Þjóðviljinn - 03.10.1943, Qupperneq 4
hJÓÐVIUINN
Næturlæknir er í Læknavarðstöð
Reykjavíkur, sími 1530.
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
FLOKKURINN
Félagrar, munið bréfasölufundinn
í félagsskrifstofunni annað kvöld kl.
sy2.
Sósíalistafélagið.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, blaða-
maður við Alþýðublaðið, er fertug-
ur á morgun.
Berklavörn, blað S. í. B. S. verður
selt hér í bænum í dag. Blaðið er
mjög fjölbreytt að efni og flytur
margar athyglisverðar greinar. —
Það er 37 lesmálssjður í allstóru
broti.
Fjalakötturinn hefur ákveðið að
taka upp aftur sýningar á hinum
vinsæla skopleik „Leynimel 13“, og
verður fyrsta sýning þessa leikárs
næstkomandi þriðjudag kl. 8. Leik-
urinn var, sem kunnugt er, sýndur
nokkrum sinnum í vor við mikla að-
sókn, en sýningum var hætt þá, sök-
um þess hve áliðið var sumars. Má
vænta þess að margir sem
ekki gátu séð leikinn í vor, muni
nota tækifærið til þess að sjá hann
nú.
Berklavarnadagurinn: Börn og
fullorðnir óskast til að selja merki
og blað dagsins. — Afgreiðslan er í
Kirkjustræti 12, (Líkn, Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur). Opnað kl. 9
árd.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir Lén-
harð fógeta kl. 8 í kvöld.
Framhaldsaðalfundur félagsins er
kl. 2 í dag.
NÝJA Bté
Kátir voru karlar
(Pardon My Sarong) .
Söngvamynd með skopleit-
urunum:
BUD ABBOTT og
LOU COSTELLO.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl.
11. f. h.
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
I
SÞ TMAt&iASSMÉé <1
Storm sktiiii
þeir uppskera
KAY MILLAND,
JOHN WAYNE,
PAULETTE GODDAKD.
Bönnuð fyrir böm
innan 14 ára.
Sýning kí 6,30 og 9.
I
SEKKJASLOÐIR
(Road to Morocco)
BING CROSBY.
BOB HOPE,
DOROTHY LAMOUR.
Sýning kL 3 og 5.
Aðgöngumiðasala hefst
kl. 11 f. h.
»11111111IIIlllllIIIIIIIIIIIII■|||■|||l|■|■||||■l|||l|||l■■l||||fltll•V«IVC009IIIIIIIIIIIIIVII■IIBIIIII■■■ll■lll■llllllll•••«»fl»»»■■ltIIIII
LEIKFELAG REYKJAVIKUR
Þing F.F.S.I.
'Eramhald af 1. síðu.
mun sjálfsagt standa nokkra
daga enn.
Þingfulltrúar ætla í dag að
mæta við hinn nýja stýrimanna-
skóla, til að sjá hve langt hann
er kominn áleiðis.
Ný útgáfustarfsemi
Pramh. af 3. bíöu.
til sín beint, ef menn óska, og þá
með betri kjörum, en heimilt
verður þó áskrifendum að sleppa
úr vissum ritum, sem þeir ekki
óska eftir.
Þá skulu enn nefndir nokkrir
þekktir menn, er hafa heitið heft
inu efni eða haft góð orð um
stuðning: Helgi Hjörvar rithöf-
undur, Jón Eyþórsson veðurfræð
ingur, Knútur Arngrímss. kenn-
ari, Magnús Jónsson prófessor,
Páll ísólfsson tónskáld, Pálmi
Hannesson rektor, Sigurður Ein-
arsson dósent, Sigurður Nordal
prófessor, Vilhjálmur Þ. Gísla-
son skólastjóri.
.»♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦»♦♦♦»
Nokkrar fallegar
PLUSSKÁPUR
teknar upp í dag-
Verzlun H. Toft
Skólavörðustíg 5
Sími 1035
„LÉNHARÐUR FÖGETI“
eftir Einar H. Kvaran.
Sýning í kvöld kL 8.
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 2 í dag.
II MflfllflflflfllfllilfllflflJflM>flll
FJALAKÖTTURINN
LEYNIMEL 13
verður leikið í fyrsta sinn á þessum vetri nJc.
þriðjudag kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í dag kl. 4—7 og eftir kl. 2
daginn sem leikið er.
S. G. T. dansleikur
verður í Listamannaskálanum í kvöld kl. 10. Sími 3240.
Aðgöngumiðasala kl. 5—7. — Danshljámsveit Bjarna
Böðvarssonar spilar.
BERKLAVARNADAGURINN
Daaslelknr
verður haldinn í Tjamarcafé í kvöld kl. 10.
