Þjóðviljinn - 14.10.1943, Blaðsíða 1
8. áxgangwr-
Þjóðviljinn 8 síðar!
Herðið fjársöfmmina fyrir
stækkun Þjóðviljans.
Framlögum í blaðsjóð Þjóð-
viljans er veitt móttaka á skrif-
stofu Sósíalistaflokksins, Skóla-
vörðustíg 19.
230. tölublað. Þjóðviljinn 8 síðnr!
q
Islaad sem sfeiptimynf stórvelda?
Irellaill islaid san
Effírfefetairverdair upplýsingar ufanrífeísmálarádlierra á Aiþingi í gær.
Italfa I stríði viö Þýzkaland
SQðrnir Bretlands, Sovétrikjanna og Bandarlkjanna
viðurkenna ítðlsku þjöBina sem bandamann
ítalska Badogliostjórnin hefur sagt Þýzkalandi
stríð á hendur. Yfirlýsingu frá Badoglio um friðslit
Ítalíu og Þýzkalands var útvarpað frá ítölsku borg-
inni Bari síðdegis í gær.
Jafnframt var birt í London, Moskva og Was-
hington tilkynning þess efnis að stjórnir Bretlands,
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna viðurkenndu ítölsku
þjóðina og herinn sem samherja (,,co-belligerent“)
í stríðinu gegn Þýzkalandi.
Vilhjálmur Þór, utanríkismálaráðherra, sagði á Alþingi í
gær í ræðu þeirri, sem prentuð er á öðrum stað í blaðinu eft-
irfarandi: „Hinn 4. okt. s.l. tilkynnti sendiráð Breta mér hins-
vegar í formlegu erindi, að brezka flotastjórnin muni hér eftir
hafa hönd í bagga með aðal olíubirgðastöðinni' hér á landi, og
að hún hafi tilnefnt brezka olíufélagið Asiatic Petroleum Co.
umboðsmann sinn, til þess að fara með umráðin yfir birgða-
stöðum, meðan brezk yfirvöld hafa umráðaréttinn.“
Einar Olgeirsson vakti sérstaka athygli á þessari tilkynn-
ingu í ræðu, sem liann hélt um skýrslu ríkisstjórnarinnar í olíu-
málinu. Hann benti á að ísland hefði samning við Bandaríkin
um hervernd og útvegun nauðsynja, en eftir þessu að dæma
væri Bandaríkjastjórn að afhenda umráðarétt, sem hún hefði
fengið með samningi við ísland, án þess svo mikið sem að spyrja
íslendinga að og án nokkurrar heimildar til slíkrar afhend-
ingar, því ólíklegt væri að hér væri bara um olíubirgðastöð-
ina að ræða, heldur fylgdi raunverulega flotastöðin með, því
olíutankarnir væru aðalmannvirkin þar.
í yfirlýsingu þrívéldastjórn-
anna segir, að undanfarnar vik-
ur hafi raunverulega skapazt
það ástand, að ítalska þjóðin og
herinn sé orðinn samherji þjóð-
anna sem berjast gegn Hitlers-
Þýzkalandi, og sé yfirlýsingin
því ekki annað en viðurkenn-
ing á staðeynd.
Lögð er áherzla á það í yfir-
lýsingunni að þó Badogliostjórn
in sé nú viðurkennd samherji
Bandamanna, haldi hinar sam-
einuðu þjóðir fast við þá kröfu
að ítalska þjóðin fái sjálf að
velja sér stjórn þegar Þjóðverj-
ar hafa verið hraktir burt úr
landinu.
Á vígstöðvunum á Ítalíu hef-
ur mátt heita hlé á bardögum,
en báðir aðilar halda áfram und
irbúningi -að átökunum sem í
vændum eru
ÆÍIa þeír ad drepa málínu á dreíf?
Einar kvað þess fulla þröf að
Alþingi ræddi þessa hlið máls-
ins eigi síður en olíuverðið og
skipulag olíusölunnar. Islending
ar yrðu að halda fast á því að
þeir hefðu einir umráðaréttinn
yfir sínu landi og hverskonar
afhending í sambandi við hann
væru óheimil án þeirra sam-
þykkis. Þar með væi'i ekki um
það sagt hvort oss þætti ljúfara
eða lakara að Bretar tæku við
þessum umráðarétti af Banda-
ríkjamönnum eða ekki. Vér Is-
lendingar vildum ekki að land
vort væri nein skiptimynt, sem
stórveldin gætu samið um eins
og þeim þóknaðist, víxlað því
sín á milli, t. d. fyrir einhverjar
eyjar í Kyrrahafi og tilkynnt
svo bara íslendingum á eftir
! I
--------------------------------------.i
hverju þeirra þóknaðist að ráða
landinu nú.
Hvað hann nauðsynlegt að rík
’isstjórnin mótmælti þessum að-
förum jafnhliða því, sem hún
stæði á verði um hagsmuni
landsmanna gagnvart olíuhring-
unum.
