Þjóðviljinn - 05.12.1943, Blaðsíða 1
8. árgangur.
Sunnudagur 5. des. 1943.
274. tölublað
I
Lzsio oer&itaiinagreir.G*nsr ’.
um „Vinnudag'c, sem birtar
eru á 4. og 5. síðu.
:
Leipzig verður fyrir stárárás
Snanjenka undír stórskofahríd Rússa
Eftir nokkurt hlé hafa borist nýjar fréttir af Mogi-
leffvígstöðvunum í Hvíta-Rússlandi.
Rauði herin hefur endumýjað sókn sína þar á
breiðu svæði og tekið enn 12 bæi og þorp. Mótspyma
Þjóðverja hefur verið snörp þarna og mikið manntjón
orðið í liði þeirra.
Rússar eru nú rúma 10 km. fyrir austan Slobin og
Rogatséff. í sókn sinni þangað í gær tóku þeir enn
yfir 30 bæi og þorp.
Efckerf láf á loffsókn Bandamanna
Aðalskotmark Breta í Þýzkalandi í fyrrakvöld var hin mikla
iðnaðarborg Leipzig í Saxlandi um 15ö km. fyrir sunnan Berlín.
Rússar sóttu víða fram á
Krementsúg-svæðinu í gær
Tóku þeir sjö víggirta, hernaðar-
Iega mikilvæga staði. Eru þeir
nú komnir svo nærri járnbrauta-
miðstöðinni Snamenka, að stór-
skotalið þeirra er byrjað að
skjóta á varnarvirki Þjóðverja
bjá þeim bæ. Sókn Rússa þarna
er börðust suðvestur af Kremen-
sjúg.
Bærinn Rogatsjeff í Hvíta-
Rússlandi, sem nú kemur mjög
við fréttir, stendur á vestri bakka
Dnépr við mikla brú, sem er
framhald af aðalþjóðveginum
frá austri til vesturs á þessum
slóðum. Er sú samgönguleið
Þjóðverjum engu síður mikilvæg
en járnbrautin, sem liggur um
Slobin 18 km. sunnar.
Þjóðverjar hafa haldið uppi
pBarnavefkí í
P Vesf mannaeyjnm
5'
Bamaveiki hefur komið upp á
’ einu heimili í Vestmannaeyjum og
hefur 5 ára gömul telpa látizt úr
henni.
Heimili þctta, sem veikin er á,
hefur verið einangrað.
Rafm^gnsbllun í gærkveldi
Rafmagnslaust varð allvíða í.
bænum í gærkvöld og var raf-
magnið ekki komið alls staðar
í Iag seint í gærkvöld.
Bilunin var einhversstaðar í
háspennutaug, en eigi var raf-
magnsmönnunum nánar kunn-
ugt um bilunina, þegar Þjóð-
viljinn átti tal við þá seint í
gærkvöld, en þá töldu þeir
að viðgerð myndi brálega verða
lokið.
Bilunin varð kl. rúmlega 9 og
varð þá allvíða. Miðbærinn varð
a. m. k. Ijóslaus fram yfir mið-
nætti.
harðvítugum gagnárásum á Tsér
kassí-vígstöðvunum, en ekki náð
neinum árangri.
Á einum stað Hvíta-Rússlands
vígstöðvanna kom rauði herinn
í tæka tíð í fyrradag til að hindra
Þjóðverja á síðustu stundu í því
að flytja þúsundir manna vest-
ur á bóginn í nauðungarvinnu.
í gær eyðilögðu Rússar fyrir
Þjcðverjum 29 skriðdreka Æg 12
flugvélar.
FramtíPa friður veftur
á samvlnnu Bretlands
og Sovétríkjanna
seoir erkibiskupinn afYork
„Sovétríkin hafa nær ótak-
markaða framtíðarmöguleika, ef I
þau fara elcki of illa út úr |
styrjöldinni“, segir einn œðsti
maður brezku kirkjunnar, erki
biskupinn af York, í grein, er
vakið hefur mikla athygli.
Biskupinn er nýlega kominn úr
ferð um Sovétríkin.
„Þessi mikla þjóð verður mik
ils megnug á friðartímum.
Hún á svo glæsilega leiðtoga,
ágæta vísindamenn og mikla
atorkumenn á sviði, verkfræði
og vinnu, skáld og hugsuði
að engar þjóðir eru þar sovét-
þjóðunum fremri. Og Sovétrík-
in eiga hrausta æsku, sem fús
er að ganga í dauðann fyrir
ættjörð sína ef þess gerist þörf.
Framtíðarfriður og velferð
mannkynsins veltur að miklu
leyti á því hvernig samvinna
okkar við hinar miklu sovét-
þjóðir tekst. Þrátt fyrir það, að
margt sé ólíkt með okkur og
sovétþjóðunum, verðum við að
leggja okkur fram til að rækta
skilning og vináttu milli Sovét
I ríkjanna og Bretlands.
Sex ára drengur verð-
ur fyrír heibifreið
og bíður bsna
Það Slys vildi til í gœr, að 6 ára
drengur varð fyrir erlendri herbif-
reið og beið bana skömmu síðar.
Þessi 6 ára drengur hét Jens
Kristinn Þorsteinsson, sonur Þor-
steins Guðmundssonar skipstjóra,
. Kaplaskjólsvegi 12.
Slys þetta gerðist laust fyrir kl.
hálf þrjii í gær og var drengurinn
fyrir utan húsið nr. 11 við Kapla-
skjólsveg þegar hann varð fyrir
bifreiðinni.
