Þjóðviljinn - 24.10.1943, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.10.1943, Síða 1
8. árgangur. Sunnudagur 24. október 1943. 238. tölublað. Á háskólahátíðinni í gær flutti Jón Hjaltalín Sigurðsson, háskólarektor, skýrslu um starf skólans á liðna starfsárinu, og fcaldi hann byggingu nýja stúdentagarðsins markverðasta atburð síðastliðins háskólaárs. Rektor skýrði frá, að á næsta ári yrði hafið, fyrir forgöngu háskólans, starf að mikilli íslenzki orðabók, sem ætlað er að ná yfir íslenzka tungu frá 1540 til vorra daga. Taldi rektor að hægt yrði að ljúka þessu verki á tíu árrnn. Munduð þið eftir að fl^Ha klukkunni Klukkunni var flýtt í nótt sem leið um eina klukkustund. Ef þið hafið gleymt að flýta henni ættuð þið að lagfæra það. Það kemur sér illa að hafa vitlausa klukku. PfzM herínn hrabínn úr ðflugusíu varnarsfðdínní i Sudur~Ukraiiiu& iisHfiliBi nlnlr lll RUftr uHr ís- leiitt lál trí 150 lit nm lois Bygging nýja stúdentagarðsins „óvenjulegt afrek", segir háskólarektor Rektor taldi síðastliðið há- skólaár hafa verið atburðalítið og rólegt, en dálítið hefði syrt að síðustu mánuðina, eins og ó- veður væri í vændum. Hann hefði í setningarræðunni í fyrra haust talið að í háskólamálum mundi heppilegast að fara með löndum, treysta það nýja og endurbæta, en ráðast ekki 1 neinar stórfelldar nýjungar, og hefði þeirri stefnu verið fylgt. Breytingar á kennaraliði háskólans Árni Pálsson prófessor í ís- lendingasögu, lét af embætti í haust fyrir aldurs sakir, og hafði gegnt því starfi frá hausti 1931. — f embætti hans hefur verið settur dr. Jón Jóhannes- son. Gunnar Thóroddsen var skip- aður prófessor í lögum 22. okt. sl., en hann hefur starfað sem settur prófessor 1 nokkur ár. Settur hefur verið kennara- stóll í sænsku, og verður hann kostaður af Svíum og íslend- ingum sameiginlega. Var von á sænskum lektor hingað í haust, en koma hans hefur dregizt. Húsnæði stúdenta Byggingu nýja stúdentagarðs ins taldi rektor óvenjulegt af- rek, og væri byggingin fagur vitnisburður um örlæti íslend- inga og skilning bæja- og sveitastjórna á menningarmál- um. Nýi stúdentagarðurinn var fullgerður í september þessa árs, og fengu um 100 stúdentar þar húsnæði, en tveir verða að búa í herbergjum sem einum eru ætluð. Síðastliðið haust rýmdi Menntaskólinn úr háskólahús- inu. og fengu þá um 40 stúd- entar húsnæði í efstu hæð húss- ins, og starfsstúlkur mötuneyt- isins í tveimur herbergjum Þetta húsrúm verður í vetur notað til verkfræðinga- og tannlæknakennslu. Nýjar kennsludeildir Rektor minntist á nýju kennsludeildimar, kennsla í viðskiptafræði var upp tekin fyrir tveim árum, og notið mikillar aðsóknar. í þrjú ár hefur farið fram í háskólanum undirbúningskennsla í verk- fræði, sem að öllu leyti er sam- bærileg kennslu í verkfræðiskól um Norðurlanda. í vor útskrif- uðust sex stúdentar úr þessari undirbúningsdeild. Nemendurn- ir óskuðu eindregið eftir því að halda áfram náminu hér á landi og hefur háskólaráðið á- kveðið að láta halda uppi kennslu til fullnaðarprófs _í byggingarverkfræði, og gæti það orðið vísir að reglulegri verkfræðideild við háskólann. í vetur stunda 24 stúdentar verkfræðinám við háskólann. Háskólaráð fór fram á 50 þús. kr. fjárveitingu til þess að koma upp undirbúningsdeild í náttúrufræðum, en fjárveitinga nefnd Alþingis sá sér ekki fært að mæla með fjárveitingunni. Orðabókin Ákveðið hefur