Þjóðviljinn - 17.10.1943, Page 1
8 árgangur.
Simnudagur 17. október 1943.
Þjóðviljiim 8 síður!
Herðið fjársöfnunina fyrir
stækkun Þjóðviljans.
Framlögum í blaðsjóð Þjóð-
viljans er veitt móttaka á skrif-
stofu Sósíalistaflokksins, Skóla-
vörðustíg 19.
233. töiubiað. Þjóðviljinn 8 síður!
Hver a féð, sem verið er aö
reisa mjólkurstöðina fyrir?
Út af þeim umræðum sem fram hafa farið um mjó.lkur-
málið, og þeirri staðhæfingu Morgunblaðsins, að tillaga komm-
únista um að bærinn taki við mjólkurstöðinni sé hvatvísleg,
skal hér gerð grein fyrir; hvaðan féð kemur sem verja á til að
byggja stöðina; hvaða lagafyrirmæli gilda um það og hvað
sósíalistar hafa raunverulega lagt til í þessu efni.
Féð
hefur verið tekið úr
verðjöfnunarsjóði sem
reisa á mjólkurstöðina
fyrir.
Fé það, sem verið er að reisa
mjólkurstöðina fyrir, er allt tek
ið beint eða óbeint úr verðjöfn-
unarsjóði.
Þessar upphæðir hafa runnið
í byggingarsjóð stöðvarinnar
frá verðjöfnunarsjóði:
árið 1938
— 1939
— 1940
— 1941
— 1942
kr. 107 204,99
— 113 341,15
— 115 890,67
— 153 473,80
— 714 721,76
Vextir af þessu fé 25 946,87
Alls hefur byggingarsjóður
mjólkurstöðvarinnar þannig
fengið 1.230 579,24 kr. úr verð-
jöfnunarsjóði.
Árin 1941 og 1942 er raunar
talið í reikningum samsölunn-
ar, að framlögin til byggingar-
sjóðs séu tekin af tekjuafgöng-
um samsölunnar, en ekki úr
verðjöfnunarsjóði, en um tekju-
afganginn segir í lögum mjólk-
ursölunnar:
„Tekjuafgangur mjólkursölu
skal renna í verðjöfnunarsjóð,
eftir að nauðsynlegar afskriftir
hafa farið fram og aðrar greiðsl
ur, er stjómin telur nauðsyn-
legt að inna af hendi, enda hafi
það áhrif á ákvörðim verðjöfn-
unargjaldsins.“ (Lög um með-
ferð og sölu mjólkur og rjóma
o. fl. nr. 1 frá 7. jan. 1935. 2. gr.)
Af þessu verður ljóst, að allt
það fé, sem runnið hefur til
byggingarsjóðs mjólkurstöðvar-
ínnar — 1230 579,24 kr. — hefði
átt að renna í verðjöfnunarsjóð,
og er því úr homun tekið.
Hvert er hlutverk verðjöfn
unarsjóðs? *
I lögunum um mjólkursölu
segir segir svo um verðjöfnun-
arsjóðinn:
„Verðjöfmmarsjóðsgjaldið skal
vera til verðuppbótar á þá
mjólk, sem notuð er til vinnslu
á viðurkenndum mjólkurbúum,
sem starfa á verðjöfnunarsvæð-
inu, og slík verðjöfnun skal
jafnan fara eftir því sem við
verður komið, miðuð við það,
að aliir mjólkurframleiðendur
á verðjöfnunarsvæðinu fái sama
verð fyrir mjólk sína komna á
sölustað verðjöfnunarsvæðis-
ins“. (Lög nr. 1 frá 7. jan. 1935,
2. gr.). Það er því með öllu ó-
heimilt að ráðstafa því fé, sem
verðjöfnunarsjóði ber til ann-
arra nota en að verjafna mjólk.
Tillögur sósíalista.