Aðgöngumiðar frá kL 4. Ágóðinn rennur til starfsemi
S. í. B. S.
Miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiii>iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii'iiiiiiiiiiMM»iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii<'i|111"
NINI ROLL ANKER:
ELÍ OG ROAR
Roar hefði samt getað þraukað ... Já, Nils, hann hefði
kannski getað það, ef hann hefði ekki fundið mig.
Hún stóð upp svo snöggt að einn svæflanna datt á gólfið
En hann þarfnast mín,|til þess að verða það, sem hon-
um var ætlað. Og verði það ekki — hún lagði hönd að
hjarta sér — Verði hann ekki það sem hann átti að verða,
hjá mér, þá máttu koma eftir nokkur ár með ásakanir
þínar, þá hef ég tapað.
Nils sneri sér til hennar, skelkaður. Aldrei fyrr í samveru
þeirra hafði hann heyrt systur sína svona ákafa, aldrei fyrr
séð leiftra úr stóru augunum.
Elí! Ósjálfrátt gekk hann til hennar og- breiddi út faðm-
inn.
Hún vék undan.
Nei, Níls.
Elí! Fyrirgefðu. Hann lét handleggina síga, alveg ráða-
laus. Það — það kom mér svo óvænt. Og — og þú hefur
vanið mig á að segja allt sem býr í brjósti, þú hefur gert
mig keipóttan. þú hefur gert mig svo sjálfselskan, Elí.
Heldurðu að ég viti það ekki, að betri félaga en þig getur
enginn maður eignazt? Elí!
Hún grét ekki. En það var kökkur í hálsinum.
Hvernig ætti ég að ásaka þig, systir mín? Þú veizt sjálf
hvað þú ert að gera.
Það varð henni snöggvast ofraun, hún brá handlegg fyr-
ir andlit sér. Barátta og efi síðustu mánuðanna minntu á
sig, — andvökunæturnar, þegar hún var að reyna að tor-
tíma mynd hinnar konunnar. Hann leit upp á bróður sinn,
andlitið fölt og úr skorðum.
Það er ekki von að þú skiljir það. Þið Tora áttuð ykkar
hamingjutíma, og hann var þér nógur, endist þér alla ævi.
Þú hefur aldrei verið bundinn í báða skó, eins og Roar.
Já, ég veit hvað ég er að gera, því ég get ekki gert neitt
annað. Eg vildi gera allt, sem gæti orðið honum til góðs.
Honum gengi kannski bezt að vinna einsömlum, ég væri
hér og hann útfrá. En það blessast ekki, hann getur það
ekki. Hann vill fá mig til sín. Og hann ræður. Við erum
ekki þessháttar fólk, sem þýtur hvort í annars fang eftir
smádaður.
Feiminn, kafrjóður eins og ungmey leit Nils Tofte und-
an. Augnaráðið snerti þilið yfir legubekknum, þar sem
myndir foreldranna héngu.
Og roðinn smitaði, hann breiddist um bjart hörund Elí
upp að ljósa hárinu; hún hafði horft einnig yfir á gömlu
myndirnar í sporöskjurömmunum.
Já, það er líklega vel farið, að pabbi og mamma lifðu
það ekki, Nils. Því ég hefði gert það samt.
En nú var orðin svipbreyting á andliti hans, í fyrsta sinn
þetta kvöld horfði hann hiklaust á hana.
Þú ert eins og pabbi, sagði hann, þú ert sterk og — og
síung, Elí — þú ert sköpuð fyrir hamingjuna. Hann rétti
henni báðar hendur sínar.
Og nú tók hún þeim, hörðu drættirnir við augabrúnir og
varir slöknuðu, hún brosti.
Það þarf ekki mikinn styrk, Nils, ef maður á ekki ann-
ars völ.
En þá fannst henni snögglega, að hún hefði ekki tekið
eftir því fyrr, hve magurt og skorpið andlit bróðurins var
orðið — og langt, já óralangt, síðan varir höfðu mætt vör-
um hans.
Hefur þér aldrei dottið í hug að gifta þig aftur, Nils —
öll þessi ár? Orðin voru þotin út úr henni jafnsnemma og
þau voru hugsuð.
Þá hló hann, slangraði frá henni yfir að skrifborðinu.
í því hann setti sig í stólinn, sagði hann:
Það var dálítil hætta á ferðum, fyrir tveim árum, Elí.
En mér tókst að afstýra henni.
Fyrir tveimur árum?
Þegar þú komst með hana ungfrú Jensen.
Deu Jensen? Nei, nei, Nils! Hún sem var innan við
tvítugt!
i ■ ■ ii ■ ■■• ii ii
<4IIIIIIIII<IIIIIIIIIIII<IIIII
lllll«l<llllllllllll