Þjóðviljinn - 15.10.1943, Page 1
Þjóðviljinn 8 síður!
Herðið fjársöfnunina fyrir
stækkun Þjóðviljans.
Framlögum í blaðsjóð Þjóð-
viljans er veitt móttaka á skrif-
stofu Sósíalistaflokksins, Skóla-
vörðustíg 19.
231. tölublað. Þjóðviljinn 8 síður!
/
Föstudagur 15. október 1943.
■
Raill lerifli tekur Saiorossi
Barízt á göíunum í Gomel og MelifopoL — lárnbrautin
frá Melítopol tíl Krím rofín á tveímur stöðum
Loftárás á Rabaul
«
Bandamenn gerðu í gær
harða loftárás á Rabaul á Salo-
monseyjum, sökktu mörgum
japönskum skipum og eyðilögðu
á annað hundrað flugvéla á
jörðu. Er þetta mesta loftárás,
sem gerð hefur verið á því styrj
aldarsvæði.
Fimmti bandaríski
berinn brýzt norður
yfir Volturno
Fímmti bandaríski herinn hef
ur hafið sókn á Volturnovíg-
stöðvunum, brotizt norður yfir
fljótið og tekið nokkra bæi, þar
á meðal smábæ sem er 40 km.
norðaustur af Capúa.
Talið er að Þjóðverjar hafi 7
herfylki á þessum vígstöðvum.
í Austur-ítaliu sækir 8. brezki
herinn fram, og virðast Þjóðverj
ar eiga sífellt örðugra með vörn
á þeim slóðum, ekki sízt vegna
yfirburða Bandamanna 1 lofti.
Fimm norskir borgar-
ar myrtir af nazistum
Á miðvikudagsmorgun létu
nazistayfirvöldin í Noregi taka
af lífi fimm norska ríkisborg-
ara, er höfðu verið í haldi sem
gislar. Var þetta gert í hefndar-
skyni fyrir það að járnbrautar-
lest hafði verið sprengd í loft
upp.
Nöfn hinna myrtu eru: Alf
Johnsen forstjóri, Reidar Furu
bankamaður, Thomas Agnás
járnbrautarverkfræðingur (all-
ir frá Drammen), Anders Jo-
hansen og Arthur Simensen,
báðir frá Mjöndal. Talið er að
Simensen muni vera hinn kunni
verklýðsleiðtogi í Drammen.
Verzlunarjðfnuð urinn ðhag-
stæður 4,7 millj. kr.
Verzlunarjöfnuðurinn, það
sem af er þessu ári, er óhag-
stæður mn 4,7 millj. kr.
Verzlunarjöfnuðurinn í sept
embermánuði var óhagstæðuv
um 4,6 millj. kr.
Innflutningurinn í sept.
nam 23.8 millj. xr., en út-
flutningurinn 19,2 millj. kr.
Innflutningurinn á fyrstu
9 mánuðum þessa árs narr.
178,9 millj. kr., en útflutn-
ingurinn 174,2 millj. kr.
Á sama tíma í fyrra nam
innflutningurinn 186,5 milll.
kr. en útflutningurinn 164,2
mllj. kr. og var þá óhagstæð-
ur um 2,1 millj. kr.
Saporossi, hin mikla iðnaðar- og samgöngumið-
stöð við Dnéprfljót, er á valdi rauða hersins. Þessi
þýðingarmikli sigur var tilkynntur með dagskipun
frá Stalín, og segir þar, að Saporossi hafi verið ein
t mesta .vamarstöð þýzka hersins á suðurhluta aust-
urvígstöðvanna.
f miðnæturtilkynningu sovétherstjórnarinnar er
skýrt frá öðrum mikilvægum sigri, einnig frá syðstu
vígstöðvunum: Rauði herinn he^ur rofið jámbraut-
i ina frá Melitopol til Krím á tveimur stöðum, og
j er allur her Þjóðverja á Krímskaga í yfirvofandi
hættu.
