Þjóðviljinn - 27.10.1943, Side 1
Raudí hcrínn íchm bæ, 30 km. suðvesfuir af Dnépsro~
pefrovsk og sækír hraff fram á Melífopolsvæðínu
\
Á þremur svæðum suðurvígstöðvanna eru her-
sveitir Þjóðverja á skipulagslitlu undanhaldi fyrir hin-
um sigursæla sovéther: í Dnéprbugðunni, við Krivoj
Rog og á Melitopolsvæðinu.
í Dnéprbugðimni sóttu Rússar hratt fram í gær
og tóku bæinn Solenoje, 30 km. suðvestur af Dnépro-
petrovsk.
Suðaustur af Krivoj Rog tóku Rússar bæ einn, 4
km. frá borginni, en bardagar halda áfram í norður-
úthverfum borgarinnar.
Frá Melitopol sækja Rússar bæði til norðvesturs
og suðvesturs, og hefur Þjóðverjum ekki tekizt að
stöðva sóknina, enda þótt þeir hafi 25 herfylki til varn-
ar á þessum vígstöðvum.
Útbúnaður þjóðleik-
hússins fenginn frá
Ameríku
Það var öllum íslenzkum
listunnendum gleðiefni, þegar
fréttist af því að þjóðleikhús-
ið yrði hrátt fengið íslending-
um i hendur.
Jafnframt kom fram krafa
um það, að þegar yrði hafizt
handa með að fullgera húsið.
Húsameistari ríkisins hefur
nú skýrt frá því, að hann hafi
snúið sér til íslenzka sendiherr-
ans í Washington um aðstoð við
útvegun margvíslegra hluta til
þess að hægt verði að Ijúka við
þjóðleikhúsið.
Munu ljósatæki, áhorfenda-
stólar og hljóðeinangrunartæki
í þjóðleikhúsið verða fengin frá
Ameríku, ennfremur bækur frá
Ameríku og einnig Englandi
um nýjasta fyrirkomulag leik-
húsa.
Nýi tímínn
Nýi tíminn 13. tbl. 1943, er
fyrir skömmu kominn út.
Þar er rækilega skýrt frá
frumvarpi sósíalista um að
bæjunum sé heimilt að taka
sölu og dreifingu mjólkur í
sínar hendur. Þá er skýrt frá
afstöðu Sósíalistaflokksins til
bænda, en eins og kunnugt er
stunda sveitablöð Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins mjög þá iðju að rægja Sós-
íalistaflokkinn fyrir íbúum
sveitanna.
„Innan tíu ára“ heitir grein,
sem fjallar um frumvarp Fram-
sóknarmanna um breytingu á
jarðræktarlögunum og er stefna
Framh. á 4. síðu.
í gær og fyrradag var byrj-
að að reyna dælustöðina að
Reykjum í Mosfellssveit. Verð-
ur því næst farið að reyna
leiðsluna frá Reykjum, einkan-
lega hvort þenslustykkin eru í
lagi. Verður reynslan frá Reykj
um þannig reynd í ákveðnum
köflum í einu.
Að því loknu verða heita-
vatnsgevmarnir í Öskjuþlíðinni
Það er nú ljóst orðið að þýzki
herinn í Dnépropetrovsk var I
þann veginn að hefja gagnsókn
gegn sovéthersveitunum vestan
Dnéprfljóts, en Rússar urðu
fyrri til og náðu borginni og
geysimiklu af hergögnum er
safnað hafði verið saman þar til
sóknarinnar.
Bandamenn sækja
fram á Ítalíu
Bæði á vestur- og austurvíg-
stöðvum Italíu veitiv Banda-
mönnum betur, og hafa sótt
fram nokkra kílómetra, að því
er segir í enskum fregnum.
Sprengjuflugvélar Banda-
manna gerðu enn harðar árásir
á stöðvar Þjóðverja í Júgó-
slavíu.
reyndir og síðan aðalæðarnar í
bænum, og þá aðallega þenslu-
stykkin. Síðast verða leiðslurn-
ar í húsin reyndar.
Komi einhverjar misfellur á
hitaveitukerfinu í ljós má bú-
ast við töfum á því að hitaveit-
an verði tekin í notkun, en reyn
ist hitaveitukerfið vera í lagi,
má búast við að hitaveitan verði
tekin í notkun áður en langt
um líður.
Rússneskur herfræðingur
sagði í Moskvaútvarpið í gær,
að þýzki herinn í Dnéprbugð-
unni væri nú verr staddur en
nokkru sinni. Vetrarvarnarlína
Þjóðverja víða rofin, og mikið
af birgðum þeim sem Þjóðverj-
ar höfðu flutt til vígstöðvanna
er fallið í hendur Rússa.
Engar tilkynningar enn
um þríveldaráðstefnuna
Enn hefur ekkert verið til-
kynnt um gang mála á þrí-
veldaráðstefnunni í Moskva.
Brezk blöð rita mikið um ráð-
stefnuna og segir Evening
Standard t. d. að „allt mann-
kynið vænti mikils af ráðstefn-
unni, og það ekki að ástæðu-
lausu“.
Bergeret fyrrverandi
yfirmaðnr franska
flughersins band-
tekinn í Alsír
Tilkynnt er frá Norður-Afríku
að Bergeret fyrrverandi yfir-
maður franska flughersins hafi
verið tekinn höndum sam-
kværrtt fyrirskipun frönsku
Þjóðfre Isisnefndarinnar.
