft
fullan hug á því, en ekki tal
iö það fært vegna innanlands
ástandsins. Sumarið 1940 hafi
það ástand veriö svo breytt,
Framhald á 4. síðu.
KomiÖ hefur til harðra bar
daga, er þýzkur her réðist á
ítölsku setuliöin í albönsku
borgunum og á Dalamatíu-
strönd, til aö afvopna þau.
Hafa Þjóðverjar víða beitt
skriödrekum og steypiflugvél
um gegn einstökum virkjum
ítala, er neituðu að leggja
niöur vopn og vöröust af
kappi.
Á ítalíu hafa flutninga-
verkamenn í mörgum helztu
borgunum gert verkfall til aó
hindra herflutninga Þjóöverja.
Járnbrautarsamgöngur, tal
.síma og ritsímasamband milli
ítalíu og Þýzkalands er rofiö
og Þjóðverjar segja aö barizt
sé um stöðvar við Brenner-
skarö.
Bardagarnir um Napoli-
svæðið á Suður-Ítalíu
Bandamenn hafa komið sér
upp sterkum stöðvum á Na-
polisvæðinu og hrundið finnn
miklum gagnárásum er Þjóð
verjar gerðu í gær.
Á Suður-Ítalíu tók Banda
mannaher í gær borgina og
hersltipalægið Taranto, rétt
„undir hælnum“ á Ítalíuskaga
ÞESSU FÉ Á AÐ VERJA TIL AÐ LÆKKA VERÐ Á KJÖTI OG MJÓLK OG
ÞAR MEÐ KAUPGJALDIÐ.
STJÓRNIN SÉR ÞÓ EKKI ANNAÐ FÆRT EN AÐ LEITA SAMÞYKKIS ÞING-
FLOKKANNA TIL AÐ NOTA VERÐHÆKKUNINA Á TÓBAKI TIL ÞESS.
Sósíalistaflokkurlnn mótmælir gerræði stjórnarlnnar harðlega
Þýzki herinn ð Krím og í
Kðkasus í stórhættu
vegna sóknar Rússa vestur með Asovshafi
Með sókninni sytlst á austurvígstöðvunum ógnar rauði her-
inn nú öllu setuliði Þjóðverja á Krím og Kákasus, þar sem
líkindi til innikróunar liðsins fara dagvaxandi.
Rússar tóku í gær hafnarborgina Mariupol við Asovshaf
og bæina Osipenko, sem er 30 km. vestar, og Volnaraka, 50 km.
norður af Mariupol. Mariupol er 100 km. vestur af Taganrog og
álíka langt suður af Stalino.
Fjármálaráðherra hefur sent þingflokkunum bréf,
þar sem Því er lýst yfir, að stjórnin ætli fé það, sem
fæst í ríkissjóð vegna verðhækkunar áfengis og tóbaks
til að lækka verð á kjöti og mjólk og þar með kaup-
gjaldið. Ráðherrann fer þess á leit, að þingflokkarnir
lýsi yfir að þeir fallist á að verðhækkunin á tóbaki
verði notuð í þessu skyni.
Sósíalistaflokkurinn lítur svo á, að stjórnin hafi
alls enga heimild til að vería fé úr ríkissjóði til að
lækka verð á þessum vörum, og að verið sé að ganga
á rétt Alþingis á hinn freklegasta hátt, ef þessi mál
verði til lykta leidd án þess, að þau fái þinglega af-
greiðslu-
Flokkurinn lítur ennfremur svo á, að fara beri allt
aðrar leiðir til þess að halda dýrtíðinni í nauðsynleg-
um skefjum, en þær, sem stjórnin stingur upp á og
krefst þess, að dýrtíðarmálin verði rædd í heild fyrir
opnum tjöldum á AlÞingi, í 'stað þess að afgreiða ein-
staka þætti þeirra með baktjaldamakki og leyniundir-
skriftum.
Bréf fjármálaráðherra og svar Sósíalistaflokksins
fer hér á eftir:
Rauði herinn sem tók Bak-
mats í fyrra dag heldur áfram
sókn í átt til Kíeff, og eru Þjóð-
verjar þar á hröðu undanhaldi.
Sovétherinn tók einnig í gær
bæina Barvenkova, suðvestur af
ísjúm, og Saptino(?) norðvestur
af Stalino.
Sókn Sovétherjanna er allstað
ar hröð og vinnst Þjóðverjum
víða ekki tími til að eyðileggja
á undanhaldinp hergögn og hern
aðarmannvirki.
BREF FJARMALARAÐ-
HERRA
„Ríkisstjórnin hefur ákveðið
að nota heimild í 4. grein laga
nr. 42 frá 13. apríl 1943 til þess
að lækka verð á kjöti og mjólk
eftir 15. september þ. á, svo að
vísitölu framfærslxdcostnaðar
verði haídið kringum 250 stig,
og ætlar hún sér að nota til þess
fé, sem fæst með verðhækkun á
áfengi og tóbaki. ,
Út af umræðum, sem fram
fóru í efri deild Alþingis 6. þ. m.
\sm verðhækkunarheimild til
Tóbakseinkasölu ríkisins, vill
ríkisstjórnin fara þess á leit við
Sameiningarflokk alþýðu —
Sósíalistaflokkinn, að hann lýsi
yfir samþykki sínu, að verð-
hælckun á tóbaki verði notuð í
því skyni, er að ofan greinir“.
SVAR SÓSÍALISTA-
FLOKKSINS
„Vér höfum móttekið heiðrað
bréf yðar, dags. 9. sept. 1943, og
vjljum út af því taka þetta fram
Sameiningarfloklcur alþýðu
— Sósíalistaflokkurinn lítur svo
á, að 4. gr. laga nr. 42. frá 13.
apríl 1943 heimili ríkisstjórninni
alls ekki að nota fé úr ríkissjóði*
til verðlækkunar á kjöti og
mjóllc, nema samþykkt Alþing-
is komi til slíkra fjárveitinga á
venjulegan liátt.
Ennfremur lítur flokkurinn
svo á, að með þeim ráðstöfunum
sem ríkisstjórnin, samkvænit
upplýsingum þeim, sem hún
hefur látið í té, hugsar sér að
gera til þess að halda vísitölunni
niðri, sé beinlínis verið að rýra
kjör launþega. Mun flolckurinn
beita sér fyrir því, að farnar
verði aðrar leiðir til þess að
Framh. á 2. síðu.