í borgunum Gomel í Hvíta-
Rússlandi og Melitopol í Suð-
ur-Úkraínu eru háðir harðir
og mannskæðir bardagar um
hvert hús og hverja götu. Frétta
ritarar enskra blaða telja, að
ekki hafi verið háðar blóðugri
orustur í styrjöldinni en þær
sem nú eru háðar á Gomel.
Þýzka herstjórnin sendir stöð-
ugt nýtt lið fram til vígstöðv-
anna, og reynir að stöðva sókn
sovétherjanna hvað sem það
kostar.
Norður og suður af Kíeff hef-
ur rauði herinn unnið á, þrátt
fyrir mjög harða mótspyrnu.
Finnar orðnir smíeykir
Formaður utanríkismálanefnd
ar finnska þingsins sagði í ræðu
í gær, að hugsanlegt væri að
leiðir Finna og Þjóðverja skildu
áður en langt um liði, vegna
hinna breyttu aðstæðna.
Færeyingar gefa herbergi
I stúdentagarðinum
Lögþingið í Færeyjum hef-
ur nýlega samþykkt að veita
kr. 10.000 til kaupa á einu
herbergi í Stúdentagarðinum
handa færeyskum stúdent.
Húsðleiguvísitalan 135 stig
Kauplagsnefnd og hagstof-
an hafa nú reiknað út husa-
leiguvísitölu þá sem gildir
síðasta ársfjórðung þessa árs
— okt. — des. — og reyndist
hún vera. 135 stig.
Frá Handíðaskólanum.
Nemendur kennara- og myndlist-
ardeildar eiga að mæta í skólanum
til viðtals á morgun (laugardag) kl.
4 síðd. Kennsla í öðrum námsgrein-
um skólans hefst upp úr helginni og
verður nemendum hverrar deildar
tilkynnt hvenær þeir eiga að mæta.
Hilliþinganefnd f skatta-
múlum hefur iokið stðrfum
í gær óskaði Haraldur Guð-
mundsson þess utan dagskrár
í efri deild að frumvarpið um
eignaaukaskatt yrði bi'átt tek
ið til 1. umræðu. En eins ug
kunnugt er, þá hefur verið
starfandi milliþinganefnd í
skattamálum, sem m. a. haföi
þetta frumvarp til meðferðar.
Upplýstist nú að nefnd
þessi væri búin aö ljúka störf-
um, hefði haldið síðasta fund
sinn kvöldinu áður.
Guömundur í. Guömunds-
son er fulltrúi Alþýðuflokks-
ins í nefndinni. Haraldur
Guömundsson er fyrsti flutn-
ingsmaður málsins og var yf-
irlýst að Alþýðuflokkurinn
stæöi aö frumvarpinu.
Verður nú fróðlegt að sjá
hvað fulltrúi Alþýöuflokksins
í nefndinni hefur gert við
frumvarp þetta — og af
hverju þessi óróleiki Harald-
ar stafar.
Frumvarp sósíalista um
veÆ’lag (afnám á valdi mjólk-
ur- og kjötverðlagsnefnda)
var af^reitt til 2. umr. og
nefndar 1 efri deiid. Frumvarp
Brynjólfs Bjarnasonar um að
skylda ríkisstjórnina til að
leita fjárveitinga hjá Alþingi,
ef vei'ðfella eigi landbúnaöar-
afurðir, var afgreitt til neöfi
deildar.
Athugið!
Vegna rafmagnsbilunar í
prentsm. tafðist fimmtudags-
blað Þjóðviljans og af sömu
ástæðum kemur aðeins hálft
blað út í dag.
Fjölsímasatnband komíð á
kríngum landíð
Hinn 12. þ. m. var opnað nýtt fjölsímasamband milli
Akureyrar og Reyðarfjarðar.
Með opnun þessa sambands er landið í annað sinn símgirt
allt í kring. í' fyrsta sinn var það 1929, þegar lokið var við lagn-
ingu suðuri£.ndslínunnar frá Reykjavík um Skaptafellssýslur
til Hornafjarðar.