verið að veita 20—40 þús. kr. á ári úr Sátt- málasjóði til að semja full- komna orðabók yfir íslenzkt mál, frá 1540 til vorra daga, en á slíkri orðabók er mikil nauð- syn. Alþingi hefur oft veitt fé til þessa starfa, en það hefur verið í molum hingað til. Er Framhald á 4. síðu. Sovétskriðdrekar leggja til orustu. Melitopol, öflugasta varnarstöð þýzka hersins í Suð- ur-Úkraínu, er á valdi rauða hersins. Stalín tilkynnti þennan stórsigur í dagskipun til hersins síðdegis í gær, og var sigursins minnzt í Moskva með því að skotið var úr 224 fallbyssum. Um Melitopol liggur aðaljámbrautin frá Krím, og hefur þýzka herstjórnin sent þangað mikið varalið og ógrynni hergagna, í þeirri von, að takast mætti að halda borginni. Þjóðverjar gera sér fyllilega ljóst, hvað miss- ir Melitopol getur þýtt fyrir þýzka herinn á Krim og við ósa Dnjeprfljótsins, ef dæma má eftir ummælum þýzka útvarpsins síðustu dagana. Síðustu bardagarnir í Meli- topol gáfu í engu eftir bar- dögunum undanfarna daga. Var barizt umhvert hús og hverja götu í norðurhverfun- um, sem Þjóðverjar vörðust í þar til í gær. Vaxandi óánægja meðal þýzkra verkamanna Hörð loftárás á Kðssel Norskir flugmenn skutu niður 9 þýzkar flugvélar vikuna sem leið Sprengjujlugvélar frá Bret- landi gerðu í fyrrinótt harða loftárás á þýzku borgina Kassel. Var 1500 tonnum sprengna varpað yfir borgina. Samtímis voru árásir gerðar á Frank- furt am Main og fleiri borgir x Vestur-Þýzkalandi. Bandamenn misstu 45 sprengjuflugvélar í árásunum þessa nótt. Tilkynnt var í brezka útvarp- inu í gærkvöldi, að norskir flugmenn hafi skotið niður 9 þýzkar flugvélar vikuna sem leið, án þess að nokkur norsk flugvél hafi farizt. Stórskotalið Rússa átti mik- inn þátt í að brjóta mótspyrnu þýzka liðsins, og stormovik- steypiflugvélar héldu uppi lát- lausum árásum á stöðvar Þjóð- verja í borginni, þrátt fyrir óhagstætt flugveður síðustu dagana. í miðnœturtilkynningu sovét- herstjórnarinnar segir, að rauði herinn hafi breikkað að mun fleyginn í vamarsvæði Þjóð- verja í Dnéprbugðunni. Suður af Kieff hratt rauði herinn gagnárásum Þjóðverja, og norður af borginni sótti rauði herinn fram nokkra kíló- metra í gær. Gústaf Sobottka, fyrrverandi leiðtogi kolanámamanna í Ruhr í Þýzkalandi, en nú meðlimur í félagsskap frjálsa Þjóðverja, fullyrðir, eftir að hafa átt tal við þýzka herfanga, að aðeins ofsóknir leynilögreglunnar hindri námamenn i Ruhr í að láta í ljós hatur sitt á Hitler og ósk sína eftir friði. Meðal fanga þeirra, sem Sobottka tal- aði við, voru fyrrverandi náma- menn frá Bochum, Ruhr. Dort- mund og Helsenkirchen. Fjórum árum eftir valdatöku nazista var vinnutíminn lengd- ur upp í 8% klukkustund. Seinna voru sett ákvæði, sem bönnuðu hverjum verkamanni að yfirgefa námurnar fyrr en hann hafði lokið ákveðnu dags- Lloyd Georgefkvænist Lloyd George, hinn kunni brezki stjómmálaleiðtogri, kvæntist í gær konu að nafni Frances L. Stevenson, er ver- ið hefur einkaritari hans í 30 ár. Fyrri kona Lloyd Georges lézt 1941. verki. Þetta dagsverk var haft svo mikið, að vinnudagurinn var að meðaltali 10 stundir á dag. Afleiðingar langs vinnu- tíma, lágra launa og ónógrar fæðu komu brátt í ljós. I Ruhr höfðu sj'úkdómar af völdum fæðuskorts og lélegra heilsu- verndarráðstafana verið 6 af hundraði árið 1932. Nú eru þeir 40 af hundraði.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.