Vitavðrðurinn í Gróitu
biargar 24 strand-
mönnum
Vítavörðurinn f Gróttu, AI-
bert Þorvarðarson, bjargaðl fyr-
ir nokkru síðan 24 erlendum
mönnum, sem voru strandaðir
á Skerjafirði.
Sá hann þegar þeir strönduðu
á skerinu og fór þeim til bjarg-
ar og tókst að bjarga þeim öll-
um, 24 að tölu, þótt aðstaða til
björgunar væri allerfið.
Brezku flugvélarnar stefndu
í byrjun til Berlínar í blekking-
arskyni. Tókst það bragð vel
því að Þjóðverjarstefnduöllum
þorra orustuflugvéla sinna þang
að, til að taka þar á móti Bret-
um. En er Bretar áttu skammt
til Berlínar sveigðu þeir til suð
urs í áttina til Leipzig Þjóð-
verjar áttuðu sig ekki nógu
fljótt á þessu, og voru sprengju
flugvélarnar búnar að varpa
flestum sprengjum sínum á
skotmörk sín í Leipzig og þær
fyrstu komnar á heimleið aftur,
þegar orustflugvélar Þjóðverja
komu á vettvang.
Árásarflugvélarnar ’ vörpuðu
niður yfir 1500 smálestum
stórra sprengna og eldspreng-na.
Urðu brátt miklir eldar og auð
séð að slökkviliðið réð ekki við
neitt. Reyksúlurnar stóðu marg
ar mílur upp í loftið.
Könnunarflugvélar Breta sáu
feiknabál í borginni 12 tímum
seinna.
Abcssínía vcrður
lýðrœdísríkí
Nefnd Abessiníumanna og
Breta vinnur að samningu nýrr
ar stjórnarskrár fyrir Abessin-
íu, samkvæmt fyrirmælum
Haile Selassie ke'sara.
Er hin nýja stjórnarskrá á
lýðræðisgrundvelli, og gerir ráð
fyrir þjóðkjörnu þingi.
Bjarghring af Hiimi
rekur
Bjarghring, merktan v.b.
Hilmir hefur rekið undan Sax-
hóli í Beruvík á Snæfellsnesi
Virðist af því mega ráða að
Hilmir hafi farizt eigi allfjarri
Snæfellsnesi. Áður hafði ýmis-
legt annað úr skipi rekið þar
vestra, svo sem árar, lúgur o.
fl. Hefur það nú verið flutt
hingað suður og verður nánar
athueað hér.
Upphaf íslenzkrar
sagnaritunar
erindi Björns Sigrfússonar
flutt í dag í Iðnó
Það er í dag, sem Bjöm Sig-
fússon magister flytur erindi
sitt um upphaf íslenzkrar sagn
ritunar.
Fyrirlesturinn er fluttur á
vegum alþýðufræðslu fulltrúa-
ráðsins og ættu alþýðumenn
ekki að láta þetta tækifæri
ganga sér úr greipum til þess
að hlusta á þenna ágæta fyrir-
lesara ræða um upphaf þeirra
bókmennta, sem íslenzka þjóðin
á álit sitt meðal annarra þjóða
fyrst og fremst að þakka.
Fyrirlesturinn verður fluttur
í Iðnó kl. 2 í dag.
Tímarit Háls og menn-
ingar nýkomíð út
Tímarit Máls og menningar, 2.
hefti 1043, kom út í gær.
Efni þessa heftis er allfjölbteytt.
Gunnar Benediktsson skrifar um
íslenzka menningu, Halldór Kiljan
Laxness skrifar um Pál ísólfsson
fimmtugah, og aðra grein um sjálf-
stæðismálið: Nítján hundruð fjöru-
tíu og þrjú. Kristinn E. Andrésson
skrifar um bandalag vinnandi stétta.
Björn Franzson á þarna grein er
hann nefnir Hagfræði og heilaspuni.
Þá eru 2 þýddar greinar, ræða eftir
Joseph Davies: Önnur för til
Moskva og grein um skáldsögur
John Steinbecks, eftir Arthur Cald-
er Marshall. Kvæði eru eftir Jó-
hannes úr Kötlum, Snorra Hjartar-
son og Jón Óskar og smásaga eftir
Guðmund Daníelsson. — Ennfremur
eru ritdómar o. fl.
Trunaoarráðsftmdiir Dags-
brúnar
Trúnaðarmannaráð Dagsbrún-
ar heldur fund í kvöld kl. 8.30
í baðstofu iðnaðarmanna.
Halldór Pétursson og Sigvaldi Þor-
steinsson hlutu fyrstu verðiaun í
greinasamkeppniflni
Fyrstu verðlaunin í samkeppninni um vinnudagsgrein-
arnar hlutu Halldór Pétursson, Reykjavík og Sigvaldi Þor-
steinsson, Akureyri.
Nefnir Halldór grein sína „Vinnudagur á Djúpavík“, en
grein Sigvalda nefnist „Tvílembingar að veiðum“. Báðar
þessar greinar eru birtar á 4. og 5. síðu blaðsins í dag.
Næst verða verðlaun veitt um næstu helgi, og birtist sú
grein, er verðlaun hlýtur, % sunnudagsblaðinu. — Blaðið á-
skilur sér rétt til að birta einnig þœr greinar, sem ekki hljóta
verðlaun, en það verður ekki gert fyrr en búið er að skipta
um efni í samkeppninni.
Greinar sem komnar eru og ekki hlutu verðlaun að þessu
sinni, koma til greina við næstu verðlaunaúthlutun.