Guðmundur Hlíðdal, póst- og símamálastjóri, skýrði blaða-
mönnum frá þessu í gær og lét þá reyna hið nýja samband með
því að tala saman kringum land.
Árið 1936 var komið á ein-
földum fjölsíma milli Reykja-
víkur og Akureyrar en
1942 var hann 3-fald-
aöur. 1941 var komið a
einföldum fjölsíma milli
Reykjavíkur og Seyöisfjarðar
og honum aftur bi'eytt 1943 í
3-faldan fjölsíma milli Reykja
víkur og Reyðarfjarðar, enda
er nú Reyöarfjöröur orðin
aðalskiptistöð fyrir Austfii'öi
Lokast því fjölsímahringurinn
um landið með hinum nýja
fjölsírpa milli Akuxæyrar og
Reyðarfjarðar. Er nú hægt aö
tala kringum land við mann
í næsta húsi við sig í Reykja-
vík (ca. 1400 km.). Svo miklu
betur heyrist á fjölsímanum
heldur en á venjulegri síma-
línu með venjulegum síma-
búnaöi. Fjölsímarnir, eru
tæki til þess gerð, aö geta
haft samtímis fleiri en eitt
talsamband á einni og sömu
talsímalínu. Er þetta gert
meö því að nota á sömu vír •
unum mismunandi háa
sveiflutíðni. Til þess að þetta
megi takast, verður víralín-
an (stofnlínan) að vera úr
eir og hafa vissa eiginleika.
Mega t. d. ekki vera á henni
neinir sæsímar eöa jarösímar
svo nokkru nemi, því gegnurn
þá komast ekki rafstraumar
meö hárri sveiflutíðni.
Fyrsti fjölsíminn, sem kom-
ið var á hér á landi, var 1932
milli Reykjavíkur og Borðeyi’-
ar. Síðan hafa fjölsímar veriö
settir milli Reykjavíkur og
Borgarness og Reykjavíkur og
ísafjarðar auk þeirra, sexn
áöur voru nefndir. Eru þaö
allt einfaídir fjölsímar.
Með þessum fjölsímum hef-
ur símasambandiö milli
Reykjavíkur og hinna ein-
stöku landshluta verið bæu
stórkostlega.. Milli ReykjaviK
ur og Austíjarða er umbótiti
svo rnikil, aó menn átta sig
tæplega a því i fyrstu, halda
aó þeir séu að tala vió mann
í næsta húsi. Til þess SS
koma þessu á, varö aó reisa
ný hús á Reyðarfiröi og Höi'n
í Hornafirði og setja þar aðra
stcíðvarstjóra meó sérmennt-
Á þessu sumri hefur venð
lagóur jarösími yfir Fjarðar-
heiöi milli SeyðisfjarÖar og
Egilsstaða og um Fagradal
milli Egilsstaða og Reyðar-
fjarðar og eru þetta samtals
um 60 km. Að vísu veröur
ekkl hægt að ljúka í háust
alveg við jarösímann til Reyð
arfjarðar öðruvísi en með
bráðabirgðastreng, en úr því
veröur væntanlega bætt
næsta sumar. Þegar þessu
verki er lokið, verður mjög
greiö afrás fyrir símtölin frá
Reyðarfirði til hinna ýmsu
staða á Austfjöröum.
Aðrar framkvæmdir lands-
símans á þessu ári eru aðal-
lega fólgnar í viðhaldi lands-
símanna. og lagningu notenda
síma til nokkun-a sveitabæja,
þó það sé af skomum
skammti meir en æskilegt
hefði verið, og veldur þar um
efnisskortur, sem stööugt
veröur tilfinnanlegri. Þó hef-
ur veriö hafin bygging nýs
pósts- og símahúss á Akuc-
eyri og birgðahúss í Reykja-
vík.
Hin fjárhagslega afkoma
landssímans á síðastliönu án,
fór þannig, að tekjurnar urðu
kr. 7.544.000 og útgjöldin
samtals kr. 8.412.000 eða um
868.000 króna halli. Þess ber
Framh. á 2. síðu