Þjóðviljinn - 04.12.1943, Side 1
1
8. árgangur.
Laugardagur 4. des. 1943.
273. tölublað.
——B1
AlþýðufræMa fulltrúaráðs
verklýðsf élaganna:
Upphaf íslenzkrar
sagnaritunar
Björn Sigfússon flytur nœsta
erindi á vegum alþýðufræðslu
fulltrúaráðs verklýðsfélaganna
og nefnir hann erindið: Upphaf
íslenzkrar sagnaritunar.
Björn hefur áunnið sér ó-
venju almennar vinsældir með
útvarpserindum sínum um ís-
lenzkt mál og hafa þau nú, sem
kunnugt er, verið gefin út í Er-
indasafni Útvarpstíðinda.
Björn er þaulkunnugur efni
því, er hann hefur valið sér
að umræðuefni og þurfa menn
því eigi að óttast það, að verða
fyrir vonbrigðum við að hlusta
á hann.
Afkomendur sagnaritaranna
gömlu munu því fjölmenna 1
Iðnó á sunnudaginn kemur.
Verziunarjöfnuðurinn
éhsgstsður um
14,5 millj. kr.
Samkvæmt skýrslu hagstof-
unnar er verzlunarjöfnuðurinn
fyrir timabilið janúar—október
1943 óhagstæður um 14.5 millj.
króna.
Á þessu tímabili hafa verið
fluttar út íslenzkar afurðir fyrir
kr. 192 062 010, en innfluttar
vörur fyrir kr. 206 632 730.
Á sama tíma í fyrra var verzl
unarjöfnuðurinn óhagstæður
um 9 millj. kr. — Út var flutt
fyrir kr. 181 487 700, en inn fyr-
ir kr. 191 053 060.
f októbermánuði s.l. var flutt
út fyrir kr. 17 848 320, en inn
fyrir kr. 27 691 800. Innflutning-
urinn í mánuðinum nemur því
tæpum 10 millj. kr. (9,84 millj.)
meiru en útflutningurinn.
Byggingafélðg vcrk>
manna stofnað í
Neskaupstðð
Byggingafélag verkamanna
hefur nýlega verið stofnað í
Neskaupstað, Norðfirði og heitir
það Byggingafélag alþýðu.
Stjórn félagsins er þannig
skipuð: Jóhannes Stefánsson for
maður, skipaður af félagsmála-
ráðherra, Lúðvík Jósefsson, Jó-
hann P. Guðmundsson, Oddur
A. Sigurjónsson og Kristján
Imsland.
Félagið hefur í hyggju að
hefjast handa með byggingu
verkamananbústaða þegar á
nscsta áii.
Utn 1000 flugvélar tóku þátt í árásínni
Melr eti eínn þndfé hluli borgarínnar i rúsfum
j DAö
er skiladagur í Þjóðvilja
söfnunmni. Sósíalistarog
allir velunnarar Þjóðvilj
ans!
Látið nú sjást að þið
kunnið að meta stækk-
un blaðsins og að þið ætl
ið að legffja fram ykkar
skerf til þess að átta síðu
blaðið sé örufffft um fram
tíðina.
Þið hafið aldrei bruffðizt
blaðlnu ykkar, þegar á
hefur legið. Þið munuð
ekki heldur gfera það nú.
Komið í daff á skrifstofu
Sósíalistaflokksins,
Skólavörðustíg 19 og sldl
ið af listum.
I
Berlín, sem þegar hafði orðið fyrir meiri loftárásum en
nokkur önnur borg í heimi, varð að þola eina árásina enn í
fyrrakvöld, eftir sex sólarhriga hlé. Það voru Landcester- og
Halifaxsprengjuflugvélar, sem árásina gerðu. Er talið sennilegt,
að þær hafi verið um 1000 að tölu. Yfir 1500 smálestum af
sprengjum var varpað á borgina, mest á ný skotmörk. Nákvæm
skýrsla hefur ekki verið gefin enn um tjónið, þar sem ekki er
búið að vinna úr ljósmyndum könnunarflugvéla, en fulltrúar
brezka flugmálaráðuneytisins eru óvanalega bjartsýnir og telja
ýmislegt benda til, að þetta hafi verið árangursmesta árásin,
sem gerð hefur verið á þetta höfuðvígi nazista. •
Þegar fyrstu flugvélarnar •
voru í um 80 km. fjarlægð frá
borginni mættu þær orustuflug-
vélum Þjóðverja og voru 1 ó-
slitnum bardaga við þær upp
frá því. Þegar yfir borgina kom
var loftvarnaskofhríðin óvenju
hörð. Ætluðu Þjóðverjar sér að
knýja árásarflugvélarnar upp í
háloftin, en engu að síður tókst
þeim að komast inn yfir hin
fyrirfram ákveðnu skotmörk
sín. Hófst árásin á borgina kl.
rúmlega 8 og stóð 1 röskar 20
mínútur.