Bergeret var Vichy-sinni, en
hafði seinna gegnt háum em-
bættum í Afríku, m. a. verið
yfirmaður franska flughersins
í Vestur-Afríku og eftir víg
Darlans verið háttsettur em-
bættismaður hjá Giraud. Tek-
ið er fram, að Bergeret sé ekki
borinn neinum nýjum sökum.
Hermaður gerir árás
á bifreiðarstjóra
Bifreiðarstjóri úr Hafnarfirði
verður fyrir árás setuliðsmanns
við Bústaðaveg. Tilræðismaður
inn mun vera ófundinn.
Um síðustu helgi var bifreiða
stjóri í Hafnayfirði, Hallgrímur
G. Björnsson að nafni, að aka
tvéim setuliðsmönnum í tiltekn
ar herbúðir. Ók hann eftir
Sléttuvegi og er hann ætlaði að
beygja inn á Bústaðaveg veit
hann ekki fyrr.til en annar her-
maðurinn slær hann högg mikið
aftan frá, svo hann svimaði.
Missti hann nú stjórn á bifreið-
inni svo hún rann út af vegin-
um, heppnaðist honum að kom-
ast. út úr bifreiðinni, en þá
réðist sami hermaðurinn á hann
og barði hann Hallgrím þar til
hann hrópaði á hjálp, en þá
lögðu báðir hermennirnir á
flótta.
Maður, er bjó í húsi þarna
skammt frá kom þarna að og
veitti hann Hallgrími hjálp.
Hringdi maður þessi til lögregl
unnar í Hafnarfirði og tilkynnti
árásina.
Setuliðsmenn þessir eru ó-
fundnir enn, en lögreglan hefur
von um að þeir náist.
Enn hefur Rithöfundafélagið
ekkert merki, en helzt er í ráði
að það taki upp sem merki sitt
gamlan galdrastaf er , Hólastaf-
ur“, var nefndur.
Vafalaust munu þessar bæk-
ur komast í gott verð, en ætl-
unin er að bjóða þær upp á
árshátíð Rithöfundafélagsins
eða Bandalags ísl. listamanna.
Auk „galdrastafsins“ verða
þær áritaðar af höfundum.
Stjórn Rithöfundafélagsins
skipa nú þeir Magnús Ásgeirs-
Tilkynnt er frá Noregi, að 2
Norðmenn hafi verið skotnir
úti á götu af Þjóðverjum.
Hinn 11. október var þýzkur
lögreglumaður (Gestapo) á leið
í fangelsi með 2 fanga. Annar
þeirra lagði á flótta og lögreglu-
þjónninn skaut á hann 2 skot-
um og hitti annað þeirra mann-
inn í mjóhrygginn, og féll mað-
urinn á götuna. Þjóðverjinn
reyndi nú að yfirheyra hann,
þar sem hann lá, en án árang-
urs. Vegfarandi reyndi með að-
stoð starfsfólks í nálægri lyfja-
búð að búa um sár mannsins,
en Þjóðverjinn bannaði það.
Aðfaranótt 12. október var
Norðmaður drepinn, er varð-
maður skaut á nokkra menn,
' sem gengu á götu. Varðmaður-
inn afsakaði sig seinna með því,
að hann hefði haldið að þeir
væru innbrotsþjófar.
Hinn 17. september var Norð-
maðurinn Monclair tekinn af
lífi. Hafði hann verið dæmdur
til dauða fyrir brot á skömmt-
unarákvæðum.
Leiðinleg gleymska
hjá Alþýðublaðinu?
í sambandi við ummæli í
leiðara Alþýðublaðsins í gær,
þar sem rætt er um olíumálið,
er rétt að minna Alþýðublaðið
á, að það voru tveir Alþýðu-
flokksmenn, þeir Emil Jónsson
og Ásg. Ásg. sem hjálpuðu aft-
urhaldsflokkunum til að tefja
tillögur sósíalista í olíumálinu
og láta þær fá þá afgreiðslu er
þær fengu. Það væri rétt að Al-
I þýðublaðið rifjaði þetta upp, ef
það skildi hafa gleymt því, eins
og útlit er fyrir.
Orusta á Norðursjó
Um 30 þýzkir E-bátar réð-
ust í gær á enska skipalest út
af austurströnd Englands. Sló í
snarpan bardaga og voru þýzku
bátarnir hraktir á flótta eftir
að nokkrum hafði verið sökkt.
i son, Sigurður Helgason, Friðrik
I Á. Brekkan, Halldór Kiljan
Laxness og Halldór Stefánsson.
25 ára aftnæli
Tékkoslovakíu
í gær voru liðin 25 ár síðan
lýst var yfir stofnun hins Tékkó
slovakiska lýðveldis, er þá
hafði verið stofnað upp úr rúst-
um hins austurríska keisara-
dæmis. Var dagsins minnst há-
tíðlega í London í gær.
Verflur tiitaveitan tekin í notk-
un á næstunni?
Þessa dagana er verið að reyna hina ýmsu hiuta hitaveit-
unnar frá Reykjum.
Komi engar misfellur í ljós á leiðslukerfinu má búast við
að hitaveitan verði tekin í notkun á næstunni í þeim bæjar-
hverfum þar sem hitalögninni er lokið.
Gamall galdrasfafur merkí
Rifhöfundafélagsíns
Nýung £ fjáröffnn fyrír félagíð
Rithöfundafélagið hefur í hyggju að taka upp nýung 1 út-
gáfu á bókum félagsmanna sinna.
Er það í því fóigið að prenta merki félagsins á allt að 7
eint. nýrra bóka eftir félagsmenn og bjóða þau síðan upp til
fjáröflunar fyrir félagið.
i