Þjóðviljinn - 18.11.1943, Síða 1
HALLDÓR KILJAN LAXNESS
ritar grein á 3. síöu:
„Gagnrýni og menning“.
8. árgangur.
Finuntudagur 18. nóv. 1943.
260. tölublað.
Barízt í lifhverfum borgarínnar Ríklfsa
Rauði heriim hefur, þrátt fyrir erfið sóluiar-
skilyrði, þokast nær Gomel. í gærmorgun voru þeir
á einum stað innan við 10 km. frá borginni. Ligg-
ur borgin og járnbrautin til norðvesturs, sem er síð-
asta samgönguæð hennar, er Þjóðverjar hafa á sínu
valdi, undir skothríð rússneska stórskotaliðsins.
Seinna í gær bárust fréttir um að Þjóðverjar
væru byrjaðir að flytja lið frá Gomel, en talið mjög
ólíklegt, að þeir mundu geta komið nema litlu und-
an af því.
í nágrenni Rikitsa tók rauði herinn marga staði
í gær, og eru nú háðir bardagar í vestur-úthverfum
hennar.
Rauði herinn er nú kominn að úthverfum Kor-
osten að austan.
Rússar segjast hafa bætt að-
stöðu sína á vesturbakka Sosj
fyrir norðan Gomel. í gær tóku
þeir nokkur þýzk virki í ná-
grenni borgarinnar.
Rikitsa er á járnbrautinni vest
ur af Gomel í um 40 km. fjar-
lægð. Er hún á vesturbakka
Dnjepr.
Á norðurhluta Kieffvígstöðv-
anna tóku Rússar í gær yfir 30
þéttbyggð svæði og nokkra smá
bæi. En sunnar, á milli Sítomír
og Fastoff, yfirgáfu þeir í gær
nokkra staði eftir margra daga
ákafar gagnárásir Þjóðverja, er
oft hafa verið nefndar í fréttum
undanfarna daga. Var það til-
gangur Þjóðverja að neyða
Rússa til að draga lið frá norð-
ur hlufa þessara vígstöðva. En
þeim varð ekki kápan úr því
klæðinu eins og sókn Rússa þar
sýnir.
Poul Winterton símar frá
Moskva, að á svæðinu milli
Korosten og Rikitsa, báðum
megin við Pripet-fenin, séu
margir þýzkir herflokkar, sem
búast megi við að verði inni-
króaðir þá og þegar. Eru þeir
aðallega á þrem stöðum.
I Dnéprbugðunni tóku Rúss-
ar í gær marga vel víggirta
staði, þ. á m. bæinn Tomakofka,
um 35 km. norðaustur frá Niko
pol.
í gær eyðilögðu Rússar 146
skriðdreka og 14 flugvélar fyr-
ir Þjóðverjum.
Tfo ðn ðsllin dsi trliii idnaOar f Kína
Tilætlunin að Kína verði á næstu áratugum eitt
mesta iðnaðarland í heimi.
Kínverska stjórnin er að láta semja tíu ára áætlun um þró-
un kínversks iðnaðar. Er hún fyrsta sporið í einni allsherjaráætl-
un, sem búizt er við að taki 30—50 ár að framkvæma.
Þegar áætlanimar em bomar saman við áætlanir Sovét-
ríkjaima er fyrirsjáanlegt, að Kína mun verða efnahagslega
meðal fremstu ríkja lieimsins.
Sumum Vesturlandabúum
kann að virðast áformin heldur
hæpin, segir 1 brezkri fregn, en
Kínverjar benda á afrek Sovét-
ríkjanna og halda því fram, að
áætlanir sínar séu.ekki djarfari
en áætlanir Rússa, sem báru
jafnglæsilegan árangur á 25 ár-
um.
Sem svar við hugsanlegun^
ótta Breta við, að Kínverjar
muni, ef iðnaður þeirra verður
stórfehdur, geta undirboðið
Breta á heimsmarkáðinum
vegna ódýrs vinnuafls í Kína,
benda talsmenn Kínverja aftur
til Sovétríkjanna, sem voru svo
önnum kafin við að fullnægja
M3 dansliip Hommúnisfap
f izkip fi
Jökulhlaup á Skeið-
arársandi
Súla á Skeiðarársandi hefur
stöðugt farið vaxandi undan-
farna 12 daga. Enn hefur áin
þó ekki brotið af sér jökulinn og
„hlaupið“.
Allur sandurinn er undir
vatni svo langt sem séð verð-
ur frá Núpsstað, sem er næsti
bær fyrir vestan Skeiðarársand.
Enn hefur þó enginn síma-
staur á sandinum brotnað, þrátt
fyrir stöðugt vaxandi vatn.
Áin heldur enn áfram að auk
ast.
Skozkir og brezkir náma
menn treysta samtök
sín
Skozkir námumenn hafa nœst
um einróma samþykkt með
leynilegri atkvœðagreiðslu að
sameina 6 félög sín í eitt sam-
band skozlcra námumanna.