Það er engum efa bundið að
hér er á ferðinni mál, sem alla
þjóðina varðar, — mál, sem í
senn er mikilvægt sjálfstæðis-
og utanríkismál. Sameinaðir
verða íslendingar að standa á
verði um að sjálfsákvörðunar-
rétti þeirra sé ekki misboðið.
standa fast á þeim sáttmálum og
loforðum, er þeir hafa og hvika
hvergi frá rétti sínum til algers
umráðaréttar yfir landi sínu.
Setuliðið óskar ekki
eftir mjólk ef íslend-
ingar þurfa hennar
Er séra Sveinbjörn að
þröngva því til að kaupa
mjólk sem Reykvíkinga
skortir?
Utanríkisráðherra til-
kynnti eftirfarandi á fundi í
sameinuðu þingi miðvikudag
inn 13. okt., utan dagskrár:
„Að gefnu tilefni þykir
mér rétt og nauðsynlegt að
upplýsa, að öll ámæli á setu-
liðsstjórnina, sem kunna að
hafa fram komið í blöðum og
annars’ staðar út af kaupum
hennar á mjólk, eru með öllu
ástæðulaus.
Setuliðsstjórnin hefur hvað
eftir annað formlega yfirlýst,
að hún óskaði ekki eftir að
kaupa hér á landi mjólk né
aðrar matvörur, nema aðeins
í þeim tilfellum. sem matvör-
ur þessar væru til umfrám
það sem landsmenn sjálfir
gætu eða vildu nota.
Setuliðsstjórnin hefur hins
vegar oftar en einu sinni eft-
ir ósk aukið mjólkurkaup sín
á þeim tíma árs þegar mikill
mjólkurafgangur hefur verið,
en þá gengið ríkt eftir að fá
að vita, að um afgangsmjólk
væri að ræða.
Setuliðsstjórnin óskar ekki
frekar nú heldur en áður að
kaupa mjólk hér á landi
nema um sé að ræða afgangs-
mjólk.
Af þessum ástæðum er
ljóst, að með öllu er ástæðu-
laust að gera nokkrar sam-
þykktir á Alþingi til þess að
hefta setuliðið í kaupum þess
á mjólk.
Þetta vildi ég hafa upp-
lýst til að fyrirbyggja mis-
skilning.“
Loks kom að því að Sjálfstæðismenn og Alþýðuflokksmenn
á þingi sáu sér ekki annað fært en að koma með tillögur í
mjólkurmálinu, eftir að frumvarp sósíalista hefur verið á
dagskrá í neðrí deild níu sinnum og verið rætt meira en nokk-
uð annað þingmál.
Gunnar Thoroddsen flytur tillögu til þingsályktunar um
rannsóknarnefnd í mjólkurmálinu, og mun í henni felast af-
staða Sjálfstæðisflokksins. Emil Jónsson og Haraldur Guðmunds
son flytja þingsályktunartillögu um að stöðva mjólkursölu til
setuliðsins.
Samstilling hernaðaraðgerða
aðalverkefni hoskvarðð-
stefnunnar
Aðalvlðíangsefni þríveldaráðstefnunnar í Moskva verða
ráðsjtafanir til að samstilla svo hernaðaraðgerðir hinna samein-
uðu þjóða, að hægt verði að ljúka styrjöldinni með sigri sem
fyrst, segir í ritstjórnargrein er Pravda, aðalmálgagn Kommún-
istaflokks Sovétríkjanna, birtir f. fyrradag.
Tillaga Gunnars Thoroddsen
er þannig:
„Neðri deild Alþingis ályktar
að kjósa rannsóknarnefnd
mjólkurmála, er skipuð skal 5
innandeildarþingmönnum. —
Nefndin kýs sér sjálf formann
og skiptir að öðru leyti með sér
störfum.
Nefndin skal rannsaka og
gera tillögur um þau atriði, er
hér segir:
1. Að hve miklu leyti séu rétt-
mætar margítrekaðar umkvart-
anir neytenda í Reykjavík og
Hafnarfirði um gallaða og lé-
lega mjólk.
2. Orsakir þess tilfinnanlega
skorts á mjólk og mjólkurafurð-
um, svo sem smjöri, skyri og
rjóma, sem oft hefur gert vart
við sig.
3. Hversu mikið mjólkurmagn
hefur á hverjum tíma verið selt
hinu erlenda setuhði.
4. Hversu mikið mjólkurmagn
hefur hin síðustu ár farið til
neyzlu og hversu mikið til
vinnslu mjólkurafurða.
5. Rannsaka dreifingar- og
vinnslukostnað, flutningskostn-
að og flutningsfyrirkomulag í
Framhald á 4. síðu.
Pravda telur algerlega ó-
þarft að taka nokkurt mark á
slúðri, sem komizt hefði á kreik.
um að rætt yrði á ráðstefnu þess
ari um landamæri Sovétríkj-
anna. Slíkt sé jafnmikil fjar-
stæða og farið yrði að ræða þar
Framhald á 4. síðu.