Þjóðviljinn - 08.12.1943, Page 1
ilggur í Þjóðvcrjuin og ícppríbjunum
í gærkvöldi var gefin út opinber tilkynnmg í Kairo
um fund þann, sem þar hefur verið haldinn undanfarið
og míkið umtal orðið um.
Er þar staðfest, að Inöny, forseti Tyrklands hafi set-
ið þar á fundi með Roosevelt og Churchill, ásamt utan-
ríkisráðherra Tyrklands, í þrjá daga, þann 4., 5. og 6.
desember.
Tyrklands forseti sótti fundinn samkvæmt boði rík-
isstjórna Bretlands, Bandaríkjanna og Sovéiríkjanna.
Sendiherra Sovétríkjanna í Ankara, höfuðborg Tyrk-
lands, og aðstoðarmenn hans voru viðstaddir allar við-
ræður, sem máli skiptu.
mm prBnssa m auaistisimd. -
Láta undan síga víð Sítomír og Korosten
Stórbardagar voru aðeins háðir á tveim stöðum aust-
urvígstöðvanna í gær.
Suðvestur af Kremensjúg tóku Rússar í gær járn-
brautarbæinn Pantajefka, þrátt fyrir harðvítug gagn-
áhlaup Þjóðverja. Tóku þeir samtals yfir 16 bæi og þorp
á bessum vísrstöðvum í erær.
Sagt var að þeir hefðu rætt (
stjómmálaástandið yfirleitt og
stjórnmálastefnu þá, sem fylgt
verður í alþjóðamálum.
Lögð var áherzla á hið nána
samband milli Tyrklands og
Bretlands, Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna í afstöðunni til
heimsmálanna og hina vinsam-
legu sambúð Tyrkja við þessar
þjóðir.
Þýzkir talsmenn hafa sýnt
vaxandi óróleika undanfarið
vegna ráðstefnunnar í Teher-
an og þessarar ráðstefnu í
Kairo.
Sendiherra Búlgaríu í Ankara
fór í gær á fund tyrkneskra
ráðamanna, og síðar um daginn
var búlgarska stjórnin kvödd á
aukafund.
Fréttaritarar herma, að kom-
ið hafi í ljós, að Stalin hafi
látið mest til sín taka í við-
ræðunum. Lék hann oftast'við
hvem sinn fingur, en stundum
datt hvorki af honum né draup.
Churchill og Roosevelt flugu
til Teheran 27. nóvember með
ráðgjöfum sínum. Stalin, Molo-
toff og Voroshiloff flugu frá
Moskva 26. nóvember í far-
þegaflugvél, og fylgdu þeim bar
dagaflugvélar.
Uiinið að vegalanningu f
Siglufjarðarskarði f vetur
Álcveðið h-ejur verið að vinna á
þessuvi vetri að lagningu vegarins
yjir Siglujjarðarslcarð.
Verður unnið að því að sprengja
klettabelti í skarðinu og lækka veg-
arstæðið um 11 mctra. Ennfremur
verður unnið að því að sprengja 70
metra breitt klettabelti sunnan
skarðsins að austan.
Friðgeir Árnason stjórnar verk-
inu, og verður 7það hafið innan
.skamms.
Fundimir voru bæði í sendi-
herrabústað Rússa og Breta,
sem standa hlið við hlið.
Roosevelt og Stalin ræddust
við í IV2 tíma, áður en Churc-
hill kom.
Fyrstu þrír dagarnir fóm í
umræður um hernaðarrekstur-
inn, en fjórða daginn um frið-
armálin.
Einkennileg áskorun
Mikhailovits hershöfðingi hef-
ur skorað l á allar hersveitir
Júgóslava, sem berjast gegn
Þjóðverjum, að fylkja sér undir
sína stjórn.
Mun þessari áskorun einkum
beint til herja þeirra, sem eru
undir stjórn Titos hershöfðingja
En tala hermanna hans er sam-
kvæmt frétt frá Reuter nálega
250000 og fer vaxandi. En liðs-
afli Mikhailovits nemur 30—
50000 samkvæmt sömu heimild.