Umrœður fara nú fram um
myndun eins sambands fyrir
brezka námumenn, sem komi í
stað hins lauslega samtengda
bandalags, sem nú er.
Búizt er við, að bráðlega ná-
ist samkomulag um náin tengsl
einstakra náma í Bretlandi við
vissar námur í Sovétríkjunum.
í þeim felst m. a., að brezku
námumennirnir munu heim-
sækja verkamennina í rúss-
nesku námunum, og Rússarnir
heimsækja svo aftur Bretana.
William Lawther, forseti
Bandalags námamanna talaði í
Evrópuútvarp brezka útvarps-
ins nýlega um þessi áform. í
samtali við blaðamenn sagði
hann: „Þetta samkomulag mun
verða stórt skref fram á við,
ekki aðeins fyrir námamenn,
heldur líka' fyrir alla verka-
menn í báðum ríkjunum. Við
erum sannfærð um, að því bet-
ur, sem við og Rússar kynn-
umst, því nær munum við vera
því að skilja verkefni dagsins
og möguleika framtíðarinnar“.
þörfum heimalandsins, að út-
flutningur þeirra rétt fyrir stríð
ið var minni en útflutningur
Danmerkur. Ennfremur muni
kaup kínverskra verkamanna
hækka með tímanum og verða
jafnhátt kaupi því, sem almennt
verður goldið á Vesturlöndum.
Aksel Larsen og Nartin Níelsen meðal þeirra
Danskir komnuinistar fá engu síður en Gyðingar að kenna
á ofsóknum Þjóðverja.
Sænska blaðið Dagens Nyheter upplýsti 22. okt., að 143
danskir kommúnistar liefðu verið fluttir úr landi ásamt Gyðing-
unum. Um 20 þeirra voru konur. Kommúnistarnir voru látnir
í þræikunarfangabúðir í Stutthof nálægt Danzig.
Á meðal þessara kommúnista
voru: Þingmennirnir Aksel Lar-
sen og Martin Nielsen; formað-
ur Járnsmíðasveinafélagsins,
Ove Kjeldsen; Tomas Christ-
ensen, starfsmaður bæjarins í
Árósum ;Thor Vang, meðlimur
stjórnar Sjómannasambandsins;
Ludvig Gamburg, meðlimur
stjórnar Félags hafnarverka-
manna og Ragnhild Andersen,
kunnur verkakvennaleiðtogi.
Tillaga um hækkun á
taxta rafveitunnar
Á bæjarstjómarfundi í dag
verður tekin fyrir tillaga raf-
magnsstjóra um hækkun á
gjaldskrá rafveitunnar.
Er það hækkun á töxtum til
hitunar, en rafmagnsstjóri er
jafnframt fram á að tekið verði
til athugunar að hækka taxtana
almenn, en tillögu um það var
vísað frá 1 fyrrahaust.
Meirihluti þeirra hafði verið
í haldi í „nýrri deild“ í fanga-
búðum í Horseröd, en afgang-
urinn í Vestre-fangelsi.
Níutíu og sjö kommúnistum,
sem voru í fangabúðunum í
Horseröd, tókst að flýja.
Amerískur hermaður
bjargar sjómanni frá
drukknun
Charles Kennedy, sergent í
ameríska hernum, bjargaði á
þriðjudaginn sœnskum sjó-
manni, sem stökk í sjóinn af
skipi við höfnina.
Sjómaðurinn hefur lengi und
anfarið ekki verið heill heilsu
og er talið að hann hafi ætl-
að að fyrirfara sér.
Þgóðvíljasöíntmin kominyfír
70 þúsund krónur
Tveir sjómenn á togara söfnuðu 1500 krónum.
Þjóðviljasöfnunin er komin yfir 70 þúsund, og er nú jafn
og stöðugur skriður ltominn á hana, þó hann mætti vera enn
þyngri og þurfi að vera það.
Tvéir sjómenn á togara hafa safnað 1500 krónuni.
Söfnunin á einstökum stöðum er sem hér segir:
Reykjavík ..................... 60 432.11 kr.
Hafnarfjörður .................... 965.00 —
Siglufjörður ................. 1 200.00 —
Akureyri ....................... 1 000.00 —
Vestmannaeyjum ................. 1 000.00 —
Selfoss ........................ 1 000.00 —
Húsavík .......................... 296.00 —
Fáskrúðsfjörður .................. 280.00 —
Neskaupstaður .................... 300.00 —
Tálknafjörður .................... 200.00 —
Raufarhöfn ....................... 127.00 —
Hveragerði ....................... 120.00 —
Vopnafjörður .................... 60.00 —
Vallahreppur í N.-Múlasýslu ...... 150.00 —
67 130.11 kr.
Styrktarloforð ................. 2 960.00 —
Samtals 70 090.11 kr.