Þjóðviljinn - 19.11.1943, Blaðsíða 1
8. árgangnr.
SÓSÍALISTAR!
Munði fundinn í kvöld!
Lesið auglýsinguna á 6.
síðu!
lltineitai nui kosta al lirasla
H 33 UliiP httl
Paö setn áæflað var i júlí aö mundí kosfa s mílSjónir
nú áæffaö 14 miflí. — 3 menn endurskoða reíkningana
heA íefiflp bsra-
HDFOsten di Rihitsa
Gagnárásum Pjóðverfa suðvesfur
af Sífomír hrundið
Stalín marskálkur gaf út í gær 2 sérstakar dag-
J
Borgarstjóri skýrði frá því á funði bæjarstjórnar í gær, að
hitaveitan mundi kosta að minnsta kosti 33 milljónir kr. f þess-
ari upphæð er talið efni, sem liggur í Kaupmannahöfn og hefur
verið metið á 1,5 milljónir, og heimæðagjöldin 3,8 milljónir, en
þau borga húseigendur sem kunnugt er.
Af þessari upphæð kvað borgarstjóri ca 15,8 milljónir vera
vinnulaun, 10,3 milljónir efni og 0,8 milljónir vegna borana á
Reykjum.
Borgarstjóri kvaðst mxmdi bera fram ósk um að fulltrúar
flokkanna í bæjarstjóm tilnefndu sinn mann hver til að end-
urskoða reikninga hitaveitunnar áður en Höjgaard & Schultz
skiluðu þeim af sér.
Steinþór Guðmundsson, Sigfús Sigurhjartarson og Jón Axel
gagnrýndu harðlega liroðvirkni þá, sem komið hefur fram í áætl-
unum hitaveitunnar, og töldu að fenginni reynslu allar líkur
til að hún myndi fara langt fram úr þessari síðustu áætlun.
Viðvíkjandi fjárhagsáætlun
fyrir hitaveituna taldi borgar-
stjóri, að rekstur hennar þyrfti
ekki, að svo stöddu að minnsta
kosti, að standa undir hærra
stofnfé, en 25,6 millj. kr. því
frá hinum áætluðu 33 milljón-
um mætti draga heimæðagjald,
3,8 milljónir, efni það, sem ligg
ur í Kaupmannahöfn er deilt
um hvort eigi að teljast eign
bæjarins eða Höjgaard & Schu-
Itz, það er metið á 1,5 millj.,
800 þús., sem varið hefði verið
til borana á Reykjum og tolla
að upphæð 1,3 milljón, sem rík-
isstjórnin hefði fallizt á, að ekki
yrði greiddir að svo stöddu. Af
þessu 25,6 milljónum kvað hann
þegar samið um 15,5 milljónir,
væri það danska lánið, að upp-
hæð 5,5 milljónir og lánið, sem
Landsbankinn veitti síðastliðið
haust 10 milljónir. Þegar væri
samið við Landsbankann um
þriggja milljón króna skuld, er
standa mætti ósamningsbundin
til ársloka 1944, úr framkvæmda
sjóði bæjarins væri hugsanlegt
að lána hitaveitunni 3 milljónir
og sjúkrasamlagið hefði boðizt
til að kaupa hitaveituskulda-
bréf fyrir um 1 milljón kr., og
væri þá raunverulega ekki óráð
stafað með öllu nema ca. 3
milljónum. Með þeim áætlun-
um, sem gerðar hefðu verið um
taxta hitaveitunnar ætti að
vera hægt að borga af henni
2,5 milljónir króna á ári.
Steinþór Guðmundsson, Sig-
fús Sigurhjartarson og Jón A.
Pétursson gagnrýndu harðlega
þær gífurlegu skekkjur, sem
fram hefðu komið í áætlun
um hitaveituna. í júlí í sumar
hefði verið gerð áætlun um að
kosta mundi 8 milljónir að
ljúka verkinu, en í október
hefði þetta sama verk verið á-
ætlað á 14 milljónir, og svo virt
ist sem þessar áætlanir færu
dag-hækkandi og væri sjálf-
sagt að gera ráð fyrir að kostn-
aðurinn færi -enn langt fram úr
áætlun.
Katrín gerði ýtarlega grein
fyrir hve frábærilega lélegt
það bráðabirgðahúsnæði væri,
sem fjöldi manna yrði nú að
búa í hér í bæ. Einkum taldi
hún ástandið slæmt á Hótel
Heklu. Meðal annars kvað hún
sjómannsfjölskyldu búa þar í
einu herbergi. Það upplýstist í
umræðunum. að þessi fjöl-
skylda hefði verið hrakin úr
Brezki fasistaleiðtog-
inn Oswald Hosley
látinn laus
Brezki jasistaleiötoginn Sir
Oswald Mosley hefur nú veriö
látinn laus af brezkum stjórn-
arvöldum „af heilbrigðisástœö-
um“.