Er það opinberlega viðurkennt
í London, að það er her Titos,
sem valdið hefur öllum erfið-
leikum Þjóðverja á ströndum
Dalmatíu og víðar um Júgó-
slavíu. En Mikhailovits hafi
lítt látið til sín taka. Enda
hefur hann sjálfur sagzt vera
að spara lið sitt þangað til inn-
rás Bandamanna hæfist.
Er og þeim mun ólíklegra, að
hermenn Titos hlýði þessari á-
skorun Mikhailovits, sem þeir
hafa hvað eftir annað borið hon
um og Sétnikum hans á brýn,
að þeir hefðu samvinnu við
Þjóðverja og ítali. Enda hefur
sá áburður hlotið staðfestingu
með ávarpi því, sem sir Mait-
land Wilson, yfirmaður brezka
hersins við austanvert Miðjarð-
arhaf, sendi til Júgóslavíu fyr-
ir skömmu, þar sem hann hót-
aði hörðu þeim svikurum, sem
gengju erinda Þjóðverja.
Sjódómi Reykjavíkur falin
rannsðkn Hilmisslyssins
Ejtirjarandi tilkynning hejur
Þjóðviljanum borizt jrá atvinnu-
og samgöngumálaráðuneytinu:
Ráðtineytið hefur í gær falið lög-
manninum í Reykjavík að annast
um það, að sjódómurinn í Reykja-
vík táki til meðferðar og rannsókn-
ar þau atvik, er kynnu að geta leitt
í ljós ástæður til þess að m.s. Hilm-
ir frá Dýrafirði fórst í síðastliðnum
mánuði nálægt Snæfellsnesi.
Úrslitaieikur miili Ár-
manns og KR í kvðld
Sundknattleiksmót Reykjavílcur
hefur staðið yfir undanfarna daga,
og lýkur í kvöld með Ieikjum milli
K.R. og A-sveitar Armanns, og B-
sveitar Ármanns og Ægis. Það sem
lokið er af mótinu hefur farið þann-
ig, að K.R. vann B-sveit Ármanns
með 4:1, Ármann vann Ægi með
0:0, A-sveit Ármanns vann B-sveit
Ármanns með 7:1 og K.R. vann
Ægi með 5:2. Eru því K.R. og A-
sveit Ármanns jöfn að stigatölu,
með 4 stig hvort, en B-sveit Ár-
manns og Ægis með 0 stig. Má því
búast við harðri keppni, því full-
víst má telja, að hvorugur gefi sig
fyrr en í fulla hnefana. Keppt er
um „Sundknattleiksmanninn“, er
gefinn var af hr. Tryggva Ófeigs-
syni skipstjóra árið 1940, og er hinn
Framhald á 8. síðu.
Einn ræðumanna lét þá von
í ljós, að Danir eignuðust brátt
herskip, skipuð dönskum sjólið-
um, sem tækju þátt í hernað-
araðgerðum.
Heiðursgestui' hátíðarinnar
Búizt er við að rauði herinn
taki Snamenka þá og þegar.
Er hann nú skammt frá þeim
bæ frá þrem hliðum.
Um 15 km. sunnar, við bæinn
Kirofka, er aðstaða Þjóðverja
einnig orðin slæm.
Yfirráð Þjóðverja 1 Smiela
eru og talin í hættu.
Þjóðverjar sækja nú á af
feikna krafti á vesturhluta Ki-
eff-vígstöðvanna. Hefur rauði
herinn yfirgefið nokkur þorp á
milli Sitomír og Korosten. Bar-
dagarnir eru ákafastir í ná-
grenni Stírníakoffs. Hefur
hörðum áhlaupum skriðdreka
og fótgönguliðs verið hrundið
sunnar á þessum vígstöðvum.
í fyrradag eyðilögðu Rússar
128 skriðdreka og 29 flugvélar.