Meðal skotmarkanna voru
heimskunnar verksmiðjur, nefni
lega A E G- og Simens- raf-
tækjaverksmiðjurnar, Ðaimler-,
Benz-, Focke Wulfe- og Heikel
verksmiðjurnar, mestu her-
gagnaiðnaðarstöðvar Þýzka-
lands. Flugmennirnir sögðu, að
kolsvartar reykjarsúlur hefðu
staðið nokkra kílómetra upp í
loftið.
Bretar sakna 41 flugvélar úr
árásunum 1 fyrrakvöld, en ekki
munu þær allar hafa farizt í
árásinni á Berlín, því að sam-
hliða þeirri árás voru einnig
gerðar árásir á Vestur-Þýzka-
land í truflunar skyni.
Þjóðverjar eru nú byrjaðir að
Átök um eigna-
aukaskattinn
flytja stjórnarskrifstofurnar
burt frá Berlín. Er kunnugt, að
utanríkisráðuneytið verður .flutt
til bórgarinnar Breslau í Schles
ien. Flytja erlendar sendisveit-
ir þangað um leið.
I síðastliðnum mánuði var
varpað yfir 21000 smálestúm
sprengna á Þýzkaland. Þar af
vörpuðu brezkar flugvélar um
14000 smálestum en Bandaríkja
menn um 7500 smálestum.
%
Mum ÞiMierja í Uia n looai-
sffl hæti oeoaa sioar Oðssa að aostao
Rauðí hcrínv fcfeur bæ 25 km. fyrír
vesfan Kremensfúg
Rauði herinn sótti víðast fram á hinni 1209 km.
löngu víglínu sinni í gær, en einkum þó á vígstöðvun-
um í Hvíta-Rússlandi og hjá Kremensjúg. Er hann nú
rúmiega 15 km. frá bænum Rogatséff, sem er við'járn-
braut frá Síobin um 18 km. fyrir norðan þá borg.
Hjá Kremensjúg tók rauði herinn í gær tylft bæja
og þorpa og þ. á m. bæ einn 25 km. fyrir vestan þá borg.
Rússar hafa enn færzt nær
Slobin. Eru þeir álíka langt
frá henni að austan og þeir eru
frá Rogatséff.
Járnbraut sú, sem liggur um
þessar tvær borgir, er á þessum
slóðum á afarlöngum kafla á
vesturbakka Dnépr eða skammt
frá. Er hún Þjóðverjum geisi-
Framhald á 8. síðu.
iil
sbíMhhm^ '&mm.
Undirbjuggu Roosevelt,
innrás á meghilandið?
Stalin og Churchill á fundum sínum í Teheran hina margumtöluðu
— Myndin sýnir Bandamenn hylja innrásarflota sinn í Alsír reykskýjum.
Frumvarp þeirra Haraldar
Guðm., Brynjólfs Bjarnasonar
og Hermanns Jónassonar um
eignaaukaskatt var til 2. um-
ræðu í efri deild í gær. Fjár-
hagsnefnd hafði klofnað um
málið. Lagði meiri hluti henn-
ar, þeir Har. Guðm., Brynjólfur
Bjarnascn og Bcrnharo Stefáns-
Framliald á 8. síöu.
Lítíl flugvélasprengía fellur
níður í Vesturbænum
Rúða brotnaði — annað tjón varð ekki
Lítil sprengja féll úr flugvél niðxu- á Bræðraborgarstíg Id.
um 10 mín. yfir 12 f, fyrradag.
Kom sprengjan niður fyrir utan húsið nr. 26 Gaus upp mik-
ill íeykur og rúða brotnaði í framhlið hússins, en ekkert slys
né annað tjón varð.
Lögréglan var kölluð á vett
vang og fóru íslenzkir og er-
lendir lögreglumenn þegar á
staðinn. Grunn hola, um fet í
þvermál, hafði komið í götuna
eftir sprengjuna, cn msrki eft-
ir SDi’crgiubrot og mcl hafa
sézt á húsinu er næst var, auk
rúðubrotsins og einhverjar
sprengjuflísar fundizt.
Enginn var á ferli á götunni
þegar sprengjan féll, ella hefði
slys getað hlotizt af.
ÁlitiC er að hér hafi verið
um æfingasprengju úr flugvél
að ræða, enda sást flugvél
fljúga yfir staðinn um þetta
leyti. Mun sprengjan hafa fallið
niður vegna bilunnar eða ein-
hverra mistaka, er talið að slíkt
komi sjaldan fyrir, — en
getur haft alvarlegar afleiðing-
ar.
.Atlantik* - ný ölgerð
Ný ölgerð hefur fengið leyfi
til að taka til starfa á Hörpu-
götu 24 hér í bœnum.
Ölgerð þessi nefnist „Atlan-
tik“. Eigandi er Jón Finnboga-
son, Hörpugötu 38.