Því hefur verið haldið fram,
að sósíalistar ætluðu að taka
réttmæta eign bænda af þeim
án endurjalds, er þeir leggja
til að bærinn yfirtaki mjólk-
ina. Tillaga sósíalista um yfir-
töku stöðvarinnar er þannig:
.ÍNú ákveður bæjarstjóm eða
hreppsnefnd að hagnýta sér sér
leyfisrétt sinn til sölu og dreif-
ingar á mjólk og mjólkurafurð-
um, samkvæmt 5. gr. hér að
framan, og tekur hún þá við
öllum eignum og réttindum, þ.
á. m. leiguréttindum þessarar
mjólkursamsölu, sem starfandi
kann að vera í umdæminu, með
skludum,sem á þeim kunna að
hvíla, og án annars endurgjalds.
Þau mjólkurbú eða þeir mjólk-
urframleiðendur, sem kunna að
hafa lagt fram stofnfé eða önn-
ur peningsframlög til mjólkur-
samsala eða annara mannvirkja
þeirra vegna, skulu fá það end-
urgreitt.‘
Samkvæmt þessu fá bændur
endurgreiddan hvern eyri, sem
þeir kimna að hafa lagt til
mjólkurstöðvarinnar, ef hærinn
tekur hana í sínar hendur sam-
kvæmt tillögum sósíalista.
Af framansögðu verður ljóst,
að mjólkursölunefnd hefur und
ir forustu Sveinbjöms Högna-
sonar, misnotað vald sitt til að
leggja á hærra verðjöfnunar-
Framh. 3. síðu.
segír Isvestía, adalmálgan sovétstjórnar-
innar. — Harðír hardagar vestan víð Dnépr
Akafir bardagar halda áfram
vestan Dnjeprfljóts, bœði á
Ísvestía, aðalmálgagn sovétstjómarinnar, birti í
gær ritstjómargrein um þríveldaráðstefnuna í
Moskva, sem hefst innan skamms.
Er lögð áherzla á að aðalvandamálið, sem nú bíði
úrlausnar, sé það að ljúka styrjöldinni á sem stytztum
tíma, og til þess þurfi nána samvinnu Bretlands, Sov-
étríkjanna og Bandaríkjanna. Þetta vandamál sé ó-
rjúfanlega tengt myndun nýrra vígstöðva í Vestur-
Evrópu.
Blaðið lætur þá von í ljós, að Moskvaráðstefnan
muni leggja drjúgan skerf til lausnar þessu vanda-
máli.
Kíeffsvæðinu og suðvestur af
Krementsúk.
Þýzki herinn veitir harðvít-
uga mótspymu og hefur gert
mjög harðar gagnárásir, eink-
um á Krementsuksvæðinu, en
Rússar hafa hrundið þeim öll-
um og sótt fram 5—10 km.
Norðaustur af Kíeff hefur
rauði herinn stækkað yfirráða-
svæði sitt, og suður af Gomel.
Syðst á vígstöðvunum er
einnig ákaft barizt, og hefur
enn ekki komið til úrslita í or-
ustunum um Melítopol. Gagn-
árásum Þjóðverja hefur verið
hrundið, og eyðilögðu Rússar í
gær 60 skriðdreka í suðvestur-
úthverfum borgarinnar.
Suður af Saporossi hefur
rauði herinn sótt fram 5—10
km. og tekið nokkra bæi og
þorp.
| Þjóðviljinn 8 síður!
Þeir
189 aftökur í Noregi
að sðgn nazistanna sjálfra
I
Með aftöku ^hina fimm gisla,
sem skýrt var frá í fyrradag,
hafa nazistayfirvöldin játað op-
inberlega aftökur 189 Norð-
manna.
Þar af hafa 57 verið skotnir
fyrir svonefnda „glæpi“ sem
aðrir hafa framið. Á 15 þeirra
voru engar ákveðnar sakir born
ar, nema „rangsnúinn hugsun-
arháttur“. Hinir 42 vóru líflátn
ir án þess að eiga sjálfir nokkra
„sök“, fyrir brot sem sagt var
að einhverjir aðrir hefðu drýgt.