Ber þessi aukning vott um
hörku bardaganna.
Rússneskum blöðum liggur
þungur hugur til Finnlands.
Fullyrða þau, að aldrei hefði
tekizt að loka hringnum um
Leningrad, ef ekki hefði notið
aðstoðar Finnlands, en eins og
kunnugt er lézt um helmingur
borgarbúa úr hungri og harð-
• rétti meðan á umsátinni stóð.
Ryti, forseti Finnlands hélt
ræðu í gær í tilefni af þjóðhá-
tíðardegi Finnlands. — Lét hann
svo ummælt, að Sovétríkin
mundu vera sterkasta herveldi
heimsins og Bandaríkin mesta
var Hákon Noregskonungur.
Var honum sýndur mikill sómi.
.Meðal kunnustu Dana þarna
voru Reventlow greifi, sendi-
herra Daná í London og Christ-
mas Möller.
hergagnaframleiðslulandið. Horf
urnar væru ekki glæsilegar, en
engu að síður kæmi ekki til
mála, að Finnland gæfist upp
skilyrðislaust.
Kostnaðurinn við
UNRRA
Ráðstejnan í Átlantic City hej-
ur samþykkt þá leið til telcjuöjlun-
ar jyrir stojnunina, að óhemumdu
þjóðimar leggi jram 1% aj ríkis-
telcjum sínum. Mun það samtals
nema um 625 milljónum sterlings-
punda á árí, á meðan með þarj. —
Kevm$ bróðurparturínn jrá Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Verða út-
gjöld Bandaríkjanna um 375 miUj.
sterlingspund, en Brctlands um 159
millj. sterlingspund.
Lehmann, formaður ráðstefn-
1 unnar, hefur veitt þær upplýs-
I ingar, að gert sé ráð fyrh', að
: herteknu þjóðirnar átta: Belgía,
Holland, Frakkland, Grikkland,
Noregur, Pólland, Júgóslavía og
Tékkóslóvakía, þurfi um átta
milljónir tonna af matvælum á
fyrstu sex mánuðunum eftir
stríðslokin. Auk þess þurfi þær
um fimmtíu milljónir tonna
af ýmsum vörum til uppbygg-
ingarinnar.
Fimleikasýsing Ármanns f
gærkvfild
Glímujélagið Ármann ejndi til
jimleikasýningár í gœrkvóldi jyrír
jullu húsi áhorjenda.
Fjórtán manna úrvalsflokkur
karla sýndi fimleika. Fyrst voru
staðæfingar, því næst voru stökk
yfir hesta og kistur, er tókust vel.
Þá \roru æfingar á slá, sem tókust
ver en skvldi.
Því næst sýndu þeir „meistara-
stykki“ sitt, er sjö Ármenningar
stóðu á höndunum á kistu, og er
það í fyrsta sinn, sem slíkt er sýnt.
opinberíega hér (og sumir telja
vafasamt, að það hafi sézt annars
staðar.
Að lokum sýndu þeir stökk og
glímu og tókst það ágætlega.
Flokknum var mjög vel fagnað.
Væri æskilegt, að Reykvíkingum
gæfist oftar tækifæri á að sjá slíka
skekmntun scm þessa.
Danir i tðlu Bandamanna
Danir hafa hlotið viðurkenningru Bandamanna, sem
samherjar í stríoinu gegn Hitler.
Þetta gerðist í sambandi við hátíðahöld, sem haldin
voru í London í gær. Voru þar brezkir ráðherrar og full-
trúar frá <Noregi, Hollandi og Belgíu. Héldu þeir ræður,
þar sem þeir lofuðu mjög hina hetjulegu baráttu dönsku
þjóðarinnar gegn ofureflinu og hina miklu aðstoð danskra
sjómanna í siglingum yfir hættusvæðin, og lýstu því yf-
ir, að Danir yrðu hér eftir skoðacir sem bandamenn í
stríðinu gegn Hitier.