Fulltrúar 20000 verksmiðju-
verkamanna fóru í gær á fund
Churchills í Downingstreet 10
og mótmæltu eindregið að hann-'
væri látinn ganga laus. Mót-
mæli bárust frá mörgum öðr-
um verkamannafélogum og sam
böndum.
Mosley hefur, eins og áður er
getið í fréttum, setið í varðhaldi
síðan í byrjun stríðsins. Hann
er af aðalsættum og stórauð-
ugur.
sæmilegu húsnæði inn við EU-
iðaár og hefði því síðan verið
breytt í hænsnahús.
Katrín benti á, hve gífurleg
eldhætta væri á Hótel Heklu,
ekki sízt þar sem fjöldi karl-
manna svæfi í salnum á fyrstu
hæð, og mundu þeir ekki ætíð
fara sem varlegast með eld.
Börnin kvað hún ekki hafa ann
Framh. á 8. síðu.
Sjö manna fjölskylda í einu herbergi.
Nefndin geri tillögur til úrbóta.
Katrín Pálsdóttir bar fram eftirfárandi tillögu á fundi bæj-
arstjómar í gær:
„Bæjarstjóm samþykkir, að þriggja manna nefnd, skipuð ein-
um fulltrúa frá hverjum þeirra þriggja flokka, sem fulltrúa eiga
í bæjarstjóm, athugi bráðabirgðahúsnæði það, sem allmargar fjöl-
skyldur dvelja nú í hér í bæ og geri tillögur um nauðsynlegar
umbætur á því.“
Tillagan var samþykkt með samhljóða atkvæðum.
skipanir.
Sú fyrri tilkynnti, að 1. úkrainski herinn hefði þeg-
ar kvöldið áður tekið borgina Korosten. Yfirmaður hers-
ins er Vatútin hershöfðingi.
Síðari dagskipunin tilkynnti töku Rilritsa á Gomel-
vígstöðvunum. I»á borg tóku hersveitir undir stjóm
Rokossovskis hershöfðingja. í nágrenni borgarinnar
voru teknir meir en 30 bæir og þorp.
Sigrunum var fagnað tvisvar í gær í Moskva með
fallbyssuskotum. Var skotið 12 skotum úr 124 byssum
í hvort sinn.
í dagskipun Stalíns var sagt,
að Korosten sé afarþýðingar-
mikil samgöngumiðstöð og hefði
verið mjög mikilvægt þýzkt
varnarvirki. Um hana liggja m.
a. járnbrautirnar milli Kieff og
Varsjá, höfuðborgar Póllands,
og á milli Leningrad og Odessa.
Höfðu Rússar reyndar rofið
báðar þessar járnbrautir áður.
Hafa Þjóðverjar nú enga járn-
braut á valdi sínu til flutninga
á milli suður- og norðurvígstöðv
anna, fyrr en um 150 km. vest-
ar, og er stór kafli af henni inn-
Framh. á 8. síðu.
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokksmenn
ganga að ókjðmm Landsbankans
Bærinn borgar bankanum 228 þús. kr. í þóknun fyrir
að útvega tvö lán að upphæð 11,4 milljónir króna.
Bæjarbúar greiða Landsbankanum nú árlega 1,2 millj.
kr. í vexti
Bæjarstjórn samþykkti í gær að taka 6 milljóna króna lán
til 20 ára vegna Sogsvirkjunarinnar með jöfnum afborgunum
og 4% vöxtiun, og 5,4 milljón vegna rafmagnsveitunnar til 10
ára með sömu kjörum. Landsbankinn útvegar lánin og fær í
þóknun 228 þús. kr.
Sigfús Sigurhjartarson gagnrýndi þessi lánskjör og sýndi
fram á, hve óheppileg væri sú sérstaða sem Landsbankinn hefði
meðal banka og sparisjóða landsins, og lagði í því sambandi
fram eftirfafrandi tillögu:
„Bæjarstjóm telur, að sérstaða sú, sem Landsbankinn hefur
meðal banka og sparisjóða landsins sé óeðlileg og óheppileg, og
beinir því til þingmanna Reykjavíkur að beita sér fyrir breyt-
ingum á Landsbankalögunum í þá átt, að rétturinn til seðlaút-
gáfu verði falin sérstakri stofnun og, að bankaráðið verði á hverj-
um tíma skipað í samræmi við flokkaskipun á Aþingi.“
Tillagan var felld með 7 atkvæðum gegn 4.
Sigfús sýndi fram á að kjör
þau, sem bærinn yrði að sæta
á þessum lánum, væru mjög
slæm, þegar að því væri gætt,
að svo mikið fjármagn væri nú
til í landinu, að það væri ekki
nærri allt í umferð heldur lægi
rentulaust í stórum stíl. Hann
kvað þetta sumpart stafa af því
að bærinn hefði einhliða hald-
ið sig að samningum við Lands
bankann, en fyrst og fremst af
hinu, að Landsbankinn hefði þá
Framh. á 8. síðu.