Átján þeirra voru ungir Norð-
menn, sem búið var að halda í
fangelsi fyrir „tilraun til að
flýja til Englands “ Þeir voru
líflátnir í apríl 1942 í hefndar-
skyni fyrir tvo þýzka Gestapo-
menn, sem skotnir voru í Tele-
vaag.
Sósíalistaflokkurinn boðar til opin-
bers fundar í Reykjavík
Til umræðu: Dýrtíðin og landbúnaðarvísitalan —
Olíusalan — njólkurmáiið
*
Næstkomandi miðvikudagskvöld boðar Sameiningarflokk-
ur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn — til opinbers stjórnmála-
fundar í Listamannaskálaum.
i flokksmenn og aðrir, sem |
\ vinna að f jársöfnuninni til |
| stækkunar Þjóðviljans og \
I ekki komu til þess að skila |
I af listum sínum í gær, eru |
| vinsamlega beðnir að láta |
| nú ekki bregðast að koma í i
I dag. |
Í Skrifstofa Sósíalistaflokks-f
| ins á Skólavörðustíg 19, verð 1
[ ur opin í dag kl. 1—3.
Í Árangur söfnunarinnar eins i
I og hann verður eftir þennan |
i skiladag, verður hirtur í [
| þriðjudagshlaðinu. i
[ Flýtið fyrir stækkun Þjóð- \
[ viljans, með því að herða í
\ söfnunina í blaðsjóðinn. |
Hjáipið blindum
Á fundi þessum verða tekin
fyrir þau þrjú málin, sem nú
eru efst á dagskrá Ræðumenn
verða þrír þingmenn flokksins.
Brynjólfur Bjamason mun
ræða um dýrtíðarmálin og um
leiðir þær sem flokkurinn bend
ir á til úrlausnar á dýrtíðinni.
Mun hann í því sambandi sér-
Framh. á 4. síðu.
Merkjasala Blindravina-
félagsins
Blindravinafélagið hefur
merkjasölu í dag til ágóða fyrir
Blindraheimili.
Félagið hefur nú vinnustofu
fyrir blinda menn í Ingólfs-
stræti 16 og vinna þar 7 blindir
menn að burstagerð ogvefnaði,
vefa þeir gólfdregla, þurrkur
handklæði. Einnig vinnur þar
blindur piltur frá Akureyri,
sem er að læra dívanasmíði. 7
blindir menn búa þarna í hús-
inu, en 3 þeirra vinna annars-
staðar.
Húsið í Ingólfsstræti er hugs-
að sem millistig milli eigin hús
næðis óg leiguhúsnæðis.
Nauðsynlegt er að koma upp
heimili fyrir blint fólk, því
margt af því býr í slæmum
húsakynnum og hefur ekki að-
Framhald á 4. síðu.
Hlutavelta
Blindrafélagsins
Blindrafélagið hefur hluta-
veltu í dag á Laugaveg 22 A
(nýbyggingunni) og hefst hún
kl. 2.
Blindrafélagið er eins og nafn
ið ber með sér, félag hinna
blindu manna sjálfra, en þó
geta alsjáandi menn einnig ver-
ið í því sem styrktarfélagar.
Blindrafélagið hefur vinnu-
stofu í kjallara á Laugaveg 97
og er það húsnæði orðið alltof
lítið og ófullnægjandi á annan
hátt.
I vinnustofu þess vinna nú
7 blindir menn.
Einnig hefur félagið blindra-
bókasafn, sem það leggur á-
herzlu á að auka.
Fjárþörf félagsins er því
mjög knýjandi og ættu menn
því að leggja félaginu lið með
því að koma á hlutaveltu þess
í dag á Laugaveg 22 A.